Morgunblaðið - 07.12.1947, Side 7

Morgunblaðið - 07.12.1947, Side 7
Sunnudagur 7. des- 1947. MORGUNBLAÐIÐ Ný hók! Sjálfsævisaga sjera Þorsteins Pjeturssonar Staðarbakka HARALDUR SIGURÐSSON, BÓKAVÖRÐUR BJÓ TIL PRENTUNAR Sjera Þorsteinn var uppi um miðbik 18. aldar. Hann var einn af fyrir- klerkum síns tíma og lengi prófastur, alvörumikill í prestsstörfunum, boðaði söfnuði sínum „ágæt huggunarmeðöl og hjartastyrkingu gegn freistingunum“ en var jafnframt vandlætingasamur og gekk fast eftir því, að halda uppi „kristilegu skikki og kirkjunnar aga“ jafnt meðal almúgans, sem breiskra embættisbræðra sinna, sem hann staðfastlega „moraliseraði og satýriseraði“, yfir og var þá stundum svarað fullum hálsi af „hugmóð og sjerþótta“. Sjera Þorsteinn komst ungur undir áhrif Harboes biskups og heittrúar- stefnu þeirrar, er hann boðaði. Æfisagan er einstæð heimild um viðtökur þær er heittrúarstefnan hlaut hjer á landi og áhrif hennar. En æfisagan er auk þess merk menningarlýsing aldarinnar. Andlegt líf og hagur landsmanna á þessu erfiða tímabili blasir við frá sjónarholi sjera Þor- steins. Hrossakjötsát, nýir skattar, tíundarsvik, brennivínsdrykkja, opinberar skriptir, fjárkláði, agaleysi ungdómsins og hjúanna og annað böl aldarinnar er þar rakið og rökrætt. Har.n ber takmarkaða virðingu fyrir embættismönnum þeim, sem vilja ala „knegtana suður á Ariiarhóli“ í sjálfræði og agaleysi. Og uppreisnarhugur almúgans á þessari öld einveldis og embættisvalds kemur einnig fram í bókinni, er sjera Þorsteinn er kvaddur til að koma lögum yfir óhlýðinn söfnuð Vatnsnesinga, er hjelt kirkjulykli fyrir presti, svo hann ekki fjekk messað og síðar gekk í hóp úr kirkjunni, er predikun hófst Og er söfn- uðurinn síðar í nokkru ffekk meðhald segir frá því, að þá „vóx hugur* dugur og hofmóður Vatnsnesingum“. Sjera Þorsteinn var mikilvirkur rithöfundur, þótt rit hans hafi hingað til ekki verið prentuð. Þekktastur er hann fyrir rit er hann skrifaði gegn leikum og dansi og kallað er „Leikafæla“. Það rit var vakið af umhugsun um „hina háskalegu eymdartíma“ og er aðvörun til ,,fólksforingjans“, Bjarna sýslumanns á Þingeyrum, er hjelt jólaleiki og veislur „kræsilegar“ og bauð þnngað „jafnvel kvenfólki“, en „allur seiskaburinn“ dansaði í Þingeyrastofu . með gleði og gjálífi miklu“ allt frá þriðja í jólum og tíl nýárs, eftir pípu Pjeturs hins jótska, eins og segir frá í æfisögunni. Æfisagan er nú prentuð í fyrsta sinni' í vandaðri útgáfu Haralds Sigurðs- sonar, bókavarðar sem ritar ýtarlegan inngang og skýringar. Sjálfsæfisaga sjera Þorsteins er hliðstæð hinum klass- isku æfisögum sjera Jóns Steingrímssonar og Jóns Indíafara. Þetta er jólabók allra bókamanna og þeirra, er leggja hug á sögu þjóðarinnar og hætti fyrri tírna. Komin í bókabúðir --Álíacilúc) UNGLINGA vantar til að bera ui Morgunblaðið i eftir- talin hverfi: Lindargaia Vssfurgofu CZECH WOOL MILLS National Corporation LIBEREC. CZECEIOSLOVAKIA, er samsteypa 8 stærstu og þekktustu vefnaðarvöruverksrniðja og 10 spuna- verksmiðja þar í landi. Verksmiðjur þessar framleiða fyrsta flokks fata- og frakkaefni, alullar Gaberdine til iðnaðar o. fl. o. fl. Stórt sýnishornasafn af vor- og sumarefnum fyrir hendi. Jón Heiðberg umboðs- og heildverslun, •» Laufásvcg 2A. <& Vi'8 sendum blöSin heim til barnanna. Talið strax við afgreiðsluna, simi 1600. Hárgreiðslu og snyrti- stofan EDMÉE H'ifnarfirði- Andlitssnyrting. Handsnýrling. Fóstsnyrting. Upplýsingar í síma 9350. Sögur og æfintýri eftir Sigurjón Jónsson■ er komin í bókaverslanir og hefir þegar vakið mikla athygli. Það er orðinn viðburður að fá nýja bók eftir þennan höfund, sem fyrir nokkrum árum var mest umtalaði rithöfundur landsins- Þessi bók er frábær- lega skemtilega skrifuð, góð og falleg bók Ur ritdómum um fyrri bækur S. J.: Alþýðublaðið: . . . Það er nýtt að hugsa ó- bundið mál duna eins og dýran hátt. Það er nýtt að finna straum lifsins falla óbrotinn og tilgerðarlausan um hug ann við lestur skáld- sögu, en því veldur þessi bók. . . . H. H. Tíminn: .... Enginn, nema skáld, getur dregið upp svona stórfenglega og glæsilega mynd. Jeg efast um að nokkurt islenskt skáld hafi endað sögu jafn fallega og skáldlega.... G. Ó. Fells. Litla jólasýningin er í dag Lítið í gluggana ora BEST AÐ AUGLÝSA S MORGUNBLAÐUW

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.