Morgunblaðið - 20.12.1947, Side 8

Morgunblaðið - 20.12.1947, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 20. des. 1947 % Útft.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Fr&mkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjalú kr. 10,00 á mánuði innanlands, kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið. 75 aura með Lesbók. Síldin og dýrtíðin SlLDARAFLINN, sem borist hefur á land undanfarnar vik- ur er óvæntur og þýðingarmikill fengur fyrir þjóðina. Fyrir síldarafurðirnar fæst sá gjaldeyrir, sem okkur mest van- hagar um. Við áframhaldandi síldveiði í vetur eru þess vegna miklar vonir bundnar, ekki aðeins hjá hinu opinbera, held- ur og fjölda sjómanna og útvegsmanna, sem illa eru á vegi staddir eftir þrjár síldarleysisvertíðir. , Enn sem komið er hafa fjölda mörg skip naumast aflað fyrir kostnaðinum við útgerð sína. Þess misskílnings hefur sumsstaðar orðið vart að vegna síldaraflans og þeirra auknu gjaldeyristekna, sem af þeim hafa leitt, væri nú minni nauðsyn á því að snúast gegn þeirri hættu, sem verðbólgan og dýrtíðin hefur í för með sjer fyrir atvinnuvegi landsmanna og afkomu fólksins. En sannleikurinn er sá, að síldveiðin hefur engan veginn dregið úr þeirri nauðsyn. Framleiðslukostnaðurinn við þær atvinnu- greinar, sem nú berast í bökkum, hefur ekki lækkað þrátt íyrir komu síldarinnar í Hvalfjörð. Hraðfrystihúsin, báta- útvegurinn og jafnvel togaraútgerðin eru ekki samkeppnis- hæfari á erlendum mörkuðum þótt við eignumst nokkra tugi milljóna króna í dollurum og pundum. Á það má einnig benda að leiga hinna erlendu skipa, sem fengin hafa verið til síldarflutninga, kostar mikinn erlendan gjaldeyri. Er áætlað að fram til áramóta muni þessi leiga nema um 3 milljónum íslenskra króna í dollurum og sterlings pundum fyrir hin erlendu skip. En það var engu að síður sjálfsagt að leigja þau. Það mun áreiðanlega borga sig fyrir hið opinbera og ekki síður fyrir sjóm. og útvegsm. Það varð heidur ekki umflúið að ríkissjóður tæki á sig þá áhættu, sem felst í geymslu sildarinnar hjer í Rvík. Til þess bar brýna nauðsyn að greiða á allan hátt fyrir því að veiðarnar gætu gengið sem greiðast. En sú síld, sem lögð er upp til geymslu hjer urrt skemmri eða lengri tíma, hlýtur að rýrna verulpga eða jafnvel skemmist. Fram hjá þessari áhættu var ekki hægt að komast, eins og allar aðstæður voru er hin óvænta síldveiði hjer syðra hófst. En þess lengur sem hún stendur þess meiri möguleikar skapast til þess að haga móttöku hennar sem skjótast og örugglegast fyrir ália aðilja. En einmitt þessi síldveiði sýnir, hversu við Islendingar höfum nú mikla möguleika til þess að hagnýta okkur þá miklu möguleika, sem mikil síldargengd að landinu býðu.r upp á. Aukning bátaflotans og bygging hinna nýju síldar- verksmiðja hefur stóraukið framleiðslugetu þjóðarinnar á þessum verðmætu útflutningsafurðum. Þessir möguleikar hljóta síður en svo að draga úr áhuga almennings fyrir því að leggja fram sinn skerf til þess að stöðva verðbólguna og treysta efnahagsgrundvöll framleiðsl- unnar. Þeir sýna að þjóðin getur átt glæsilega framtíð í vændum, ef hún aðeins vill líta raunsætt á málin. Til þess að hún geri það þarf hún ekki að hefja upp neinn hrun- stefnusöng. Á þetta bentu ráðherrar Sjálfstæðisflokksins í umræðunum, sem útvarpað var frá Alþingi í fyrrakvöld. Þjóð, sem hefur á örfáum síðustu árum stigið slík risa- skref í framförum og umbótum, sem raun er á með okkur íslendinga, getur ekki látið 328 vísitölustig, ríða efnahagslífi sínu að fullu. Hún hlýtur þvert á móti að ráðast fneð sama kjarkinum gegn dýrtíðarhættunni og hún áður sýndi í bar- áttu sinni fyrir glæsilegum framförum og umbótum. Það er þetta, sem hú er mests um vert. Þjóðin vérður að heyja baráttuna við stundarörðugleika af kjarki og bjartsýni. Bölsýni er ekkert bjargráð. Þess eru engin dæmi að nokk- ur þjóð hafi sigrast á örðugleikum, sem að henni steðjuðu með því að láta við það sitja að þylja kveinstafi. Það er ekki að líta raunsætt á hlutina. Slíkt raunsæi er ekki það, sem við þörfnumst í dag. Við þurfum aðeins að gera okkur það ljóst, hvar við stöndum og síðan að taka upp baráttuna við örðug- * u leikana. Islensk saga er full af baráttu. En það var vegna þess að foringjar hennar og fólkið sjálft var bjartsýnt og trúði á framtíð sína og lands síns, sem að sigur vannst. Þess er hollt ' áð minnast í dag. \Jíbverji ábrifar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Bananar. FYRIR einum tuttugu árum gekk dægurlag eins og eldur í sinu um allan heim, þar sem viðlagið var: „Yes, we have no bananas to day“ (Já, við höfum enga banana í dag). Þetta þótti ósköp fyndið dægurlag, svona á borð við „Billy boy“ og alla þessa helstu. — — Við höfum getað sagt það með sanni síðustu 8—9 árin, að við hefðum enga banana. Það tekur því varla að telja þessa, sem kosta 10—12 krónur stk., sem framleiddir hafa verið í gróðurhúsunum. Þeir eru eins og vínberin íslensku, meira til að sanna, að hjer sje ekki hægt að rækta suðræn aldini, nema sem lúxusvöru, en ekki til þess að erta bragðlauka almúgans. • Venezuelafararnir. ÞEIR, sem lásu „Brazilíufar ana“ á unga aldri, undruðust það hugrekki, sem þeir Islend- ingar sýndu, er lögðu í hið langa ferðalag til Suður-Am- eríku. Ef einhver hefði sagt, að ekki myndu líða margir mannsaldrar, þar til íslending- ar eignuðust farartæki sjálfir, sem myndu skreppa frá Róma- borg til Venezuela, með við- komu á Islandi, á skemmri tíma. en einni viku, hefði ver- ið hlegið dátt að slíkum aul- um og draumóramönnum. En þetta er nú einmitt það, sem skeð hefir í þessari viku. — ,,Hekla“, Skymasterflugvjel Loftleiða, er komin heim úr einu slíku ferðalagi. — Og svo segja menn í fullri alvöru, að ekkert sje nýtt undir sólinni! • Aldini frá Suður- Ameríku. OG VENEZUELAFARARNIR koma heim, ekki einungis með frægðina, heldur með hlaðið flugfar af aldinum frá Suður- Ameríku. Þetta kollvarpar að sjálf- sögðu öllum hugmyndum þeirra manna, sem árum saman hafa alið þá von í brjósti, að ísland yrði forðabúr Evrópu að suð- rænum ávöxtum í krafti síns hverahita. Bananar frá gróðurhúsum á íslandi verða bara hlægilegir og allar vonir um fjöldafram- leiðslu af appelsínum, tröllepl- um (melónum) og jafnvel kó- kos-hnetum verða að engu. Þétta eru útaf fyrir sig sorg- legar staðreyndir, en eigi að síður holl lexía. • Ávextir fyrir fisk. FLUGTÆKNIN hefir gert Einbúan í Atlantshafi að heims bor^ara. — Fjallkonan er orð- in nábúi Jóns Bola, Mariönnu ’innar frönsku. Samúel frændi er orðinn heimilisvinur hennar. — Jafnvel Björninn rússneski guðar á gluggann við og við. Til góðs eða ills. Staðreynd- irnar verða ekki umflúnar. Samkvæmt Alþingissamþykt eiga íslendingar að hafa sína nýju ávexti á öllum tímum árs og einu sinni vill svo vel til að áróðurssamþykt þarf ekki að vera nein bágbilja. Við get- um flutt út fisk — besta fisk í heimi — með flugvjelum og fen"ið suðræn aldini í staðinn. Hvort sem vil viljum frá Vene zuela, Timbukto eða Sikiley. ,,Bara hringja, þá kemur það“, sögðu Silli og Valdi — ,,og af ávöxtunum skulum þjer þekkja þá“, bættu þeir svo við. • Fegurðarauki. FYRIR nokkrum dögum var stungið upp á því hjer í dálk- unum, að vel væri til fundið, ef einhver góð stofnun vildi veita. verðlaun fyrir bestu glu^jaskreytinguna árlega fyr ir jólin. Það var bent á, að fallegar glu^gaskreytingar væru fegurð arauki í bænum og þeir kaup- menn ættu heiður skilið, sem stuoluðu að slíka. ■— En yfirleitt má segja, að þessi hugmynd hafi fengið lítinn byr. — Verslanir hafa ekki sjeð sjer fært eða kært sig um, að slanda í slíku. . Ljósaskiltin hverfa. FYRIR EINA tíð þótti það ekki nein verslun, sem ekki kom upp hjá sjer fallegu og marglitu rafmagnsljósaskilti. Síðan hafa tímarnir breyst og mennirnir með, illu heilli. — Víða um borgina má sjá rúst- ir bessarar stefnu. — Gömul og máð rafmagnsskilti, þar sem aðeins sjest helmingur nafns- ins, sem einu sinni lýsti björt- um rafstöfum. En þetta kemur í tísku aftur og bað er gleðilegt að sjá, að enn eru til menn, sem hafa trú á því að það þorgi sig að minna á sig, og gera götulífið litauð- ugra. — Fvrir nokkrum dögum er komið upp þetta líka fína Ijósa skilti á verslun Marteins Ein- arssonar við Laugaveginn. Og þar er nú ekki kotungsbragur- inn á. • Yrkisefni. HÚSBYGGINGAR og luktar- stólpar, sólskinsgeislar á Aust- urstræti, víxlar komnir að falli og Arnarhólstúnið, hafa orðið góðskáldum vorum yrkisefni, eins og Tómas sannar. — En hvað eru neonljós nútím- ans annað en sólargeilsar t skammdegisins? Það er hættulegur leikur að spá, en þó skal það gert hjer. Og spáin er sú, að nú að af- loknu járnsmiðaverkfalli og með nýrri íoppstöð við Elliða- ár fjölgi neonljósum bæjarins til muna, ef Fjárhagsráð og síld in í Sundunum leyfir, en góð- skáldin setjast við og yrkja um ljósadýroina. MEDAL ANNARA ORÐA . ... .. - - - - j Eftir G. J. A. Hempyþjófur og ísienskur iélmmm ÞAÐ ER ánægjulegt að koma niður á skrifstofur flugfjelag- anna þessa dagana, og sjá fólk- ið, sem er að flýta sjer heim fyr ir jólin. Margt af þessu fólki er námsfólk, og sumt af því er ósköp áhyggjufullt á svipinn, vegná þess að þoka og súld hef ur heft ferð þeirra til heima- haganna. Ymsir hafa komið frá útlönd um — Norðurlöndunum einna helst — til þess að dveljast hjer yfir jólahátíðina. Einn af þeim nýkomnu færði mjer teikning- una, sem birtist hjer að þessu sinni, og frjettina, sem hjer fer á eftir um einhvern einkenni- legasta þjóf Norðurálfu. Frjett in kom í dönsku þlaði, og hjer er hún: • • „SJERFEÆÐINGUR“ „ÞJÓFUR sá, sem við innbrot sín í kirkjur og prestssetur um land allt, einkum sækist eftir prestshempum, hefur hrætt svo marga prestana, að sumir þeirra þora ekki að geyma hempur sínar í kirkjunpi. Prestahempuþjófurinn hefur til þessa brotist inn í hvorki meira nje minna en 43 kirkjur í öllum landshlutum, og ennþá hefur lögreglunni ekki tekist að hafa upp á þessum einkenni- lega ,,sjerfræðingi“. • © GERIK PRESTANA GRÁIIÆRÐA Hans er þó leitað um land allt. og yfirmaður ríkislögregl- unnar hefur nú heitið hverjum þeim 500 króna verðlaunum, sem getur gefið upplýsingar, sem leiði tii handtöku hans.“. Svona er friettin, og það er ekki laust við að ijnaður hafi meðpumkun með aumingja dönsku prestunum • einmitt núna. þegar þeir mest bu.rfa.,á hempum sínum að halda, en geta :vo átt von á því á hverri stuniu, að einhver ósvífinn bófi steli öllum skrúðanum! • • TIL JÓLASVEINSINS Jeg get ekki stillt mig um að birta hjerna aðra frjett, en hún var prentuð í Morgunblaðinu 29. desemþer síðastl. ár. Frjett- in „sannar“ það, að enn eru til jólasveinar, og að ekki eru þeir síst höfðinglegir, = sem fæddir eru og aldir upp hjer á íslandi. Frieítin er svona: © © BIRMINGHAM í GÆRKVÖLDI Lítil stúlka^ sem sendi brjef til „Jólasveinsins, Norðurpóln uir„ Islandi“, hefur nú fengið jólaósk sína upþfyllta. Brjefið, sem telpan skrifaði, án þess að foreldrar hennar vissu af því, var af einhverjum ástæðum sent til Osló, en þaðan barst svo svar frá einum af yfir- mönnum pósthússins. I svari sínu segir hann litlu stúlkunni, að hann — jólasveinninn — sje staddur í Noregi um þessar mundir, og enda þótt hann hafi mikið að gera, sendi hann jóla- gjöfina, sem hún hafi beðið um. Frh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.