Morgunblaðið - 20.12.1947, Page 10

Morgunblaðið - 20.12.1947, Page 10
10 MORGZJN BLAÐIÐ Laugardagur 20. des. 1947 Fagri Blakkur fœst enn hjá flestum bóksölum. Torgsölarnar Torgsölurnar við Egilsgötu og Hringbraut og við Sunnu torg í Kleppsholti verða opnar í dag og næstu daga til jóla. Þar verður selt tilbúin jólatrje, blómakörfur og skálar, jólabjöllur, skeyttar skrautgreinar. fslenskur einir o. fl. Fjölbreytt og ódýrt úrval. Eftir jskamman tima verða ekki til í • bókabúðum nema fá ein eintök af Lýð- veldishugvekiu um íslenskt mál, forláta-f útgáfu. Þegar þau eru farin, verðurf hún ófáanleg nema við þjóðminjaverði,f og enginn veit, hversu hátt það kann<s að verða. Nú er að grípa gæs, meðan< hún gefst, og taka feng, þegar hann fæst.ý Hugljúf og lærdómsrík hók! Árið 1877 kom hin lær- dómsríka bók um hestinn, sem kallaður var Fagri Blakkur, fyrst út í Eng- landi og öðlaðist þegar , geysilega lýðhylli og afar mikla sölu. Á þessum 70 árum, sem liðin eru, hef- ir bókin haldið áfram að koma út, upplag á upp- lag ofan, og glatt kynslóð á eftir kynslóð, og skiptir eintakafjöldinn, sem út er kominn, nú milljónum, enda tungumálin orðin . býsna mörg, sem þessari hugljúfu bók hefir verið snúið á. Sagan um Fagra Blakk hefur nýlega verið kvik- mynduð og verður myndin sýnd hjer bráðlega.. Myndin hier að neðan er af aðalleikurunum í kvikmyndinni og hestinum sem leikur Fagra Blakk. Stöðugt unnið uð vörnvöndun íslenska hroðírysta fisksins Frásögn Bergsteins A. Bergsteinssonar af nám- skeiði og eftirlitinu NÝLEGA er lokið námskeiði fyrir freðfiskmatsmenn, er hald- ið var hjer í Reykjavík. Freðfisksmatsstjóri sá um fram kvæmd námskeiðsins fyrir hönd Atvinnumálaráðuneytisins en Iðnaðardeild Háskóians, Sölumið stöð hraðfrystihúsanna og Sam- ’oand íslenskra samvinnufjelaga lögðu til mikla aðstoð við kenslu, undirbúning o. fl. . Námskeiðið var sett 15. nóv. s.l., en var lokið 3 des s.l. og sóttu það yfir 70 menn. Morgun- blaðið heí:r snúið sjer til Berg- steins A. Bergsteinssonar og feng ið hjá honum eftirfarandi upp- lýsingar um námskeiðið og ráð- stafanir til vöruvöndunar hrað- fyrsta fiskjarins. Að þetta námskeið var ekki haft lengra að þessu sinni, var vegna þess, að það var sjerstak- lega haldið fyrir þá menn, sem unnið hafa undanfarið sem mats menn eða verkstjórar í þessari iðngrein og höfðu töluverða reynslu. Hmsvegar munu næstú námskeið verða lengri, því þá er gert ráð fyrir að menn sem ekki liafa reynslu á borð við þá sem verið hafa í þessurn störfum áð- ur, sæki námskeiðin. Kenslutilhögunin. Kenslutilhögun á námskeiðinu var þannig að frá 9—12 daglega var verkleg kennsla, og þar þar kennd öll meðferð fiskjar frá því hann kemur úr fiskibát og þar til hann er fluttur úr landi sem fullunnin vara. Sjerstök áhersla var lögð á að kenna mönnum öli grundvallaratriði sem rjett og vönduð freðfisksframleiðsla bygg ist á, og gera nauðsynlegt að hin fjöldamörgu atriði freðfiskfram- leiðslunnar sjeu rjett fram- kvæmd, og einnig það, að kenna mönnum að vinna verkin rjett svo að þeir gætu aftur kennt sínu verkafólki. Verklega kenslan fór fram í hraðfrystihúsinu Kirkjusandur h.f. Reykjavík, en það frystihús er nú sem stendur talið full- komnast hjer á landi að öllum útbúnaði, svo að menn kynntust um leið þeim besta útbúnaði, sem völ var á. Munnleg kennsla fór fram í fundarsal Landssmiðjunnar í Reykjavík frá kl. 13,30 til 17 á daginn. Kennarar. Kennarar námskeiðsins voru: Hr. Gísli Þorkelsson forstjóri iðn aðardeildar Atvinnudeildar Há- skólans, Magnús K. Magnússon ráðunautur S. H., Arnlaugur Sig urjónsson ráðunautur S.I.S., Finn bogi Arnason freðfisksyfirmats- maður, Ólafur Arnason freðfisks yfirmatsmaður og Bergsteinn A. Bergsteinsson freðfisksmatsstj. Hjer á eftir mun jeg skýra að nokkru tildrög þau, að námskeið ið var haldið. Sem kunnugt er, hefir geysi- mikið starf verið lagt í það sjer- staklega s.l. 2 ár að bæta freð- fisksframleiðsluna, og hefir þar verið hin ágætasta samvinna milli sölumiðstöðva hraðfrysti- húsanna og S. I. S. annars vegar, og freðfisksmatsstjóra hins veg- ar, enda náðst mikill og góður árangur þótt mikið þurfi enn þá að»vinna. Slíkt starf sem þetta verður aldrei fullunnið að einhverju ákveðnu marki, vegna þess að framleiðsla sem þeesi er alltaf á framfaraskeiði vegna sífeldrar þróunar og aukinnar samkeppni á heimsmarkaði. Framfarir í vöruvöndun. Aðalframfarir í vöruvöndun svo og tæknilegurtL-vinnubrögð- um í hyaðfrystiiðnaðinum hafa átt sjer stað á tveim síðustu ár- um, árunum 1946 og 1947, og skal rekja það nokkuð. A árinu 1946 var unnið að samningu ijýrrar og mjog ítar- legrar reglugerðar um mat á hrað frystum fiski til útflutnings, og var sú reglugerð gefin út af a- vinnumálaráðuneytinu 10. jan. 1947. Reglugerð þessi var samin með tilliti til þeirrar reynslu sem við höfum fengið þau undanfárin ár, frá því að hraðfrysting hófst fyrst hjer á landi í því formi eða svipuðu og nú er. í rcglugerðinni var gert ráð fyrir að halda skyldi námskeið í freðfisksverkun, ef þurfa þætti, þá var og einnig gert ráð fyrir að ráðnir skylau yfir- matsmenn eins og nauðsyn krefð ist, til eftirlits með framleiðsl- Störf matsmanna. Jeg vil fara nokkrum orðum um starf þeirra fimm freðfisks- yfirmatsmanna, sem starfað hafa við freðfisksmatið síðan í árs- byrjun 1947. Starf þeirra hefir verið fólgið í því, að ferðast stöðugt um á- kveðin svæði, og leiðbeifta og líta eftir framleiðslunni í hrað- frystihúsunum. Það hefir einnig verið þeirra starf að vera um borð í þeim kæliskipum, sem lesta hraðfryst- an fisk, því á þessu ári hefir ekk ert skip verið lestað nema ein- hver af þessum yfirmatsmönnum hafi verið þar um borð og gætt þess að ekkert væri athugavert við vöruna. Frá áramótum siðustu til 1. des. s. 1. hefir verið komið 1231 sinnum til eftirlits i 68 hraðfrysti hús, eða um 18 sinnum í hvert til jafnaðar. Þess skal getið að mis- jafnlega margar ferðir koma á einstök hraðfrystihús, og fer það eftir ýmsu, svo sem því, að hrað- frystihúsin voru ekki öll á sama stigi í vöruyöndun, með mislang- an framleiðslutíma o. fl. A sama tíma höfðu verið lestuð 36 skip með hraðfrystum fiski þar sem yfirmatsmenn höfðu verið um borð, og fer þá að skýrast að nokkuð hefir verið starfað á þess um 11 mánuðum sem liðnir eru af þessu ári. A árinu 1946 varð mjög vart við að hraðfrysti fisk- urinn þornaði í geymslum hrað- frystihúsanna. Sjerfræðingar. Arið 1946 rjeði S H. til sín sjer fræðing í freðfisksframleiðslu, Magnús K. Magnússon, sem þá var nýkominn frá námi í Amer- iku og hefir hann unnið mjög merkilegt umbótastarf við þessa framleiðslu. S. í. S. hefir líka haft í þjón- ustu sinni sjerfróðan mann, í rúmt ár, Arnlaug Sigurjónsson, og hefir hann unnið að endur- bótum á framleiðslu hraðfrysti- húsa þeirra, er S. í. S. hefur. Samvinna freðfisksmatsins og þessara aðila hefir verið mjög góð og hefir því unnist á þess vegna. Mjer varð sjerstakega ljóst í gegnum hina auknu starfskrafta eftirlitsins, að mjög mikil þörf væri á námskeiði fyrir þá menn, er annast umsjón framleiðslunn- ar í hverju frystihúsi og hafa þar matsstörf með höndum. Skrifaði jeg því Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Sr.mbandi ísl. samvinnufjelaga, Fiskiðjuveri ríkisins og svo atvinnumálaráðu- neytinu í sumar er leið og benti á nauðsyn þess, að slíkt nám- skeið væri haldið. Allir þessir aðilar brugðust' vel við málaleit- an minni. Nefnd var skipuð, sem ákveða skyldi tilhögun námskeiðs ins og voru í hermi eftirtaldir menn: Björn Björnason forstjóri frá S. H., dr. Jakob Sigurðssoji frá Fiskiðjuveri ríkisins, Helgi Pjetursson fulltrúi frá S. í. S., og Bergsteinn Bergsteinsson freð fisksmatsstjóri. Náhskeið þetta var einn liður í samstiltu starfi, til áframhald- andi endurbóta í þessum iðnaði, hraðfrystingu á fiski. Það starf, sem miðar að því, að afla hraðfrysta fiskinum álit í markaðslöndum, er ekki unnið fyrir gýg, og það fie, sem er veitt í að efla vöruvöndun hans kem- ur margfalt aftur, því þetta er orðinn stærsti atvinnuvegur okk ar íslendinga. iiimiitiiiiiiniiiiiiiiiiiiimiiiiiniiniimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiB Oska eftir amerískum Kæliskáp I í skiftum fyrir amerískan | gólfdúk. — Tilboð merkt: I ,,X L 9. — 650“ sendist \ blaðinu. immimiiiimmmmimmmmiuiiiiiiimmmiiiiiiiiiiH Herbergi óskast | Sjómaður óskar eftir góðu 1 herbergi sem næst mið- I bænum. Gengur vel um og 1 er sjaldan í landi. — Til- | boð óskast send blaðinu I fyrir mánudagskv. merkt: | „Loftskeytamaður —561“. 1 SKIPAUTGtKÐ RIKIS3NS Esja vestur úm land í hringferð mánudaginn 29. þ. m. Viðkomu staðir: Patreksfjörður, Bíldu- dalur, Þingeyri, ísafjörður, Siglufjörður, Akureyri og síð- an allar venjulegar viðkomu- hafmr á leiðinni austur og suð- ur um land. Vörumóttaka næst- komandi mánudag og þriðju- dag. Pantaðir farseðlar óskast sóttir laugardaginn 27. þ. m. M.s. Herðubreið austur um Iand í hringferð laugardaginn 3. jan. Kemur á allar venjulegar viðkomuhafnir austan lands, norðan og vestan til Patreksfjarðar, en fer það- an beint til Keykjavíkur. Vöru- móttaka á mánudag og þriðju- dag 29.—30. þ. m. *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.