Morgunblaðið - 17.01.1948, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.01.1948, Blaðsíða 8
8 MORGV NBLAÐIÐ Laugardagur 17. janúar '1948Í Stálþráðarsamtalið við Bjargar-menn Hr. ritstjóri: FYRRA miðvikudag birtist I Morgunblaðinu greinarstúfur und ir fyrirsögninni: „Fáránlegar spurningar í viðtali útvarps- manns við skipbrotsmennina“. Höfundur nefnir sig „útgerðar- mann“. Tilefni greinarstúfsins er viðtal, sem tveir starfsmenn út- varpsins áttu við formanninn á m.b. Björg. * Með því að greinarhöfundur virðist ekki hafa fylgst sem skyldi með samtalinu, eða að minnsta kosti misskilið sumt, þykir mjer rjett að birta orð- rjettan kafla úr því, ef vera kynni að það opnaði augu hans fyrir sannleikanum. „trtgerðarmaður“ segir: „Frjettamaðurinn margþýfgaði skipbrotsmennina um hvort þeir hefðu ekki skemmt sjer meðan á hrakningunum stóð.“ Hjer er mjög hallað rjettu máli, eins og sjá má við samanburð á kafla þeim, er hjer fylgir: Stefán: Stukkuð þið um borð? (I þýska togarann). Form.: Stukkum um borð, já. Pjetur: Ykkur hefir verið vel tekið þar? Var það ekki? Form.: Jú, prýðilega, eftir bestu getu hjá þeim. Pjetur: Hafa þeir ljelegan kost kannske? Form.: Nei — ja, þeir hafa voðalega lítið af öllu, en þeir eiginlega tóku matinn frá sjer handa okkur, til þess að við fengjum nóg og vjeku úr rúmi frá okkur líka. Pjetur: Það hefir náttúrlega ekki verið þur þráður á ykkur þegar þið komuð? Form.: Nei, við vorum eigin- ega blautir allan tímann, frá því fyrsta alltaf. Stefán: Og enginn svefn þarna? Form.: Nei, það var orðinn IV2 sólarhringur sem nokkur okkar hafði lagt okkur, þegar við sáum togarann. Stefán: Orðnir slæptir. Var það ekki? Form.r Jú. Pjetur: Gátuð þið gert ykkur nokkuð til gamans um borð? Hjer virðist „útgerðarmaður" halda að jeg hafi átt við vjel- bátinn, en eins og sjá má af of- angreindu snýst talið um dvöl þeirra fjelaga um borð í þýska togaranum. Var ekki ástæða fyrir sjómenn ina til að gleðjast yfir björgun- inni? Hafði ekki allur landslýður haldið jól og fagnað komu ársins meðan þessir ungu menn hrökt- ust meðfram ströndum landsins? Var það goðgá að spyrja þá hvort þeir hefðu getað gert sjer eitt- hvað til gamans, er þeir voru komnir um borð í togarann? Vissulega var björgunin sjálf mesta gleðiefnið, — en samt sem áður, leiðin til hafnar var löng og er þangað kom varð bið á því að þeir kæmust í land. Enn segir „útgerðarmaður": „spurði hann hvort mennirnir hefðu ekki sagt hvor öðrum sjó- mannasögur“. Þetta er tilhæfulaust. Jeg sagði, til árjettingar því sem formaðurinn hafði sagt: Sc*n sagt þið hafið haft um annað að liugsa, pn að stytta ykkur stundir með sjómannasögum eða þvíum- líku. ..Útgerðarmanni" er velkomið að hlusta á samtal þetta og ganga úr skugga um að þannig var til orða tekið, en ekki eins og hann segir frá. „Útgerðarmaður“ ásakar okk- ur fyrir að hafa ekki látið það koma fram í samtalinu „að tog- arar þeir sem ekki sinntu um að aðstoða skipbrotsmennina, þrátt fyrir neyðarmerki þeirra voru erlendir“. Jeg hjelt satt að segja að eng- inn ætlaði íslenska togaraskip- stjóra þau fúhnenni að sigla frá löndum sínum (eða öðrum) er þeir væru í augljósri hættu, án þess að hirþa um að veita hjálp. Hið eina sem rjett er í grein ,,útgerðarmanns“ er það, að sam- talið hafi verið illa undirbfnð. Til þess lágu ýmsar orsakir. Það sem fyrir okkur vakti var fyrst og fremst það, að láta ást- vinum þeirra í tje frjettir frá fyrstu hendi, en eins og kunnugt er var símasambandslaust við Djúpavog þessa daga og var þetta eina leiðin. Jeg vona að ættingjar piltanna hafi haft einhverja gleði af því að heyra þá sjálfa tala, og eins fyrir þa.ð þótt samtalið hefði mátt takast betur, en það skal fúslega viðurkennt. Pjetur Pjetursson. ATIIS.:. Misskilningur ,,útgerðarmanns“ útaf samtaiinu af stálþræðinum, var eðlilegur. Enda mun hann ekki hafa verið einn um það að skilja spurningarnar svo; sem hann gerði, að átt væri við dvöl sjómannanna í fiskibátnum, en ekki í togaranum. Misskilningur þessi stafaði af því, að tveir menn voru við spurningarnar, einsog fram kemur í hinum tilvitnaða kafla hjer að ofan, og var annar að tala. um togarann, er hinn vjek máli sínu að hrakningunum í vjelbátnum. Þetta staðfestir ummæli Pjet- urs Pjeturssonar um það, að sam- talið var illa eða ekki undirtíúið. Ætti sú reynsla sem hjer fjekkst, að vera Utvarpinu til leiðbein- ingar um það framvegis að vanda betur til samtala, sem tekin kunna að vera á stálþráð, til út- sendingar. Er með því útrætt um þetta mál hjer. — Ritstj. Fimmmínúfna krossgáfan SKÝRINGAR Lárjett: — 1 líkamshluti — 6 verkfæri — 8 fjall — 10 dýra mál — 11 öfl — 12 saman — 13 eins — 14 fytir utan — 16 þerra. Lóðrjett: — 2 verkfæri ’— 3 gin — 4 eins og 12 — 5 grefur — 7 faratæki — 9 knæpa — 10 sjór — 14 tvíhljóði — 15 eins. Lausn á síðustu krossgátu. Lárjett: — 1 frökk — 6 óma — 8 na. — 10 ee — 11 afurðir — 12 ti. — 13 nr. — 14 leg — 16 magra. Lóðrjett: — 2 ró — 3 ömur- leg — 4 K. A. — 5 Snati — 7 herra — 9 afi — 10 ein — 14 la — 15 gr. — Leyniskialið Frh. af bls 1. 1. ÚtbreiSa áróður gegn Mars- halláætluninni 2. Sýna fram á að verkföll í lýðræðisríkjunum í Vestur- Evrópu þýði úreltingu þjóð- skipulagsins, sem þar ríkir og 3. Gefa skýrslur um hve mikl- ar framfarir hafi orðið í Austur-Evrópu síðan komm únistar fengu völd. „Listin að koma af stað borgarastyrjöld“. „Það ber að notfæra sjer sem best allt það gegn Vestur- Evrópu sem andkommúnistar hafa sagt. Með áróðrinum höld- um við verkamönnunum sam- an og „Cadres“ þ e. a. s. fastir flokksmenn sem vinna að skemd arverkum innan annarra flokka hafa fullt leyfi til ákvarðana og ber að hlýða skipunum þeirra tafarlaust.. Ein af aðalkenning- um Lenins var alþýðuáróður og að sá sem kynni með hann að fara myndi ekki mistakast að koma af stað horgarastyrjöld“, segir í þessu furðulega leyni- skjalj til kommúnista. Nýtt veðurathugunarskip LONDON: — Bretar eru nú að undirbúa nýtt veðurathugunar- skip sem verður á Atlantshafi. — Eru nú fjögur slík skip, þar sem Bretar eiga. Tveir menn siasasl í árekslri UM hádegisbilið í gær, var slys á gatnamótum Sigtúns og Laugarnesvegar. Þar rákust tveir bílar á, með þeim afleið- ingum að tveir menn sem í öðrum bílpum voru hlutu meiðsl og voru fluttir í Lands- spítalann. Bíllinn, sem mennirnir tveir voru í, Austin 4ra manna R- 2763, kom niður Laugarnesveg en hinn bíllinn sem var strætis- vagninn R-2782, kom akandi austur eftir Sigtúni. Á gatna- mótunum ók Austin bíllinn á hægri hlið strætisvagnsins. Bíl- stjórinn á strætisvagninum hafðj tekið eftir því hvað verða vildi og reyndi hann eftir mætti að forða árekstrinum og við það ók hann vagninum út af veginum en þar sat vagninn fastur. Varð hann fyrir nokkr- um skemdum Lit,b bíllinn lagð ist bókstaflega saman við á- reksturinn og mennirnir tveir sem í honum voru skrámuðust talsvert. Voru þeir fluttir í Landsspítalann í bíl er bar þar að. I spítalanum var gert að sárum þeirra en síðan fóru þeir heim til sín. Súlgarar beifa Tyrkneskainn- ffyfjendur ofbeldS Ankara í gærkvöldi. FREGNIR hafa borist um að Tyrkjum, sem búa nærri landa- mærum Grikklands og Búlgaríu, hafi verið all-mjög misþyrmt af búlgörskum yfirvöldum. Hafa að minnsta kosti 1500 Tyrkir verið fluttir nauðugir í námu- vinnu og sumir verið settir í þrælkunnarvinnu. Segir í fregn- inni að ofsóknir þessar sjeu mjög vel skipulagðar af búlg- örskú stjórninni. IlSöð í Ankara halda því fram að brottflutningur Tyrkja frá landamærunum sje fyrirboði þess að Búlgarar flytji her þang að til þess að hjálpa grísku upp • reisnarmönnunum. Enn er ekki vitað um hvaða ráðstafanir tyrkneska stjórnin muni gera gegn þessu, en það þykir lík- legt að málið verði kært fyrir Öryggisráði Sameinuðu þjóð anna. — Reuter. Frelsi Koreu SEOUL: Þúsundir manna hyltu Koreunefndina er hún kom hjer í dag. Talsmaður nefndarinnar sagði að frelsi Koreu væri aðal- takmark nefndarinnar og myndi brátt nást. —Undirbrniingur j Hilaveilunnar Frh. af bls. 2. rúmsins vegna verður það ekkl gert hjer. Samhliða skýrslusöfnun þess- ari var safnað sýnishornum af ofn um og pípum. Hinn 11. mars 1946 skipaði borg arstjóri þá Ásgeir Þorsteihsson verkfr., Steinþór Sigurðsson mag. og Jóhannes Zoega verkfr. í nefnd til þess að rannsaka og finna ráð við þeirri eyðingu og ofnasöfnun sem farm hefir komið í leiðsjum og ofnum, sem hita- veituvatn hefir runnið um.“ Skýrsla þeirrar nefndar birt- ist á öðrum stað og er henni því sleppt hjer. Vísir og ofar í Blöndals- pakkhúsi Að lokum örfáar upplýsingar vegna árásar dagblaðsins Vísis á hitaveituna undanfarna daga í sambandi við stíflaða ofna í Blöndalspakkhúsi. Síðustu dag’ana hefi jeg fengið sýnishorn af tveim miðstöðvar- ofnum af. hitaveitusvæðinu er sprungu af frosti, annan af Laugaveginum, en hinn af efri hæð Hafnarstrætis 21. Voru báðir þessir ofnar mjög hreinir að inn- an. Það er athyglisvert. að ofninn úr Hafnarstræti, sem er af sömu slóðum og Blöndalspakkhús, hef- ur verið nærri ári lengur í sam- bandi við hitaveituna, en ofninn í Blöndalspakkhúsi og er þó tandurhreinn. Fyrir nokkrum dögum var tekin sundur götu- æð í Skúlagötu vegna breytingar, og var hún hrein að innan. Sýn- ishorn af pípunni og ofninum er 'fyrir hendi. Loks skoðaði jeg á- samt eftirlitsmanni hitaveitunn- ar þann 12. þ._m. tvær %“ pípur, sem pípulagningamaður frá Ósk- ari Smith var að taka niður í hús- inu Laugavegi 143. Þetta hús var byggt árið 1929 og befur aldrei verið hitaveita í því, heldur venjuleg kolakynnt miðstöð. — Þarna voru ofnar á 2. og 3. hæð hættir að hitna, enda voru tvær fyrnefndar pípur, er lágu milli 1. og 2. hæðar algerlega stíflaðar af ryði. í 114“ pípu, sem tók við fyrir neðan þær mátti einnig finna fyrir ryðbólum. Pípulagn- ingamaðurinn sagði rað ofnar hefðu verið teknir úr húsinu í fyrra og skolaðir út og hefðu verið mikil.óhreinindi í þeim. . Á ekki Vísir eftir að sanna að ofnarnir í Blöndalspakkhúsi hafi verið hreinir þegar þeir voru sett ir í samband við hitaveituna? — Jeg er sannfærður um að svo hafi ekki verið heldur hafi þeir þá verið mikið ryðgaðir. Má færa að því mörg fleiri rök en hjer hefun verið gert, og verður það gert síðar ef ástæða þykir til. - Virðingarfyllst, Helgi Sigurðsson. BEST 4Ð AllGLYSA I MOrfr.r^UEAÐINV Eflir Roberf Storm ------------—----- T HEPE'^THE sketch, ” yEÚTENANT...0NE 0FTHE TW0 M EN WHO ^PRUNö «C5RAPE'EVE$" LEPT " £WELL FINGERPRINT5- v ALL OVEP TME PLACE... •aiurts F0R REA£0N£ 0F Hl£ OWN, HE ^ WANTED Ll£ TO <5EE TH06-E PRiNT^! Bt/T THE PRINT£ ARE ONLV OF THE FlftöER r\V±...THE RE£T OF THE . HANP POE^N'T E-HOWj já f BUT H0W CAN THE PRINT'5’ /HATCH THO^E OFA PEAP \ CRIMINAL? ’ NO TWO'--- i PlTCHE£ THE PEAP /MAN PIPN'T MAKE THE/lj TELL Mc AWU l'HANPv" BROWNWELL' m f WAIT! TH05É ARE ’l T iítf ALL WHEEL6- r NCT YEl! 1 \ THE PRINT^ OF A 1 / IN£!PE 0F WH£EL£>! BV •fHE f 1 / PEAP MAN — BUT 1 CALL TOUR / WHAT CAN YOU Phil: Svona lítur það út —- ei m af mönr.unum, sem hjálpuðu Gullaldin, skildi ef r ágæt fingraíör um alft- hjerna og einhvers vegna vildi hann að við finndum þau — en þau eru aðeins af fingurgómun- um, lófinn sjest ekki. Lögregluþjónninn: En hvernig geta fingraförin verið eins og af dauða manninum? Enginn tvö fingraför eru eins. Phil: Augnablik — þetta eru fingraför dav:?!a mannsins, en dauði mað- urinn skildi þau ekki eftir. Lögreglumaðurinn: Jeg er alveg ruglaður, skýrðu þetta fyrir mjer. Phil: Ekki enn þá. Hvað geturðu sagt mjer um Fingra- lang? ,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.