Morgunblaðið - 17.01.1948, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
UNDIRBÚNINGUR hitaveitumi
Allhvass suðaustan o/j jafnvel
norðvestan, rigning fyrst, síðan
skúra og jeljaveður.
ar. SUýrsla hitaveitustjóra á
bls. 2. ____________
Sjómaimaverkfall í
Grandarfirði
Veigihorfur með belra méfi
Stykkishólmi, föstudag.
Frá frjettaritara vorum.
NÚ STENDUR yfir verkfall hjá sjómönnum í Grurndaríirði, og
er deilan aðallega um það, hvaða ráðstafanir eigi að gera varð-
andi fisk þann, sem salta verður og fryytihúsið treystir sjer ekki
til að taka á móti.
Symféníuhijémsveit Reykjavíkur
Symfoníhljómsveit Reykjavíkur á pallinum í Austurbæjarbíó (Ljósm.: Vignir)
Hanst og vetrarsOdveiðin
nam 82,570 smélestum
ti! áramóta
HAUST- og vetrarsíldveiðin, frá því seint í október til 31. des,
ember nam samtals 82,570 smálestir og skiftist aflinn þannig,
eftir hagnýtingu hans, samkvæmt skýrslu Fiskifjelags íslands;
........o
Hafa útgerðarmenn boðið sjó-
mönnum að sjá um fiskinn að
öllu leyti, selja hann óskiptann
þannig, að sjómenn fá það fyrir
hann, sem upp úr honum hefst,
en að því vilja sjómenn ekki
ganga. Þeir óska hinsvegar
að útgerðarmenn kaupi fiskinn
fyrir ákveðið verð, og sjómenn
losaðir við alla áhættu vegna
sö!u hans.
Unnið var að því að koma á
samkomulagi í allan gærdag, en
í gærkvöldi hafði það engan ár-
angur borið, en búist við að sam
komulag næðist bráðlega.
Góður afli og gæftir
Sennilega munu fjórir dekk-
bátar stunda sjóróðra úr Grund-
arfirði í vetur, og byrjuðu tveir
bátar veiðar um s.l. áramót, m.b.
Farsæl! og m.b. Runólfur. Afli
var góður, allt upp í sex tonn í
róðri.
Gæftir eru góðar í Grundar
firði og veiðihorfur taldar með
betra móti. Einn bátur þaðan
bíður eftir því að sett verði í
hann vjel, og mun hapn tæplega
geta hafið veiðar fyrr en í
næsta mánuði.
Auk hinna stærri báta stunda
einnig trillubátar sjóróðra úr
Grundarfirði.
Norski skip sekkur
London í gærkvöldi.
NORSKA skipið Svein Jarl,
sem var á leiðinni frá Istambul
til Antwerpen rakst á tundur-
dufl og sökk snemma í morgun
skammt frá Cape Papas. Skip-
stjóranum og áhöfninni þrettán
að tölu var bjargað og voru þeir
settir í land á Papas. — Reuter.
Reykjavík —
Glasgow
ÞAÐ eru taldar allar horf-
ur á, að í maímánuði n. k. muni
verða lokið smíði hins nýja far-
þegaskips Skipaútgerðar ríkis-
ins. Sennilegt er oð skipið verði
haft í förum milH Glasgow og
Reykjavíkur.
Þetta sklp verður nokkuð
stærra en Esja og búið nýtísku
þægindum farþega. Það er bygt
í Aalborgverft, en þar var Esja
byggð á sínum tíma.
Fróðir menn telja hið nýja
skip mjög vei til þess fallið,
að sigla á þessari leið. Einkum
þegar þess er gætt að næsta
sumar munu ferðalög Éreskra
borgara til íslands verða leyfð
þvínær ótakmörkuð. Er því
mikið atriði fyrir iandið að geta
boðið hinum eriendu ferða-
mönnum að ferðast með nýju
fullkomnu skipi.
Byggingafram-
kvæmdir með
meira móii í
Stykkishólmi
Stykkishólmi, föstudag.
Frá frjettaritara vorum.
Á SÍÐASTLIÐNU ári hafa hús
byggingaframkvæmdir verið
með meira móti í Stykkishólmi,
og voru í vor er leið hafin smíði
níu íbúðarhúsa og má búast við
að bau verði öll fullsmíðuð í
vor eða sumar.
Auk þess hefir fjöldi manns
látið gera við hús sín, múrhúða
þau og fleira. Hefir verið erfitt
með margt til húsbygginganna,
ekki síst miðstöðvar og hrein-
lætistæki, sem ekki hafa enn
fengist, hvernig sem reynt hef
ir verið, og hefir þetta tafið
framkvæmdir mjög. Er vonandi
að úr rætist á þessu ári.
Risaflugvirk! í
Keliavik
RISAFLUGVIRKI, B-29, sem
er stærsta sprengjuflugvjela-
tegund ameríska flughersins,
kom til Keflavíkur frá Washing
ton í gærmorgun. Vjel þessi
er á leið til Þýskalands cg hafði
hjer aðeins stutta viðdvöl.
Á flugvjelum þessum er 17
manna áhöfn.
Risaflugvirkið flaug í einum
áfanga milli Washington og
Keflavíkur og var 11 klst. og
55 mín. á leiðinni.
Presivígsia í
Démkirkjunni
KLUKKAN 10,30 árdegis á
sunnudag fer fram prestvígsla
í Dómkirkjunni.
Biskup landsins, dr. Sigur-
-geir Sigurðsson vígir c'and.
theol. Jóhann Hlíðar tii prjedik
unarstarfsemi á vegum íslenska
kristniboðssambandsins. Fyrir
altari þjóna sr. Bjarni Jóns-
son vígslubiskup. Vígslu lýsir
dr. Friðrik Friðríksson, en auk
hans eru vígsluvottar próf.
Ásmundur Guðmundsson, sr.
Friðrik Hallgrímsson og sr. Jó-
hann Hannesson.
Sænsk effirlifsskip
við island um síld-
veiðitímann
FRAM er komið í sænska þing-
inu frumvarp, um að sænska
stjórnin hafi eftirlitsskip um
síldveiðitímann á Islandsmið-
um til að aðstoða sænska síld-
veiðimenn, ef með þarf. Hafa
sænskir síldarútgerðarmenn
mikinn áhuga fyrir þessu.
í frumvarpinu er gert ráð
fyrir, að kostnaður við slíkt eft-
irlitsskip nema um 100 þúsund
krónum sænskum, á vertíð.
Flugfjelag íslands
fær veitingaleyfi
Á SÍÐASTA bæjarstjórnar-
fundi lágu fyrir þrjár beiðnir
um veitingaleyfi, sem komið
höfðu til bæjarstjórnarinnar fyr
ir áramót. M.a. frá Flugfjelagi
íslands, sem óskar eftir að fá að
hafa nokkrar veitingar á flug-
vellinum í húsak. þeim, sem
notuð eru fyrir farþega, bæði
þá sem bíða þar eftir flugfari og
eins þá sem bíða eftir flugvjel-
um er væntanlegar eru.
Var það samþykkt í bæjar-
stjórn að mæla með þessu leyfi.
Ög samtímis var samþykkt að
mæla með að þeir fengu veit-
ingaleyfi Tryggvi Steingríms-
son og Brandur Búason.
Parísarblöðin stækka
PARÍS: — Blöðin hjer í borg
munu nú vera stækkuð upp í fjór
ar síður en undanfarið hafa þau
aðeins verið tvær síður.
Hljémleikar á
þriðjudaginn
NÆSTKOMANDi þriðjudags-
kvöld kl. 7,15 heldur Symfóníu-
hljómsveit Reykjavíkur fyrstu
hljómleika sína í Austurbæjar-
bíó. Stjórnandi er dr. v. Urbants-
chitsch. Efnisskráin er á þessa
leið: Coriolan forleikurinn eftir
Beethoven, Konsert nr. 4 í G-
dúr fyrir píanó og hljomsveit,
einnig eftir Beethoven, einleikari
er Rögnvaldur Sigurjónsson, síð-
ast á efnisskránni er Militar-
symfónía eftir Haydn.
Eins og getið hefir verið í blöð-
um áður, var und'.rbúningur að
stofnun þessarar hljómsveitar
hafinn síðastliðið vor, en æfingar
hófust ekki fyr en um miðjan
nóvember s.l., og var ætlunin að
halda þessa hljómleika í fyrra
mánuði, en vegna ýmissa tafa og
erfiðleika reyndist það ókleift.
I hljómsveitinni starfa nú 39
manns fyrir ulan stjórnanda og
einleikara.
Það er nú nokkuð langt um
liðið, síðan hjer hafa verið haldn
ir hljómsveitar-hljómleikar, og
má búast við að mara fýsi að
heýra þessa hljómleika.
Fjallið sæmiiega
fært
SKRIFSTOFA vegamálastjóra
skýrði Morgunblaðinu frá því
í viðtali í gær að færðin aust-
ur yfir Fjall væri mjög sæmileg
fyrir stærri bíla. Þar var í gær
snjókoma og hiti um frostmark.
Skafrenningur var enginn og
vonuðust inenn til þess að tak-
ast mætti auðveldlega að halda
leiðinni opinni.
Góð færð er upp að Skíða-
skálanum og ættú minni bílar
að geta komist þangað slysa-
laust.
Bræðslusíldin nam 568,464
málum.
Af þessu sildarmagni veiddust
542,113 mál í Faxaflóa, aðal-
lega Hvalfirði, en í ísafjarðar-
djúpi veiddust 26,351 mál.
Á sama tíma voru frystar til
beitu 51,377 tunnur síldar, þar
af 3750 tunnur við ísafjarðai-
djúp.
Saltaðar voru 2100 tunnur.
Til Þýskalands var flutt ísað
464 smálestir af Faxaflóasíld,
en til niðursuðu fóru 15 smá-
lestir.
Skifting milli verksmiðja
Af afla þessum voru verk-
smiðjurnar búnar að taka á
móti í árslok 422,806 málum,
sem skiftast þannig á verksmiðj-.
urnar:
Keflavíkurverksmiðjan 30,562
mál.
Njarðvíkurverksmiðjan 7,409
mál.
Akranesverksmiðjan 44,246
mál.
Patreksfjarðarverksmj. 14,
091 mál.
Flateyrarverksmiðjan 4,073
mál.
Ríkisverksmiðjurnar á Siglu-
firði 318,045 mál.
Seyðisfjarðarverksmiðjan 4,;
380 mál.
Mismunnr
Mismunur sá, sem fram kem-
ur á heildaraflamagni ti!
bræðslu og því magni, sem kom-
ið var til verksmiðjanna um ára
mót er tæp 146 þúsund mál, sem
skiftast þannig:
í þróm 92,808 mál.
1 ílutningaskipum 31.768 mál.
Rýrnun 21,170.
Samtals 145,746 mál.
Queen Mary í þurrkví
SOUTHAMPTON: — Hafskipið
Queen Mary hefur undanfarið
verið í þurrkví til klössunar. Ekki
er vitað ennþá hvenær það fer I
siglingar aftur.