Morgunblaðið - 22.01.1948, Blaðsíða 8
MORGVNBLAÐIÐ
Fimm mínúlna krossgáfan
rr
Skálholl" - „Einu
sinni var
rr
SKYRINGAR:
Lárjett: — 1 jurtin — 6 staf-
ur — 8 saman — 10 tvíhljóði
— 11 kuldinn — 12 hljóðstafir
— 13 mynt — 14 tóm — 16
grafa.
Lóðrjett: — 2 eins — 3 ílát
— 4 á fæti — 5 gimsteinn —
7 fyrir sunnan — 9 vegarbót
•— 10 trje — 14 eins -— 15 eins.
Lausn á seinustu krossgátu:
Lárjett: — 1 matur — 6 orm
— 8 aá — 10 hó — 11 skyggja
— 12 K.A. — 13 ár — 14 aum
•— 16 barna.
Lóðhjett: — 2 ao. — 3 trygg-
ur — 4 um — 5 taska — 7
fóarn — 9 Áka — 10 hjá — 14
aa — 15 mn.
LEIKFJELAG Reykjavíkur sýn
ir sjónleikinn Skálholt eftir Guð
murid Kamban, annað kvöld kl.
átta.
Sýningum á Skálholti varð
ekki alveg lokið fyrir jól, en þá
var það sýnt átta sinnum, altaf
við ágæta aðsókn. — Áður var
búið að sýna Skálholt 40 sinn-
um. Þetta verður því 49. sýning
fjelagsins á leikritinu. Nú verð-
ur það aðeins sýnt í örfá skifti
og eingöngu á föstudögum. Á
sunnudögum og miðvikudögum
verða sýningar á „Einu sinni
var“. Aðsókn að því hefur verið
mjög mikil og hefur það nú ver-
ið sýnt tólf sinnum.
— Síldarverksmiðja
Bragi Blíðberg held-
ur hljémleika í kvöld
í KVÖLD heldur Bragi Hlíð-
berg, harmonikuleikari hljóm-
leika í Austurbæjarbíó. En sem
kunnugt er hefur Bragi stundað
nám í harmonikuleik í vetur í
Ameríku. Á efnisskrá hljómleik-
anna eru 16 lög, eftir erlendn
höfunda. Meðal þess sem á efn-
isskránni er má nefna Czardas,
ungverskur dans eftir V. Monti,
lög úr „Káta ekkjan" eftir F.
Lehar. Þá leikur hann lög eftir
Rachmaninoff, Bach, Wagner,
og Chopin. Einnig leikur hann
lög eftir fleiri klassiska meist-
ara. Þá leikur Bragi Solitude
eftir Ellington og Star Dust eft-
ir Carmichael.
Hljómleikarnir hefjast kl. 7.
Skjölin
Frh. af bls. I.
æsktu Þjóðverjar aðeins eftir
að fá aftur fyrverandi nýlend-
ur sínar í Afríku. ítalir höfðu
hug á auknum landvinningum
í norður og norð-austur Afríkú,
Japanir í Austur-Asíu og Rúss-
ar í áttina að Indlandshafi.
MARSHALL HLUXLAUS í
STJÓRNMÁLUM
Vashington: — George C. Mars-
hall hefur lýst því yfjr að hann
ætli sjer ekki að blanda sjer í
stjórnmál.
Frh. af bls. 2.
Rey.Havíkurbæjar. Jón Fann-
berg lagði áherslu á, að komið
yrði upp verksmiðjunni í skipi
— en Kveldúlfsmenn ættu skil
ið miklar þakkir fyrir tillögur
sínar og rannsóknir og bæri að
stefna að. því að hagnýta þá
nýju og miklu möguleika, sem
þar gæti verið um að ræða. Þá
talaðij Jón Gunnarsson, verk-
fræðingur, og ræddi sjerstak-
lega um sjerfræðilega hlið mál
anna og mismun hinnar eldri
og nýrri aðferða við síldar-
vinnsluna. Hann ljet einnig í
ljósi það álit sitt að umrætt
skip, samkvæmt greinargerð
síldarverksmiðjunefndar, með
vjelum Oskars Halldórssonar,
ætti að geta verið tilbúnar til
vinnslu í lok júlímánaðar, ef
strax væri hafist handa í mál-
inu.
Jón Guðmundsson
á Torfalæk 70 ára
I DAG er 70 ára bóndinn Jón
Guðmundsson á Torfalæk í Húna
vatnssýslu, fæddur 22. ;ianúar
1878. Hann er sonur Guðmundar
Guðmundssonar og Sigurlaugar
Jónsdóttur ' er lengi bjuggu á
Torfalæk.
Allan sinn aldur hefir Jón alið
á Torfalæk, ólst þar upp hjá íor-
eldrum sínum. Tók síðan við bús-
forráðum og hefir búið þar ætíð
síðan.
í lok fundarins leitaði fund-
arstjóri eftir ákvörðun fundar-
manna um það, hverjir vildu
skrifa sig fyrir hlutafjárloforð
um í því skyni að framkvæma
tillögur nefndar bæjarins um
síldarverksmiðju í skipi.
Strax á fundinum komu
fram'loforð um 648 þús. krón-
ur frá bátaeigendum vegna 30
báta. Aðrir þurftu að taka frest
til bess að ræða við meðeigend
ur sína um þátttöku í fjelags-
stofnun. Næstu daga munu
liggja frammi á skrifstofu
Landssambandsins listi, sem
útgerðarmenn geta ritað sig á,
með skuldbindingum um hluta-
fjárframlög.
Þessar undirtektir útgerðar-
manna eru líklegar til þess að
hraða framkvæmd þess og koma
áleiðis þessu mikla velferðar-
máli.
Arið 1901 kvæntist Jón frænd-
konu sinni Ingibiörgu Björns-
dóttir frá Marðarnúpi í Vatns-
dal, ágætri og mjög mikilhæfri
konu.
Þau bjuggu saman í farsælu
hjónabandi til hennar æfiloka.
Hún ljest 1940. Þau eignuðust 7
sonu. Ljest einn þeirra ungur, en
6 eru á lífi alt fulltíða menn.
Þeir eru: Guðmundur skólastjóri
á Hvanneyri, Björn veðurfræð-
ingur í Reykjavík, Jónas fræðslu-
fulltrúi Reykjavíkur. Jóhann
Frímann og Torfi er búið hafa
undanfarið á Torfulæk og Ingi-
mundur heima á Torfulæk.
Jón á Torfulæk er fyrir margra
hluta sakir merkur maður.
Hans heimili hefir alla tíð ver-
ið fyrirmyndar heimili að gest-
risni, alúð og myndarskap. Jón
er glaðlyndur maður með af-
brigðum og hrókur alls fagnað-
ar. Hann er söngmaður mikill og
æfinlega forgöngumaður um
skemtan af söng. Meðal annars
söng hann tvísöng með hinum
alkunna söngmanni Kristjáni
Blöndal á Gilsstöðum.
A Torfalæk, er þingstaður
Torfalækjarhrepps. Þar eru flest
ir fundir sveitarmanna haldnir.
Glaðlyndi, alúð og rausn hús'-
bænda og sona þeirra hefir jafn-
an verið ánægjuefni nágranna
og annara og „laðað gésti“ eins
og hinir fornu Islendingar orð-
uðu það.
Jón á Torfalæk var áhugamað-
ur um menningu alla og )agði
eins og kunnugt er kapp á ment-
un sona sinna bæði heima og á
skólum. Kunna þeir líka að meta
það með fullu þakklæti hvers
virði þeim var áhugi hans í því
efni.
I fjelagslífi Húnvetninga hefir
Jón á Torfalæk jafnan tekið
mikinn þátt og mætti lengi telja
ef nefna ætti öll þau fjelög sem
hann hefir starfað í um d.agana.
Hann var lengi í sveit^rstjórn
Torflækinga, stjórn búnaðarfjel-
ags og ýmsum öðrum nefndum.
Hann var forgöngumaður þess að
bygt var samkomuhús Húnvetn-
inga á Blönduósi og í stjórn þess
fjelags um fjölda ára.
I almennum umbótamálum
hafði Jón inestan áhuga a rækt-
unar- og girðingamálum og gerði
miklar framkvæmdir á því sviði.
Jóil er vinsæll maður og vel
metinn, svo sem efni standa til.
Síðustu árin hefir hann lítið
af búskap en synir hans íekið
við og hafið miklar frámkvæmd-
ir í byggingum. Hefir Jón þó
staðið vel með sonum sínum í
þeim efnum, því enn er hann
við góða lieilsu og heldur glað-
værð sinni og frjálslyndi sem
ungur væri.
A þessum afmælisde'gi mun
hann verða á Hvanneyri hjá syni
sínum Guðmundi skólastjóra.
Jeg sendi honum hjer með inni
legusíu hamingjuóskir á þessum
merka afmælisdegi og þakka hon
um langa og góða samvinn’u og
vináttu. Veit jeg að fjöldi Hún-
vetninga fjær og nær hugsa íil
hans á sömu leið.
Jón Pálmason.
Smíði björgunar-
skipsins „Sæbjörg
tt
VEGNA villandi ummæla er
'birtust í dagbl. Vísi í gær, þá
hefir skrifstofustjóri Slysa-
varnafjelags íslands, Henry
Hálfdánsson, beðið blaðið fyrir
eftirfarandi leiðrjettingu:
Ummæli, sem höfð voru eftir
mjer í dagblaðinu Vísir í gær,
varðandi björgunarskipið Sæ-
björgu, eru mjög úr lagi færð
og birt án heimildar. Þegar jeg
var beðinn um frjettir af Sæ-
björgu, gat jeg þess, að við
vildum ekki láta á hana minn-
ast, þar sem það hefði valdið
okkur miklum vonbrigðum að
fyrirsjáanlegt væri að hún yrði
ekki tilbúin til sfhendingar á
20 ára afmæli fjel. 29. þ. m. eins
og ráðgert hafði verið. Hitt er
nokkurn veginn rjett eftir mjer
haft að hin nýja Sæbjörg verði
gott skip og vandað, enda allt
miðað að því, að svo yrði.
Fimtudaginn 22, janúar1 1918
— Heðal annara orða
Frh. af bls. 6.
sem er yfir vörum þessum, dug
ar eiií til þess að gera þær eft-
irsóknarverðar, líkt og sagt er
að bannlögin hafi komið mörg-
um reglumanninum til að fá
sjer cinn gráann á bak við yf
irvöldin.
SARA BERNHARDT,
En að þetta með kvikmynd-
irnar og bækurnar sje engin ný
bóla, má meðal annars sjá á
því, sem umboðsmaður Söru
Bernhardt skrifaði biskupnum
í Chicago, er þessi heimsþekta,
franska leikkona heimsótti
borgina. Biskupinn hafði ritað
mikið um það, að eitt leikrita
hennar, Camille, væri ósiðlegt,
og beitt sjer fyrir því af alefli,
að sýning þess yrði bönnuð í
Chicago og annarsstaðar. Árang
urinn varð vitaskuld sá sami
og með Forever Amber: færri
komust að en vildu, þegar leik-
ritið var sýnt, en umboðsmað-
ur Söru skrifaði biskupnum
eftirfarandi:
„Yðar hágöfgi. Það hefir ver-
ið venja mín í hvert skifti, sem
jeg hefi heimsótt borg yðar,'að
eyða 400 dollurum j auglýsing-
ar. En þar sem þjer hafið í
þetta sinn auglýst fyrir niig,
sendj jeg yður hjer með 200
dollara handa fátækum“.
imillltllrlllliuillllllllllllllllllllllltlllllliuilllllllllllllix
Nýr bíll
eða sem nýr (amerískur)
^óskast til kaups. Atvinna
getuf komið til greina. —
Uppl. hjá
Sölumiðstöð
Hraðfrystihúsanna.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiimiiiiiiiiiiiiiui iii 1111111111
I Asbjömsons ævintýrin.. -
Ógle> -niegar sögiar
| Sígilda ofcmentaperlur.
■nmannt.
iiii juiiiiiimiiiiua
Phil: Það er mögulegt að Boole hafi sloppíð í flug-
slysinu fyrir ári síðan. Lögreglustjórinn: Og þú heid
ur að hann hafi hjálpað, til þess að koma Gullaldin
úr fangelsinu. Phil: Fingraför ljúga ekki, Lögreglu-
stjórinn: Þá reiknar ríkislögreglan með því að Boole
sje á lífi. Phil: Jeg sje ekki betur. Lögreglustjórinn:
Þið getið treyst á okkur. Seinna. Phil: Jæja heldur.
er að rætast úr málinu og fyrst jeg hefi ekkert að
gera þá held jeg að jeg skreppi til Lindu.