Morgunblaðið - 22.01.1948, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
SUÐ-AUSTAN gola eða
kaldi. — Slyddujel öSru hvoru.
17. tbl. — Fimtudaginn 22. janúar 1948.
KAFLI úr fyrirlestri Arnulfs
Överland um einræði og lýð-
ræði er á bls. 7. —
FlugsföSin, sem verið er að byggja í Keflavík
J
Útlitsteikning af flugstöðinni og gistihúsinu, sem verið er að reisa á Keflavikurflugvelli.
■S>
Ríkisstjóri Hínne-
sefa kemur fil Kefla-
vikur
Keflavík. miðvikudag.
LUTHER W. YOUNGDAHL,
ríkisstjóri í Minnesotafylki í
Bandaríkju.num kom til Kefla-
víkur s.l. sunnudag og heim-
sótti B. R. J. Hassel, varafor-
seta IAC. Ríkisstjórinn var far-
þegi á flugvjel SAS, sem var á
ieið frá Stokkhólmi til Nev/
York.
Youngdahl ríkisstjóri hafði
verið boðinn til Svíþjóðar og var
gestur Gustavs konungs og
sænsku stjórnarinnar í sam-
bandi við Sænsk-Ameríska fje-
lagið, en hann hefur tekið mik-
inn þátt í þeim fjelagsskap,
enda býr ekki jafnmikill fjöldi
Norðurlandaafkomenda í neinu
ríki vestan hafs eins og Minne-
sota. í för með ríkisstjóranum
var Herman Nelson, sænskur
blaðamaöur frá Rockford í Iili-
nois.
Eyðileggja sprengiefni
JERUSALEM: — Bretar eru nú
að sprengja í loft upp smám
saman þau 10 þúsund tonn af
sprengiefni, sem þeir verða að
skilja eftir, þegar þeir fara frá
Palestínu. 2000 tonn hafa þegar
verið eyðilögð.
Keflavíkurflugvallar-
mannvirkin með þeim
fullkomnustu í heimi
Glsíihúsið og fiugstöðvarhygging
fulígerð í sumar.
FLUGSTÖÐVARBYGGINGIN nýja á Kéflavíkurflugvelli, sem
nú er I byggingu og ráðgert er að verði fullbúin síðari hluca
sumars, verður ein fullkomnasta flugstöð á leiðinni milli New
York og Norðurlanda. Verður hún fyllilega sambærileg við það
besta á alþjóðamælikvarða og samkvæmt nýtísku kröfum um
flugstöðvabyggingar.
Mikil mannvirki
Eins og kunnugt er af fyrri
frjettum er f jelag það, sem sam-
kvæmt samningum við ríkis-
stjórnina hefur tekið að sjer
rekstur Keflavíkurflugvallar, að
láta byggja mörg mannvirki á
i flugvellinum. í einni byggingar-
samstæðu verður gistihús, bið-
salir, farþegaafgreiðslur og ann-
að er að farþegaafgreiðslunni
lýtur. Húsið verður tvær hæðir
og verða veitingasalir, biðsalir
og afgreiðslur á neðri hæð, en
gistiherbergi á efri hæðinni.
Þessi bygging er komin það
langt nú, að verið er að setja
niður gólf í efri hæðina.
Auk þess er byrjað að byggja
birgðaskemmu mikla og verða
þar þvottahús, brauðgerðarhús
og annað, sem nauðsynlegt þyk-
ir.
Um 130 ísiendingar vinna að
byggingu þessara mannvirkja,
auk Bandaríkjamanna.
Undir íslcnsku eftirliti
Teikningar af byggingunum
gerðu amerískir arkitekiar, sem
áður hafa teiknað flugstöðvar
fyrir sama fjelag. En áður en
bygging hófst fóru þeir Hörður
Bjarnason skipulagsstjóri ríkis-
ins, Agnar Kofoed Hansen, flug-
vallastjóri ríkisins og Erling Er-
lingseh verkfræðingur yxir
teikningarnar og samræmdu þær
íslenskum sta'ðháttum og íslensk
um byggingarreglugerðum. —
Fengu þeir komið fram mörgum
breytingum, er þeir töldu nauð-
synlegar. Þá hefur nefnd sú er
utariríkisráðuneyt. skipaði til að
hafa eftirlit með samningunum
um Keflavíkurflugvöll, einnig
fjallað um þessi mál. Formaður
þeirrar nefndar er Gunnlaugur
Pjetursson fulltrúi í utanríkis-
ráðuneytinu.
Hörður Bjarnason hefur einn-
ig eftirlit með byggingunum eft-
ir því sem þeim miðar áfram og
er hann skipaður af ríkisstjórn-
inni í það starf. Þá hefur Agnar
Kofoed Hansen flugvallastjóri
að sjálfsögðu einnig eftirlit með
þeim byggingum og mannvirkj-
um, sem reist eru þar syðra.
Fleiri byggingar fyrirhugaðar
Fleiri byggingar eru fyrirhug-
aðar í framtíðinni á Keflavíkur-
flugvelli, svo sem íbúðarhús fyr-
ir starfsfólk vallarins, en ekki
verður byrjað á þeim strax.
Kemst í eigu íslendinga
Eins og kunnugt er af samn-
ingi, sem ríkisstjórnin gerði um
Keflavíkurflugvöllinn verða öll
þau mannvirki, sem í Keflavík
verða reist eign íslendinga er
Bandaríkjamenn hverfa hjeðan
af landi burt.
íslensku skíðamenn-
irnir komnir til
St. Moritz
FORMANNI OLYMPÍUNEFND
ARINNÁR barst á þriðjudaginn
skeyti frá skíðamönnunum, sem
fóru til Sviss, en beir voru þá
komnir til St. Moritz. Hafði ferð
in gengið vel og var líðan þeirra
að óskum.
Leikarnir hefjast 30. janúar
og standa til 8. febrúar. Þátttak-
endur eru alls frá 31 þjóð.
Alþýðusambandið tapaði málinu
gegn Vinnuveitendafjelaginu
Démur íjeli í gær í Fjelagsdómi
í GÆR VAR í Fjelagsdómi kveðinn upp dómur í máli því er
Alþýðusamband íslands fyrir hönd Verkamannafjelagsins Dags-
hrún, höfðaði gegn Vinnuveitendafjelagi Islands. Alþýðusam-
bandið höfðaði mál þetta gegn Vinnuveitendafjelaginu fyrir að
miða verðlagsuppbætur á kaup fyrir vinnu í janúar við vísitöl-
una 300. Máli þessu tapaði Alþýðusambandið.
300 stig frá 1. jan.
Samkvæmt 12. grein laga um
dýrtíðarráðstafanir nr. 128 fra
29. des. 1947, má ekki miða verð
lagsuppbót við hærri vísitölu en
300, meðan lög þessi eru í gildi,
— þar sem fjárhæð starfslauna
eða annara greiðslna er miðuð
við verðlagsvísitölu, samkvæmt
lögum samningum eða á annan
hátt. En lögin gengu í gildi 1.
jan. s.l. —- Þetta ákvæði skyldi
Vinnuveitendafjelag íslands á
þá lund, að vinnuveitendum
væri ekki heimilt að greiða
hærri verðlagsuppbót, en eftir
vísitölu 300 á kaup, sem unnið
væri fyrir í janúar 1948. Hins-
vegar taldi stjórn Verkamanna-
f jel. Dagsbrún, að vinnuveitend-
um bæri að greiða verðlagsupp-
bót á kaup þetta eftir vísitölu
328 en það var vísitala pr. 1. des.
1947. Byggði fjelagið þenna
skilning á ákvæði 5. gr. samn-
ings Vinnuveitendaf jelagsins vi<5
Dagsbrún, frá 7. júlí 1947. En
samkvæmt því skal hverju sinni
greiða verðlagsuppbót á kaup
eftir dýrtlðarvísitölu næsta mán
aðar á undan.
r j
í Fjelagsdómi
Ágreining þennan báru aðilj-
ar undir Fjelagsdóm og höfðaði
Alþýðusambandið vegna Dags-
brúnar mál gegn Vinnuveitenda
fjelaginu til að fá viðurkendaa
með dómi Fjelagsdóms sinn
skilning á málinu. Dómur fjeli
í gær og tapaði Alþýðusamband
ið málin, enda var það dæmt til
að greiða Vinnuveitendaf jel. 300
krónur í málskostnað.
Er þar með úr því skorið, með
dómi að verölagsuppbðt á lcaup
fyrir vinnu unna í janúar 190
og upp frá því meðan dýrtíðar-
lögin eru í gildi, má ekki miöct.
við hærri vísitölu en 300.
Eíirkjuráð ræðir húsbyggingarmálið
og frumvörp varðandi kirkjumá!
Ráðið bemur saman fil fundar í dag
HIÐ NÝKJÖRNA Kirkjuráð íslands, kemur saman til fundar í
dag. Fyrir ráðinu liggja allmörg mál. Meðal þeirra er þjóðkirkju-
húsið og frumvörp varðandi kirkjuna, sem lögð hafa verið fram
á Alþingi.
í Kirkjuráði íslands eiga
sæti auk biskups landsins, próf.
Ásmundur Guðmundsson, sjera
Þorgrímur Sigurðsson að Stað-
arstað, Matthías Þórðarson,
þjóðminjavörður og Vilhjálm-
ur Þór, forstjóri.
Þjóðkirkjuhúsið.
Fjársöfnun til byggingar
Þjóðkirkjuhússins, hefur farið
fram um land allt og er nú
bygjúngasjóðurinn orðinn nokk
uð á^annað hundrað þúsund kr.
Einn sinni kom til.tals að bygg
ingin yrði reist á Skólavörðu-
holti, en vegna bygginga, sem
þar eru að rísa af grunni og
annarra sem gert er ráð fyrir
að verði þar, var horfið frá
að reisa bygginguna þar. Nú
hefur Reykjavíkurbær úthlutað
lóð undir húsið við Miklubraut.
Frumvörp fyrir Alþingi.
Þá mun ráðið hafa til um-
ræðu frumvörp varðandi kirkju
mál, sem nú liggja fyrir Al-
þingi. Mun sjerstaklega verða
rætt um frumvarp um hækkun
sóknargjalda. En lögin um þau
eru nú orðin mjög gömul og
úrelt. í frumvarpinu um sókn-
argjöld, er gert ráð fyrir að
framlag hvers sdknarbarns
hækki úr kr. 1.25 í kr. 3 og
verði gjaldið innheimt með
vísitöluálagi. Þá er og gert ráð
fyrir að 50 aurar af sóknar-
gjaldi skuli renna í sjerstakan
sjóð, sem varið skal til sam-
eiginlegra þarfa kirkjunnar.
Þjóðkirkjan sem slík hefur nú
ekki umráð yfir neinu fje til
sinna þarfa.
Kirkjuráð mun einnig ræðá
prestkosningafrumvarpið og
önnur mál er snerta kirkjumál
landsins.
Fundurinn hefst kl. 4 og fer
fram að heimili biskups.
Sjö drepnir í Bagdad
Bagdad í gær.
SJÖ manns ljetu lífið hjer í
Bagdad í dag, er til átaka kom
milli stúdenta og lögreglu. Varð
uppþotið í sambandi við jarðar-
för þriggja stúdenta, sem drepn-
ir voru í óeirðunum í gær.
Varaforsætisráðherra írak
heldur því fram að kommúnist-
ar standi á bak við óeirðirnar í
landinu að undanförnu.
1 — Reuter,