Morgunblaðið - 28.01.1948, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.01.1948, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 28. jan. 1948. MOÍtGlINBLAÐIÐ Theódór Pdlsson, hákariðskipstjórl á Siglulirði 75 ár 27; JAN. varð einn kunnasti borg ari Siglufjarðar' 75 ára. Það er Theodór Pálsson, Suðurgötu 43. Hann þekkja allir Siglfirðirigar, og að góðu einu. Hann er skemti- legur maður og einkennilegur. Hann hefur margt xeynt um langá æfi. Hann kann frá mörgu að segja, sem mikill fengur væri að, ef skrásett yrði. Minni hans er öruggt, og hann kann vel að segjá frá. Þegar niður lögðust hákarla-5 veiðarnar, lauk merkum þætti íj atvinnusögu landsins, og þá eigi! síst í sögu Siglufjarðar, sem langl an aldur var önnur höfuðstöð há-l karlaveiðanna norðanlands. Einhverntíma kemur að því, að1 rituð verður saga hákarlaveið- anna, því að ekkert hefur verið um þær ritað að gagni, nema síð- ur sje, enn sem komið er. En verði sú saga rituð sómasamlega, verð- ur þar um leið skráð saga þeirra íslendinga, er einnri harðastri fearáttu hafa barist allra lands- manna, fyrir lífsafkomu sín og sinna. Þessi saga geymir mörg af- rek ókvalráðra, hraustra sæ- garpa. í þeirri sögu skiptast á skin og skúrir, gamanleikir og hryggilegar harmsögur. Hákarlaveiðin varð að þoka um set fyrir síldveiðunum fyrir þrem áratugum. Sú kynsióð, er var á miðjum aldri, er hákarlaveiðun- um lauk, er nú sem óðast að hverfa úr sögunni, og hjer á Siglu firði eru nú einir fjórir eftir hinna gömlu, frægu hákarlaskip- stjóra, og er Theodór Pálsson þeirra yngstur. Með þessum mönn um hverfur mikill fróðleikur, sann-fróðlegur sagnaauður, sem \’ið megum illa við að glata. Theodór er fæddur að Óslandi í Skagafirði 27. janúar 1873. For- eldrar hans voru þau hjónin Páll Jónssori frá Tumabrekku og Sig- þrúður Jónsdóttir, systir Jónasar skálds í Hróarsdal. Er Theodór var tæpra fjögra ára, missti hann föður sinn. Fór hann þá til föðurbróður síns, Jóns í Tumabrekku og dvaldi hjá hon- um til 8 ára aldurs. Fluttist hann þá_ með móður sinni að Engidal í Ulfsdölum, vestan Siglufjarðar, og ólst þar upp til fermingarald- urs. Skömmu eftir ferminguno fór hann til vistar að Höfn í Siglu firði, til Jóhanns bónda þar. Var hann þá strax sendur í hákarla- legur, og þær verða aðalstarfi hans á þriðja tug ára. En Theo- dór hafði fyrr kynnst hákarlin- um. Hann var tæpiega ellefu ára, er hann fór í fyrstu hákarlaieg- una, en þá að vísu ekki ráoinn í skiprúm. En það hefur Theodór sagt mjer, að hann muni betur þessa fyrstu för út á, þákarla- miðin en margar aðrar, er sögu- legri mundu þykja. Fram að tví- tugu var Theodór húseti, en brátt gerðist hann stýrimaður og fjekk ínnan skamms skipstjórarjettindi. Fyrst var hann lengi skipstjóri á Njáli gamla, síðar á Æskunni og' mörgum fleiri skipum. Hann var talinn með allra heppnustu há- karlaskipstjórum, ágætur sjó- maður og stjórnandi. Aldrei varð hann fyrir alvarlegum áföllum, og aldrei missti hann manri af skipum sínum. Hásetum Theo- dórs þótti ákaflega vænt um hann, og ekki er það ótítt, að gamlir undirmenn hans frá há- karladögunum heimsæki hann um langa vegu og færi honum gjhfir og glaðningu. Er það glögg ur vottur þess, hve vinsæil hann var. Heyrt hef jeg gamla hákarla menn, er með honum ýoru, kveða svo að orði, að aldrei hafi þeir verið með skemmtilegri manni á- sjó, og úrræðabetri mann kváð- ust, þeir ekki hafa-verið með, ef oitthvað bjátaði á. — Síldveiðar stundaði Théodór á sumrin, eftir að farið var áð sækja fast þær veiðar til muna. Theodór kvæntist 1897 fyrri konu sinni, Ólöfu Svanhildi Þor- steinsdóttur, ættaðri úr Húna- þingi. Hún ljest 1910. Þau hjón eignuðust .þrjú börn, og lifir eitt I Theodór Pálsson þeirra, Eggert, birgðavörður hjá Ríkisverksmiðjunum á Siglufirði. Þau hjón fluttust vestur um haf og dvöldust þar í þrjú ár. Lætur Theodór illa yfir dvöl sinni þar og óskar þess enn heitt og innilega, að hann hefði aldrei í þá veiði- stöð komið. Þótti honum þar fátt svara til gullinna loforða og glæstra lýsinga „agentanna". — Árið 1912 kvæntist Theodór seinni konu sinni, Guðrúnu'Ólafs dóttur. Varð Jieim þriggja barnr. auðið, sem öll eri' á iífi og upp- komin. Enda þótt Tneodór væri fyrst og fremst sjómaður, var h.ann cinnig fágætit-gí; i i j.I hesta. •. ið ur m> clskur að I eGum. H «■». átti líka afbragðs hesta, sem lengi mun minnst. — En þó var Grána hans ágætust allra. Hún var þrekmikil, úrvalsgæðingur og svo mikill fjörgammur, að fó- ir góðhestar munu hafa jafnast á við hana í nálægum hjeruðum. Grána Theodórs er heygð að forn um sið í Hafnartúni og vel um búið. Var hún heygð með öllum reiðtygjum, og sjer haug hennar enn í dag. Mun þó betur um búið síðar.. Ekki mundu ókunnir ætla, að Theodór væri orðinn hálfáttræð- ur. Hann er sem sje ekki ellileg- ur. Þvert á móti er hann ungleg- ur til að sjá, beinn í vexti og vask legur, viðbragssnöggur og ljettur í spori. Og lítt sjer á honum nú, áð hann hefur fengið marga slæma ágjöfina um ævina. Enn- þá er minnið traust, skapið ljett og manna er hann málreifastur. Það er hverjum sem er óhætt að sækja Theodór heim upp á það, að honum mun trauðla leiðast, þó hann tylli sjer stundarkorn hjá gamla manninum. Theodór á víða vini og þá marga trausta og góða. Jeg veit, að margir munu senda honum hugheilar óskir í tilefni af af- mælinu. S. B. Hafmeyjan lltla Eftir II. C. Andersen. Teikningar eftir Falke Bang. Útg. Tímaritið „Syrpa“. ÞETTA er eitt af allra fegurstu æfintýrum Andersens, enda er talið ao það sje þýtt á fleiri þjóðtungur en nokkurt annað skáldrit í heiminum, — að Nýja testamentinu undanskildu. Flest- ir fullorðnir menn munu kannast við söguna af hafmeyjunni litlu, er fckk ást á menskum manni og gekk á land til þess að íá að vera i návist hans. Fyrir )and- vistina varð -hún að greiða með miklum þ.iávúngum og varð þó að lokum að horfa upp á það, að ástvinur henr.ar íesti sjer aðra brúði. En ek-ki var þó harm ur hennar og sársaúki til einskis liðinn, þvi húr. hlaut að lokum ódauðlega sál. Og var þá betur fariö en heima setið. Ættu sem flestir að gefa börn- um sínum þetta fagra æfintýri, þvi betra lestrarefni er naumast völ á handa þeim. Teikningar Falke Bang eru lag legar og útgáfan öll hin smekk- legasta. Kristmann Guðmundsson, 5, \ <Sx®x$xSxSx$xSxSxSx$xSx$>3xSxSxSxSxSxSx$xSxíxSKSx$KSxSxSxSxSxSxSxSx®KSxSx$xSxSxSx$x$KSxSx$x$xSxSx$xSxSxíxSxSxSxSyj*s«$.® itsaín jóns Traiista Ennþá fæst hjá bóksölum og beint frá útgefanda Ritsafn Jóns Trausta frá byrjun 1.-—8. bindi. Handbundið forkunnar vandað band kr. 898,00 Skinnband (vjelbundið) ......... — 640,00 Shirtingsbánd, rautt og grænt .... •— 496,00 Óbundið ........................... — 388.00 Ritsain Jóns TransSa á að vera tii á hverju ísiensku heimili Lán óskasf 30—50 þús. gegn I. veð- rjetti í húsi, sem er í smíð- um. — Tilboð merkt: ,.Lán 50 — 264“ leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 30. jan. ■>■■■» KS'<?><í><$><$>'$'<$A>'$''$><S><S>C><$>'S><$'<5X<xS><J<i><$><J'^><$><$'<?x$<$><$'<$>''?-<$$><$'$>/<$><$><$><•'<•>>$>$x$><íX<x$> Aðaifnimiur czCitla jeCajjefacjSÍnA er í kvöld í Breiðfirðingabúð kl. 8. Mætið stundvíslega. Stjornin. iiiiimiiKiiiiiiiiimiiiiiiiiiiMttiimtiiimiiMiirtmiiiimir Ungur reglusamur sjómaður óskar eftir Herbergi í bænum, helst innan ilringbrautar. — Tilboð merkt: „Skilvís — 266“ leggist inn á afgr. Morg’- unbl. fyrir kl. 4 fimtudag. IIIMIMIIIIMMMMMMIMMMMMMIMMIIMMMMIMMIMMIIIMIi • MMIIIMAlllllimilMIMIIIMIIIMIMHIIIMIMMMMMMMMMIII | Til leigu | j stór hornstofa á Vífilsgötu I | 1. — Uppl. í dag milli kl. í í 5—7. | M|MIMIIMIMMIIIIIIIIMMMIIMMIIIIIIIMIMIIIIIMIIIIi>U4MM» IMMIIIIMIMIIIIMMMMIIMIIIMIIMIIMIIIIIIIIIIirillllMIMIMI Tvo vana háseta vantar á m.b. Mars. Upplýsingar um borð hjá skipstjóranum. Skipið liggur við Verbúðarbryggj- ur. ■®K$K$X$>^><$K$^K$<$X$^<$K^$><$XS*SxSx$X$K$K$kSX$<SX$X$K®<®<Sx$XSX$X$.$K$K^$kSX®<SX$KSx3xSk*> Húseiyn óskast keypt Húseign innarlega við Laugaveg óskast kevpt. l ilboð * merkt: ..Mikil útborgun“ sendist á afgr. Mbl. fyrir J> næsta þriðjudagskvöld. Skríistofustúlka Dugleg stúlka- helst með verslunarskólamentun, ósk- ast nú þegar á skrifstofu iðnfjTÍrtækis hjer i bænum. Umsóknir ásamt upplýsingum, semþist blaðinu fyrir E 30. þ. m., merktar: ..Dugleg skrifstofustúlka“. Litið hús við Ingólfsstræti er 61 sölu. Nánari upplýsingar gefur <> Málflutningsskrifstofa EIN.VKS B. GUÐMUNDSSONAR og GUÐLAUGS ÞORLÁKSSONAK Austurstræti 7. Símar 2002 og 3202. ^ laiiiiiHliiiiiiiiiiiiiiimHiiiiiiiiimMiiiiiMiiMiMmmiiiii) Nýr Chevrolet | fólksbíll ’47, með útvarpi 1 [ og miðstöð, keyrður 700 [ i km. til sölu. Verðtilboð i | óskast send afgr. Mbl. fyr- I I ir föstudagskvöld, merkt: I | „Nýr bíll 1947 — 269". § ■iiiiiNiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiniiiim húðarhús <-> <<> <<> og stór útihús (steinhús) í Sogamýri, til sóíu, — Nánari upplýsingar gefur Málflulningsskri fstofa EINARS B. GUÐMUNDSSONAR og GUÐLAUGSÞORLAKSSONAR Austurstræti 7, simar 2002 og 3202. <Sx®<®^<$x$^«^^x®#«^íx$x$x$x$x$x®«x$>«><$^x$^$x$^®<$x®«^Mx$K$xí>e. o <>

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.