Morgunblaðið - 07.07.1948, Síða 4
iiíííaiííiíssiSJíáeÍöíidiáiiáioBadcÉiiSBscoae'oíaoscgsss-
4
MORGUNBLAÐIÐ
Þ » ■ a
nýpr
Percy hinn ósigrandi
4, iiók,
Bækurnár um Percy hinn
ósigrandi eru semulega
vinsæiustu bækurnar, sem
Vasaútgáfan gefur út,
enda er efni þeirra fram-
úrskarandi spennandi og
fjölbreytí, Hver bók er
efnislega sjálfstæð.- Von-
andi kemur 5. Percybók-
in út síðar í sumar.
ióð n ási?
íkáldsaga frá „vilta vestr-
,nu“. eftir hinn kunna og
vinsæla höf. Zane Gray,
segir frá lífi og hættum
meðal vísundaveiðimanna
á sljettum Suður-Amer-
íku- Baráttan er hörð og
blóði drifin, en hinir
hrjúfu og harðgerðu veiði-
menn eiga einnig sína ást-
ardraiuna og framtíðar-
vonir.
r "
B£HK«,RY <iKAV
Ijá sjéræningjum
er saga um umkomulaus-
an dreng, sem lendir með-
al sjóræningja, og lendir
með þeim i ótal hættum
>g æfintýrum. Eftir mikl-
ar þrengingar er honum
bjargað úr klóm þeirra af
únverskum leynilögreglu-
manni, sem leitar svo uppi
l'öður hans. Sagan um Jim
litla er í senn leynilög-
reglu og sjóræningjaraga.
:3iigi No. 1066
er mjög
spennandi og viðburða-
hröð skáldsaga um fanga.
sem strýkur úr hegning-
arhúsi og eltingaleiiv lög-
reglunnar við hann- Fang-
nn er svo heppinn að hitta
í ungan æfintýramann, er
befur það fyrir dægradvöl
ið leika á lögregluna. Með
iðstoð hans kemst fanginn
undan og fær rjettlætingu
á röngum lífstiðardómi.
Takið Vasaúfgáfukækurnar með í sumarleyfið!
VASAÚTGÁFAN
Aðalútsala:
ólauerslun ^JJr. ^JJriótjánóóonar
Hafnarstræti 19.
^öaalóh
Miðvikudaginn 7. júli 1948.,
187. dagur ársins.
Síðdegisflæði kl. 19,05.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
rnini, sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfs Apóteki,
sími 1330.
Næturakstur annast Hreyfill, —
Sími 6633.
□ EDDA 594877 —- Kaífistofan
lokuð til 26. júlí.
Afmæli.
50 ára afmæli á í dag Jón And-
rjesson múrari, Mjósundi 13, Hafn-
arfirði.
25 ára hjúskaparafmæli eiga í
dag frú Hrefna Halldórsdóttir og Jú-
líus Sigurjónsson, skipstjóri, Bnmn-
stíg 8, Hafnarfirði.
Söfnin.
LandsbókasaS'niíi er opið kl. ÍÖ—
12, 1—7 og 8—10 alia virka daga
nema laugardaga, þá kl. 10—12 eg
1—7. — Þjóðskjalasafnið kl, 2—7
«lla virka daga. — Þjóðminjasafmð
kL 1—3 þriðjuduga. fimtudaga og
sunnudaga. — Listasafn Eiiars
Jónasonnr kl. 1,30—3,30 á sunnu-
dögum. — Bæjarbókasafnið kl.
10—10 alla virka daga nema laugar-
daga kl. 1—4. NáttúrugripasafniS
opið sunnudaga kl. 1.30—3 og þriðju
daga og fimtudaga kl. 2—3.
Tískan
Hjer sjáið þið tvo sumarkjóla, með ótal feHingum, rykkíngum,
blúnduiíi os slaufum. Það á að vcra kvenlegt.
Gengið.
Sterlingspund__________________26.22
100 Dandarískir dollarar ____ 650.50
100 kanadiskir dollarar ____ 650.50
100 sænskar krónur _________ 181.00
100 danskar krónur___________135.57
100 norskar krónur .. 131.10
100 hollensk gyllini _______ 245.51
100 belgiskir frankar _______ 14.86
1000 franskir frankar _______ 30,35
100 svissneskir frankar_____ 152.20
Brúðkaup.
Systkina brúðkaup. Síðastliðinn
laugardag voru gefin saman i Dóm-
kirkjunni tvenn brúðhjón. Þau Mar-
grjet Magnúsdóttir (Magnúsar- Pjet-
urssonar, hjeraðslæknis) og Jóhann
Gunnar Halldórsson (Halldórs Ey-
þórssonar, kaupmanns); og Jóhanna
Kristjánsdóttir (Kristjáns Bjarnason-
ar, Isafirði) og Guðmundur Magn-
ússon .(Magnúsar Pjeturssoner, hier-
aðslæknis). — Sjera Friðrik J. Rafn-
ar vigslubiskup gaf hjónaefnin saman.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Ásbjörg Haraldsdóttir,
þsjálsgötu 32 B og Ib Nielsen.
Síðasta leiguflugvjel
F. í.:
í gær fór hjeðan til Prestwick leigu
flugvjel Flugfjelags Islands með 24
farþegar. Er þetta siðasta ferð leigu-
fíugvjclar frá Scottish Aviation, en
F. í. hefir haft flugvjelar á leigu
frá þessu flugfjelagi við og við á
þriðja ár. — Flugfjelag Islands á
von á hinni nýju Skymastei Ilugvjel
sinni í þessari viku og mun þá hefja
utanlandsflug með henni.
Stefán íslandi
heldur fyrsta konsert sinn á þessu
sumri hjer í bænum i kvöld. — Að-
göngumiðar seldust upp á svipstundu
og hefur nú verið ákveðið, að hann
haldi annan konsert í Austurbæjar-
bíó á föstudagskvöldið. Eins og áður
hefur verið skýrt frá, er ekki liægt
að segja hve marga konserta Stefán
getur haldið hjer í bænum að þessu
sinni, þar sem hann er á förum norð-
ur í land á æskustöðvar sínar.
Óskar Gíslason tók myndina af
undirskrift samningsins um Marshall
lögin, sem birt var hjer í blaðinu í
gær. Láðist að geta þess undir mynd-
inni.
Happdrætti Háskóla
íslands
Laugardaginn 10. júlí verður dreg-
ið í 7. flokki happdrættisins. Eru þvi
aðeins 3 söludagar eftir. Þeir, sem
ætla úr bænum fyrir helgina, ættu
að muna að endurnýja áður.
Heilsuverndarstöðin,
í Templarasundi 3. fyrir ungbörn
og barnshafandi konur verðut- lokuð,
fyrst um sinn, urn óákveðinn tíma,
vegna viðgerða. Auglýst verður siðar,
hvenær stöðin tekur aftur til starfa.
S j ómannablaðið
Víkingur,
6.—7. tbl., er komið út. Efni er
m. a.: — Hornafjörður, eftir Kristján
Imsland, Fimtugur Loftur Biarnason,
útgerðarmaður, eftir G. G., Dieseltog-
arar og gufutogarar, eftir Þorkel Sig-
urðsson, 1 Bremerhaven vorið 1948,
eftir M. Jensson. Myndir úr Græn-
landsbók Guðmundar Þorlákssonar,
Óþekti sjómaðurinn, kvæði ef+ir Hjört
Hjálmarsson, Sjóhrakningur, eftir
Pjetur B. Jónsson, Fyrsti vjelbátur-
inn, Eru nýsköpunartogararnir lir-
eltir?, eftir Þorkel Sigurðsson, vjel-
stjóra, Einvígið á hafinu, eftir C. S.
Forster. Á frívaktinni, Mataræði,
eftir Júlíus Kr. Ólafsson, Siðasta sigl-
ingin, eftir 'Frederic Loomis, Guðbj.
Guðbjartsson vjelstjóri, 75 ára. Hval-
£ Jeg er að velta
því fyrir mjer —
Hvort maður, sem nær ekki
upp í nefið á sjer, geti nieð
nokkru móti klórað sjcr í
höfðinu.
5 rnmím kmssgáfi
Skýringar:
Lárjett: 1. Fiskar. 6. I sjó. 8. Leit.
10. Dýramál. 11. Komum við. 12.
Hljóðstafir. 13. Fangamark. 14. Erfiði
16. Rasa.
Lóðrjett: 2. Eignast. 3. Síifna. 4.
Eins. 5. Stafurinn. 7. Slá. 9. Fljótið.
10. Hjálparsögn. 14. Drjkkur. 15.
Eins.
Lausn á krossgálu Nr. 204.
Lárjett; 1. Mygla. 6. Aum. 8. A.
K. 10. AA, 11. Krullur. 12. Ná. 13.
Ró. 14. öld. 16. Fæddu.
Lóðrjett: 2. YA. 3. Gullöld. 4. LM.
5. Rakna. 7. Barón. 9. Krá. 10. Aur.
14. ö Æ. 15. D D.
saga. „Vega“ siglir fyrir Tsjeluskin-
höfða, Kafli úr bókinni „Norden-
skjöld“. Formánnavísur úr Brunna-
staðahverfi, ortar veturinn 1861, Um
slysavarnir. Athugasemdir við Græn-
landsritge: ð Ólafs Lárussonar í And-
vara 1924, eftir Jón Dúason o. m. fl.
Blaðið er að þessu sinni 56 lesmáls-
siður.
* * *
Síðastliðinn laugardag voru gefin
saman í hjónaband af sjera Jóni Thor
arensen, Ingibjörg Þorsteinsdóttir
(Stefánssonar, Hrísateig 8) og Ölafur
Björnsson. skrifstofumaður. Heimili
ungu hjónanna er á Marargötu 3.
Skipafrjettir.
Brúarfoss er í Leith. Fjallfoss er í
Reykjavík. Goðafoss er í Antwerpen,
fer þaðan væntanlega á morgun 7. 7.
til Reykjavikur. Lagarfoss er á Akra-
nesi. Selfoss fer frá Reykjavík kl.
22,00 í kvöld 6. 7. vestur og norður.
Reykjafoss fór frá Larvik 5. 7. til
Hull og Reykjavíkur. Tröllatoss er í
N. York. ILorsa fór frá Leith kl. 24,00
4. 7. til Reykjavíkur. Madonna lestar
í Hull 7. 7.
Áheit.
Til hjónanna sem brann hjá yið
Laugaveg: Á. 25 krónur.
Fil hjónanna. sem brann hjá við
Elliðakot; Áheit 50 kr.
Útvarpið:
Miðvikudagur 7. júlí.
8,30 Morgunútvarp. — 10.10 Veð-
urfregnir. 12,10—13,15 Hidegisút-
varp. 15.30 Miðdegistónleikar. 16,25
Veðurfregnir. 19,30 Tónleikar: Lög
leikin á banjó og balalaika (plötur).
19,45 Auglýsingar. 20,00 Frjettir.
20,30 Utvarpssagan: „Jane Eyre“ eft-
ir Chariotte Bronte, XVI. (Ragnar
Jóhannesson skólastjóri). 24,00 Tón-
leikar: Symfónía nr. 2 í D-dúr. eftir
Sibelius (endurtekin). 21,35 Þýtt og
endursagt: Myndir úr tónlistarlífi
Vínarborgar fyrir aldamótin (Jón
Þórarinsson). 88,00 Frjettir. .22,05
Danslög (plötur). 22,30 Veðurfregnir
Dagskrárlok.
Uppskereihorfur í
BreSlandð
MIKLAR rigningar hafa undan
farið verið í Bretlandi og veld-
ur það töfum á heyskap. Slátt-
ur er yfirleitt ekki hafinn og
þó komið nokkuð tfram yfir
venjulegan tíma. Óttast er, að
það kunni að hafa nokkur áhrif
á mj ólkurframleiðsluna í vet-
ur. —