Morgunblaðið - 07.07.1948, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudaginn 7. júlí 1948.
Marshall-samningurtnn
Framh. af bls. 9.
ar eru til hliðar samkvæmt
þessari málsgrein.
5. Ríkisstjóm Islands mun
ennfremur láta í tje þær upp-
hæðir í krónum af innstæðum
á hinum sjerstaka reikningi,
sem nauðsynl. kunna að vera
til þess að standast kostnað (þ.
á.m. hafnar-, geymslu-, af-
greiðslu- og slíkan kostnað) v»ð
flutning frá aðkomuhöfn á ís-
landi til afgreiðslustaðar við-
takanda á íslandi á þeim gjafa-
sendingum og bögglum, sem um
ræðir í 117. gr. (c) laga frá
1948, um efnahagssamvinnu.
6. Ríkisstjórn íslands getur
hafið innstæður. sem fyrir hendi
kunna að vera á hinum sjer-
staka reikningi til þeirra ráð-
stafana, sem samkomulag kann
að nást um á hverjum tíma 'dð
ríkisstjórn Bardaríkja Amer-
íku. Við athugun á tillögum,
sem ríkisstjórn Islands gerir
um ráðstöfun á innstæðum á
hinum sjerstaka reikmngi, mun
ríkisstjórn Banc-aríkja Ameríku
hafa í huga þá þörf, sem er á
því að efla eða viðhalda óryggi
í peningamálum og fjármálum
innanlands á ísiandi og á því að
efla framleiðslustörf og milli-
ríkjaviðskipti svo og leit að og
eflingu á nýjum auðlindum á
Islandi, þar með talið sjerstalí-
lega:
(a) útgjöld vegna fyrirætlana
eða áætlana þ.á.m. þeirra,
sem eru þáttur í heildar-
áætlunum eflingu fram-
leiðslugetu íslands og hinna
þátttökuríkjanna, og fyrir-
ætlana eða áætlana, sem er-
lendur gjaldeyriskostnaður
við er greiddur með aðstoð.
sem ríkisstjórn Bandaríkja
Ameríku veitir samkvæmt
lögum frá 1948 um efna-
hagssamvir.nu eða á annan
hátt, eða með lánum frá
Alþjóðabankanum.
(b) útgjöld í sambandi við leit
að og aukna framleiðslu á
efnivörum, sem þörf kann
að vera fyrir í Bandaríkj-
um Ameríku, vegna skorts,
sem er eða líklegt er að
verði á slíkum vörum í
Bandaríkjum Ameríku; og
(c) niðurgreiðslur, sem um
munar, á þjóðarskuldum,
einkum á skuldum Lands-
banka Islands eða annarra
bankastofnana.
7. Kvaðalausum innstæðum,
öðrum en óráðstöfuðum upp-
hæðum, sem Lgðar hafa verið
til hliðar samkvæmt 4. mgr.
þessarar greinar, sem eftir eru
á hinum sjerstaka reikningi h.
30. júní 1952, skal ráðstafað á
íslandi í þeim tilgangi, sem
samkomulag kann að nást um
milli ríkisstjórna íslands og
Bandaríkja Ameríku, og er þá
áskilið, að sampykki Bandaríkja
Ameríku sje háð staðfestingu
löggjafarþings Bandaríkja
Ameríku í form: lags eða sam-
eiginlegrar ályktunar begt'ja
deilda.
V. GREIN
Öflun efnivara.
1. Ríkisstjórn íslands mun
greiða fyrir afhendingu til
Bandaríkja Ameríku, til birgða-
söfnunar eða 1 öðru skyni, á
efnivörum, sem framleiddar
eru á íslandi og Bandaríki
Ameríku þarfnast vegna skorts,
sem er eða líklegt er að verði á
þeirra eigin auðlindum, með
sanngjörnum söluskilmálum,
skiptum, vöruskiptum eða á
annan hátt og því magni og t!l
þess tíma, sem samkomulag
kann að nást um milli ríkis-
stjórna íslands og Bandaríkja
Ameríku eftir að hæfilegt tillit
hefur verið tekið til sanngjarnra
þarfa íslands til eigin notkun-
ar og venjulegs útflutnings
slíkra efnivara.
Ríkisstjórn íslands mun gera
þær sjerstöku ráðstafanir, sem
nauðsynlegar kunna að vera til
þess að framkvæma ákvæði
þessarar málsgreinar, þ.á.m.
stuðla að aukinni framleiðslu
slíkra efnivara á íslandi og af-
nema sjerhverjar tálmanir á af-
hendingu slíkra efnivara til
Bandaríkja Ameríku. Ríkis-
stjórn íslands mun, þegar ríkis-
stjórn Bandaríkja Ameríku, ósk
ar þess, hefja samningaviðræð-
ur um nánari ákvæði, er nauð-
synleg eru til þess að framkv.
fyrirmæli þessarar málsgrein-
ar.
2. Ríkisstjói n íslands mun,
þegar ríkisstjórn Bandaríkja
Ameríku fer þ( ss á leit, taka
þátt í samningaumleitunum um
viðeigandi ákvæði til að fram-
kvæma fyrirmæli 115. gr. (b)
(9) laga frá 1948 um efnahags-
samvinnu, er varðar fram-
leiðslu og afhendingu á efni-
vörum, sem Bandaríki Ameríku
þarfnast.
3. Ríkisstjórn íslands mun,
þegar ríkisstjórn Bandaríkja
Ameríku óskar þess, hafa sam-
vinnu, þegar það á við, um að
markmiðum 1. og 2. mgr. þess-
arar greinar verði náð að því er
snertir efnivörur, sem til eru
orðnar utan Ísíands.
— Meðal annara orða
Framh. af bls. 8.
arnir fylgja ekki ætíð sínum
stjórnmálaflokki að máli í því
efni, getur svo farið að úrslit
kosninganna komi mörgum á ó-
vart.
í landinu er víðtæk hreyfing,
Rijkseenheid, sem berst fyrir
því að varðveita einingu hoi-
lenska konungsríkisins — vill
ekki að það verði klofið með því
að gefa einstökum nýlenduni
aukin völd.
Því nær allir hinna atærri
stjórnmálaflokka eru klofnir i
máli þessu og cgerningur er að
segja um það, hvort verður
sterkara við kosningarnar,
flokkstryggðin eða andúð ein-
staklinganna á því, að „kljúfa
nýlenduveldið hollenska".
Það er samt sem áður viður
kennt af allflestum, nema þeirn
allra íhaldssömustu, að nauðsyn
legt sje að gera einhverja breyí-
ingu á stjórnarhögum Indónes
íu og hollensku Austur-Indíum.
Getur ekki hafa verið
bandarískt herskip
Kairo í gær.
EGYPTAR kvörtuðu nýlega
yfir því við Bandaríkin, að
bandarískur tundurspillir hefði
skotið á stöðvar Araba á Palest
ínuströnd. Bandaríska stjórnin
hefur svarað þessu og segir, að
þetta hljóti að vera á misskiln
ingi byggt, því að málið hefur
verið rannsakað og er óhugsan
legt, að nokkuð bandarískt her
skip hafi þar verið að verki.
- Berlín
Framh. af bls. 1
flutninga fjórar Lancaster flug
vjelar, sem notaðar hafa verið
í tilraunir við að láta bensín á
langferðaflugvjelar í lofti. Hafa
þessar vjelar innbygða stóra
bensíngeyma. Verða þær hlaðn
ar hráolíu eða bensíni, sem nú
er orðinn mikill skortur á í
Berlín.
V-V-Hðið vann
Finna 2:0
FINNSKA knattspyrnuliðið
ljek síðasta leik sinn í gær-
kvöldi. Mættu Finnar nú úrvali
knattspyrnumanna úr Val og
Víking. Leikar fóru svo, að
V-V-liðið sigraði með tveim
gegn engu. Finska liðið hefir
því sett eitt mark í þeim þrem
leikjum, er þeir hafa háð. hjer,
en fengið átta.
Vissulega var sigur V-V-liðs
ins pyiægjulegur, en ekki verð-
ur þó hjá því komist að minn-
ast þess, að Finnar hafa í öll-
um þessum leikjum verið
merkilega óheppnir. í gær-
kvöldi komst vinstri útherji t.
d. fjórum sinnum að opnu
marki, en boltinn fór ýmist yf-
ir markslána, eða framhjá. —
Þótti áhorfendum þetta undr-
um sæta. Þegar maður athugar
þetta, þá hefðu eðlileg úrslit átt
að geta orðið a. m. k. jafntefli.
Leikurinn í gærkvöldi var á-
kaflega „nettur“. En góð til-
þrif mátti sjá hjá liðum beggja.
Uppþlaupin voru oft mjög vel
uppbyggð. Finnar sýndu þó
betri skiftingu í þeim.
Fyrri hálfleikur var miklu
daufari, en það var í lok hans,
á síðustu mínútunum, sem Jó-
hann Eyjólfsson, fjekk knött-
inn ,og skoraði óverjandi mark.
— Jóhann var á vinstri kanti.
Þannig lauk fyrri hálfleik, að
V-V-liðið skoraði eitt mark, en
Finnar ekkert.
Seinni hálfleikurinn var
miklu fjörlegri. Þá skoraði Jó-
hann tvö mörk til viðbótar. í
fyrrra sinnið dæmdi Guðjón
Einarsson hann rangstæðan. —
En seinna markið setti Jóhann
nokkrum mín. síðar. Þá var síð
ari halfleikur um það bil hálfn
aður. Það sem eftir var, voru
Finnar í mikilli sókn, en alt
kom fyrir ekki. Þeir gátu ekki
sett mark. —- Hermann Her-
mannsson varði snildarlega tvö
skot, sem komu á mark hans.
Þetta voru einu snörpu skotin á
mark V-V-liðsins.
Knattspyrnumenn og velunn
arar knattspyrnunnar þakka
Finnunum komuna. Þeir hafa
sýnt. drengilegan leik og við
vonumst til að eiga eftir að sjá
þá hjer á ný og þá væri ósk-
andi að hægt væri að bjóða
þeim til keppni á grasvelli. —
Finnar, hafið þakkir fyrir kom
una.
—Sextíuogsjö.
ZJL
onaciud
hæstarjettarlögmaður.
Merfcileg úfgáfu-
sfarhemi Norræna
fjelapins og
Helgafelfs
NORRÆNA fjelagið og bóka-
útgáfan Helgafell hafa nú hafist
handa um útgáfu, sem dregist
hefur allt of lengi og mun vekja
almenna ánægju. Það eru bæk-
ur um lönd og þjóðir Norður-
landanna. Fjelögin hafa nú sent
frá sjer fyrstu bókina og er vel
að byrjað er á minnstu þjóð-
inni, Færeyjum. Er sú bók fyr-
ir margra hluta sakir hin glæsi
legasta og merkileg útgáfa.
Efni bókarinnar er skift í átta
aðalkafla: Náttúran, þjóðin, fisk
veiðar, landbúnaður, hvalveið-
ar, fuglatekja, saga Færeyja og
merkisstaðir. Hið góðkunna fær
eyska skáld, Jörgen-Franz
Jacobsen, sem flestir íslending-
ar þekkja af skáldsögu hans,
Barbara, sem hjer kom út fyr-
ir nokkrum árum og varð met-
sölubók, hefir einnig skrifað
bókina um Færeyjar og er hún
listaverk. Jörgen-Franz var
mikill ættjarðarvinur og flug-
gáfaður. Hann Ijest á hæli í
Danmörku fyrir nokkrum ár-
um. Aðalsteinn heitinn Sig-
mundsson þýddi bókina frá-
bærilega vel og bætt nokkrum
köflum inní. en hann var eins
og kunnugt er nákunnugur Fær
eyingum og færeyskri menn-
ingu og unni þjóðinni mjög.
Formálsorð ritar Vilhjálmur
Þ. Gíslason, skólastjóri. En efni
bókarinnar er aðeins talið til
hálfs, því síðari helmingur bók-
arinnar er myndir. hátt á annað
hundrað fallegra og glæsilegar
myndir frá Færeyjum. Er fyrst
heilsíðumynd af einum merk-
asta manni, sem sú þjóð hefir
alið, Joannes Patursson og
því næst af helstu skáldum þjóð
arinnar, vísindamönnum og öðr
um áberandi mönnum eyjanna
og síðan kemur sægur af mynd-
um af atvinnulífi, merkum bygg
ingum og bæjum og loks mikið
úrval ágætra landslagsmynda.
Hafa fjelögin látið taka þær
flestar sjerstaklega í bókina og
hafa þeir Börge Bildsöe-Hansen
Kbhvn. og Poul Als, Færeyjum
tekið mestan hluta þeirra.
Bókin er mjög fallega prentuð
og pappír fallegur og frágang-
ur allur Helgafelli til sóma.
Bókin kostar þó ekki nema 50
kr. í sterku bandi. ■,
A
Á
Eíflr Roberl Sform
Me-AUVMHíLE LB7'e> F0R6ET
CHAKMAlNc, )'C
vmDERFULÍ 1
CH/UWA.NE, S
'i l t / ^^*'*" N ASwJT
CUTTINö m 1N ON
THI£ HOT-CAK DíAL? *
MjÍ|i
._5 &%£
X-9: Hefurou fundiö nokkur fingraför, Bing?
Bing: Já, og það greinileg fingraför, þar á meðal
eftir Gullaldin. Hann hefur verið hjer að verki. Nú
er enginn vafi lengur. — Hvað sagði lögreglan í
Detroit um símanúmerið? X-9: Maðurinn, sem hefur
það er starfsmaður við bílaverksmiðjurnarnar. Lög
reglan ætlar að hlera símtölin við hann.
Á meðan. Gullaldin: Karmen, þú ert dásamleg,
jeg .... Karmen: Ekki meiri ástarævintýri, en hvað
segirðu um, að við skiptum jafnt milli okkar gróð-
anum af bílunum.