Morgunblaðið - 10.07.1948, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIb
Laugardagur 10. júlí 1948* j
MENN rífast um allt á þessu
landi, meira að segja um það,
iivenær lóan og krían komi. —
Stefán var síðastur farfuglanna
að þessu sinni, en þá var líka
farið að rífast um aðgöngumið-
ana að söngskemtunum hans í
Austurbæjarbíó! Eftir 3—4 tíma
fekkst enginn lengur. Sýnir
þetta best hinar miklu vin-
aæidir Stefáns hjer í ættlandi
hans, enda eru þær rjettmæt-
ar, því — (eins og oft hefur
áður sagt verið) — Stefán er
í tölu bestu söngvar Norður-
landa og við megum vera stolt-
ir af honum.
Menn gleðjast yfir „dirrendi“
söng lóunnar enn þann dag í dag
eins og listaskáldið góða á sín-
um tíma, og líkt er það með
Stefán: Hinir mörgu unnend-
ur hans, fagna komu hans og
njóta sætleika raddarinnar og
töframáttar hennar nú eins og
áður.
Það var óvenju elegiskur blær
yfir þessari söngskemtun. —
Menn voru eitthvað að tala um
þunglyndi og þess háttar, fram
á ganginum í hljeinu. En þegar
10 lög af 12 eru í moll, og þess
utan margar vögguvísur, ja, þá
fer það auðvitað í sálina og
snertir viðkvæma strengi.
Hluturinn er sá, að pró-
grammið var of einhliða. Það
vantaði hressandi lög og drama-
tískan djöfulgang. sem fær kalt
vatnið til að renna milli skinns
og hörunds. En Stefán er aðeins
að byrja að þessu sinni, hann
á þetta allt í pokahorninu, ver-
ið viss!
Rödd Stefáns er yndisleg. —
Hún er þó breiðari og dekkri
nú en fyrr, sem er eðlileg af-
leiðing þess, að hann syngur
margvfsleg hlutverk í óper-
tmni og verður að reyna mikið
á raddböndin. En hann á til
það lýsigull raddarinnar, sem
er ómetanlegt og er hans eigin
eign. Mégi hann varðvéita það
framar öllu öðru.
Það er óþarft að geta þess,
að blómvendirnir skiftu víst
tugum og fagnaðarlátunum ætl-
aði seint að linna. — Weiss-
happel aðstoðaði ágætlega ,með
undirleik sínum.
P. í.
HeykjawteriMis!-
ðramáfið í frjáls-
íþróttuHi 14. og 15.
júií
REYK J AV f KURMEISTAR A-
MÓTINU í frjálsíþróttum, sem
fram átti að fara á mánudag og
þriðjudag í næstu viku hefir
vcrið frestað til miðvikudags og
fimmtudags vegna ársþings TSÍ
sem fram fer á mánudag og
þriðjudag.
Á miðvikudag verður keppt
» 200, 800 og 5000 m. hlaupi,
|400 m. grindahlaupi, lrástökki,
í larigstökki, kúluvarpi og spjóh
Ikasti. Á fimmtudag verður svo
!keppt í 100, 400 og 1500 m.
hlaupi, 110 m. grindahlaupi
slangarstökki, þrístökki, sleggju
kasti og 4x100 m. boðhlaupi.
HraSar m hljéðið
Amerísk þrýstiloftsflugvjel af
gerðinni Xs-1 l eíir sett hraða-
met í flugi og komist upp í rúm-
lega 1000 km. hraða á klst.
Niðurjöinun skatta
og úSsyara á
áfeureyri
NIÐURJÖFNUN skatta og út-
svara er lokið á Akureyri. —
Stærstu gjaldendur eru (skatt-
ar fyrri talar,, útsvar síðari tal-
an): Benedikt J. Ólafsson. mál-
ari, 7,229, 10,490. Eðvarð Sigur-
geirsson, ljósmyndari, 13,698,
15,850. Egill Jóhannsson, skip-
stjóri, 15,519, 11,250. Eyþór
Tómass., kaupm., 8,165. 11,700.
Friðjón Jensscn, tannlæknir,
8,013, 10,570. Friðjón Skarp-
hjeðinsson, bæjarfógeti. 7,594,
10,060. Friðrik Magnússon, hdl.,
8,151, 10,330. Bjargey Pjeturs-
dóttir, kaupk., 5,164, 10,000.
Helgi Skúlason, augnlælcnir,
14,982, 16;500. Inariði Helga-
son, kaupm., 15,004*, 17,810.
Jakob Karlsson, afgr.m., 16,738,
17,790. Jón B. Jónsson, múrari,
10,175, 12,200. Kristinn Guð-
mundsson, skattstjóri, 8.952,
11,070. Kristján Jónsson, bak-
ari, 11,982, 17,170. Laxdal, Bern
harð, klæðsk., 36,559, 30,150.
Páll Sigurgeirsson, kaupmaður,
29,860, 28,440. , Sigurður O.
Björnsson, prentsm.stj., 11,842,
12,690. Sæmur.dur Auðunsson,
skipstjóri, 33,292, 17,760. O. C.
Thorarensen, lyfsali, 13,465,
16,920. Válgarður Stefansson,
heildsali, 22,138, 23,340. Þor-
steinn M. Jónsson, skólastjóri,
9,821, 11,340. Þórarinn Björns-
son, skólam., 9,370, 11,560.
Amaro h.f., 30,996, 35,780. Bif-
reiðastöð Akureyrar h.f., 3,920,
12,340. Bókaf. Þ. M. Jónssonar
h.f., 12,248, 18,670. B.S.A., verk-
stæði h.f., 5,402, 10,760. Bygg-
ingarvöruv. Ak. h.f„ 4,875,
14,270. Byggingarvöruv. T. B.
h.f„ 17,622, 28,470.1. Brynjólfc-
son & Kvaran 18,830 (úrsv).
Kaffibrennsla Ak. h.f., 7,574,
12,060. Kaupfjelag Eyfirðinga,
247,661, 78,650. Prentverk Odds
Björnssonar h.f., 4,515, 11,049
S.Í.S. 31,120 (útsv.). Smjörlík's-
: gerð Akúreyrar h.f., 9,580.
16,910. Útgerðarfjelag Akurevr
inga h.f., 246, 18,000. Útgerðar-
fjel. K.E.A. h.f, 11,584, 16,780.
Viktor & Snorri s.f., 12,505,
12,320. Verslunin Eyjafjörður
h.f., 4,456, 16,880. Vöruhúsið
h.f., 22,201, 29,550. — Notaður
var sami útsvarsstigi og 1947,
en þá var bætt ofan á útsvörin
5%. Nú hafa öll útsvör yfir
1000 kr. verið iækkuð um 10%
frá útsvarsstiga og útsvör 1000
og minni verið lækkuð um 20%.
Framhaldsskóiakennarar
stofna landssamband og
gera ályktanir um
skólamál
A STOFNFUNDI Landssam-
bands framhaldsskólakennara,
sem háð var í Reykjavík 17.—
19. júlí s.l., voru ýmis fræðslu-
og hagsmunamál rædd og álykt
anir gerðar. Verður hjer getið
þeirra helstu:
i
Aukin bókmenntakennsla.
Að auka bæri kennslu í
framhaldsskólum landsins í ís-
lenskum bókmenntum og samn
ingu ritgerða, en stafsetningar-
nám sje gert auðveldara, m.a.
með því að nemendum leyfist
að nota stafsetningarorðabæk-
ur.
Nýjar kennslubækur.
Endursemja þurfi kennslu-
bækur í fjölmörgum greinum
og frumsemja í sumum, m.a. í
íslenskri bókmenntasögu. —
Mannkynssaga sje stytt, en ís-
landssaga og fjelágsíræði auk-
in að miklum mun. Skrift sje
skyldugrein í öllum aldurs-
flokkum gagnfræðastigsins.
Sjerskólar vangæfra unglinga.
Nauðsynlegt sje, að sem allra
fyrst komist á fót skólar fyrir
unglinga, sem að dómi skóla-
stjóra og kennara reynast ó-
hæfir til venjulegrar skólavist-
ar.
Námsstjórar.
Ráða þurfi hið fyrsta náms-
stjóra fyrir gagnfræðastigið,
eins og lög gera ráð fyrir.
Reglusemi og siðprýði.
Áfengisneysla og reykingar
sjeu algjörlega bannaðar í skóla
húsum bæði við nám 'og fje-
lagsstörf, og hvetur þingið kenn
ara til góðs fordæmis í bind-
indismálum.
(
Fjelagslíf.
Kennarar hafi eftirlit með
fjelagslífi og ferðalögum nem-
enda og leiðbeini þeim á því
sviði. — Fræðslumálastjórn gefi
hið fyrsta út handbók með leið
beiningum um háttvísi og góð-
ar fjelagsvenjur.
Launaskcrðingar.
Þingið lýsir óánægju sinni
yfir lækkun á launum stunda-
kennara, skv. reglugerð frá 29.
sept. 1947, og mótmælir þeirri
launaskerðingu, sem ákveðin
var í reglugerð 20. febrúar
1948, og telur, að með henni
hafi skapast misræmi á launa-
greiðslum fyrir svipuð störf. —
Þingið lýsir stuðningi sínum
við samþykktir fuiltrúaþings
S.Í.B. viðvíkjandi löggjöf um
dýrtíðarráðstafanir o. fl., og
telur nauðsyniegt, að bætt verði
hið bráðasta úr misrjetti því,
Útsvör er námu 100—120 verið
felld niður. Rekstursútsvör hafa
verið lækkuð um 5% frá 1947.
sem þessi löggjöf veldur launa-
starfsmönnum.
Skipun kennara.
Kennarar sjeu settir og skip-
aðir samkvæmt lögum, cn ekki
ráðnir einungis eins og mjög
hefur tíðkast síðari ár.
j
Samsíarf allra kennai'a.
Nauðsynlegt sje að náið sam
starf takist milli allra kennara
landsins, og standi þeir saman
að útgáfu tímarits.
Þingið samþykkti að lokum
að leita upptöku í B.S.R.B. fyr-
ir hönd L.S.F.K.
Þá fól það stjórn sambandsins
að skipa nefnd manna til vand-
legrar athugunar á námsbók-
um og námsefni framhalds-
skóla, og leiti hún samstarfs við
sem flesta lcennara. — Tillögur
nefndarinnar verði síðan lagð-
ar fyrir sambandsþing á næsta
ári.
FRAMHALDSSTOFNFUND
UR Húsmæðrakennarafjelags
Islands var haldinn í Reykjavík
1- júlí 1948. Allmargir skóla-
stjórar og kennarar húsmæðra-
skólanna voru mættir á fund-
inum. Gengið var frá stofnun
fjelagsins, samþykkt lög fyrir
það og kosin stjórn, en hana
skipa: Halldóra Eggertsdóttir
skólastjj. á Laugarvatni, form.
Guðrún Jónasdóttir, vefnaðar-
kennari í Húsmæðraskóla
Reykjavíkur, gjaldkeri, Vigdís
Jónsdóttir, skólastjóri áTarma-
landi, ritari, Elsa Guðjónsson,
heimilishagfræðingur og Dag-
björt Jónsdóttir húsmæðrakenn
ari, Reykjavík, meðstjórnendur.
Rjett til að vera i fjelaginu
hafa þær, se'm lokið hafa kenn
araprófi í hússtjórn, handa-
vinnu eða vefnaði, eða hafa á-
unnið sjer rjett húsmæðrakenn
ara með starfi samkvæmt 12-
grein laga frá 1946 um hús-
mæðrafræðslu, og starfai .di fast
ir kennarar við húsmæðraskól-
ana.
Tilgangur fjelagsins er:
A: Að vinna að alhliða fram
förum húsmæðrafræðslunnar í
landinu.
B: Að gæta hagsmuna hús-
mæðrakennarastjettarinnar og
stuðla að aukinni menntun
kennara.
iingverjar senda
engan fulttrúa
Budapest í gærkveldi.
UNGVERSKI kommúr.ista-
flokkurinn tilkynnti í dag, að
hann myndi ekki senda neinn
fulltrúa á þing júgóslavneskra
kommúnista 21. júlí n. k.
—Reuter.
„Kréimiinin" í Kroit
------ ;.
' Tf
Sigfús Sigurhjartarson l
skýst á bak við ,hátísetta
F ramsóknarmemia
SIGFÚS Sigurhjartarson, form,
KRON, hefir lýst því yfir í Þjóð
viljanum s.i. fimtudag, að
,,hreinsunin“ meðal fjelaga'
KRON sje nú í fullum gangi og
sjeu „háttsettir Sramsóknar-
menn“ í vitorði með hinni kom-
múnistisku stjórn fjelagsins tun
þá ;,hreinsun“.
DÓMSTÓLLINN VFIR FJE-
LAGSMÖNNUNUM
Sigfps Sigurhjartarson hefir
í Þjóðviljanum gagnrýnt fjeiaga
tölu kaupfjelaganna og tckið
undir þær athugasemdir, sem
komu fram í Morgbl. um það
atriði.
KRON hefir farið inn á þá
braut að greina í sundur hvaða
fjelagar „á hverjum tíma fela
fjelaginu sín aðalviðskifti“, eins
og Sigfús orðar það, og hverjir
gera það ekki. En þeir, sem
„fela fjelaginu sín aðaiviðskifti“
eiga að teljast raunverulegir
fjelagar, en hinir ekki.
Sigfús heldur því fram, að
kommúnistar sjeu alls ekki1
einir um að ákveða hverjir eiga
að teljast raunverulegir fjelag-
ar í Kron, hvað teljast „aðal-
viðskifti“ o. s. frv., heldur sjeu
Framsóknarmenn með í þess-
um dómstóli yfir fjelagsmönn-
unum.
Sigfús telur að þó sje ekkert
athugavert við hreinsunina,
„enda hafa háttsetíir Framsókrt
armenn tekið þátt í að undir-
búa hana“, segir hann.
HVER.TIR ERU HINIR
„HÁTTSETTU?“
Ekki greinir Sigfús frá því,
hvaða Framsóknarmenn- þetta
eru, en ef slíkum mönnum er
á annað borð til að d.reifa, má
ætla að þeir sjeu úr þeirn armí
Framsóknarmanna, sem binda
pólitískar framtíðarvonir sínar
við fylgilag með kommúnist-
um. „Þjóðviljinn“ hefir undan-
farið lagt mikla stund á að
prenta upp það, sem birtst hef-
ur í „Tímanum“ frá þessari óá-
nægðu deild flokksins og ætlað
er til þess að gera núverandil
stjórnarsamstarf tortryggilegt.
Þetta bræðralag hluta af Fram-
sóknarflokknum og kommúnisfi
anna, hefir verið hátíðlega inn-
ritað í ,.Þjóðviljanum“ og felst
ef til vill í þessu einhver skýr-
ing á því, þegar Sigfús segir að
„háttsettir Framsóknarmenn11
starfi að því með kommúnist-
um að yfirfara fjelagaskrá
KRON. En þess má geta, að
engir slíkir „háttsettir“ menn
eru í stjórn KRON og hafa kom
múnistar, eins og kunnugt er,
bolað Framsóknarmönnum ræki
lega burt.
Sigfús reynir að skjóta sjer
bak við einhverja Framsóknar-
rrienn, í sambandi við hreins-
unina í KRON, en trúlegast er,
að þessi hreinsunardómstóll sje
al-kommúniskt fyrirbrigði.
Er heldur óskemtilegt fyrir
þá fjelaga, sem ekki aðhyllast
stefnu og starfsaðferðir kom-
múnista, að vita af bollalegg-
ingum slíkra kumpána um það,
hverjir skuli teljast gildir fje-
lagar og hverjir ekki.