Morgunblaðið - 31.07.1948, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.07.1948, Blaðsíða 4
MORGVNBLAÐ19 Laugardagur 31. júlí 1948. r* ísak Jónsson fimtugur ÍSAK JÓNSSON er fimtugur í dag. Hann er fæddur 31. júlí 1898 í Gilsárteigi í Eiðaþinghá. Foreldrar hans voru þau Jón Þorsteinsson hreppstjóri og Ragnheiður Sigurbjörg ísaks- tíóttir ljósmóðir. Rúmlega tví- tugur að aldri lauk ísak bú- fræðinámi á Hvanneyri. — En annað átti þó fyrir honum að liggja en búskapur og jarð- rækt. Veturinn 1920—21 stund aði hann nám í Eiðaskóla og haustið 1922 settist hann í 2. bekk kennaraskólans og lauk kennaraprófi vorið 1924. Næstu 10 ár var hann kennari við Barnaskóla Reykjavíkur, en sefingakenslu við kennaraskól- ann byrjaði hann 1932 og varð fastur kennari þar 1935 og er það enn. Hefur hann haft þar á hendi æfingar í smábarna- kenslu og hefur sá mikilsverði þáttur kensluæfinganna hvílt á honum að öllu leyti, og farið fram í einkaskóla hans í Grænuborg, sem nú er orðinn þjóðkunnur skóli En smábarna skólann í Grænuborg stofnaði ísak 1926 og hefur stjórnað honum síðan. Aðsókn að þeim skóla hefur verið geysimikil og myndi þó enn meiri, ef ekki skorti fullnægjandi húsnæði. Hefur ísak þar unnið mikið verk og rutt braut nýjum að- ferðum og gert margvíslegar og ýtarlegar tilraunir um byrj- endakenslu. Heíur kennara- skólinn notið þar góðs af og fengin reynsla verið hagnýtt jafnóðum í æfingakenslunni. Auk námsins hjer heima hef- ur Isak farið margar náms- ferðir til útlanda, bæði Norð- urlanda og víðar. Notadrýgst í starfinu munu honum hafa reynst þau kynni, sem hann fekk af smábarnakennslu í Sví- þjóð, og hefur hann bygt upp kenslukerfi sitt að nokkru eftir því. Mörgu þurfti þó að breyta og víkja við vegna annara stað hátta hjer og ólíkra skilyrða, °S Hggur þar á bak við meiri vinna og fleiri athuganir en nokkurn getur grunað. Auk þessa tvíþætta starfs, skólastjórnar smábamaskólans og kenslunnar í kennaraskólan um, hefur ísak unnið ósleitilega fyrir Barnavinafjelagið Sumar gjöf. Hefur hann verið í stjórn þess fjelags síðar, 1929 og for- maður þess síðan 1940. — Sú stofnun er hverjum manni kunn hjer í Reykjavík og víð- ar. Hefur þar verið hrundið til framkvæmda stórvirki, mest fyrir framtak og dugnað ein- stakra manna. Hefur ísak stað- ið þar Iengi fremst í flokkj og barist hlífðarlaust fyrir góðu málefni, enda þótt mörgu væri öðru að sinna. Ritstörf allmikil liggja eftir ísak. Allir þekkja hina vin- sælu barnabók Gagn og gam- an, sem hann er annar höfund- ur að. Auk þess hefur hann þýtt margar vinsælar barna og unglingabækur. I starfsemi sinni hefur ísak notið mikillar og góðrar aðstoð- ar sinnar ágætu konu. Hann er kvæntur Sigrúnu Sigurjónsdótt ur fra Nautabúi. Hún er kenn- ari að mentun og auk þess gædd frábærum kennarahæfi- leikum. Hún hefur átt drjúgan þátt í skólastarfi því, sem fram hefur farið í Grænuborg und- anfarna áratugi. Dvelja þau nú sem áður á sumrin á búi sínu norður á Ingveldarstöðum í Skagafirði, ásamt. börnum sín- um. Þau eru enn á unga aldri, en efnileg og þroskavænleg. Þegar ísak lítur um öxl á þesSum tímamótum, má hann vel una því, sem áunnist hefur. Hann hefur margc góðs að minn ast frá heilladrjúgu starfi. — Okkur vinur hans og samverka- mönnum þykir líka gott að minnast þess, hvílíkur dreng- skaparmaður hann er, hreinn og beinn og undirhyggjulaus, brennandi í anda fyrir áhuga- málum sínum og dugnaðurinn ódrepandi. Hann er góður fje- lagi, sem um munar á annatím- um, og ljúfur og kátur á gleði- stundum. Megi honum endast starfsgleði og starfsþróttur enn um langan aldur. Freysteinn Gunnarsson. ^aabóh 213. dagur ársins. ÁrdegisflóS kl. 1,15. SíSdegisflóS kl. 13,40. Næturakstur annast bifreiðastöðin Hreyfill, simi 6633. NæturvörSur er í Ingólfs Apóteki, sími 1330. Næturlæknir er á læknavarðstof- unni, sími 5030. Söfnin. LandsbókasafniS er opið kl. 10— 12, 1—7 og 8—10 alla virka daga nema laugardaga, þá kl. 10—12 og 1—7. — ÞjóSskjalasafniS kl. 2—7 alla virka dága. — ÞjóSminjasafniS kl. 1—3 þriðjudaga, fimtudaga og sunnudaga. — Listasafn Einars Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu- dögum. — BæjarbókasafniS kl. 10—10 alla virka daga nemi laugar- daga kl. 1—4. NátturugripasafniS opið sunnudaga kl. 1,30—3 og þriðju daga og fimtudaga kl. '2—3. Tískan Gengið. Sterlingspund 26,22 650,00 Fjölmenn jarðarför frú Sfefaníu Arnórsdóffur JARÐARFÖR Stefaníu Arn órsdóttur, sýslumannsfrúar á Sauðárkrók, fór frám s.l. þriðju dag að viðstöddu fjölmenni, bæði frá Sauðárkróki og öllum hreppum Skagafjarðarsýslu. Síðasta spölinn til grafar- innar báru kistuna 6 synir sýslumannshj ónanna. Jarðarförin bar þess órækt vitni hversu mikilla vinsælda sýslumannshjónin hafa notið í Skagafirði. 100 bandariskir dollarar 100 kanadiskir dollarar ..- 650,50 100 sænskar krónur ...... 181,00 100 danskar krónur ------ 135,57 100 norskar krónur ------ _ 13'.,10 100 hollensk gyllini ..... 245,51 100 belgiskir frankar _____ 11,86 1000 franskir frankar .... 30,35 100 svissneskir frankar —.- 152,20 Messur á morgun: Dómkirkjan. Messað kl. 11. Hr. biskupinn Sigurgeir Sigurðsson. Hallgrímsprestakall. Engin messa í Austurbæjarskólanum. í kaþólsku kirkjunni í Reykja- vík hámessa kl. 10; í Hafnarfirði kl. 9. Afmæli. Frú Vigdís Þorvarðardóttir, Varma dal, Rangárvallasýslu, á áttræðis- afmæli í dag. 6G ára er í dag Guðfinnur Þórðar- son frá Vestmannaeyjum nú til heim ilis að Melahúsum við Sandvíkur- veg í Reykjavík. Brúðkaup. Gefin verða saman í hjónaband í dag, af sr. Jóni Auðuns, ungfrú Guð riður Lilja Jónsdóttir og Karl Pjetur Stefánsson, rafvirki. Heimili þeirra verður fyrst um sinn Hringbraut 137. 1 dag verða gefin saman í hjóna- band í Eyrarbakkakirkju ungfrú Dóra Jóhannesdóttir, Breiðabóli og Kristinn Hannesson starfsmaður hjá SlS. Sr. Árelíus Nielsson gefur brúð- hjónin saman. Nýlega vþru gefin saman í hjóna band ungfrú Elsa Magnúsdóttir, Þverveg 2, Reykjavik, og Ásmundur Hjer sjáið þið nýjustu hattatísku frá París. Haítinum er haklið á höfðinu með svörtu flauelsbandi, sem bundið er undir hökuna. Daníelsson frá Syðri-Ey, Skaga- strönd. Heimili þeirra er á Þver- veg 2. Hjónaefni. Nýlega opinberuðu trúlofun sina ungfrú Fríða Jónsdóttir, Vesturgötu 59, Reykjavik og Gustaf Hjeðinn Jó- hannesson, flugvallarfræðingur, Kefla vik. Stúdentaráð Háskólans heldur dansleik í Breiðfirðingabúð í kvöld og hefst hann kl. 9. Aðgöngu miðar eru seldir á sama stað kl. 6—7 V ef naðarvörureitirnir gilda áfram Viðskiftanefndin hefir ákveðið, að vcfnaðarvörureitirnir númer 51—150 skuli gilda til 1. september. Jafn- framt hefir verið ákveðið, að reitir númer 151—200 skuli ekki taka gildi 1. ágúst eins og áður hafði verið tilkynnt. Skipafrjettir. Dagtkrá Olympíuleikanna. í DAG keppa íslensku þátttakendurnir í eftirtöldum íþrótta- greinum: Finnbjörn í langstökki, Torfi í stangarstökki, undan- keppni og Ari í 400 m. sundi, frjáls aðferð. — Dagskráin á mánu- dag (ekki keppt á morgun, sunnudag): Frjálsar íþróttir: Kl. 10,00 Kringlukast, undankeppni. 10 km. ganga. — 13,30 200m. hlaup, undanrásir. Stangarstökk, úrslit — 14,30 Kringlukast, úrslit. 100 m. hlaup, konur, semifinal. — 15,00 800 m. hlaup, úrslit. — 15,30 200 m. hlaup, milliriðlar. — 15,45 100 m. hlaup, konur, úrslit. — 16,00 5000 m. hlaup, úrslit. Sund: Kl. 8,00 Dýfingar, konur. — 13,00 Dýfingar, karla. 4X200 m. hoðsund, karla. — 18,00 100 m. frjáls aðferð, konur. 400 m. frjáls aðferð, karla, úrslit. Jeg er að velta því fyrir mjer — Hvort menn kæri sig nokkuð um að sljetta f jeþúfur. 5 mínútna krossgáta Bruarfoss er í Leith. Fjallfoss fór frá Hamborg í fyrrakvöld til Ant- werpen. Goðafoss er í New Y jrk. Lagarfoss kom til Leith í gærmorg- un frá Gautaborg. Reykjafoss fór frá Reykjavík í fyrrakvöld til Hull. Sel- foss kom til Hull í fyrrinótt frá Ant- werpen. Tröllafoss er í Reykjavík. Horsa fór frá Reykjavík í gærkvöldi til Vestmannaeyja og Hull. Suther- land fór frá Hull 28/7 til Reykja- víkur. (Jtvarpið. Kl. 8,30 Morgunútvarp. 10,10 Veð urfregnir. 12,10—13,15 Hádegisút- varp. 15,30 Miðdegisútvarp. 16,25 Veðurfregnir.. 19,25 Veðurfregnir. 19,30 Tónleikar: Samsöngur (plöt- ur). 19,45 Auglýsingar. 20,00 Frjett- ir. 20,30 Tónleikar; Þættir úr klarí- nett-triói op. 114 eftir Brahms (plöt- ur). 20,45 Upþlestur og tónleikar: a) „Lóssinn“, bókarkafli eftir Björg- úlf Ölafsson; fyrri hluti (Höfundur les). b) Anna Guðmundsdóttir leik- kona les. c) tJr endurminningum Sigurðar Þorsteinssonar frá Flóagafli (sjera Ámi Sigurðsson flytur). — Ýrris lög. 22,00 Frjettir. 22,05 Dans- lög (plötur). (22,30 Veðurfregnir). 24,00 Dagskrárlok. Finnbjörn SKÝRINGAR Lárjett: — 1 marra — 6 fóru — 8 hljóðstafir — 10 leyfist — 11 strýk- ur — 12 frumefni — 13 guð — 14 læt af hendi — 16 lokur. Lóðrjett; ■— 2 friður —- 3 kaup- staður — 4 hvað — 5 undrandi — 7 hryggar — 9 fyrir utan — 10 sjór — 14 leit — 15 tónn. Lausn á seinustu krossgátu: Lárjett: — 1 brott — 6 ári — 8 óó — 10 sú —-11 staupið — 12 at 13 ni. — 14 ana — 16 blika. Lóðrjett: — 2 rá — 3 orkunni 4 ti — 5 bósar — 7 Súðin — 9 ótt — 10 sin — 14 al — 15 A.K. nanu bimiiihhimhmm Til sölu j Chevrolet 6 manna, model | 1940, í góðu standi, með j nýrri vjel og gearkassa. { Skipti á jeppa koma til { greina. Verður til sýnis á j verkstæðinu Hrísateig 5, : á milli kl. 2—4 í dag. iiiniiimeiiiiiiiiMuiiiiiiiiiiiiiio Ari Blóm - FlÓra - Blóm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.