Morgunblaðið - 24.09.1948, Síða 12

Morgunblaðið - 24.09.1948, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 24. sept. 1948. Fiðlutónleikar Björns Olafssonar VETRARHLJÓMLEIKARNIR byrjuðu óvenju glæsilega með fiðlutónleikum Björns Ólafs- sonar í Gamla Bíó síðastliðið þriðjudagskvöld. Menn munu hafa beðið þess- ara tónleika með mikllli eftir- væntingu, því vitað var, að Björn dvaldi síðasta vetur vest- anhafs til að fullkomna sig í list sinni undir handleiðslu Adolf Busch. Svo mun mönn- um einnig hafa leikið nokkur forvitni á að heyra tóna Gu- ernarius fiðlunnar, sem Björn leikur nú á, en er í eigu ríkis- útvarpsins. Það skal strax sagt, að tón- leikar þessir voru hinir merk- ustu og samboðnir ungum, gáf- uðum fiðlumeistara, sem hlotið hefur fullkomnustu mentun og nýtur þeirrar gæfu, að mega leggja að hjarta sjer 224 ára gamla Guernaríus fiðlu! Efnisskráin hófst með smærri verkum eftir Geminiani, Ví- valdi, Veracini og Peter War- lock. Voru þau öll framúrskar- andi vel leikin, stílhrein og fág- uð. Þar næst var d-moll Part- ita Bach’s fyrir fiðlueinleik. — Þetta var veigamesta verkið og um leið erfiðast. Hvernig Björn levsti þetta hlutverk af höndum sannaði best, hver afburða fiðlu leikari hann er. — Hann ljek fyrsta þáttinn (allemande) að vísu nokkuð hægt og með var-. færni, en honum óx ásmegin með hverjum þætti — Courante — Sarabande — Gigue — uns hámarkinu var náð í Chaconne. Flestir fiðluleikarar láta sjer nægja að leika hinn síðast- nefnda þáttinn einan en sleppa hinum. Chaconnan vegur ekki aðeins upp á móti hinum þátt- unum, heldur öllu sem samið hefur verið fyrir fiðlueinleik, og það verður alltaf undrunar- efni hvað Bach tekst hjer að lokka út úr strengjum fiðlunn- ar af kyngi, krafti og tónaspeki. Björn ljek þetta verk af mikl- um skilningi og innlífan í eðli hinna margbrotnu tilbrigða, hvers og eins, en gætti þess jafn framt að halda sterkum heildar svip. Þannig tókst honum að gera verkinu ekki einungis góð skil, heldur byggði hann það upp með sterkri skapgerð og persónuleika og vann þar með mikinn sigur. „Systur í Garðshorni“ eftir Jón Nordal er hlustendum áð- ur kunnar. Verkið lýsir fyrst og fremst miklum gáfum og hug kvæmni hins unga tónskálds. Hjer er elskulegt æskuverk, sem lofar miklu. Ása, Signý og Helga sómdu sjer mjög vel milli þeirra Bach’s og Mozarts. Tónleikunum lauk með D-dúr fiðlukonsert Mozarts, Hjer þurfti Björn ekki að beita slík- um átökum sem í Chaconnunni, heldur ljek hann eins og fugl syngi á grænni grein, að því er virtist án fyrirhafnar. Konsert- inn var skínandi vel leikinn og naut sín hið besta. Það er óþarfi að geta þess, að Guernaríus fiðlan er hinn mesti kostagripur og með afbrigðum hljómfögur og einnig hljóm- mikil. —• Átti hún auðvitað sinn mikla þátt í sigri Björns á þessum tónleikum. En það átti einnig Árni Kristjánsson, sem var fiðluleikaranum hin mesta stoð og stytta með frábærum undirleik sínum. Aðsókn var góð og fögnuður áheyrenda mjög mikill. P. í. — Pisllar Frh. af bls. 5. eins, að land skáldsins er langa vegu fyrir vestan járntjaldið, hjer er kapitalistiskt þjóðfjelag vestrænt lýðræði, yfir því hvílir bölvun Stalins, fyrirdæm ing Molotovs. Og með því að höf undurinn er sanntrúuð kommún istasál verða allar lýsingar hans austrænar — allt þjóðlífið skoð ar hann einungis í rauðu kast- ljósi frá Moskva. í því ljósi birt ast þessar kynjamyndir fyrir hugarsjónum skáldsins. Hagalagðar. ÚR Framsóknarblaðinu Degi á Akureyri: „Sönnu nær væri að líkja henni (sögu kommún- istaflokkanna á Norðurlöndum) við margnotaðan og harla ó- ræstilegan skeinispappír í kam- arauga hinnar rússnesku ein- ræðisklíku“.-----Segið þið svo, að sálmaskáldið frá Kirkjubóli sje mesti ritsóðinn í Tímaklík- unni. Hilmar bankastjóri hefur lát- ið setja næstum fjögurra tonna þunga hurð fyrir fjárhirslu bændurnir alveg blankir, sem Búnaðarbankans. •— Ekki eru betur fer. Danir afnema skömiun á mörgum vörum Kaupm.h. í gær. Einkaskeyti til Mbl. VERSLUNARMÁLARÁÐU- NEYTIÐ hefir auglýst afnám á ýmsum vörutegundum, sem skamtaðar hafa verið og er þetta stærsti niðurskurður á skömtun nauðsynja og munað- arvara, sem gerður hefir ver- ið til þessa síðan fyrir stríð. Skömtun hveitibrauðs, hveit is, grjóna, baðmullarefna og silkis, verður afnumin með öllu 1. október. Tóbaksskömtun verður af- numin 1. desember. Pappírs- skömtun verður afnumin, nema til blaðanna. Sykurskamtur og feitmetisskamtur verður auk inn. Súkkulaðiskamturinn verð ur aukinn. Útflutningsbann á ýmsum vörutegundum verður afnum- ið. Frílisti yfir útflutningsvör- ur verður sexfaldaður og inn- flutningur fyrir 40 miljónir kr. árlega verður settur á frílista. Vegna Marshallaðstoðarinn- ar og góðrar uppskeru er búist við að hægt verði að flytja inn hráefni fyrir 350 miljónir kr. meira en gert var ráð fyrir á þessu ári. — Páll. — Heimilishagfræði Framh. af bls. 10. hafa þegar kjörið sjer lífsstarf. Verða því vindhöggin færri hjá okkur. I Bandaríkjunum koma stúlkurnar heint úr gagnfræða skóla, 17—18 ára gamlar, og eiu svo að ákveða sig fyrstu 2 á in hvað þær ætlast fyrir, og stundum lengur. — Húsmæðra fræðsla er hjer einnig á mjög sambærilegu stigi við það sem sje sá vestra- En erfiðleikar húsmæðranna hjer eru marg- fallt meiri — bæði á því að fá fjölbreyttan mat og nýtisku heimilistæki sem auðvelda þeim störfin. Velkomin heim. — Og að lokum bjóðum við Önnu velkomna heim — hjer er áreiðanlega nóg að starfa fyrir jafn vel menntaðan og áhugasaman húsmæðrakennara og hún er. M. Árás- AÞENA — Skæruliðar rjeðust ný- lega á vinnubúðir í námunda við Larissa og námu á brott 50 gríska verkamenn, sem þar Löfðu aðsetur. Ánægjuleg frísiundavinna LENGI hefur það verið trú manna að á Islandi mundi ekki vera hægt að rækta trjágróður í hkingu við það sem er í ná- grannalöndum okkar sem sunn ar hggja. Veðurfarið og jarð- ve'gurinn hefur skapað þá trú. Enda hefur stundum árað svo að bjartar og hlýjar vonir hafa ekki haft skilyrði til að þrosk- asi í brjósti þjóðarinnar. Sterkur vilji er afl flestra hluta ef sigurvonir eru sterkar. Nokkrir Reykvíkingar hafa fengið smálönd í útskæklum gróðurlendisins, í daladrógum, hlíðargeirum og heiðabrekk- um. Bygt þar sumarbústaði og ræktað í kring. Sumsstaðar er þessi ræktun með þeirri snild að vert er að geta þess. Til dæmis hefur Jón Helga son kaupm- breitt landi sínu á svo listríkan hátt að unun er að skoða. Gert í það hæðir og lægðir, tjarnir og hólma og ræktað allt landið skógi og feg- urstu skrautjurtum. Allt þetta slarf er mest fristundavinna. Ef margir hugsa þannig og starfa megum við vænta þess að takast muni að klæða land ið til mikils fegurðarauka, ef slíkt ræktunarstarf er látið ná yfir í dagstundavinnuna iíka. Margir smálandaeigendur hjer í kringum Reykjavík hafa prýtt fallega lönd sin og hafið særfeldar trjáplantanir, allt upp í 6—7 hundruð trjáplönt- ur á einu ári. Má segja að það sje vel af stað farið að klæða landið. Þessir menn fá óefað margfalldar þakkir komandi kynslóða, bæði fyrir skilning á trjáræktun og í öðru lagi fyrir ánægjuna, gleðina sem því fylg ir Ræktunarstarfið ætti okkur Islendingum að vera kappsmál sem búum í köldu og gróður- lausu landi. Skógræktarfjelögin eru nú hvað óðast að skilja Jón as Hallgrímsson, Baldvin Ein- arsson o. fl. að ef ísland á að verða byggilegt land þarf að færa það í sinn fyrri upphaf- lega búning. Allir sannir land ar þakka þessum framtaks- mönnum fyrir hollustuna við landið og gleðina sem þeir öðr- um veita. Jón Arnfinnsson. MIKIÐ ÞÝFI PARfS — Franska lögreglan hef- u.' handtekið 10 menn sem sakaðir eru um að hafa stolir 400,000 sterl.p. virði af gulli á flugvelli í némunda við Paris. Gull þetta étti að senda til Indó Kina. Þálffaka íslands í alþjóöasamtökum ÍSLAND er þátttakandi í eft- irfarandi alþjóðasamtökum inn an Sameinuðu þjóðanna: ILO, FAO, ICAO, BANK, FUND, WHO, IRO, ITU, UPU. Hinsvegar er ísland ekki þátt- takandi í UNESCO. Skammstafanirnar þýða: — ILO: Alþjóðaverklýðssamtökin, FAO: Matvæla- og landbúnað- arstofnunin, ICAO: Alþjóða flugmálastofnunin, BANK: Al- þjóðabankinn til endurreisnar og fjárhagslegrar þróunar, FUND: Alþjóða gjaldeyrisstofn unin, WHO: Alþjóða heilbrigð- ismálastofnunin, IRO: Alþjóða flóttamálastofnunin, ITU: Al- þjóða símamálastofnunin og UPU: Alþjóða póstmála stofn- unin. UNESCO er alþjóða stofnun- in um kenslumál, vísindi og menningarmál. Rannsóknir við Bikini RANNSÓKNUM á afleiðing- um atomsprengingarinnar við Bikini er nú lokið. Verður bráð lega birt skýrsla um rannsóknir þessar, en þær voru gerðar á vegum bandaríska flotans og atomorkuráðsins. — Jaröfræðingur fFramh. á 2. síðu) Það var því af kynnum mínum af Heklukvikmyndinni og þeim merka fyrirlestri dr. Sigurðar Þórarinssonar, að jeg afrjeð að eyða sumarleyfi mínu á íslandi. Og það tel jeg ekki hafa verið misráðið hjá mjer, sagði Kent. í Afríku og á íslandi Hverahiti hjer á íslandi er mjög frábrugðin þeim sem við höfum 1 S.-Afríku, sagði Kent. Þetta stafar af því hve jai’ð- lögin í Afríku eru miklu eldri en hjer á íslandi. Drekka kælt laugavatn Síðan ræddi hann mjög mik- ið um þann mikla mun, frá jarð fræðilegu sjónarmiði, en út í þá sálma verður ekki farið hjer. Hann gat þess meðal annars, að í borginni Windhoek væru 70— 80 gráðu heitar laúgar, sem not að er til drykkjar, eftir að hafa verið kælt. Annað vatn er ekki að hafa. Þar er það því þver- öfugt við ykkur. Þið notið heita vatnið til að hita húsin ykkar með, en íbúarnir í Windboek nota það til að slökva þorstan- um. Markús A A A & Eftir Ed Dodd P.FIN AND KlNG, SIDK BV /V.OVE INTO TWE AAOUi W C GREAT WAhP.KDP RIVER E.ELIN THE DANGEP.OUS JPNEY BACK TO TI IGIR GPAWNING BEDE. rYOU’LL FIND OUT, TOWNE-. 45 SAV, WE’VE GOT TP.OUP4 F.f ■QÍL pressure’.s dropmng... Silfuruggi og Siklingur synda stöðvarnar í Söngá. — Þú kemst nú bráðum að inni. Hún er hætt að smyrja inn í ósa Víkingafljóts hlið við | — Heyrðu Bryan, hvert ertu því, Towne............ en hvað er hlið og hefja ferðina upp í klak! að fara með mig? þetta. Það er eitthvað að vjel- sig. Ferðast um landið Kent fór í gær austur í Krísu vík með dr. Sigurði Þórarins- syni til að skoða jarðboranirn- ar þar. Þótti ’honum það hin fróðlegasta för. í dag fer hann norður til Akureyrar, en þaðan ætlar hann til Mývatns. Hann gerir ráð fyrir að dvelja hjer enn í tæpa viku. Ein heitasta ósk hans í som- bandi við dvölina hjer, er að geta sjeð norðurljós. Hjeðan fer Kent suður til Spánar til að kynna sjer hverahita þar í landi. FLEIRI HERMENN AÞENA -—- Gríska stjórnin hef- uí ákveðið að stækka herinn um 40,000 menn. Gríski herinn verður þá 25 prc. stærri en hann er nú. .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.