Morgunblaðið - 22.10.1948, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 22.10.1948, Qupperneq 1
16 síður ?-5. árgangur 249. tlil. Föstudagur 22. október 1948. Prentsralðja MorgunblaOslfl® 200—300 þús. manna I kommúm- ista í A-Þýskalandi (lay ræddi við frjeiiamenn í Washinglon í gær. Washington í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. LUCIUS CLAY hershöfðingi, yfirmaður bandaríska hernáms- liðsins í Þýskalandi, kom til Washington í gærkvöldi. Ræddi hann við frjettamenn í dag, og skýrði meðal annars frá því, að á rússneska hernámshlutanum i Þýskalandi sje nú kommúnistiskt lögreglulið, sem í eru milli tvö og þrjú hundruð þúsund inanns. Taldi hershöfðinginn, að lið þetta færi dagvaxandi. 20 stunda vinnuvika. Clay, sem kominn er til Washington til þess að gefa Truman og aeðstu mönnum hers og flota Bandaríkjanna skýrslu, skýrði frjettamönnum ennfremur frá því, að sökum aðflutningsbanns Rússa sje að- eins hægt að hafa 20 stunda vinnuviku í mikilvægustu verk smiðjum Vestur Berlínar. En hann taldi Vesturveldin þó geta sjeð fyrir því, að ekki þurfi að stytta þennan vinnutíma og því síður að loka verksmiðjun- um með öllu. Clay kvað árangur peninga- skiptanna í Vestur Evrópu hafa orðið ótrúlega góðan. Reíkningar bæjar- ins samþyktir REIKNINGAR Reykjavíkur- bæjar fyrir árið 1947, voru til síðari umræðu í gær á fundi bæjarstjórnar. Steinþór Guðmundsson bar fram nokkrar fyrirspurnir til borgarstjóra varðandi þá, og svaraði borgarstjóri þeim. Frekari umræður urðu ekki um reikningana og voru þeir I samþyktir með samhljóða at- , kvæðum allra bæjarfulltrú- anna. Málumiðluriartillaga í Oryggisráði urn lausn Berlínardeilunnar Komin frá hlutlausu löndunum svokölluðu. París í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. STJORNMÁLAMENN hjer í París líta yfirleitt svo á, að Vest- urveldin muni taka vel i málamiðlunartillögu þá, sem fulltrúar ,.hlutlausu“ landanna í Öryggisráði munu hafa í hyggju að leggja fram í Berlínardeilurini á morgun (föstudag). Enn er þó með öllu óvíst, hvaða afstöðu Vishinsky tekur til tillögunnar, en það er að öllu leyti undir honum komið, hvort nú tekst að leysa þetta vandasama deilumál. Þrjú atriði. ®------------------------------- Enda þótt tillaga hlutlausu landanna hafi ennþá ekki ver- ið birt opinberlega, er talið lík- legt að í henni felist einkum þrennt: > 1) Að Rússar afljetti aðflutn- ingsbanni sínu. 2) Að utanríkisráðherrar fjór veldanna komi saman á ráð- stefnu, til þess að ræða Þýska- landsmáþn í heild. í i . 3) Að kölluð verði saman sjer stök ráðstefna, til þess að ræða gjaldmiðil Þýskalands. LISTSYNING I.ONDON — Friðrik Danakonungur rnun 277. þessa mánaðar opna danska listsýningu í London. Listaverkin, sem þarna verða sýnd, eru virt á 275,000 sterlingspund. Rússar vilja ekki fallast á frjálsar kosningar í Berlln ------------<s> ----- , ! Bers! gegn einræði Kröfur KotÍkoVS hershöfð ingja eru óaðgengilegar En líklegt að kosið verði á her- námshlutum Vesfurveldanna Berlín í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. Dr. FERDINAND Friedensburg, borgarstjóri í Berlín, skýrði frjettamönnum fi*á því í dag, að hann teldi mjög ólíklegt, að j samkomulag náist um að halda kosningar í borginni allri 5. desember n. k. Vakti hann athygli á því, að kröfur Alexandér Kotikovs hershöfðingja, hernámsstjóra Rússa í Berlín, 1 sarri- ! bandi við kosningar þessar, sjeu óaðgengilegar, en hann heimí- | ar m. a., að lögreglulið borgarinnar verði sameinað undir eir^a 1 stjórn. Er harla ólíklegt, að leiðtogar lýðræðisflokkanrva geti | gengið að þessu, enda hafa þeir fengið slæma reynslu af því, livað Rússar eiga við með ,,einu sameinuðu lögregluliði“. Er þannig aðeins liðinn skammur tími síðan rússneska hcrnáms- stjórnin boðaði að hinum lögskipaða lögreglustjóra væri vikið frá störfum, og krafðist þess, að leppur hennar, sem hefst við á rússneska hernámshlutanum, fengi yfirstjórn lögreglumálanna. Sir Robert Vansittart, breski stjórnmálamaðurinn, sem hefir barist gegn hverskonar einræði, fyrst gegn nasistum og fasistum og nú gegn kommúnistum. Hef- ir hann skrifað fjölda blaða- greina um einræði Rússa, sem vakið hafa mikla athygli um allan heim. Fiugslysið í Prestwiek London í gærl^völdi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. AÐEINS einn maðvá- er nú á lífi af þeim, er voru í hollensku flugvjelinni, sem hrapaði til jarðar í morgun skammt frá flugvellinum í Prestwick. Eru þó góðar vonir um að»hann lifi slysið af, en 40 manns voru alls í flugvjelinni. i Þrjálíu lögregiu- þjónar særast í verkfailsóeirðum í Frakklandi París í gærkvöldi. ÞRJÁTÍU lögregluþjónar meiddust'í dag, og þar af tíu hættulega, er um þúsund verk- fallsmenn i borg einni í Mið- Frakklandi rjeðust á þá, þar sem þeir voru við gæslustörf við kolanámu. Verður ekki sjeð að ástandið í frönsku kolanám- unum hafi neitt batnað í dag. Vopnahlje hefst í Pale- stínu á hádegi í dag Loffárásir á Haifa og Tel Aviv. París í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbþ frá Reuter. PALPH J. BUNCHE, sáttasemjari Sameinuðu þjóðanna í Pale- stínu, tilkynnti í kvöld, að hið nýákveðna vopnahlje í landinu eigi að ganga í gildi kl. 12 á hádegi á morgun (föstudag). Vopnaviðskipti Gyðinga og Araba hörðnuðu til muna í dag, og gerðu meðal annars egypsk- ar flugvjelar loftárásir á Haifa og Tel Aviv. gera loftárás á Cairo og voru loftvarnaflautur borgarinnar þeyttar í' tvær klukkustundir samfleytt í kvöld. Skothríð heyrðist öðru hvoru Gyðingar munu hafa reynt að : úr loftvarnabyssum ^Lögreglumenn hantlteknir. Stjórnmálamenn í Berlín hafa heldur ekki gleymt því, að. Rússar handtóku og hafa enn í haldi ýmsa lögreglumenn, sem reyndu að koma í veg fyrir margendurteknar árásir komm únista á borgarstjórnina. Á hernánishlutum Vesturveldanna. Á fundi sínum með frjetta- mönnunum í dag skýrði Frie- densburg þeim frá því, að kosn- ingar mundu þó að minsta kosti verða látnar fara fram^á hernámshlutum Vesturveld- anna í Berlín. Að blaðafundin- um loknum, leituðu frjetta- mennirnir eftir upplýsingum ýmissa þekktra stjórnmála- manna í borginni, og fara um- mæli nokkurra þeirra hjer á eftir. Óttast frjálsar kosningar. Kurt Mattich, varaformaður sósíaldemókrata: „Kröfur Koti- kovs hershöfðingja sýna, að hann, alveg eins og kommún- istar, óttast, að íbúar Berlínar fylki sjer um lýðræðisflokk- ana“. Karl Schwennicke, formaður frjálslyndra demókrata: „Koti- kov hershöfðingi getur ekki vænst þess, að einn einasti Ber- línarbúi taki kröfur hans al- varlega“. Walter Schreiber, formaður kristilegra demókrata, lýsti kröfum Kotikovs sem „tilraun- um til að komast hjá því að halda frjálsar og lýðræðislegar kosningar".

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.