Morgunblaðið - 22.10.1948, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 22. okt. 1948.
Söfnunarlisii S í B S
Gj AFIR
til S. f. B S. * 10 áta afnu»li þt-'SK 1948.
Stvðjum sjúk.t til <tijJÉá»jartf»r.
s. t IV s. Cieíenilur: y - *
t VAÍ SÍOÍUAv! átið
1938. t
- . .. . ..
VinfiuKejnitli S,r. K. S
sÖ Revfc.ja!ufiá: ?ók (i!
MírfairÖ 19*5.
AöalKyg^inp ví«nu«
heitniiisiiM er í smí>'>
uo> Oi verður pvi ♦«.
»rrj ber»t lil Satr>>
bantljioj. WKtft til
ljt;ka þvl vetki.
T íkniarktð:
Utr>inii>g
BcrklAvetkitmar
á fsian,dí.
SAMBAND íslenskra berklasjúklinga hefir sent söfnunarlista
út um bæinn og víðsvegar út um land. Geta menn skrifað sig
á þá fyrir afmælisgjöfum til sambandsins, en það er nú tíu ára.
| Er enginn vafi á því að landsmenn bregðast nú vel við, eins og
altaf, þegar SÍBS hefir leitað til þeirra. Gjafirnar þurfa ekki
að vera stórar. Það sem mest er um vert er að þátttakan verði
sem víðtækust. — Styðjum öll sjúka til sjálfsbjargar. — Mynd-
in hjer að ofan er af söfnunarlista SÍBS.
Hausfmól faflfje-
lagsins _____________________
10. UMFERÐ í meistara- og
l. flokki var tefld s.l. miðviku-
dagskvöld. Leikar fóru þannig:
ÓIi Valdimarsson vann Svein
Kristinsson, Hafsteinn Gíslason
vann Pjetur Guðmundsson,
Sigurgeir Gíslason vann Krist-
ján Sylveríusson.
Jafntefli gerðu þeir Áki Pjet
ursson og Hjalti Elíasson.
Biðskákir urðu hjá Guðjóni
M. Sigurðssyni og Steingrími
Guðmundssýni, Lárusi Johnsen
og Eggert Gilfer. Jón Ágústs-
son sat yfir.
í fyrsta flokki fóru leikar
þannig: Friðrik Ólafsson vann
• Ólaf Einarsson, Valur Norðdahl
vann Eirík Bergsson, Haukur
• Sveinsson vann Eirík Marels-
son.
Jafntefli gerðu Magnús Vil-
hjálmsson og Ingólfur Jónsson.
Biðskákir urðu hjá Þórði Jör-
undssyni og Þóri Ólafssyni,
Margeiri Sigurjónssyni og
Kára Sólmundssyni, Lárusi
Ingimarssyni og Ingvari Ás-
mundssyni.
- 11. umferð verður tefld í
kvöld kl. 8 að Þórsgötu 1.
Kenslubók í hnefa-
leik
FYRIR nokkru síðan er kom-
in út kenslubók í hnefaleik. —
í>að er í fyrsta sinn, sem gefin
er hjer út kenslubók í þessari
íþróttagrein, en útgefandi bók-
árinnar er hnefaleikadeild
Knattspyrnufjel. Reykjavíkur.
' I formála bókarinnar segir
m. a., að markmið hennar sje,
að gefa hnefaleikamönnum kost
á að kynna sjer þau tæknilegu
átriði hnefaleikanna, sem bókin
fjallar um. Fyrir byrjendur
í hnefaleikaíþróttinni, er bók
þessi nauðsynleg. Þeim gefst
kostur á að, æfa sig undir hvern
æfingatíma, með því að lesa
Kafla bókarinnar, en henni er
skift í 10 kafla.
Bókin er 121 bls., en aftast
í henni er skrá yfir nokkur
hélstu heiti hnefaleikatækni, en
þýðandi bókarinnar Hjörtur
Halldórsson hefur þýtt á ís-
lensku úr ensku. í bókinni er
mikiil fjöldi skýringamynda. —
40.000,000 hílar
NEW YORK —- Áætlað er, að meir
en 40,000,000 bifreiðar verði í Banda
rikjunum í lok þessa árs. Þetta er
um 17 prósent fleii bilar en 1941.
Símþjónuslukosfn-
aðurinn í úlhverf-
imum
Á FUNDI bæjarstjórnar 'í
gær, var lítillega rætt um það
misrjetti, sem íbúar úthverf-
anna eru beittir af póst- og
símamálastjórninni vegna sím-
þ j ónu stukostnaðar.
Björn Bjarnason bar fram
tillögu um það, að bæjarstjórn-
in beiti sjer fyrir því að þessu
verði kippt í lag og samræm-
ingu komið á.
Borgarstjóri taldi rjett, að
bæjarráð fjallaði um málið, áð-
ur en það yrði sent póst- og
símamálastjórninni og var það
samþykkt með samhljóða at-
kvæðum.
ISeitar aS fara Iieim
CAIRO — Sendiherra Tjekkóslósló-
vakíu í Egyptalandi hefur neitað að
snúa heim.
Skorað á siórveld-
in að reyna að
semja
París í gær.
STJÓRNMÁLANEFND Sam-
einuðu þjóðanna kom saman til
fundar í morgun og ræddi fram
komna ályktun frá Mexikó, þar
sem skorað er á stórveldin að
reyna á allan hátt að jafna
deilumál sín og gera nýja til-
raun til samkomulags um frið-
arsamninga við fyrverandi ó-
vinaríki.
Fulltrúar allra stórþjóðanna
tóku vel í ályktun þessa, og
Dulles (Bandaríkin) lagði sjer-
staka áherslu á, að Bandaríkja-
menn hefðu /rá upphafi beitt
sjer fyrir skjótum og rjettlát-
um friðarsamningum.
Olíuflutningaskip
WASHINGTON — Fyrsta apríl í ór
voru til í veröldinni 1,863 2,000
tonna eða stærri oljuflutningaskip
Ræit um biðsiöðv-
arskýlin
Á FUNDI bæjarstjórnar í
gær, var lítillega rætt um hin
fyrirhuguðu skýli, sem reisa á
við nokkra viókomustaði stræt-
isvagnanna í úthverfum bæjar-
ins og á Lækjartorgi.
Borgarstjóri sagði, að fram-
kvæmd þessara mála hefði dreg
ist um of á langinn. En megin
orsökin er sú, sagði borgarstjóri,
að mikill skortur er á verk-
fræðingum og arkitektum.
Skoðanakönnun
í Berlín
Berlín í gærkvöldi.
NÝLEGA hefur verið gerð all-
víðtæk skoðanakönnun meðal í-
búanna á hernámssvæðum
Vesturveldanna í Berlín. Meðal
annars var fólkið spurt að því,
hvort það kysi heldur núver-
andi ástand, undir stjórn Vest-
urveldanna, ellegar að flutn-
. ingabanninu yrði afljett og öll
borgin kæmist undir stjórn
Rússa. — 88% kusu heldur nú-
verandi ástand, 4% vildu kom-
ast undir stjórn Rússa og þeir
sem eftir voru, höfðu enga skoð
un á málinu.
Þá voru menn einnig spurðir
að því, hvort þeir hjeldu að
Vesturveldin myndu geta sjeð
hernámshlutum sínum fyrir
nægum matvælum á vetri kom-
anda. 85% trúðu því, að borg-
arbúum myndi sjeð fyrir næg-
um matvælum, en 11% hjeldu
að þeir myndu ekki fá nóg að
borða. — Af þessari skoðana-
könnun er ljóst, að almenning-
ur í Berlín, hefir alveg snúist
á sveif með Vesturveldunum,
og hefur því flutningabann
Rússa mist marks. — Reuter.
Óbreyit lífsafkoma
Brela
London í gær.
BRESKA stjórnin gaf í dag út
hvíta bók, þar sem hún m. a.
gerir grein fyrir ýmsum fram-
kvæmdum í Bretlandi í sam-
bandi við Marshalláætlunina.
I skýrslu þessari er frá því
skýrt, að þrátt fyrir aðstoð
Bandaríkjamanna, verði varla
hægt að bæta lífsafkomu bresku
þjóðarinnar næsta ár. Matvæla
skamturinn verði líkur því, er
hann er nú og skömtun verði
haldið áfram.
í
laMVfiniMiiiik.'tiiiMiiu’tfiMismiiiMfmnitamiiniinflnnttMM
íwm1
Markús
&
&
Eftir Ed Dodd
■P.JDIIIIMI>!llltMlllttltllllllM:iMtlllHlttlllllllllllll<IIIIIIIIIIIIIIIIIM«U
NEW PLACE WE'RE
Gi_(N6 TO IS CALLED "TME
V WITCM'S CAULDRON
iiiMruiiiint:Mi'.i
dom't woRpyiJ
THAT'S ONiE
TWIN6 I CAN
DO. TRAii-
SWIMM1N6 DOESN'T HELP..
IF you SET CAU6WT 1N
THE "CAULDRON/' »
THERE'S NO GETTIN6 OUT/
— Þessi nýi staður, sem við
erum að fara til, heitir Norna-
kleyf.
— Hversvegna er það svo
hættulegur staður?
iðum og booaföllum og síðan
hverfur það oían í kleyfina und
ir fjallinu.
— Menn verða að vera var-
ekki í hana.
— Og allt í lagi, jeg er þó
að minnsta kosti góður sund-
maður.
— Gagnar ekkert að synda.
Ef maður dettur í Nornakleyf.
þá er engrar undankomu auðið
Maöur hryggbrofn-
ar í Hæringi
í GÆR vildi það slys til um
borð í síldarbræðsluskipinu
Hæringur, að einn verkstjór-
anna, Vilberg Einarsson, Njáls-
götu 15, fjell niður í lest og
hryggbrotnaði.
Vilberg var að koma úr eft-
irlitsferð í þriðju lest, sem er
miðskips og gekk hann fram
af timburstafla, á „milli dekki“
og datt niður á lestarbotn. Var
fallið um fimm metrar Þar
sem hann gekk fram af timbur-
staflanum mun hafa verið
svarta myrkur.
Vilberg stóð strax upp aftur
eftir fallið og gekk upp stigann.
að „milli-dekkinu“. Þá kvart-
aði hann um þrautir í taakinu
og einn af starfsmönnum hans
gerði þá sjúkraliðinu aðvart og
var Vilberg fluttur í Landsspit-
alann. Við rannsókn á meiðsl-
um Vilbergs kom í ljós, að
hryggurinn hafði brotnað. í
gærkvöldi var líðan hans eftir
atvikum góð.
Umferð um Kefia-
víkurffugvöi! eyksf
enn
í SEPTEMBERMÁNUÐI s.L
var umferð flugvjela um Kefla
víkurflugvöll miklu meiri en
nokkru sinni fyrr. Þó aðeins
415 flugvjelar lentu á vellin-
um, til samanburðar við 421
lendingu í ágúst mánuði, voru
þar af 328 millilandaflugvjel-
ar, en aðeins 265 millilandaflug
vjelar í ágúst mánuði. Aðrai
lendingar voru: íslenskar flug-
vjelar á leiðinni Reykjavík-
Keflavík, æfinga og leitarflug
björgunarvjela vallarins, svo og
íslenskar einkaflugvjelar.
Með millilandaflugvjelunum
voru 9774 farþegar, sem ei
4128 farþegum fleira en í ágúsl
mánuði. Stór hluti farþeganns
voru innflytjendur frá Evrópu-
löndum á leið til Suður-Ame-
ríku og Kanada. Hingað komu
246 farþegar, en hjeðan fóru
274 farþegar.
Með millilandaflugvjelunurr.
var einnig meiri flutningur er
nokkru sinni fyrr, eða 24.475
kg., þar af 15.755 kg. til ís-
lands. Hjeðan var flutningui
2045 kg. Flugpóstur var alU
28.386 kg., þar af 986 kg. hing-
að og 315 kg. hjeðan.
Með flestar lendingar voru
flug-fjelögin: Trans Canada Aii
Lines 72 (62 í ágúst), American
Overseas Airlines 65, British
Overseas Airways Corporation
28, Air France 26 og Trans-
Ocean Airlines 25.
Hr. G. R. McGregor, forseti
Trans Canada Air Lines, kom.
hingað í stutta heimsókn þann
19. sept. Hann ljet svo um mælt
að T. C. A. mundi hafa hjer að
staðaldri áhafnir tveggja flug-
vjela, þegar smíði nýju farþega-
afgreiðslunnar líkur.
Vegna stöðugt vaxandi um-
ferðar, er Keflavíkurflugvöllur
þegar orðinn kunnur ferða-
mönnum og flugfjelögum víða
um heim og ýmsir aðilar sem
komið hafa við á Keflavíkur-
flugvelli hafa látið í Ijósi
ánægju sína yfir vinsamlegum
og góðum móttökum.