Morgunblaðið - 02.11.1948, Page 8

Morgunblaðið - 02.11.1948, Page 8
8 MORGUN BLAÐIÐ Þriðjudagur 2. rióv. 1948. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla. Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15 00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók. Fjárlagaíium vaipi ð FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur nú lagt frumvarp til fjár- iaga fyrir árið 1949 fyrir Alþingi. Samkvæmt því er gert ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs á árinu verði rúmlega 241 milj. kr. en rekstrarútgjöld 213,8 milj. kr. Á sjóðsyfirliti er gert ráð fyrir að útborganir verði 243,8 milj. kr. og greiðslujöfnuður á sjóðsyfirliti óhagstæður um tæplega 0,4 milj. króna. Á fjárlögum yfirstandandi árs voru rekstrarútgjöld áætl- að rúmlega 221 milj. kr. og tekjurnar sem næst sama upp- hæð. Á sjóðsyfirliti voru útborganir hinsvegar áætlaðar 247,8 milj. kr. og greiðslujöfnuður óhagstæður um 24,6 milj. kr. Ef gerður er samanburður á tekjuliðum gildandi fjárlaga og þessa frumvarps kemur í ljós að tekjuhækkunin kemur öll fram á einum lið þess, sköttum og tollum. í fjárlögum þessa árs eru tekjur ríkissjóðs af sköttum og tollum áætlaðar 158,8 milj. kr. í frv. er gert ráð fyrir að þessu tekjuliðui gefi 177,8 milj. kr. eða 19 milj. kr. meira en á yfirstandandi ári. Lækkun sú, sem frv. gerir ráð fyrir á rekstrarútgjöldum kemur að nokkru leyti niður á 13. gr. þess, framlögum tii verklegra framkvæmda, þ. e. til vegamála, vitamála og hafn- argerða. samgangna á sjó og flugmála. Útgjöld samkvæmt þessari grein eru áætluð 29,2 milj. kr. en eru í fjárlögum þessa árs áætluð 35,3 milj. kr. En aðallækkunin er á 19 gr., óvissum útgjöldum, þ. e. aðallega til dýrtíðarráðstafana, úr 55,5 milj. kr. á fjárlögum þessa árs í 39,5 milj. kr. eða um 16 milj. kr. Hinsvegar hækka útgjöld samkvæmt flestum. cðrum greinum frv. Þannig er gert ráð fyrir að vaxtaútgjöld hækki um tæpar 2 milj. kr., útgjöld samkvæmt 11. gr. fjárlaga, dómgæsla og lögreglustjórn, opinbert eftirlit, innheimta tolla og skatta og sameiginlegur kostnaður við embættisrekstur um 2,5 milj. kr., læknaskipun og heilbrigðismál um 3,2 milj. kr. og at- vinnumál um 3,1 milj. kr. í greinargerð frv. er gefin sú skýring á hækkun tekna aí rollum og sköttum að lagt sje til að söluskatturinn, sem á var lagður á síðasta Alþingi verði hækkaður um helming. Áætlunin um hækkaðar tollatekjur byggist hinsvegar á því að gert er ráð fyrir auknum innflutningi á verðtollsvörum og þá fyrst og fremst ýmsum nauðsynjavörum, svo sem veínaðarvöru, búsáhöldum o. s. frv. í sambandi við óviss útgjöld er þess að geta að á 19. gr. er nýr liður, 6 miljónir kr., sem ætlaður eru til stuðnings við bátaútveginn vegna veiðibrests á árinu 1948. Er sú upp hæð bygð á skýrslum, sem safnað hefur verið af nefnd þeirri, sem skipuð var á s. 1. hausti. Fjármálaráðherra segir í athugasemdum frv. að ekki hafi þótt tækt að taka í áætlun frv. hærri upphæð til dýrtíð- arráðstafana. Sú upph. 33 milj. kr., mundi að vísu ekki nægja til þess að standa undir niðurgreiðslum og uppbótum sam- kvæmt reynslu ársins 1947 og yfirstandandi árs. En ráðu- neytið telji hinsvegai að slík útgjöld til dýrtíðarráðstafana sjeu ríkissjóði ofvaxin, nema honum sje aflað nýrra tekna íram yfir það, sem lagt hefur verið til í frv. Það er rjett að almennar athugasemdir um þetta frum- varp til fjárlaga bíði ræðu ijármálaráðherra við fyrstu um ræðu þess en hann mun þá samkvæmt venju gefa upplýs- ingar um afkomu ríkissjóðs og stofnana hans á s. 1. ári og það, sem af er þessu ári. Óhætt er að fullyrða, að frv, eigi eftir að taka ýmsum breytingum í meðferð Alþingis ef að vanda lætur. En það er nauðsynlegt að þing og þjóð geri sjer það ljóst fyrr en síðar að til þess ber brýna nauðsyn að fjármálaráðherra og ríkisstjórn fái meira vald en nú er jfir svip fjárlaga á hverjum tíma. Alþingi verður einnig að vera minnugt þess ef það krefst hækkaðra útgjalda frá þvi, sem lagt er til í þessu f járlagafrumvarpi, þá verður það jafn- Lliða að benda á nýja tekjustoína. En í því sambandi verður þó að vekja athygli Alþingis á því, að það með öllu óhugs- andi að hækka skatta- og tollaálögur frá því sem nú er. Svc hátt er búið að spenna bogann í þeim efnum. Æskilegt væri einnig að það fyndi aðra leið til sparnaðar en að lækka fram- lög til verklegra framkvæmda. UR DAGLEGA LIFINU Sælgætisát unglinga BANDALAG kvenna hefur gert samþykt, þar sem skorað er á Barnaverndarráð, að gera ráðstáfanir til að koma í veg fyrir sælgætisát og gosdrykkja- þamb skólabarna. Þeim blöskrar, sem von er konunum hvað unglingar eyða miklu fje til kaupa á sælgæti og gosdrykkjum. Þær ættu að þekkja þetta best. Það kemur mest við heimilin hið sífelda suð barna um peninga til að hafa með sjer í skólann. Þetta er eins og faraldur, sem grípur um sig. Aðalfundur Bandalags kvenna vill láta loka verslun- um fyrir skólabörnum. — Til- gangurinn er góður, en önnur ráð eru vafalaust heppilegri til að stöðva sælgætisátið og gos- drykkja þambið. • Nesti í skólann ÞAÐ er ekki nema eðlilegt, að börnin og unglingarnir, sem eru að vaxa, þurfi að fá bita á milli mála og þá einnig þegar þau eru í skólanum. Þá er grip- ið til þess, að fara í næstu búð og kaupa sætindi. Ef það væri föst venja, að skólabörn kæmi með nesti með sjer í skólann, myndi þau ekki þurfa að maula sælgæti-og sætabrauð. Þá ætti líka að hafa fasta tíma, sem skólabörnunum væri ætlaðir til að borða nesti sitt. • Annað cnn betra ráð HÚSMÆÐUR kunna, að svara því til, að nóg sje á þær lagt, aðstoðarlitlar, eða aðstoð- arlausar á heimilunum, þótt ekki bætist við, að þær eigi að útbúa börn sín með nesti í skól ann. Þær vilji heldur vinna til, að láta börn sín fá nokkra aura til að kaupa sjer fyrir. Þá er til annað og betra ráð og það er að skólarnir selji mjólk og brauð við vægu verði. Víða erlendis hefur sú aðferð gefist vel. • Bönnin ekki altaf einhlýt BANDALAGI kvenna gengur án efa gott eitt til, að vilja stöðva sælgætisátið. En það er ekki altaf einhlýtt að banna. Segja sífelt: ,,Þú mátt ekki" og heimta að loka. Börnin myndu án efa hafa einhver ráð til að ná sjer í sæl- gæti, þótt verslunum væri lok- að, eða þau fengju ekki af- greiðslu. Og varla bætti það úr skák, þótt börnunum yrði kom- ið upp á það þegar í barna- skólunum, að ná því sem þau sækjast eftir með krókaleiðum. Það kemur nógu snemma að því, að þau læri þá þokkalegu list. Leiðinlegu hljein KVIKMYNDAHÚSGESTIR eiga að krefjast þess, að hætt verði, að skera kvikmyndir í sundur með þessum leiðu hlje- um í miðri mynd. Þau eru öll um til ama, eru óþörf. Þeir einu sem á þeim græða, eru þeir, sem selja sælgæti og gosdrykki. Þetta er orðinn vani, eða öllu heldur óvani, sem á að afnema nú þegar. Tjarnarbíó hefir ekki hlje og kann fólk ágæt- lega við það og enginn heyrist kvarta, en margir þakka stjórn kvikmyndahússins fyrir að hafa ekki tekið upp þann leiða sið. • Ostundvísin í byrjun nóg ÞAÐ er nóg að þurfa að þola óstundvísi kvikmyndahúsgesta í byrjun myndar. Það er ekki langt síðan, að tveir kunningj- ar fóru í kvikmyndahús og mættu stundvíslega. En hvor- ugur þeirra gat fylgst með auka myndinni, eða byrjun aðalmynd arinnar fyrir rápi í fólki, sem hafði komið of seint. Annar maðurinn tók tímann og það liðu 17 mínútur fram vfir 9 þar til allir voru komnir í sæti sín. Og sömu óþægindin endur- tóku sig eftir hljeið. Fólk var lengi að koma sjer fyrir í sæt- unum. Nei, hljein á að afnema með öllu. o Jólasvcinninn í í Reykjavík ÍSLENSK kona, sem býr í Englandi sendi mjer úrklippu úr ensku blaði sem gefið er út i Bristol. — Þar auglýsir ein stærsta verslun borgarinnar, að Jólasveinninn leggi af stað frá Reykjavík til Bristol í byrjun nóvember og sje væntanlegur til Bristol þanp 13. sama mán- aðar. Það er ekki laust við að kon- an hneykslist á þessari mein- lausu auglýsingu og telji það niðrandi fyrir Islendinga, að það skuli vera sagt í gríni, að Jóiasveinninn eigi heima á Is- landi. Jeg býst við, að flestum þyki frekar gaman að þessu. • Vita lítið um ísland KONAN bætir bví við, sem raunar er vitað fyrir löngu, að erlendis s.ieu menn ósköp fá- fróðir um ísland og íslendinga. Menn viti, að þar sjeu eldfjöll og heitir hverir, en það sje líka alt og sumt. Það er auðsjeð, að þessi kona hefur ekki dvalið lengi eriendis úr þyí að hún er uppnæm fyrir slíku. Okkur Islendingum hættir við að halda, að við sjeum eins- konar miðdepill jarðar. | MEÐAL ANNARA ORÐA .... | IMIIMMMIMMIMIIIMIMIIIIIMMMIIMMIMMIMIIIMIIIMIIIMIIIMIIMIMii>ililMIIIIIIIIIMMIIMIIIIIMIIIIIIIIIIItlllMIMIMMm3 Viðrelsnaráætlun Evrópu og kommúnisfar PAUL HOFFMAN, aðalfram- kvæmdastjóri viðreisnaráætl- unar Evrópu, sagði í viðtali við frjettamenn í New York í síð- astliðinni viku, að enginn vafi væri á þvi, að verkfalli kola- námumanna í Frakklandi væri stjórnað frá Moskvu. — Taldi Hoffman líklegt, að hjer væri á ferðinni úrslitatilraun franskra kommúnista til að gera að engu áhrif Marshallað- stoðarinnar í Frakklandi, en Kominform hefur sagt þessari hjálp stríð á hendur og lagt leppflokkum Rússa þá skyldu á herðar að tefja framkvæmd hennar á alla vegu. Viðreisnaráætlun Vestur Evrópu er eitur í augum komm- únista allsstaðar um heim. Hún ógnar tilveru þeirra, getur koll- varpað allri áætlu þeirra um heimsyfirráð grundvölluð á upplausn og hörmungum stríðs áranna. • • STRÍÐ Sannleikurinn er sá, að með Marshalláætluninni eru lýð- ræðisríkin að segja heimsveldis herferð Kominform-kommún- ista stríð á hendur. Styrjöldin gaf kommúnistum tækifæri, sem jafnvel hinir bjartsýnustu meðal þeirra höfðu ekki látið sig dreyma um.1 •— Milljónir manna urðu heimilislausar, en aðrar milljónir töpuðu aleigu sinni og síðustu voninni um sæmilega afkomu og sæmilegt líf. Hjer var frjór jarðvegur fyr- ir kommúnismann. ® o STEFNAN Kominform og Stalin höfðu í raun og veru aðeins eitt við- fangsefni að glíma við. Forustu- menn hinnar kommúnistisku heimsveldisstefnu urðu að ganga þannig frá hnútunum, að styrjaldareymdin hyrfi ekki með stríðslokunum og fátæktin og þjáningarnar 1950 yrðu engu minni en þau voru á há- marki styrjaldarinnar 1943 og 1944. Þá fyrst, sáu Stalin og fylgifiskar hans, gat komrnún- isrhasýkillinn notið sín að fullu, að vonleysi húsarústanna rjeði ríkjum. o ® JARÐVEGURINN Stefna kommúnista var mörkuð af þessari skoðun. Húsa rústirhar máttu ekki hverfa og upplausninni og glundroðanum | varð að halda við. Herstjórnar- tilkynningarnar hljóðuðu því á þennan veg: Með verkföllum, samningsrofum og ,,taugastríði“ átti að koma í veg fyrir við- reisn Evrópu og steypa álfunni allri út í þá niðurlægingu fá- tæktar og vonleysis, að lepp- flokkar kommúnista gætu fyr- irhafnarlítið tekið við stjórn í ! löndum sínum, og lagt þau að því loknu undir alveldi Stalins einræðisherra og hirðmanna hans. Þetta tókst að nokkru leyti. Austur Evrópa fjell fyrir her- bragðinu og jafnvel lýðræðis- þjóðir á borð við Tjekkósló- vakíu urðu að lokum að lúta Jíommúnistaherskaranum, ,,hjálpræðisbernum“, sem lof- aði fólkinu farsæld og friði. eft ir að hafa vandlega gætt þess alt frá ófriðarlokum, að ala á fátækt off örvffgisleysi. © e V^STTTR EVRÓPA Sama leikinn átt.i að fara að leika í V.-Evrópu, er vi&reisnar áætlunin. sem kend er við Mars hall, utanrikisráðherra, kom til sögunnar. Kommúnistar þar þóttust hafa undirbúið.jarðveg- inn vel. — Ræðurnenn þeirra höfðu hrópað hátt og lengi um „fátækt almúgans“ og ,,svik yf^ irstjettprinn?r“, og -gætt þess vel að leyna því, að það voru einmitt kommúnistar • sjálfir, sem með svikráðum sínum höfðu gert þá fátæku fátækari Frh. á bls, 12.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.