Morgunblaðið - 08.12.1948, Page 8

Morgunblaðið - 08.12.1948, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 8. des.i 1948, Hugleiðingar um útvarpsdagsskrána OFT, ÞJCCAR *alað er um út- varpið okkar, í ræðu eða riti, er vitnað í erlendar útvarps- stöðvar og þeim talið til gildis fjölbreytt dagskrá — fram yfir hina íslensku — þar sem dag- skráin sje altaf sú saraa. En ef málið er rannsakað nán- ar, sjest fljótt, að þessu er mjög svipað farið erlendis. Jeg mun í því sambandi aðaliega tala um BBC (Breska útvarpið), en það er sú stöð sem best heyrist hjer á landi, og útvarpar á mörgum bylgjulengdum, þó við hlustum aðallega á stuttbylgjuútvarpið. Það er líka aðallega ætlað öðr- um löndum — heimaútvarpið, eins og þeir ka'la það, sendir aðeins út á mið- og langbylgjum, og eru það þrjár dagskrár. sem hlustendur geta valið um, — all- an daginn, nema sú þriðja, sem ekki byrjar fyrr en kl. 6 á kvöld- in. Þessar sendingar heyrast illa hjer á landi — yfirleitt, en dag- skrártilhögun má sjá í öðru hinna tveggja, myndskreyttu vikublaða, sem BBC gefur út, til kynningar á dagskrám sínum. Ef við lítum á þessar dagskrár, sjáum við að þar eru nákvæm- lega sömu útvarpsþættirnir á vissum tímum, á vissum degi, í viku hverri. Þó eru dagskrárnar mjög fjöl- breyttar. BBC útvarpar allan sólarhring inn á stuttbylgjum og skiftist sólarhringurinn h. u. b. jafnt á miili tónlistarinnar og hins tal- aða orðs. Þeir 12 tímar, sem helgaðir eru frú Musica, skiftast nokkurnveg- inn jafnt í þrermt, þ. e. klassíska músik, ljett lög og dans- og jass- rnúsík'. Hinn timinn fer í frjettir, Radio news-reel (útvarps-frjetta- mynd) frjettaskýringar, frá blöð- unum, samtöl við fróða menn og stutt erindi um heima og geyma. Lengri þættir eru svo íþrótta- lýsingar, leikrit og hinir vin- sælu gamanþættir með viðeig- andi músik og hröndurum. Heimaútvarpið, á miðbylgjun- um, er öllu vandaðra, þættirnir lengri og alvarlegri, einkum leik- rit og tónlist — þar er líka barna tími 55 mínútur. — Til gamans má geta þess, að í byrjun nóveraber þ. árs, . ljek Phil- harmoniska hljórrsveitin i Berlín í þessari dagskrá nokkrum sinn- um. En hún kom þá til Bret- lands í fyrsta skifti eftir stríð, á vegum kristilegs fjelagsskapar, sem stofnaður var í Oxford fyr- ir hálfu öoru ári, og hefir það stefnumið m. a. að auka sam- starf þjóöa á milli. Wilhelm Furtwangler og ungur rúmensk- ur hljómsveitarstjóri, Sergiu Celibidache, stjórna hljómsveit- inni. Dagskrá ríkisútvarpsins hjer, er að mörgu leyti ág'æt, miðað við útvarpstímann. Það sem að- aléga vantar, eru smá-innskot og viðauliar. Þó að mikið sje búið að ræða þetta og margar tillögur hafi kom ið jfram, langar mig til að benda á fáein atriði, sem gætu gert dagskrána hugþekkari en nú er. Jeg vil byrja á því að skora á gjaldeyris- og innflutningsyfir- völdin að leyfa útvarpinu þegar í stað innflutning á: grammófón til upptöku, stálþræði og nýju plðtusafni. — Þegar það er feng- ið.‘ er fyrst hægt að gefa dag- skíánni það straumlínulag, sem svó mjög er í tísku núna, en sem dagskrána vantar algjörlega. íforgunútvarpið á að hefjast með íslensku lagi — þó ekki vögguvísu — ieiknu af útvarps- hljómsveitinni. Eftir frjettirnar ætti' að koma samfeld músik af stálþræði eða hljómplötum — leikin af íslensk um hljómsveitum og lúðrasveit- um. Hver hljómsveit gæti spil- að í einu inn á það margar plöt- ur að þær entust í nokkra slíka tíma. Hjer á landi eru, nú jorð- ið, allmargar smáhljómsveitir, sem að jeg held, fylgjast vel með tískunni í dægurlagaspili. (Um leið mundi þeim gefast kostur á að heyra sjálfa sig spila og mætti það verða til aukins þroska). Þessar hljómsveitir, auk lúðra- sveitanna og Mandólínhljómsveit arinnar, ættu með góðu móti að geta skemmt landsmönnum í tuttugu mínútur til hálf tíma á liverjum morgni, með danslög- um, nýjum og gömlum, mörsum og ljettri tónlist. Þetta mundi losa hlustendur við það ósam- stæða snarl, sem morgunútvarp- ið býður upp á nú. Hádegisútvarpið má vera eins og það er, fyrstu tíu mínúturn- ar, en þá ætti að koma þáttur- inn: — Hvað segja blöðin? — (Tvær mínútur á hvert blað?) Síðan stuttorðar frjettir — og að loknum lestri tilkynninga (því tekjustofn útvarpsins má ekki skerða) —• ætti að leika óska- lög — klassíska músik. En þar verða hlustendur að kunna sjer hóf og ekki óska eftir heilum symfóníum eða consertum. Miðdegisútvarpið ætti svo að hefjast með óskalagaþætti fyrir jass-unnendur og eftir frjettir kl. 4 — óskalagaþáttur fyrir jljetta tónlist. — Nú spyr ein- ekki — en þá er tónlistarráðu- hver sjálfsagt. — Hafa nú hlust- 1 endur við að óska? — Kannski . naut útvarpsins heimilt að taka við. Fyrir tilkynningar á kvöldin, ætti kvenfólkið að hafa orðið: — Iiúsráð — mataruppskriftir — tískutal o. s. frv. ! Þá kem jeg að því atriði, sem oft kemur manni til að bölva í . hljóði. Það byrjar á því að þul- urinn er búinn að lesa allt, sem j hann má. Hann tekur þá plötu, sem hendi er næst, og lætur á grammófóninn meðan hann bíð- ur eftir tímanum. Stimdum er þetta hávær músik, mjög í ósam- ræmi við hið talaða orð, á und- an og eftir, stundum lag, sem rhann langar til að heyra áfram, en hættir auðvitað í miðjum klíðum .... Það þarf að útbúa plötu — og það er hægt að gera strax — sem altaf er spiluð þegar svona smáhlje verða á dagskránni. Hef- ur mjer dottið í hug að það mætti vera fallegt þjóðlag —- jafnvel rímnastemma — spilað með einni rödd á eitt hljóðfæri, — bjöllur, horn eða hnjefiðlu. Með þessum smáaðgerðum mundi koma „nýtt andlit" á dag- skrána, og hjeldi hún sjer þó í öllum aðalatriðum eins og hún nú er. Að lokum vil jeg koma inn á það atriði, sem er þess vald- andi, í raun og veru, að jeg skrifa þennan greinarstúf. Hinn þungi blær, sem mörg- um finnst vera á dagskránni, er oft afsakaður með þeirri stað- hæfingu, að útvarpið sje menn- ingartæki — fyrst og fremst menningartæki. Þetta er vissu- lega satt. Það sýnir meðal ann- ars tungumálakennslan. Þess- vegna — og einmitt þessvegna, hef jeg von um að háttvirt út- varpsráð sjái sjer fært að verða við ósk minni og margra ann- ara hlustenda, jafnvel þó það hafi aukinn útvarpstíma í för með sjer. En óskin er þetta: — Gefið okkur kost á að læra tón- fvæði í útvarpinu! Þið gefið okkur kost á að læra tungumál, sem kennd eru í flestum skólum landsins, en gleymið þeirri fræðigrein, sem talin er nauðsynleg hverju þjóð- fjelagi, en er kennd í aðeins tveim skólum hjer á landi. Daglega steypið þið yfir okk- ur slíku tónflóði, að þeir sem ekki kunna að synda í því, eiga á hættu að drukna, nema þeir slökkvi hið bráðasta á tækinu. Það er margrætt mál, hvað við íslendingar erum fákunnandi í þessari grein almennt. Þessi fá- íræði veldur því m. a., að allur sá tími og fje, sem útvarpið eyð- ir í tónflutning, nema ljetta músik, er gagnslaus — jafn- gagnslaus og það væri að senda grískumagister í útvarpið til að lesa forngrískar bókmenntaperl- ur —• á grísku Það er ekki hægt að njóta málsins nema að læra það. Hjer á landi eru nú starfandi hátt á annað hundrað söngkóra, íæstir söngstjóranna hafa næga kunnáttu í raddfærslu, til að geta búið smálag til söngs í kór svo sómasamlegt geti talist. Þúsundir landsmanna leika á hljóðfæri án þess að hafa hug mynd um þau lög og reglur, sem gilda við byggingu þeirra verka, sem þeir með misjöfnum árangri en vísum vilja, túlka fyrir á- heyrendur sína. Þetta fólk er á vegi statt eins og hagyrðingur af guðs náð, sem ekki hefur lært stafkrók í mál- fræði nje bragfræði — en læs þó. Með lítilli viðbótarkunnáttu gæti hann sýnt öðrum inn í töfra heima málsins og ljóðagerðar- innar, sem hann er allsóhæfur til, eins og er. Ef útvarpið fengi sjer nú góð- an tónlistarkennara, sem væri ekki síðri á því sviði, en mála- | kennararnir á sínu sviði, er jeg : sannfærður um að eftir stuttan tima yrði sá hópur stór, sem hlustaði á tónlistarkennsluna útvarpinu. Og með þessu mundi það áorka meiru við að tón- mennta landsmenn en með allri hinni fögru, klassisku tónlist. | Nokkur hundruð áhugamanna .á víð og dreif um landið (þar Jer yfirleitt ekki um annað að tala en áhugamenn) geta gert . meira — hafi þeir hlotið undir- stöðumenntun í tónfræði — til að allur almenningur fái notið tónlistarinnar og starfað að henni, — en hundrað symfóníuj-. í höfuðstaðnum — já, jeg leyfi mjer að segja í útvarpinu, eru tónlistarmenn, sem aldrei fá tæki færi til að veita almenningi af gnægtabrunni visku sinnar — nema útvarpið gefi þeim kost á því? Kennsluna tel jeg heppilegast að hafa á kvöldin, á sama tíma og tungumálakennsluna. En sje ekki rúm þá, yrði að láta hana byrja hálftíma fyrr, þ. e. kl. 6. En jeg tel þetta heppilegri tíma fyrir þá, sem nota mundu kennsl una, en tímann að lokinni dag- skrá, — það er þó ekki nema ágiskun frá minni hendi. Jeg vil að lokum biðja hátt- virt útvarpsráð að athuga þessa tillögu mína náið, ásamt tónlist arsjerfræðing sínum, — ef það mætti verða til að sú staðhæfing, sem jeg gat um áðan, yrði enn sannari — að Ríkisútvarpið sje fyrst og fremst menningartæki. Steingrímur Sigfússon. Kaupiogseipelsa ) Kristinn Kristjánsson \ . Leifsgötu 30. Sími 5644. \ Viðtalstími 1—6. i Hrossam.arkaðir í HúrLavatnssýslu síh- astlihih haust AÐ VONUM hefir fram komið skrifþóf og orðahnippingar um eða út af hrossamörkuðunum síðustu hjer í Húnav. og Skaga- fjarðarsýslum, einkum Húna- vatnssýslu. Ber þar mest á sak- sókn á hendur hrossaræktar- ráðunaut og markaðshaldara, Gunnari Bjarnasyni. Veit ekki um hvort G. B. markaðshaldari hefir þar hreinan skjöld eða ekki, því bregð jeg ekki vopni gegn honum. Læt aðra um það, sem betur þykjast vita. Að hinni hliðinni er snýr að okk- ur bændum — hrossaseljend- um, vildi jeg sveigja nokkrum orðum. Þótt svo væri, sem jeg full- yrði ekkert um, að G. B. hefði láðst, þegar hann auglýsti þessa hrossamarkaði og gaf fyrirmæli um aldursmörk, stærð og útlits kröfur frá hálfu kaupenda, að taka það fram, að hross skyldu öll aljárnuð, þá verður að telj- ast víst og ætti að vera óhætt að gera Þá skýlausu kröfu til hrossaseljenda í Skagafirði og Húnavatnss., að þeir viti og skilji, án sjerstakra fyrirmæla að haustþung hross, sem geng- ið hafa á hinum grasmjúku hög- um heiða og fjalllenda, eru það hófmeyr að hausti, að ekki gat komið til mála að reka þau ójárnuð á malarvegum alla leið til Akeaness. — En það vissu menn alment, held jeg, að þang- að skyldu þau rekast. — í það minsta fylgdi það fyrstu mark- aðsfregn, í mín eyru. Það veit hver, sem kunnur er hestlífi, að á haustdegi má ekki hross reka ójárnuð eftir malarbrautum lengri veg en 35 —40 km., eigi þau ekki að bíða fótsæri og kvöl af. Nú hefir í þetta skiftið skeð sú herfilega vanræksla frá hendi sumra okkar hrossaselj- anda að skila einhverju af sölu hrossum til markaðs án járn- ingar eða hálfjárnuðum. Afleiðing þessarar vanrækslu verður sú, að sumt af hrossun- ium verður svo hart úti, að lóga þurfti áður en á leiðarenda kom. Við bændur verðum að gera okkur ljóst, að með slíkri ónær- gætni, slíkum mannúðarskorti, höfum við skapað þessum dýr- um sem með sjálfsfórn sinni, eru að færa okkur fje í pyngju, þjáningu og ómælda kvöl. Annað það, sem skeði við þessa síðustu markaði og kast- ar þungri sök í fang þeirra manna, er frömdu það, er að lóga folöldum undan hryssum rjett fyrir markaðsdag og reka mæðurnar síðan á markað. — Þótt ekki takist svo til, að hryss urnar bíði.klums af, þá er hitt víst, að hryssur með troðjúgur líða mikil óþægindi og þrautir á Iöngum, erfiðum rekstri, þann ig á sig komnar. Slík hörku- meðferð má aldrei framar henda neinn seljanda. Að jeg ekki nefni þá durnalegu fúl- rpensku, að selja á markað | hryssur er kasta á fyrsta eða ! öðrum degi eftir sölu. Slíkar hryssur sýna með kviðlagi og stokkhörðu stálmajúgri ástand sitt og hlýtur hver sá seljandi, sem grípur undir hryssuna, að finna hvað í efni er. Það mætti ekki til minna ætl ast af okkur markaðshrossaselj endum, en þess, að við reynd- um að gera þessum burtseldu dýrum sem ljettastan viðskiln*- aðinn, við land sitt, og elskuðu heima haga. Við verðum oft, óhjákvæmilega að bjóða hross- um okkar óvægna og harða brúkun undir hnakk eða klöf- um. Við látum stóðið okkar standa margan dag og marga nótt, skjálfandi og hjálparvana í hörkubyljum norðlenskra vetra. Það ætti sannarlega að vera okkur nægilega þung byrði að þannig skuli það vera, þótt ekki bættum við þar á ofan því, er skeði s.l. haust og að framan er lýst að nokkru. Jón kaupfjelagsstj. á Blöndu ósi hygst með skrifum í Tímanum, að bera í bætifláka fyrir húnvetnska hrossabænd- ur, snertandi þær ávirðingar, er jeg hefi að framan á minst. Hann hefur upp kjassmæli og skjallyrði til húnvetnskra stór- bænda, og telur þá enga sök á eiga mistökunum. Hann segir: „Þeirn þykir vænt um hross sín“. I hverju skyldum við sýna það flestir? ,.Þeir eiga ræktuð hross“, segir hann einnig. — Heldur ljelega ræktuð viðast, held jeg. Og enn segir hann: „Þeir eiga falleg hross“. í því er nokkuð, því flest hross eru falleg á haustdegi. En það er ekki okkur að þakka, þótt und- angengnir vetur hafi mildir verið og grasdrjúgir, svo úti- gangshross hafa skilast vel und angengin frá vetri til vors. Nei. Við bændur skulum reyna að gera okkur grein fyrir hlutun- um í þessum tilfellum og fleir- um, eins og þeir eru. Svo best fáum við úrbætt ágöllunum. Og ekki horfir skörulega eða væn- lega um mannúðar og menning- armál, ef við seljum okkur þeirri hættu á hönd, að ljá eyru lofmælum, er við í engu höfum innlagt fyrir. Þorbjörn Björnsson, Geitaskarði. Síra Halldór á Reyni- völlum 75 ára Sjera Halldór heiðursmaður, hafinn yfir fánýtt hjal. Þjónað hefur guði glaður, göfgað bæði sprund og hal. Fegurð lífsins finnst í þinni fögru sál og rjettu mynd, bæði í orði og breytni þinni birtist fögur himinlind. Drengskapinn og dáðríkt hjarta drottinn hefur lánað þjer, gengna lífs um götu bjarta göfugt starfið unnið hjer. Árs og friðar óska’ eg þinni ókominni lífsins braut, farsæld, gleði, friðsælt inni, fögnuð gúðs við náðarskaut. B. G.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.