Morgunblaðið - 12.12.1948, Blaðsíða 1
I
32 síður
33. árgangnr 294- tbl. — Sunmidagur 12. desember 1948- Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kommúnistar
120 km. frá
Manking
Hala Bandaríkin hvalt (hiang Kai Shek til
samninga við kommúnisla?
Shanghai í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter.
HERSVEITIR kommúnista eiga nú í orustum aðeins 120 km.
frá Nanking. Hersveitir þeirra, er sóttu suðvestur frá Suhsien
íiim það bil 95 km. norðver*.ur af Nanking) eru sagðar hafa
hörfað undan á tveimur stöðum. — Óljósar fregnir berast frá
bardögum við „síðasta Vígi stjórnarinnar", Pengpu. Kommún-
istar eru sagðir hafa gert tilraun til þess að ná á sitt vald járn-
bvautinni þaðan til Nanking'.
ALESTÍNUMÁLIB RÆTT Á SÍS
ASTA FUNDI ÞINGS S.Þ.
Hinsta fluyvjel í helmi
Þctta er minsta flugvjel í heimi. Hún er kölluð ,,Wee-Bee“,
vænghafið er aðeins 4,5 metrar, lengd skrokksins 4 metrar
og hún vcgur 150 pund. Flugmaðurinn verður að liggja á
maganum, eins og krakki á sleða við að stýra vjelinni.
v.
Nýfundnaland sam-
einast Kanada
Samningar undirrilaSir í gær
Ottawa í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter.
í DAG VAR undirritaður hjer í Ottawa samningur um það,
að Nýfundnaland sameinist Kanada. Er Nýfundnaland þar með
C/rðið tíunda fylkið í Kanada. Samninginn undirrituðu forsætis-
ráðherra Kanada, St. Laurent og' formaður sendinefndar Ný-
fundnalands í Kanada.
Sigrar stjórnarinnar
Stjórin hefur tilkynnt, að
hersveitir hennar hafi unnið
sigra í geysihörðum bardög-
um vestur af Pengpu. Þrjár
hersveitir stjórnarinnar, sem
umkringdar eru í Anhwei,
Honan og Kiangsu hjeruðum,
eru nú orðnar nær mataralaus-
ar.
Matarlaus her
Tólfti her Huang Weis,
hershöfðingja stjórnarinnar, er
sendur var til hjálpar hersveit
unum í Suchow og einnig er
umkringdur, hefur aðeins mat
arbirgðir til 6 daga.
Ostaðfestar fregnir
Frá Washington segir, að
Truman hafi neitað að stað-
festa fregnir, er komist hafa á
kreik í Kína, þess efnis að
Bandarikjamenn hafi hvatt kín
vérsku stjórnina til þess að
semja frið við kommúnista. —
Forsetinn ræddi við frú Chi-
ang Kai Shek í gærkvöldi.
Innrás í Costa
Itica í gærkvöld
San Jose í gærkveldi.
FJANDSAMLEGUR her frá
Nicaragua gerði í gærkveldi inn
rás í Costa Rica, eftir því sem
opinberlega var tilkynnt hjer
í clag. — Her þessi, sem mun
all öflugur, er undir stjórn Jose
Tavio, fyrv. lögreglustjóra
Costa Rica. Tollverðir við landa
mærin munu hafa gefist skil-
yrðislaust upp fyrir innrásar-
hernum.
Koreunefndin
PARIS — Samþykkt hefur ver-
ið, að sömu löndin, sem áttu full-
trúa í gömlu Koreunefndinni,
skipi þá nýju. Þessi lönd eru:
Astralía, E1 Salvador, Frakkland,
Hindustan, Kanada, Kína, Philips
eyjar, Sýrtend og Ukraína.
Churchill skýrir
ummæli um Spán
WINSTON CHURCHILL gaf út
yfirlýsingu í dag, þar sem hann
lagði áherslu á það, að í ræðu
sinni í gær hefði hann ekki
lagt til, að Spánn gerðist að-
ili að Vestur-Evrópu bandalagi,
heldur að landið fengi inngöngu
í S. Þ.
„Rússland og leppríki þess
eru öll meðlimir S. Þ. Djúpið á
milli okkar og þeirra er a. m.
k. eins mikið og á milli hinna
vestrænu þjóða og Franco-
Spánar“, sagði Chur'.hill. ..Jeg
hefi aldrei lagt til, að Spánn
gerðist aðili að V-Evrópu-
bandalagi, eða fyrirhuguðu Ev-
rópu-þingi.“
□ ------------------kD
32 síður í dag
MORGUNBLAÐIÐ er 32 síður
í dag, tvö blöð, merkt I. og II.
í blaði I. eru m.a. þessar grein
ar: Aðkomufólk veldur húsnæð
iseklu og þegar Fossvogskap-
ellari var tekin í notkun, bls.
2. Afmælissamtal við Halldór
Kristjánsson, bls. 3. Unnið að
samhjálp Evrópu, samtal við
Pjetur Benediktsson, sendi-
herra í París, bls. 5, Grein eftir
Eyjólf Jóhannsson um kaup at
vinnumálaráðuneytisins á verk
smiðju Akurs, bls. 7, síða ungra
Sjálfstæðismanna á bls. 11,
Bækur, eftir Kristmann Guð-
mundsson, bls, 14. — í blaði II
eru auk frjetta Samtal við
brjefdúfu, bls. 2, Grein um út-
fararkapelluna í Fossvogi, bls.
2. Fjær og Nær, bls. 9.
Lesbók fylgir ekki með blað-
inu í dag. Hún kemur næst út
á aðfangadag jóla.
□ -------------------□
Lítill meirhluti.
Fyrir nokkrum mánuðum
fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla
um það í Nýfundnalandi, hvort
það skyldi sameinast Kanada.
Voru 78 þúsundir kjósenda
fylgjandi sameiningunni, en 71
þúsund vildu að landið fengi
sjálfstæða stjórn.
Mótmælafundur.
Minnihlutinn boðaði til fjöl-
menns mótmælafundar í gær,
til þess að reyna að afstýra því
á síðustu stundu, að Nýfundna-
land yrði hluti af Kanada. Sjálf
stjórnarmönnum þótti, sem sam
eininga^menn hefðu ekki hlot-
ið nægilegt atkvæðamagn, til
þess að rjettlæta slíkt skref.
Ofviðri í Portúgal
Lissabon í gærkveldi.
OFSAROK geisaði í Portugal í
dag. Hús hafa fokið af grunni,
en ekkiser enn vitað um mann-
tjón- og eigna. Utvarpið í Lissa
bon hefir varað skip og flug-
vjelar við því, að koma ekki
þangað, meðan ofviðrið geisar.
—Reuter.
Tillaga
Breta
til timræðu
París í gærkveldi.
Einkaskeyti tii Mbl.
frá Reuter.
SÍÐASTI fundur Allsherjar-
þingsins að þessu sinni var í
gær, og var þinginu slitið í
nótt. A þessum fundi var rætt
um tillögu frá Hector McNeiI
(Bretland) um Palestínumálið.
Með henni er lagt til, að skip-
uð verði þriggja manna sátta-
nefnd til þess að miðla málum
í landinu helga. Skal nefndin
kosin af Allsherjarþinginu, en
ekki fulltrúum stórveldanna
fimm, eins og áður hafði verið
lagt til.
Akvæði fellt niður.
Ákvæði um það, að síðasta
skýrsla Bernadotte skyldi lögð
til grundvallar, er samið yrði
um Palestínumálið, var felld úr
hinni upprunalegu tillögu. En
McNeil sagði, að þrátt fyrir það
yrði ekki hjá því komist að
hafa í huga bæði samþykkt S.
Þ. um skiftingu landsins frá því
i fyrra, sem og skýrslu Berna-
dotte, er farið væri að semja
um frið í landinu.
Ummæli Dulles.
John Foster Dulles (Banda-
ríkin) sagði, að tillaga þessi
miðaði að því, að deilumálin í
Palestínu yrðu jöfnuð á frið-
samlegan hátt. Að sjeð yrði fyr-
ir því, að helgir staðir yrðu
verndaðir og flóttamannavanda
málið yrði leyst.
Rússar á móti.
Fulltrúi Póllands, Tjekkó-
slóvakíu og Rússlands mæltu
gegn tillögunni. Pólski fulltrú-
inn sakaði Breta og Bandarík-
in um, að reyna að fara í kring-
um samþykkt S. Þ. um skiftingu
Palestínu, frá 1947 og Vishinsky
sagði, að þessi tillaga væri ein-
ungis framborin til þess að
tefja fyrir lausn vandamálsins.
Hælir Bretum.
Peter Fraser (Nýja Sjáland)
benti þingmönnum á, hve mik-
ið Bretar hefðu gert fyrir
Palestínu. Hann kvað það Bret-
um að þakka, að Egyptaland,
Palestína og löndin fyrir botni
Miðjarðarhafs hefðu ekki lent
undir oki nasismans eða fas-
ismáns.
Svartsýnn.
Sir Mohamed Khan (Pakist-
an) var fremur svartsýnn og
Frh. á bls. 12.