Morgunblaðið - 18.12.1948, Blaðsíða 12
12
M O R G l N B L A Ð 1 Ð
Laugardagur 18. des. 1948-
Með útboði Happdrættisláns ríkissjóðs er stefnt að því tvennu: Að afla fjár til greiðslu lausa-
skulda ríkissjóðs vegna ýmissa framkvæmda og auka sparifjársöfnun þjóðarinnar.
Happdrættislánið veitir eigendum skuidabrjefanna jafnframt óvenjulegt tækifæri tii þess að
eignast mikla fjárupphæð, algerlega áhættulaust. í hvorum flokki Happdrættisiánsins eru samtals
13.830 vinningar. Fá því þeir, sem eiga skuidabrjef í báðum flokkum Happdrættislánsins sextíu
sinnum að keppa um samtals
^\W^W%W
Af þessum vinningafjölda eru 60 vinningar 7 5 þúsund krónur hver, 60 vinningar 40 þúsund
krónur hver, 60 vinningar 15 þúsund krónur hver og 180 vinningar 10 þúsund krónur hver — allt
skattfrjálst.
Sú kvöð ein fvlgir hlutdeiid í þessu óvenjulega happdrætti, að kaupendur brjefanna leggi til
hliðar nokkuð af fje sínu og láni ríkissóði það til sameiginlegra þarfa þjóðarheiidarinnar. — Skulda-
brjefin eru síðan að fullu endurgreidd. að lánstímanum loknum.
Hjer er þvi aðt að vinna,
en engo að tapa
Jólunum fylgja jafnan mikii útgjöld vegna j'óiagjafa, í samræmi við þann tilgang Happdrætt-
islánsins að stuðla að aukinni sparifjársöfnun, var ákveðið að bjóða nú fyrir jól út B-flokk happdrætt
isskuldabrjefa. Með því að kaupa happdrættisskuldabrjef ríkissjóðs til jólagjafa er hægt að sameina
það tvennt — að gefa og spara.
Hvert happdrættisskuldabrjef er ailt af 100 króna virði, en svo getur farið að eitt happdrætt-
isskuldabrjef verði
75 þúsund kréna jélagjöf
Þetta þarf fólk að hafa í huga, er það nú velur jólagjafir sínar.
Söfnum sparifje um leið og við gefum ætti að vera kjörorð allra við val jólagjafa í ár. Happ-
drættisskuldabrjef ríkissjóðs gefa fólki tækifæri til þess að gera samtímis þrennt, sem mikilvægt er
fyrir hvern einstakan og þjóðina í heild:
Gefa góða og smekklega gjöf, sem hæglega getur fært eigandanum mikinn hagnað, stuðla að
aukinni sparifjársöfnun og afla fjár til mikilvægra framkvæmda í landinu. — Öllum ætti að vera
kærkomið að geta sameinað þetta þrennt.
Kaupið því handa sjálfum yður og gefið vinum yðar og ættingjum
HAPPDRÆTTISSKULDABRJEF RÍKISSJÓÐS
*t%%%