Morgunblaðið - 20.05.1949, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 20.05.1949, Blaðsíða 12
12 MORGVNBLAÐIÐ Föstudagur 20. maí 1949. — Meða! annara orða '8 'SW i" 'Vá takast eins vel og forráðamenn American Broadcasting Comp- any gera sjer vonir um, ættu sjónvarpssýningarnar á bók Eisenhowers að taka öllu fram, sem enn hefur sjest á sýningar- tjöldunum á sjónvarpstækjum Bandaríkjamanna. n „Lífsgleði njóllu HAFNARBÍÓ sýnir um þessar mundir sænsku myndina „Lífs- gleði njóttu“. Mynd þessi hefur hlotið ágæta dóma erlendis, enda bæði fyndin og skemmti- leg. Hún fjallar aðallega um líf sjómannsins .... eftir heim- komuna. Vafalítið má telja, að ýmsir hjer hafi ánægju. af að sjá þessa mynd. Krefst „útrýmingar“ andstæð- inganna. BERLÍN — Blað, sem gefið er út á hernámssvæði Rússa, hefur krafist þess, að þeim kjósend- um verði „útrýrnt", sem greiddu atkvæði gegn „þjóðfylkingu" kommúnista í kosningunum um síðastliðna helgi. 2 herbergi cúm 30 ferm. til leigu fyrir ijettan, hreinlegan iðnað, frá 1. júní n. k- — Upplýsingar í síma 4347. viiiiiiiitaiiiiiEimiJHMiiiiiitHiifiiiitH’iiiiiiiimiiiiiimt' Lítið | Mótorh jól | : tíl SÖlU- | H.f. Rafmagn | Vesturgötu 10, sími 4005. i iiiinmir • ••iimimiiiiimtiiiimmimmiiiiiiM IIDIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIII lllllllllllllllll PÍISNíNGASANDUR ■*.. frá Hvaleyri Simi: 9199 og 9091. GuSmundur Magnússon iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiicniiisaiiii f Ármann og Ægir með sex sundmeisf- ara, HSÞ þrjá og ÍR 2 SUNDMEISTARAMÓTI íslands lauk í gærkveldi. — Þá setti sveit Ægis íslandsmet í 4x200 m. skriðsundi karla, en í því sundi hefir aldrei fyrr verið keppt hjerlendis. — Meistararn ir hafa fallið þannig á fjelögin, að Ármann og Ægir hafa hlotið sex hvort fjelag, Hjeraðssam- bands Suður-Þingeyginga 3 og ÍR tvo. — Ægir átti fyrsta mann í fimm unglingasundum, Ármann í tveimur og KR einu. Jón Guðmundsson Æ, hefir orðið fimmfaldur meistari á þessu móti og Þórdís Árnadótt ir, Á, fjórfaldur. Helstu úrslit í gær urðu þessi: 400 m. skriðsund karla: — 1. Ari Guðmundsson, Æ, 5.12,7 mín., 2. Hörður Jóhannesson, Æ, 5.43,0 mín., 3. Ólafur Diðriksson, Á, 5.43,3 mín. og 4. Halldór Bachmann, Æ, 6.08,1 mín. 100 m. skriðsund kvenna: — 1. Kolbrún Ólafsdóttir, Á, 1.22,4 mín., 2. Þórdís Árandóttir, Á, 1.30,3 mín. 100 m. bringusund kvenna: — 1. Þórdis Árandóttir, Á, 1.30,5 mín., 2. Anna Ólafsdóttir, Á, 1.33,1 mín., 3. Sesselja Friðriks- dóttir, Á, 1.38,2 mín. og 4. Lilja Auðunsdóttir, Æ, 1.40.9, mín. 400 m. bringusund karla: — 1. Sigurður Jónsson, HSÞ, 5.53.4 mín., 2. Ragnar Vignir, Á, 6.57,0 mín., 3. Guðjón Þórarinsson, Á, 7.05,6 mín. og 4. Eggert Guðjóns- son, KR, 7.06,6 mín. 3x50 m. boðsund kvenna: — 1. Ármann (A) 2.00,8 mín., 2. KR 2.12,0 og 3. Ármann (B) 2.15,9 mín. 4x200 m. skriðsund. — 1. Ægir 10.33.4 mín. (ísl. met) og 2 ÍR — 10.40,8 mín. 100 m. skriðsund drengja: — 1. Þórir Arinbjarnarson, Æ, 1.10.4 mín. 2. Pjetur Kristjáns- son, Á. 1. 10.6 mín., 3. Guðjón Sig- urbjörnsson, Æ, 1.10,6 mín., og 4. Kristján Júlíusson, Æ, 1.15,3 mín. 50 m. baksund telpna: — 1. Guð rún Jónmundardóttir, KR, 46,0 sek., 2. Erla Long, Á, 46,3 sek., 3. Svanhvít Sigurlinnadóttir, KR, 52,0 og 4. Edda Jóhannsdóttir, Æ, 52,6 sek. Verslunarpláss til leigu á góðum stað í Austurbænum. Stærð ca. 60 ferm-. Þeir, sem áhuga hafa á málinu, sendi nöfn sín á afgr. Mbl. merkt: „Verslunarpláss — 566“. „Kennir þegar kem- ur að hjartanu" ÞEGAR jeg hugsa um þá at- burði, sem gerst hafa heima undir Eyjafjöllum, núna þessa síðustu tíma, kemur mjer í hug þetta forna alkunna spakmæli' „Kennir, þegar kemur að hjart- anu“. Það hefur verið skammt milli stórra tíðinda austur þar. eins og öllum er kunnugt, sem heyrt hafa um vikurflóð Heklu yfir sveitina, og svo alla þá ógn, sem stóð af Markarfljóti síðast- liðinn vetur. En þegar jeg nú í vetur hef hitt vini mína þaðan að austan, er það ekki þessi alkunnu tíð indi, sem þeir hafa klagað undan við mig, heldur nokkuð sem fá- um mun hafa komið til eyrna og alls ekki hefur verið talið með stórtíðindum. í mínum heima- högum, Vestur-Eyjafjallahreppi, hefur um 40 ára skeið starfað lítið hljóðljótt menningarfjelag sem nefnt er „Lestrarfjelag Ás- ólfsskálasóknar“. Og þarf ekki að fjölyrða um það, hvílík andleg uppbygging það hefur verið í fá- sinni vetrar-einangrunarinnar fyrir þær lestrarfúsu sálir, sem þarna byggja, að hafa getað not- að úr þeim mikla og góða bóka- kosti, sem fjelagi þessu hafði tekist að nurla saman, með á- stundan og fórnfýsi áhugamanna sinna. En skömmu eftir nýár í vetur skeði sá atburður, að skóla- hús sóknarinnar að Ysta-skála brann, og einmitt þar inni var bókakostur þessa áðurnefnda lestrarfjelags geymdur. Brunnu þarna fleiri hundruð eintök af bókum, sem alveg voru óvá- tryggðar. Þar hafði mínum bless- uðu bjartsýnu bókavinum alveg yfirsjest. Jeg er búin að hitta marga að áustan síðan þetta skeði. En allir hafa endað sögu sína um þennan atburð á einn veg: „Það var nú ekki neitt með húsið, en allar bækurnar.“ En meining mín með línum þessum er ekki sú, að skýra frá þessari raunafrjett undan Fjöll- unum. Heldur langar mig til að mælast til þess við bókaforlög og bókamenn, sem ef til vill ættu eitthvað af bókum, er þeim fynd ist ofaukið hjá. sjer, að gleðja þetta bókalausa gamla lestrar- fjelag, með því að gefa því eitt- hvað. Myndi flest verða vel þeg- ið. Væri mjer sönn ánægja að geta greitt fyrir góðgerðamönn- um fjelagsins, með því að taka á móti bókum, eða loforðum um bækur, heim til mín á Sjafnar- götu 12 (kjallaranum). Með fyrirfram þökk til þeirra, sem þessu máli sýna vinsemd og skilning. Anna frá Moldnpúi. sfúdeiiiaméfi EINS og getið hefur verið um áður í blöðum og útvarpi, er ákveðið að halda norrænt stúd- entamót hjer á íslandi á kom- anda sumri. Það hefur verið venja nú um alllangt skeið að halda norræn stúdentamót annað hvert ár í höfuðborg eða háskólaborg ein hverra Norðurlandanna. Mót þessi eru einkum haldin til þess að efla og auka kynni og vin- áttu þjóðanna og gefa stúd- entum kost á að kynnast menn- ingu og þjóðháttum þeirra hverrar um sig. Hjer (á Islandi hefur slíkt mót ekki verið haldið síðan 1930, en hinsvegar hefur ís- lenskum stúdentum verið boðið á mörg stúdentamót á Norður- löndum. Nefnd sú, er Stúdentaráð Há- skólans skipaði á síðastliðnu hausti til að sjá um mótið hjer í sumar, hefir nú að mestu gengið frá.dagskrá mótsins, en það á að standa yfir frá 18.— 25. júni að báðum dögum með- töldum og fylgir hjer á eftir út- dráttur úr henni: Laugardagur 18. júní: Setningarathöfn mótsins 1 há- tíðasal Háskólans (útvarpað). Bergur Sigurbjörnsson, cand. oecon. býður gesti velkomna. Rektor háskólans, próf. Alex- ander Jóhannesson: Setningar- ræða. Mentamálaráðherra Ey- steinn Jónsson: Ávarp. Ávörp og kveðjur frá menntamálaráð- herrum hinna Norðurlandanna. Kveðjur frá stúdentasamtökum Dana, Finna, Færeyinga, Norð- manna og Svía. Bæjarstjórn Reykjavíkur hefur boð inni. Sunnudagur 19. júní. Ferð til Gullfoss, Geysis og Laugarvatns. — Hádegisverður snæddur að Gevsi. Kvöldverður að Laugarvatni. Mánudagur 20. júní. Skoðaður háskólinn og um- hverfi hans. Ilin ýmsu deildar- fjelög sýna bæinn, markverðar byggingar og stofnanír. — Þau sjá síðan um kvöldið. Þriðjudagur 21. júní. Ferð um nágrenni Reykjavík- ur og Hafnarfjarðar. Erindi í hátíðasal Háskóla Islands. Stein grímur J. Þorsteinsson dósent: Tvö íslensk alþýðuskáld frá 19. öld. Leiksýning í Iðnó. Miðvikudagur 22. júní. Erindi í hátíðasal Háskóla Islands. Próf. Olafur Björnsson: Hag- og stjórnmálaþróun á ís- landi frá 1918. Kvikmyndasýn- ing í Tjarnarbíó: Frá Heklu- gosinu o. fl. Dr. Sigurður Þór- arinsson skýrir myndina. Mót- taka hjá sendiherrunum. Hljóm leikar í Austurbæjarbíó. Bland- aður kór Tónlistarfjelagsins syngur. Rögnvaldur Sigurjóns- son leikur á milli þátta. Fimtudagur 23. júní. Ferð út í Viðey. Föstudagur 24. júní. Farið til Þingvalla með við- komu á Reykjum. Jónsmessu- hátíð á Þingvöllum. Pálmi Hann esson rektor og próf. Einar ÓI. Sveinsson segja sögu staðarins. Ýmsar íþróttir og kappraunir. Kvöldverður í Valhöll. Laugardagur 25. júní. Móttaka hjá mentamálaráð- herra. Skilnaðarhóf að Hótel Borg. Sigurður Guðmundsson, fyrv. skólameistari og Kristjan Eldjárn, ávarpa gesti. Auk þessa er áfcrmað að geía hinum erlendu stúdentum, sam kvæmt ósk þeirra, kost á að fc ö' ast nokkuð um landið, bæði xyr ir og eftir mótið. Samkvæmt tilkynningum, cr undirbúningsnefndinni ha.'a borist um þátttöku á mótínii, munu koma hingað um 100 stúdentar frá öllum Norðm- löndunum, þar með taldir fim:n Færeyingar, en flestir muvi t verða frá Finnlandi. Þar sem slíkt rnót sem þeL i kemur til með hafa alImiK ■ tlltllMMIIMIIIIIIIIMIIIIIIIII » Markús Eftii Ed Dodd mg-SÍftrr:-- 'OEA. YOU BIG BUM HERE, DON'T YOU, ' 1; } v OF TRIPPING ME? GEORGEÞ...OKAV' THEN ira"; jþv TAKE rr EA5y J WHA7/3 THE you WANT TO WORK ýjf ftí'ÍÝTfi J * f j I' / • \ X C V , S~\ Si J!- m . « %<£ jt.iA'í PUT THOSE Two ouys ON THE PAVPOLL, MIKE / AIN/T VOU P WtLL, VUU , Mf SURE PICKED A DILLV OE , ■ ‘ ^ ---'*** A OUTFIT... VOU MEARO Jj HE NEWS ? __-Æ( v. — Hvaö atti það að þýða að er ekki svo? — Jæja, þá skaltu bregða fyrir mig fætinum. bara vera rólegur. — Þú vilt fá vinnu hjer, eða — Taktu þessa tvo stráka inn á vinnulistann, Mangi. YOU FELLAS NEW HERt, - i //,.. výk Li3. f/#fj.. .. ..... ~... Seinna í íbúðarskála verka- ha? Jú, það má nú sjá það á ykkur. En, hjerna, hafið þið mannanna. — Þið eruð nýir, er það ekki, heyrt það nýjasta? inn kostnað í íör með sjer, heí • ur orðið að leita til ýmsra aðila með beiðni um fjárhagslega:1 stuðning, þar á meðal til ali- margra einstaklinga, og þótc enn hafi ekki borist svar frá mörgum, hefir undirbúnings- nefndin ákveöið að ráðast í ab halda þetta mót nú í trausi,,1. þess, að það eig'i þeim skilningi: að mæta hjá öllum þeim, seir/. leita þarf til, að ekki þurfi ac: óttast að þetta boð til norrænm. stúdenta verði okkur íslend- ingum til vansæmdar. Æskilegt væri að sem flestir íslenskir stúdentar sæu sjev. fært að taka þátt í þessu móti, Kostnaði öllum verður stillt í hóf svo sem frekast er unt. Mt gera ráð fyrir, að þátttaka í öllu mótinu, þar með taldar ferðir allar og máltíðir að Gullfossi, Laugarvatni og Þingvöllum, svo og þátttaka í kveðjuhófinu að Hótel borg, fari ekki fram úr kr. 400,00 á mann. Þá er stúdentum heimilt að taka þátt í einstökum atriðum dagskrárinnar. Þáttökugjald að einstökum atriðum og öllu mót inu verður auglýst ihnai. skamms. Ætlunin er að koma ölluna erlendu stúdentunum til gist- ingar á reykvískum heimilun. og heitir undirbúningsnefndin á Revkvíkinga til liðsinnis í því efni. \ Allar upplýsingar varðandi. málið eru gefnar í skrifstofu Stúdentaráðs frá kl. 4—5 dag- lega fyrst um sinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.