Morgunblaðið - 20.05.1949, Side 14

Morgunblaðið - 20.05.1949, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ Föstudagw 20. maí 1.949. Framhaldssagan 31 nnmnnam: hins liðna Eftir Helen Reilly iiiiiiiiiimitinn Hattöskjurnar voru ekki alveg eins, en það var aðeins mjög glöggt auga, sem gat greint mismuninn. Var það leynilögreglumaður, sem stóð við hliðina á henni. Afgreiðslu maðurinn rjetti henni töskuna og siðan hattöskjuna. Gabri- clla lagði pening á borðið, tók farangur sinn og snjeri sjer frá borðinu- Nú rann upp stundin- Ein- bver gat lagt höndina á öxl Ircnnar og sagt: „Gerið svo vel að fá mjer þetta“. En enginn hom. Og enginn talaði til þennar. Hún komst óhindruð að hliði númer tuttugu og fjög- ur, í gegn um það og inn í Vrökkrið á stöðvarpallinum. — Henni fannst pallurinn óend- anlega langur. Hættan beið hennar við hvert- fótmál. Ef fcápan fyndist núna í vörslum bjennaf,- þá væri 'henni aílri hokið Það voru fáir með lestinni. Itún lagði ferðatöskuna upp í wetið, en stakk Jhattöskjunni undir sætið. Hún varð ekki i ►’énni fyrr en lestin rann út af brautarstöðinni tíu mínútum síðar. Tony tók á móti henni í Greenfield. „Okkur þykir vænt um að þú skyldir koma“, sagði Ihpann; '„sveitaloftið hressir þig“. Susan virtist líka vera fegin að hún skyldi koma. Gabriella mundi hafa beðið þau um að bjálpa sjer að losna við kápu ungfrú Nelson, ef John hefði ekki tekið henni sjerstaklega vara fyrir því að segja nokkr- um frá henni. En það var ekki eins auðvelt að losna við hana, eins og hún hafði haldið. Þau urðu að verá innan dyra um daginn, því að það var kalt Úti og þoka. Tony fór út á vinnustofu sína og Gabrieila sat við dagstofuarininn hjá Susan. Við og við gekk hún út að glugganum, til þess að vita, hvort hún sæi nokkuð til leyni- lögreglumannsins, sem hún vissi að var á hælum hennar. Bakarabifreið stóð á horninu, símamenn hjengu upp í staur fyrir utan húsið. Hún sá ekkert grunsamlegt. Um tvöleytið sagði hún að sig langaði til að fara út og fá sjer ferskt loft. En Susan vildi þá fara með henni. Þegar klukkan var þrjú, sagðist hún þurfa að fara niður í pósthús- ið, en þá bauðst Tony til að aka henni þangað í bifreiðinni. Hún var farin að halda, að hún mundi þurfa að bíða til kvölds. En loks bauðst tækifærið. — Susan var að stjana við börnin í barnaherberginu, og Tony hafði farið niður í bæinn til þess að sækja matvörur til kvöldsins. Gabriella mátti engan tíma missa. Hún hljóp inn í herbergi Sitt og sótti kápuna. Hún fór út bakdyramegin, svo að það sást ekki til hennar frá göt- unni. Handan við grasflötina, tók við þjettur furuskógur. — Hún og Susan höfðu oft leikið sjer í skóginum, þegar þær voru litlar. Kápuna hafði hún á handleggnum. Þegar hún væri komin inn í skógarþykkn ið fannst henni hún mundi vera hólpin. Það .var enn nokkuð bjart. Þokan var ekkj eins dimm og hún hafði verið fyrr úýh dag- inr.. Hún leit til baka þegar hún' var komjn yfir flötina. Hún greip andann á lofti .... Hátt uppi í þokunni sá hún móta fyrir símaviðgerðar- manni, sem bar við dökkan himininn. En þetta var bara enginn venjulegur símaviðgerð armaður. Hann hjelt á kíki .... Hann var leynilögreglu- maður. Maðurinn fikraði sig niður staurinn og hvarf sjónum hennar. Hann var í nokkra metra fjarlægð frá henni Ef hún hlypi, gæti hún losað sig við hann. Hún tók undir sig stökk .... en rakst beint í fangið á Tony. ..Gabriella .... hvað í ósköp unum ....“, sagði hann hlæj- andi. ..Hvert ertu að fara á þessum voða-spretti?“. Brosið hvarf af vörum hans, þegar hann leit framan í hana- Hún varð að komast undan. ..Jeg held, að það sje leyni- lögreglumaður, sem þykist vera að gera við símalínuna. Segðu honum .... Ó, mjer er fjandans sama hvað þú segir honum .... “. Hún varð að fara varlega. svo hún bætti við: ,,Jeg er orðin dauðþreytt á lög- reglunni. Mig langar til að fá áð vera í friði nokkrar mín- útur“. Tony brosti aftur. En bros hans var uppgerðarlegt. Horfði hann á kápuna á handlegg hennar?- Hen.ni sýndist hann þó ekki gera það .... og hann virtist skilja hana. „Jeg skal sjá um hann“, sagði hann. „En fiýttu þjer þá. Þú verður að koma aftur í kvöldmatinn. Jeg keypti indælis nautakjöt ....“. Hann leit aftur fvrir hana. „Vertu fljót. Mjer heyrist ein- hver vera að koma“. Hún skaust á bak við bif- reiðaskúrinn. Hún heyrði um leið að Tony sagði: „Ungfrú Conant? Hver ert þú eiginlega? Nei, jeg hef ekki sjeð hana. Jeg veit ekkert hvar hún er“. Gabriella hafði á rjettu að standa. Símaviðgerðarmennirn- ir voru í raun rjettri leynilög- reglumenn. Leynilögreglumenn voru lika á stjái í kring um hús Bonds-hjónanna og hjá Jo- Önnu Middleton í Stamford. Um fjögurleytið þennan sama dag, sat McKee við skrifborð sitt á skrifstofunni. ■— Hann horfði hugsandi út um glugg- ann.á húsaþökin, blaut af þok- unni. Það var þoka í borginni eins og í Greenfield, þoka eftir allri austurströndinni. Þoka .... Hann vissi að Gabriella var hjá frændkonu sinni, Sus- an Van Ness. Hún var ekki í meiri hættu þar en annars staðar- Hann snjeri sjer aftur að konunni, sem sat á stólnum hinum megin við borðið. Konan var frú Pendleton, fyrverandi ráðskona hjá Mark Middleton. Frú Pendleton lang aði til að bæta dálitlu við fyrri skýrslu sína. Hún hafði ekki sjeð manninn, sem hafði myrt Middleton, en hún hafði sjeð perlufestina. Hún sat fast við sinn keip. „Já, askjan, græn leðuraskja, var á borðinu. Hún var opin. Jeg man. að jeg sá glitra á perlurriar“. McKée dró myndir með blý- antinum á blaðið, sem lá fyrir framan hann. Hann hafði haft á rjettu að standa. Perlufestin hafði verið í fórum Maik j 'Middletons, þegar hann dó. „Jeg hjelt, að hann hefði keypt þær handa ungfrú Con- ! ant“, sagði frú Pendleton. —! „Hún er mjög geðfeld, ung stúlka ....“. Geðfeld. ung stúlka mundi hún halda áfram að , vera bað. hugsaði McKee. þeg- . ar frú Pendleton var farin..] Honum datt í hug Florence Nelson, e.ins og hann sá hana liggjandi á gólfinu í gistihús- herberginu. Honum kom snöggv ast til hugar, að ef til vill hefði það verið vitleysa að hann ljet ekki setja Gabriellu í gærslu- varðhald og yfirheyra hana rækilega. En hversu mildilega sem gæsluvarðhaldið hefði ver ið sett fram, þá mundi það þó koma illum anda af stað, nema þá að fá atriði væru eftir, þang að til málið upplýstist að fullu Þokan þjettist yfir húsaþök- unum. McKee gaf hugsununum lausan tauminn- John Muir átti fimmtíu prósent af hluta- brjefunum í Tritex. Bonds- hjónin áttu líka vænan skerf. Sömuleiðis Joanna Middleton. Dyrnar opnuðust. Lögreglu- maður stakk höíðinu inn um gættina. „Bifreiðin bíður úti“, sagði hann. McKee rauk á fætur í sömu andrá og var augnabliki síðar sestur upp í bifreiðina. Hann var ekki kominn aftur á skrif- stofuna. þegar tilkynningin kom frá Bernstein, leynilög- reglumanni í Greenfield, að þeir hefðu misst sjónar af Ga- briellu Conant. Gabriellu ljetti óumræðan- lega mikið, þegar hún hafði losnað við leynilögreelumann- inn. Hún varð að losna við kápu ungfrú Nelson. Það var Tony að þakka, að henni ætl- aði að takast það. Þögn ríkti allt í kring um hana. Hún var umkringd þoku, og svörtum, votum tr.iágreinum. Beint fram undan tók við furuskógurinn, þjettur og dimmur. Hún kveikti á vasaljósinu, sem hún hafði meðferðis, beg- ar hún var komin inn í skóg- inn. Þurrar greinar brustu, begar hún ruddist i gegn um bykknið. Við og við nam hún staðar, þegar hún kom að stöð- um bar sem hún kannaðist við sig. Þarna lá kastaníutrjeð, og barna_ var eikin. Hún var að leita að tiörninni í kvosinni, bví að iarðvegurinn í kring um hana mundi vera miúkur, og auðvelt að koma kápunni ofan í moldina. FólkLÓ l RósaiandL Eftir LAURA FITTINGHOFF 77. liann að þau höfðu getað lifað í hamingju og gleði af liti- um efnum. Og hann skildi, að konan ætlaði að reyna að koma börnunum sínum til mennta og heyrði um það talað, hvað Jóhannes hefði verið efnilegur og duglegur að iæra og ef hann lifði slysið af, þá fann þessi ókunnugi rnaður utan úr borginni, að þar aðeins gæti hann fengið tækifæri til að bæta fyrir afbrot sonar síns. Móðir Jóhannesar var sótt inn að Rósalundi. Hún kom til prestsetursins með Þyrí, sem nú í návist föður síns fór allt í einu að vera mjög ókurteis. Fram að þessu höfðu þær frjettir einar borist af Jóhannesi, að hann væri mjög máttfarinri, svo að' læknarnir hefðu ekkert þorað að rannsaka sárið nákvæmlega. Það væri því ómögulegt að segja um, hvort hann myndi fá bata. En nú hafði móðir hans fengið þau boð frá sjúkrahúslækninum, að Jóhannes hefði hrests svo, að sárin yrðu rannsökuð og var móðirin beðin um að koma til borgarinnar eftir tvo daga. Hún sýndi prestinum brjefið, sem rjetti föður Gústafs það og hann fór að lesa. Móðir Jóhannesar horfði á hann á meðan, sá hvernig hendurnar titruðu og kvíðinn markaði djúpar hrukkur í andlit hans. Og húri fjekk meðaumkun með honum svo að þegar hann fór að tala við hana og spurði hvort hann rnætti ljetta á sinni eigin samvisku með því að stvðja börnin hennar fjárhagslega til mennta, þá svaraði hún því játandi. Þyrí var spurð, hvort hún vildi fara heim með föður sín- um, en það vildi hún alls ekki strax. Hún vildi umfarm allt fá að vera lengur í Rósalundi. Daginn eftir fór móðir Jóhannesar til borgarinnar til drengsins síns. Þar átti hún að fá að vita, hvort hún fengi að sjá hann framar í þessu lífi. jurax. —— á frænda, sem málar, Oft J»e«:ar Iiann er í penjn<tavandræð- um kaupi jejt af hoimm eina og eina mynd. íiniiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiuiiiMiiiiiiimiiumiiiiiiiimiiniiiii P E L S A R [ Krislinn Kristjánsson \ I ' Leifsgötu 30, simi 5644. í iiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiimmimimmmiimtmiiifiit Ein helgi var nóg. j Hjónaleysi komu til prestsins og vildu láta hann gifta sig i snatri, en klerkur kvaðst ekki geta það fyrr en þau kæmu með tilskilin vottorð og | skilríki. En hinn tilvonandi brúð- j gumi, sem var hermaður, hafði aðeins leyfi í tvo sólarhringa cg þess vegna mátti giftingin alls ekki dragast meira en einn sólarhring. „Það er ómögulegt“, sagði klerkur, „þið verð ið ekki búin að koma öllu í lag fyrir þann tima. Hermaðurinn og stúlkan bans litu vandræðalega hvort á onnað. „Jæja, fyrst svo er. er vist ekkert við því að gera“, sagði hermaðurinn, „en er ómögulegt að fá yður til þess að segja bara nokkur orð, sem myndu nægja sem gifting fram vfir helgina" ★ Böm þarfnast ástar sjerstaklega þegar þau verðskulda hana ekki. I * Oscar Wilde: —■ Mistök sín i líf- inu kalla menn reynslu. ★ Claude Callin: — Hlutunum er á- kaflega vel komið fyrir í heiminum. Erfiðleikar annarra eru aldrei eins bölvaðir og þínir, en börn þeirra eru miklu verri en þín börn. ★ P. J. Toulet: — Ef þú hefir á rjettu að standa, hagaðu þjer þá eins og maður, en ef þú hefir á röngu að standa, þá eins og kvenmaður. ★ Kettirnir töpuSu. Undanfarið hefir staðið yfir „bar- dagi“ milli fuglavina og kattavina i Illinois. Fuglavinirnir hafa unnið fyrstu lotu, og nú lifa kettirnir í Illinois hreinasta hundalífi. Kettirnir gera meiri skaða með því að drepa smáfugla en gagn með því að drepa mýs, hefir verið „motto“ hjá fröken Chamey, forseta Fugla- vinafjtlagsins. Dómararnir virðast hafa tekið orð hennar trúanleg, því að mönnum er nú bannað að eiga ,.lausa“ ketti. Maður sem á kött, sem uppvís verður að því að ganga laus og liggja í leyni fyrir fugii, verður að svara til saka fyrir dómstólunum. ★ — Veikleiki óvina okkar gerir mátt okkar meiri. ★ ,— Betra er að spyrja tvisvar til vegar, en tapa veginum einu sinni. Kauphöllin er miðstöð verðbrjefavið- skiftanna. Símil710. Gæfa fylgir irúlofunar hringunum frá ^IGURÞÓR Hafnarstræti Feykjavík. Margeffj gertSir. Sendir gegn póstkröfu hvert á land sem er. — Sendið nákvœmt mál —-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.