Morgunblaðið - 06.09.1949, Side 1
16 síður
36. árgangur. 202. thl- — Þriðjudagur 6. septemher 1949. Prentsmiðja Morgunbláðsins
Skæruliðum á Malakka
gefin grið um stund
Von um aö bófaflokk arnir leysis) upp
Einkaskeyti til Mbl. fra Reuter.
SINGAPORE, 5. sept. — Flugvjelar breska hersins á Mal-
ákaskaga munu á morgun sveima yfir frumskógunum þar sem
talið er að hinir kommúnistisku skæruliðaflokkar haldi sig
enn. Verður varpað úr flugvjelunum þusundum dreifimiða, þar
sem skæruliðum verður lofað griðum, ef þeir næstu daga gefa
sig fram við bresku hernaðaryfirvöldin.
Marga langar til að losna.
Gurney, foringi breska hers-
ins á Malakkaskaga, hefur gert
grein fyrir þessum ráðstöfun-
um. Segir hann, að fjöldi þeirra
manna er taki þátt í skæruhern
aði kommúnista á Malakka-
skaga sjeu orðnir þreyttir og
leiðir á því starfi, en flokksag-
inn og óttinn við að verða dreg-
inn fyrir dómstólana sje hið
eina sem haldi þeim föstum í
skæruliðaflokkunum, því sje
þetta tilvalið tækifæri til að
leysa flokkana sundur.
Það er þó skýrt tekið fram
á dreifiblöðunum, að þeir
skæruliðar, er hafi morð á sam-
viskunni muni jafnt sem áður
verða að sæta fullri refsingu.
Xommúnisminn heíur
lítið fylgi.
Mjög hefur dregið úr óeirð-.
um á Malakkaskaga. í upp-
reisnarflokkunum eru ein-
göngu kínverskir kommúnistar,
sem flutt hafa til landsins á síð-
ari árum. Kommúnisminn hafi
hinsvegar mjög fáa áhangend-
ur meðal fyrri íbúa landsins.
Hjeraðsmóf í Ausfur-Skaffa-
fellssýslu var afar fjölsóff
Vaxandi fjeiagslíf Sjálfstæðismanna.
HJERAÐSMOT Sjálfstæðismanna í Austur-Skaftafellssýslu,
sem haldið var í Höfn í Hornafirði s. 1. sunnudag, var með allra
fjölmennustu samkomum, sem þar hafa verið haldnar — og
sótt úr öllum hreppum sýslunnar.
Eymundur Sigurðsson, formaður Sjálfstæðisfjelagsins í sýsl-
unni, setti mótið með ræðu og stjórnaði því.
Síðan fluttu þeir ræður um stjórnmálaviðhorfið og málefni
kjördæmisins: Bjarni Benediktsson ráðherra og Gunnar Bjarna-
son, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu. Var ræðu-
mönnum ágætlega tekið.
Fjölbreytt skemmtiatriði og^.................................—
vel undirbúin voru á mótinu.
Karlakór Hornfirðinga, undir
stjórn Bjarna Bjarnasonar,
bónda á Brekku, skemmti við
ágætar undirteknir. Meðal ann
ars söng kórinn hornfirsk lög
ög kvæði, sem vöktu sjerstaka
athygli og ánægju. Þá skemmtu
5 hornfirskar stúlkur með söng
og gítarundirleik og vöktu þær
mikla hrifningu áheyrends. —
Söngvararnir Ólafur Magnús-
son frá Mosfelli og Hermann
Guðmundsson skemmtu með
einsöng og tvísöngvum og var
þeim ágætlega tekið,
Að lokum var dansað Pam
eftir nóttu og fór öll samkom-
an hið prýðilegasta fram.
Hið nýstofnaða Sjálfstæðis-
fjelag hafði veg og vanda af
undirbúningi mótsins og sá hið
besta fyrir öllu. Meðal annars
höfðu verið gerðar ráðstafanir
til þess að Öræfingar gætu kom
ist á mótið, en eins og kunn-
Ugt er búa þeir við mikla ein-
angrun og samgönguerfiðleika.
Samtök Sjálfstæðismanna í
sýslunni fara vaxandi og mikill
áhugi ríkjandi fyrir brautar-
gengi flokksins í kosningunum
í haust.
Eldsvoðinn í Chung-
king af völdum
kommúnisfa
HONG KONG, 5. sept.: —
Rannsókn er hafin í sam-
bandi við eldsvoðann mikla
í Chungking á föstudags-
kvöld, er 1000 manns ijetu
lífið og 100,000 manns mistu
heimili sín. Þykir nú full-
sannað, að það var flokkur
kommúnistískra skemmdar-
verkamanna, sem kveikti
bálið. Þegar hefir náðst í
einn íkveikjuvarganna. Var
hann settur fyrir herrjett,
sem dæmdi hann til dauða
og var brennuvargurinn að
því loknu tafarlaust skotinn.
— Reuter.
Eússnesk blöð og útvarp
ræða um uppreisn gegn Tito
Sagf frá kvalafangabúðum
Áframhaldandi áróður Kominform gegn Júgósl.
Einkaskeyti til Mbl. frá Rcuter.
MOSKVA, 5. sept. — í dag hafa bæði Pravda, helsta mál-
gagn kommúnistastjórnar Rússlands og rússneska útvárp-
ið rætt líkurnar fyrir uppreisn í Júgóslavíu gegn Tító mark-
skálk. Moskvaútvarpið útvarpaði lengi dags áskorunum til
Júg'óslava um að mynda nýjan kommúnistaflokk og steypa
Tító af stóli.
------------------<S>
Jón KJartansson
frambjóðandi Sjálf-
slæðisflokksins
í V.-SkaKafeiissýslu
Jón Kjartansson sýslumaður
FRAMBOÐ Sjáifstæðismanns
í Vestur-Skaptafellssýslu er nú
ákveðið og verður Jón Kjart-
ansson sýslumaður þar í kjöri.
Jón hefir um nokkurra ára
skeið verið sýslumaður Skaft-
fellinga. Hann er löngu lands-
kunnur maður. Hann var rit-
stjóri Morgunblaðsins í rúmlega
20 ár og ritstjóri ísafoldar og
Varðar um margra ára skeið.
Jón átti sæti á þingi fyrir Vest-
ur-Skaptfellinga árin: 1923—
1927. —
Það er alkunnugt, að Jón
Kjartansson nýtur mikilla vin-
sælda og almenns trausts i sýsl-
unni.
Halastjarnan fer
með 960 km.
firaða á kisf.
LONDON, 5. sept.: — Breska
farþegaflugvjelin, sem kölluð
hefir verið „halastjarnan“ er
enn í tilraunaflugi. í gær var
henni flogið með 960 km. hraða
á klst. og hefur flugvjel
ætluð til farþegaflugs, aldrei
komist svo hratt fyrr. — Hvað
eftir annað hefir halastjörn-
unni verið flogið í 12,000 metra
hæð og gefist vel. — Reuter.
Schuman
á f jármálaráðslefnu
LE HAVRE, 5. september: —
ur um haf á hafskipinu de Gras
se, en þar vestra mun hann
verða viðstaddur fjármálavið-
ræðurnar í Washington.
■— Reuter. *
Líkur fyrir uppreisn.
í Pravda í dag er skrifað um
líkurnar til að uppreisn verði
gerð í Júgóslavíu gegn Tító. —
Segir þar, að fjölda margir
Júgóslavar skilji það, að eina
leiðin til að snúa inn á braut
komúnismans sje að steypa
Tito og klíku hans af stóli.
„Vinátta“ við Rússa.
Rússneska útvarpið sagði í
dag, að yfirgnæfandi meirihluti
júgóslavnesku þjóðarinnar ósk
aði þess, að komið yrði á nýju
„vináttusambandi“ við Rúss-
land og önnur kommúnistaríki
í Austur-Evrópu. Þjóðin finni,
að það sje aðalatriðið, að halda
góðri „vináttu“ við Rússa o. s.
frv. —
Rætt um kvalafangabúðir.
í nýútkomnu Kominform riti
er frá því skýrt, að margar tug-
þúsundir kommúnista í Júgó-
slavíu hefðu að undanförnu ver
af lífi í júgóslavneskum kvala-
fangabúðum. Þannig heldur á-
róður Kominform áfram án af-
láts.
Robert Schuman ljet úr höfn ið pyntaðir, sveltir eða á annan
hjeðan í dag. Siglir hann vest- hátt með hörmungum teknir
Nær 21 þús. hl. bárust til
bræöslu í sL viku
Hæsta skipið var með tæpi, 7000 mál
SAMKVÆMT síldveiðiskýrslu þeirri er Fiskifjelagið birti
í gærkvöldi, og miðuð er við síðastl.' laugardagskvöld, þá
hafa í vikunni sem leið borist aðeins 20.757 hektólítrar af
síld til bræðslu. — Er bræðslusíldaraflinn nú orðinn 455.905
hektól., en það er um 44.198 hektól. meiri bræðslusíldar afli
en á sama tima í fyrra.
Skæðasta vika
Vegna veðurs hefir verið lítið
hægt að fást við síld, en veðr
ið setti mest svip sinn á síld-
veiðarnar í síðastl. viku. Salt-
að hefir verið í um 11000 tunn
ur í vikunni, svo að heildarsölt
unin er nú komin upp í 53.477,
á móti 111.167 tunnum á sama
tíma í fyrra.
<$-
Hæstu skipin
Helga RE er nú aflahæsta
skipið í flotanum, með 6834
mál síldar og tunnur. — Næst
kemur Fagriklettur, Hafnar-
firði með 6725 mál og tunnur,
Ingvar Guðjónsson. Akureyri
með 6129, og Helgi Helgason
VE, með 5645 mál og tunnur
Frh. á bls. 12.
Slórkostlegt smygl-
mál á döfinni
KAUPMANNAHÖFN, 5. sept.:
Eftir því, sem ,,Ekstrabladet“
( segir í dag, verður að telja víst,
að Danmörk hafi að undanförnu
verið miðstöð mikilla smyglsam
taka.
Eitt einasta afrek þessa fje-
lagsskaparð var að smygla vör-
um inn í Danmörku, gegnum
sænska höfn, voru þær um hálf
miljóna króna að verðmæti.
Sagt er, að 10 fiskimenn og
f jesýslumenn, sjeu flæktir í mál
ið í Kaupmannahöfn einni. —
i Hafa bátar fiskimanna nú ver-
ið gerðir upptækir.
Sænska lögreglan vinnur nú
að rannsókn þessa máls og hef-
ur nána samvinnu um lausn
þess við lögreglu Noregs, Hol-
lands, Belgíu Tjekkóslóvakíu,
Svisslands og Þýskalands.
NTB.