Morgunblaðið - 27.10.1949, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.10.1949, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimtu'.'agur 27. okt. 1949. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla' Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands, kr. 15.00 utanlands. I lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura meB LesbÓE. "W Kosningaúrslitin TALNINGU er nú lokið í öllum kjördæmum, nema þrem. En þó þessi þrjú sjeu eftir er hægt að sjá nokkurnveginn heildarmyndina af kosningaúrslitunum. Framsóknarflokkur- inn er eini þingflokkurinn, sem unnið hefur ný þingsæti í þessum kosningum. Hafði fyrir kosningarnar að öllu sam- anlögðu 14 þingmenn, en hefur nú fengið kosna 3 nýliða. Verði úrslitin þau sömu og áður í hinum þrem kjördæmum þar sem ótalið er, fær Framsóknarflokkurinn 17 þingfulltrúa fvrir 14 áður. Atkvæðatala flokkanna í þeim kjördæmum, sem talning hefur farið fram, varð sem hjer segir: Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið 26,945 atkvæði og bætt við sig 2330 atkvæðum. Hann er ekki aðeins fjölmennasti ílokkurinn, heldur hefur atkvæðaaukning hans verið mest. Framsóknarflokkurinn hefur fengið 15.449 atkvæði, og bætt við sig 2048 atkvæðum. Þar af er viðbótin í Reykjavík. sem fyrr segir, 1560 atkvæði. Svo utan Reykjavíkur hefur Framsóknarflokkurinn aukið fylgi sitt í umræddum kjör- dæmum um 488. En þessi aukning flokksins hefur notast honum vel, þar sem hann m. a. hefur fengið tvo þingmenn kjörna með samtals 16 atkvæða mun. Jón Gíslason kosinn í Vestur-Skaftafellssýslu með 5 atkvæða meirihluta og Ásgeir Bjarnason í Dölum með 11 atkvæða mun. Alþýðuflokkurinn hefur fengið samtals 11.212 atkvæði í þeim kjördæmum, þar sem úrslit eru kunn, og hefur at- kvæðamagn hans aukist um 35 frá síðustu kosningum. En atkvæðatala kommúnista í sömu kjördæmum er sam- tals 13,637. Haggist ekki hlutfallið á milli atkvæðatölu K®mmúnistaflokksins og Alþýðuflokksins, í þeim kjördæm- um þar sem ótalið er, gæti þessi mismunur leitt til þess, að kommúnistar fái tveim þingmönnum meira, en Alþýðu- ílokkurinn á nýja þinginu. Líkur eru fyrir því, að Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- flokkurinn hafi^samanlagt 26 þingsæti í hinu nýja þingi, ef sem sje að þingsæti skiftast milli flokka eins og áður í þeim kjördæmum sem eftir eru. Og Framsóknarflokkurinn með kommúnistum hafi þá hinn helming þingsætanna. En alt þetta verður væntanlega lýðum ljóst eftir daginn í dag. En hvernig sem það verður, haggast ekki sú staðreynd, að Sjálfstæðisflokkurinn er öflugasti flokkur þjóðarinnar, og íær þingfylgi sitt ekki með slympilukku örlítils atkvæða- munar eins og Framsókn, heldur eftir kjósendafylgi sínu. Mun Sjálfstæðisflokkurinn t. d. fá hátt í það helmingi fleiri atkvæði samanlagt í þessum kosningum, en Framsóknar- Uokkurinn hefur fengið í kjördæmum þeim, þar sem úrslit eru þegar kunn. Sj álfstæðisflokkurinn er og verður hið trausta bjarg í iramtíðinni, sem mestu varðar fyrir lífsafkomu þjóðarinnar, þó svipvindar kosninga geti um stund dregið úr áhrifum hans. Þetta vita jafnt andstæðingar Sjálfstæðisflokksins, sem ílokksmenn hans. Reynslan hefur sýnt og sannað, að Sjálf- s1 æðisflokkurinn hefur altaf í stjórnmálaskiftum sínum látið þjóðarhagsmuni ráða gerðum sínum, jafnt fyrir það þó and- stæðingar hans hafi farið hina leiðina, að setja flokkshags muni sína framar hagsmunum þjóðarinnar. Langvarandi málamiðlun milli flokka sem Sjálfstæðis- ílokkurinn hefur staðið fyrir, hefur ekki altaf verið jafn vinsæl meðal fylgismanna hans. En það hefur ekki haggað því, hvorki fyrr nje nú, að flokkurinn heldur saman, í fullri meðvitund um hina miklu ábyrgð, sem á honum hvílir, þar sem það fyrst og fremst verður hans verk, er til lengdar lætur, að sjá hinu unga íslenska lýðveldi farborða. Framsóknarráðherrarnir tveir hafa aíhent forsætisráð- herra lausnarbeiðni sína, samkvæmt fyrri yfirlýsingu sinni um, að þeir ætli að segja af sjer þegar kosningar væru um garð gengnar. Þetta er í annað sinn, sem þeir hafa rofið stjórnarsamstarfið. Hefur Stefán Jóh. Stefánsson forsæús- ráðherra skýrt Alþýðublaðinu svo frá, að hann taki það mál ekki til meðferðar, fyrri en úrslit kosninganna sjeu að öllu leyti kunn. Þnð gæti orðið eftir daginn í dag. UdwerjL óhriýar: UR DAGLEGA LIFINU Tilgangslaust sjónarspil FURÐULEGT og um leið til- gangslaust sjónarspil er leikið um hverjar kosningar hjer á landi. Talning atkvæða er gerð að æsandi rosfrjettaefni og þessi skrípaleikur stendur vfir í alt að því heila viku. Ríkisútvarpið gengur á und- an með æsifregnirnar og eyðir í það stórfje og fyrirhöfn, en blöðin og aðrir verða að fylgja á eftir. Vil jeg taka undir það, sem sagt vaj: í ritstjórnargrein hjer í blaðinu í gær, að þetta sje óþarft fyrirkomulag á atkvæða talningu, sem breyta verði. • Smáskamtaaðferðin ÞAÐ HEFIR verið siður hjer á landi, að kjörstjórnir gefi út tilkynningar um, hvað talningu líður með nokkru millibili. — Þessir smá skamtar segja vit- anlega ekkert um það, hvernig kosning muni fara og meira að segja er reynt að blekkja með því, að telja fyrst í stað sem jafnast atkvæði þeirra fram- bjóðanda, sem næstir eru að atkvæðamagni. Smáskamtaaðferðin við taln- inguna gerir ekkert annað, en að vekja falsvonir hjá mönnum og æsa fólkið, sem fylgist með talningunni. • Óþarflega langdregið EÐLILEGT er að menn bíði með óþreyju eftir úrslitum í einstökum kjördæmum og það er skyldæ útvarps og blaða að flytja frjettirnar svo fljótt og greinilega og unt er. En það ætti að vera nóg að birta úr- slitin þegar þau liggja fyrir, eða í mesta lagi, hvernig stend- ur þegar talning er t. d. hálfn- uð. Aðfaranótt briðjudagsins vöktu margir til að bíða eftir úrslitum talningar í Reykja- vík og bæjunum. Talning hófst klukkan 10,30 um kvöldið, en var ekki lokið fyr en um 7-leyt ið næsta morgun hjer í bæn- um. Ætli það hefði ekki verið nær að tilkynna, að klukkan 7 yrðu úrslitin gerð heyrum kunn? Seinleg talning i ALMENNINGUR' á bágt með að skilja, hvað það tekur lang- an tíma, að telja tiltölulega fá atkvæði, Eins og t.d. á Sevðis- firði, þar sem greidd voru rúm- ' lega 400 atkvæði. Oskiljanlegt, að það skuli taka 4 klukkustundir að telja þessi fáu atkvæði. Þannig er það víðar. Til bóta væri að breyta þessu talninga- og frjettafyrirkomu- lagi eftir næstu kosningar. Það myndi spara mönnum tíma og fyrirhöfn og æsandi stundir, sem engum er til góðs. Vonandi, að þetta verði tek- ið til athugunar. e Litur Gróttuvitans SJÓMENN, sem stunda sjó hjer við Faxaflóa, telja að sjálf sögðu bót að hinum nýja glæsi- lega Gróttuvita, en þó fylgir bögguli skammrifi. Sjómenn kvarta undan því, að liturinn á vitahúsinu sje óheppilegur. — Vitabyggingin skeri sig ekki nóg úr og rjettara hefði því verið að mála vitahúsið hvítt og rautt eins og vitabyggingar eru víðast hvar. Sjómenn nota Gróttuvita og hafa gagn af honum við miðan- ir sínar og af þeim ástæðum er þeim nauðsynlegt að vita- byggingin skeri sig úr umhverf inu og sjáist sem allra lengst að. • Skærari ljós á Landakotskirkju ÖNNUR tillaga, sem sjómenn hafa beðið mig að koma á fram færi er, að skærari rauð ljós verði sett upp á Landakotskirkj unni. Ljós þessi eru sett upp þar eins og víðar á byggingum, sem hátt standa vegna flugum- ferðarinnar, svo að flugmenn geti áttað sig á hæð bygginga við flugtak, eða lendingar. En sjómenn nota rauðu ljósin á Landakotskirkjunni til mið- anna og til þess að átta sig á innsiglingu til Reykjavíkur- hafnar. Ætti að vera auðvelt að bæta úr þessu. Loksins koma umferðarljósin FYRIR nokkru gekk jeg í bind indi um að minnast á umferð- arljósin væntanlegu. Sum eilífðarmál eru þess eðl- is, að menn þreytast á að tala um þau, jafnvel þótt um nauð- synjamál sje að ræða. — Það getur ært óstöðugan, að nudda og nudda sífelt um sama at- riðið, án þess að sjá minstu árrJ',ur. Þannig var það um umíerðarljósin á götunum, sem altaf var verið að lofa. En nú er verið að setja bau upp og ætti því ekki að líða á löngu þar til þau verða tekin í notkun. © Því aðeins bót, að. . UMFERÐALJÓSIN \7erða mik- il bót fyrir umferðina á aðal- götum bæjarins, en þó því að- eins, að ökumenn og fótgang- andi fari eftir þeim og kunni að notfæra sjer það öryggi, sem þau veita. Annars geta þau blátt áfram verið hættuleg. Þegar umferðinni er stjórnað með Ijósum teija menn sig ör- uggari en ella og hætta er á að þeir sýni ekki jafn mikla varkárni. Ef grænt ljós er þá eiga menn að geta farið leið- ar sinnar öruggir, en þó því að- eins. að aðrir ani ekki út á braut ina frá þeirri hlið, sem rautt ljós er þá stundina. • Gott eftirlit fyrstu dagana LÖGREGLUMENN bæjarins hafa sýnt það, m. a. á kosninga daginn, að þeir eru vel færir um að stjórna umferðinni og það vel. En það er dýrt manna hald við að hafa lögregluþjón á hverju götuhorni. Þess vegna var það, að einhver sniðugur náungi fann upp ljósamerkja- aðferðina. En fyrstu dagana, eftir að hún verður tekin upp, þurfa lögregluþjónar að vera á ferli og taka mjög hart á því, strax í byrjun. ef menn fara ekki merkjunurn. Til þess að þau komi að gagni — fullu gagni og verði ekki hættuleg — er skilyrði ,að far- ið sje eftir þeim út í ystu æsar. 11111111111111111II llllil 111111111 MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . Þjóðverjar eiga eti Eftir Ian Fraser, frjettaritara Reuters. BERLÍN — Hernaðar eftirlits- nefnd Vesturveldanna, sem sett var á laggirnar í janúar síðast- liðnum til þess að hafa eftirlit með því, að Þjóðverjar hervæð- ist ekki á ný, mun að líkindum taka til starfa í næsta mánuði. — Starfsmenn nefndarinnar skýrðu nýlega frá þessu hjer í Berlín, en bættu við, „ef ekk- ert óvænt kemur fyrir“. Þessa dagana er unnið að því að ganga frá bráðabirgðahús- næði nefndarinnar í Lancaster House, við hliðina á skrifstofu breska hernámsstjórans í Ber- lín. • • TAFIR ÞEGAR gengið var frá starfs skrá eftirlitsnefndarinnar, var í ráði, að hún tæki til starfa í september síðastliðnum, um leið og vestur þýslca lýðveldið yrði formlega stofnað. Ýmislegt varð þó til að tefja fyrir þessu, ki að gela hervæðsl i meðal annars það, að mjög erf- iðlega hefir gengið að finna ncfndinni góðar aðalbækistöðv- ar. Þó hefur verið unnið að því, af kappi að ráða starfsmenn eftirlitsnefndarinnar, semja starfsreglur hennar og rann- saka veilurnar á starfsemi af- vopnunarnefndarinnar, sem bandamenn settu á stofn eftir heimsstyrjöldina fyrri. • • „ÞÝSKUR HERN- AÐARANDI“ ÞÞEGAR núverandi eftirlits- nefnd tekur til starfa tekur hún á sig meginábyrgðina á því, að gæta þess, að friðnum í Ev- rópu stafi ekki hætta af „þýsk- um hernaðaranda“. | Aðalskylda nefndarinnar er að tryggja það, að engmn í V.- Þýskalandi geri tilraun til að framleiða vopn eða vjelar til vopnaframleiðslu, nje leggi stund á vísindalegar rannsókn- iný ir af þeirri tegund, sem Vest- urveldin hafa bannáð. • • RANNSÓKNAR- SVEITIR NEFNDIN hefur fullt umboð til að láta framkvæma hús- rannsóknir hvar sem henni þóknast í Vestur-Þýskalandi. Með þetta fyrir augum, hefur hún látið skipuleggja rann- sóknarsveitir, sem skipaðar eru Bretum. Bandaríkjamönnum og Frökkum. Engir Þjóðverjar fá að starfa í þessum sveitum, eins og eftrr fyrri heimsstyrjöld. Ef einhver rannsóknarsveit- anna kemst að því, að þýsk verk smiðja framleiðir „hernaðarleg tæki“, mun éítirlitsnefndin til- kynna það til hernámsstjór- anna. :ii ■ • • BREÝTTAR AÐSTÆÐUR ENDA þótt Vesturveldin geri Framhald á bl«- 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.