Morgunblaðið - 20.12.1949, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.12.1949, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 20. des. 1949. MORGUNBLAFIÐ 9 UOARSKATTURIIMIM LEYSIR EKKI HJER á eftir fara meginkafl- arnir úr ræðu Gísla Jónssonar, alþm., er hann hjelt á fundi Fasteignaeigendafjelagsins s. 1. fimmtudag, og Rannveigu Þor- Steinsdóttur veittist svo erfitt að svara. — Hver er tilgangur frv. Ef marka má greinagerð frv., sagði Gísli .Jónsson, er ætlast til, að frv. ef að lögum verður, minki að miklum mun, eða út- rými að fullu húsnæðiseklunni óg óhollum íbúðum, en skapi hverjum manni og hverri fjöl- skyldu hæfilegt viðunandi hús- hæði. Þetta sje gert á tvenn- an hátt: 1. Með þvi að mjög mikið húsnæði, sem nú er ónotað eða illa notað komi til framboðs vegna hins háa skatts. 2. Með því að nota það fje, sem inn kemur fyrir skattinn til þess að byggja fyrir það nýjar íbúðir. Skal þetta hvorttveggja athugað nánar. Aukið framboð á einstaklings- herbergjum liSIMÆÐISVANDAIIALIIM Er órjettlátur og þ|óðf|elaginu ikaðlagur Kaili úr ræðu Gísla Jónssonar alþingism. Fyrstu áhrifin af lögunum hljóta að verða þau, að afarmik ið framboð yrði á herbergjum fyrir einstaklinga. Því flestir fnyndu helst velja þann kost- inn, að þrengja að sjer á þann hátt, að taka inn einhleypinga í húsin, m. a. vegna þess, að leiga á 1 eða 2 herbergjum kynni að geta forðað þeim frá skattinum. Hjer yrði því fram- boðið sennilega fljótt meira en eftirspurnin, og leigan því sennilega á slíkum herbergjum falla e.t.v. mjög mikið. En nú er ástandið einmitt þannig mjög víða, að leigjendur og eigendur í nýjum húsum er algerlega of- vaxið að standa undir þeim kostnaði að búa í þeim, nema að geta leigt hluta af íbúðinni til einhleypinga fyrir hlutfalls- lega sama verð á hvern fer- meter eða jafnvel hærra en það verður að greiða sjálft. Aukið framboð samfara hríðlækkandi leigu á slíkum herbergjum, án þess að öll önnur húsaleiga og byggingarkostnaðurinn al- mennt fylgdist að í verðlækk- un, myndi hafa þau áhrif, að fólk gæti ekki búið í þessum íbúðum og yrði nauðugt viljugt að flytja úr þeim, eða knýja fram hækkun launa til þess að mæta þessu áfalli. Samfara leigu fleiri eða færri herbergja til einhleypinga fylgdi meiri átroðningur á heim ilið, meiri vinna^fyrir hjálpar- lausa og oft lítið hrausta hús- móðir, að jeg nú ekki tala um, ef um er að ræða ónærgætna leigjendur, sem draga með sér alskonar gesti, á hvaða tíma sólarhringsins sem er. Er ljóst, að fjölda margar fámennar eldri fjölskyldur vinna það ekki fyrir nokkurn pening, að leigja nú slíkum leigjendum af íbúðum sínum, ef þær á ann- að borð geta komíst hjá því efnalega. Leggja menn hart að sjer á öðrum sviðum til þess að forðast það böl, sem því fylgir. Engin íbúðaraukníng Jafnskjótt og þessi leið lok- aðist, og hún lokast þegar á fyrstu mánuðunum eftir gildis- töku laganna, væri farið að at- huga, hvernig unnt væri að skifta stærri íbúðum i smærri íbúðir og á þann hátt gera hvort tveggja í senn, forðast skattinn og fjölga íbúðum: Þetta myndi þó undir lang- flestum kringumstæðum mæta þeim erfiðleikum, þar sem um leigjendur er að ræða, sem búa í ofstórum íbúðum, og ekki vildu taka á sig skattinn, að slík breyting getur ekki komið til greina, nema með vilja og fjárframlagi eiganda hússins. Því frv. gerir ekki ráð fyrir því að sú kvöð verði lögð á húseiganda, að breyta þannig íbúðum. Afleiðingin yrði sú, að fjölskyldan yrði að flytja úr húsinu, og síðan gæti svo fari, að enginn fjölskylda nægilega stór fengist í íbúðina. Hún stæði þá auð öllum til tjóns, og torveldaði lausn húsnæðisvand ræðanna en bætti ekki úr þeim. Ef hinsvegar um væri að ræða stóríbúð eigandans sjálfs, gæti' hann ákveðið slíkar breyting- ar á íbúðinni. Þær myndu þó háðar fjárfestingarleyfi, efnis kaupum og vinnuafli, auk þess sem engin trygging er fyrir lánsf je nje eignarfje til að stand ast kostnaðinn hjá viðkomandi aðila. Það er líka alveg víst, að í langflestum tilfellum myndi þessi kostnaður verða meiri- hluti af þeim kostnaði, sem það kostaði að byggja jafn stóra nýja íbúð og þá sem fengist til viðbótar eftir breytinguna. Ónógar byggingaframkvæmdir stafa fyrst og fremst af efnis- og vinnuaflsskorti. Þrátt fyrir hinn gífurlega byggingakostnað í landinu, er það þó annað en fjárskortur, sem torveldar fyrst og fremst að eftirspurninni sje fullnægt. Takmörkun fjárfestingarleyfa, efnis- og vinnuaflsskortur valda bæði því, að húsin hafa orðið óhæfilega dýr og að ekki hafa fleiri ibúðir verið byggðar. Að gera hvorttveggja í senn, að skapa nýtt fjármagn til húsa |fjöldi að búa í hverri íbúð: Hvaða áhrif hefir þessi löggjöf á þegna þjóðfjelagsins? Jeg hefi hjer að framan sýnt fram á, að löggjöfin sem slík bætir ekki úr húsnæðisvand- ræðunum nema síður sje. — En jeg skal ennfremur sýna hjer fram á með örfáum dæmum, hvernig lögin mundu verka á marga einstaklinga. Fjöldi manna hefir byggt sjer hús á þeim tímum, sem slíkur hugsunárháttur og sá sem fram kemur í þessu frv. ,var óþekkt ur á íslandi, í því trausti að mega eiga það óáreittur og njóta þess án íhlutunar annarra. — Þessum húsum má skifta í eftir farandi flokka. 1. Tveggja hæða einbýlishús um 250 ferm. á báðum hæðum 2. Tveggja hæða einbýlishús um 130 ferm. á báðum hæðum eða fleirbýlishús með 130 ferm. íbúð á h^erri hæð. Eru þetta þær íbúðir, sem Fjárhagsráð nú mun leyfa stærstar í ný- byggingum. 3. Fleirbýlishús um 150 fer- metrar á hverri hæð. 4. Tveggja hæða einbýlishús um 90 ferm. á báðum hæðum eða fleirbýlishús um 90 ferm. íbúð á hæð. Mjög mikill hluti landsmanna að minsta kosti í bæjum og þorpum býr í einhverjum af þeim flokki húsa, sem jeg hefi nefnt. Eins og kunnugt er býr fjöldi af fjölskyldum árum saman í sömu íbúð, ef þær hafa tryggt sjer hana, og efni leyfa. Þar er heimilið byggt upp. Þar fæð ast börnin, alast þar upp og flytjast þaðan, er þau eldast, til annara heimila. Hjónin sitja þá oft eftir, eða ekkjan með eitt barn, án þess að vilja breyta til eða taka leigjendur. Ef frv. nær fram að ganga óbreytt, myndi stóríbúðaskatt- urinn á slíkar tveggja manna fjölskyldur verða sem hjer segir. 1 Á íbúð í 1. fl. flokki kr. 35 þús. á ári. 2. fl. kr. 11 þús., 3. fl. 15 þús., 4 fl. 3 þús. á ári. En til þess að forðast að fullu því í lífi þjóðarinnar, sem hún má ekki án vera og sem jafnan skapast á friðsömu, góðu heim ili, og sem er og verður örugg- asta vörnin gegn þeim voða sem úr mörgum áttum sækir að þjóð inni og þó einkum ungdómn- um. Hún yrði fyrsta og örugg- asta tilraunin til að hrinda ungl ingunum frá heimilunum út í gjáiífi mergðarinnar í stað þess að laða þau að þeim frá sollin- um, og það atriði fyrir sig er mjög veigamikið í þessu máli. Kemur ekki síður niður á leigjendum Fjölda margir menn halda að þessi skattur snerti aðeins hús- eigendur, en það er hreinn mis skilningut. Hann snertir engu síður leigjendur eins og sýnt hefir verið fram á, og sýnt skal enn frekar fram á með eftirfar andi dæmum. Kr. 41.400.00 á ári Hjón nokkur hafa nýlega orðið að fara úr ágætri íbúð, sem þau hafa búið í og gekk þeim mjög erfiðlega að fá aðra íbúð og urðu loksins að taka stóra íbúð, sem er að stærð 230 fermetrar. Það eru 5 stofur, eldhús, baðherbergi og stór innri for^ofa og fyrir þessa í- búð verða þau að greiða krón- ur 2.300.00 á mánuði auk ljós og hita. En það skal tekið fram, að samkvæmt mati húsaleigu nefndar má þessi íbúð leigjast fyrir kr. 2500.00 á mánuði. Framangreind hjón hafa nú leigt frá sjer af íbúðinni tvö herbergi fyrir kr. 700.00 á mán uði, með ljósi og hita, sem mun vera sem næst kr. 600.00 fyrir plássið án ljóss og hita. Þessar stofur sem hjónin leigja frá sjer, munu vera um 50 fermetr ar að stærð. Hjónin búa því í þremur stofum sjálf ásamt eld húsi og stórri innri forstofu og er það pláss þá ca. 180 ferm., sem þau greiða fyrir kr. 1700 á mánuði, auk ljóss og hita. Samkvæmt frumvarpinu um stóríbúðaskatt eiga þessi hjón að greiða skatt af 110 ferm., eða kr. 21.000,00 á ári, eða sam tals í leigu og stóríbúðarskatt kr. 41.400 á ári. Nú er stóríbúð- arskatturinn ekki frádráttarhæf ur frá almennum tekjuskatti. Hvernig tekjur þurfa þessi skattskyldu, þarf eftirfarandi í hJón að hafa’ svo að Þeim sJe kleyft að geta lifað? inni. Skattur, sem hann vei ður að greiða, er um kr. 5 þús. á ári. Embættismaður hefir um 17 0 ferm. íbúð. Hjónin eru tvö ein í húsinu, en hann hefir ekki rjett til að leigja af íbúðinni. Nái lagafrumvarpið fram að ganga, verður skattur sá, sem honum ber að greiða, krónur 15.000,00 á ári. Þessi dæmi segja berlega að frv. snertir engu síður leigjencÞ ur en húseigendur og að marg- ir embættismenn gætu ekki bú- ið í þeim bústöðum, sem ríkið eða bæjarfjelög hafa afhení þeim til íbúðar. Löggjöfin á- kveður fyrst og fremst refsi- skatt á ákveðna þegna þjóð- fjelagsins, og m. a. á þá menn sem styrkjalaust hafa innt af hendi lausn þess vandamáls; S& menn búi í mannsæmandi íbúð- um. Framkvæmdaörðugleikar. — Órjettlæti Þá drap ræðumaður á örðug leika þá, sem mundu verða á framkvæmd laganna og það rík isbákn og kostnað, sem álagn- ing stóríbúðarskatts hefði i för með sjer. Ennfremur gat ræðumaður 9. gr. frumv. sjerstaklega, en þar segir, að stóríbúðarskatt má taka lögtaki, og hvílir hann sem lögveð á eigninni, þ.e.a.s., ef leigjandi, sem húseigandi ma ef til vill ekki segja upp skv. Ihúsaleigulögunum, stendur ekki skilum með skattinn, þá má halda uppboð á húseigninni. _ ' Niðurlagsorð Að lokum komst Gísli Jóns- son svo að orði: Reykvíkingar hafa við síð- ustu Alþingiskosningar sent i fyrsta sinn fulltrúa á Alþing sem þingmann Framsóknar- flokksins, ungfrú Rannveigu Þorsteinsd. Hennar fyrsta ganga er að skapa ykkur það böl og það ranglæti, sem þetta frv. býr ykkur, ef það verður samþykkt. Jeg hefi verið með þessum mönnum á þingi síðan 1942. Jeg hefi þekkt hug þeirra til Reykjavíkur og mjer kemur því ekkert á óvart þótt frv. sem þetta komi úr þeirri átt. Hitt átti jeg ekki von á að fulltrúi, kosinn af Reykvíking- um, sýndi það blygðunarleysi, að gerast 1. flm. að slíku máli. , En líklegast er það rjett til get- ið ,að Rannveig hefir aldrei gerí sjer grein fyrir afleiðingunum af slíkri löggjöf og ekki kynnt sjer hvað í frumvarpinu stend- ur, nema helst tvö orð, naínið sitt: Rannveig Þorsteinsdóttir. bygginga eins og til er ætlást hjer, og jafnframt að marg- falda eftirspurn eftir efni og vinnu til breytinga á húsum, án þess jafnframt að geta bætt úr aðalvandamálinu, þ. e. ríkjandi efnis- og vinnuafls- skorti, yrði til þess að gera á- standið í þessum máfum enn ó- bærilegra. Af þessu er alveg ljóst að frv. þótt að lögum verði, hjálpar ekki til þess að ná því takmarki, sem stefnt er að, heldur torveldar það stór- lega. Verður að Rafmagn frá Norogi til Danmerkur I íbúð í 1. fl., 14 manna fjöl- skylda. 2. fl., 6 manna. 3. fl. 13 | Má ekki leigja út manna. 4. fl. 3ja manna fjöl- greiða kr. 15.0(10,00 skylda. i Húseigandi hjer í bæ leigði Gömlu hjónin eða ekkjan sem hjónum góða íbúð, sem er um j KAUPMANNAHÖFN, 19. búa í 1. flokk’ yrðu þá að bæta j 90 ferm. að stærð. Nu er maður TJndanfarna 3 daga hafa inn búinn að yfirgefa heimili fulltrúar frá Noregi. Svíþjóð sitt og konan er eftir í ibúðinni og Danmörku verið saman með barn þeirra. Skattgreiðsla komnir í Kaupmannahöfn til des. við sig 12 æigjendum í 2. fl. 4, í 3. flokki 11 og í 4. fl. 1. Það leikur því ekki á tveim tungum hversu takmarkalausa erfiðleika og iltindi ráðstafanir myndu truflun slíkara skapa. Það er alveg ljóst, að löggjöf hennar verður um kr. 3.000.00 að ráða um sölu rafmagns til á ári. | Danmerkur frá Noregi. — En Maður einn, hefir um 120 fer þessar áætlanir afar umfangs- metra ibúð. Nú eru börnin hans miklar. Skýrsla verður birt flutt að heiman, en eftir eru um viðræður þessar á miðviku in myndi brjóta niður margt afhjónin og öldruð kona í íbúð- dag. — NTB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.