Morgunblaðið - 28.01.1950, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 23. janúar 1950
Sigfús og skattaframtölin
Sigfús Sigurhj artarson bauð
Jóni Axel að skoða skattafram-
töl sín og fjelaga sinna til að
sjá, hvaðan þeir fengju tekjur
sínar til lífsuppeldis.
Þetta er sjálfsagt fróðleg lesn
ing og vonandi setur Jón Axel
sig ekki úr færi um að kynna
sjer hana.
En Pálmi Hannesson var áð-
ur búinn að tala um að ekki
teldu allir í bænum rjett fram.
Pálmi er vinur og nátengdur
ýmsum helstu kommúnistafor-
sprökkum bæjarins og þekkir
vel til um allra þeirra hagi. —
Enda leyndí sjer ekki, að Pálmi
átti við suma af þessum forn-
vinum sínuin, þegar hann tal-
aði um það ótrúlega, að menn
gætu farið í langar siglingar og
veitt sjer annan munað, en samt
komist hjá að borga nokkurt
útsvar.
Af áberandi mönnum í bæj-
arfjelaginu eru ýmsir helstu
forsprakkar kommúnista, eins
og Einar Olgeirsson, Brynjólf-
ur Bjarnason og aðrir slíkir,
sem ekki borga hærra útsvar,
en allslaus iðnaðarstúlka.
Báðir sigldu þó á s.l. sumri
til að hitta húsbændur sína, og
Einar tók við íbúðinni af ein-
um ríkasta manni landsins. —
Það hlýtur því að vísu að vera
fróðlegt að sjá, hvernig þessir
menn gera úr garði skattafram-
töl sín, til þess að skattnefnd-
irnar geti varið að taka þau
trúanleg.
Þeir, sem þurfa að læra að
„telja fram“. geta vafalaust
lært mikið af að fá að glugga
í þau plögg.
Svo mikil forvitni, sem ýms
um kann þessvegna að vera á,
að skoða þau í þeim tilgangi,
óska samt ennþá fleiri eftir því,
að kommúnistar segi hreinlega
frá, hvernig þeir fá tekjurnar.
sem *ekki eru taldar fram á
skattaframtölum, og allir vita
að þeir hafa.
Um þetta ætti Sigfús eitt-
hvað að geta sagt af eigin raun.
Ólíkf hafasf bau að
EITTHVAÐ þessu líkt datt mjer
í hug þegar jeg heyrði komm-
únista halda þeirri fjarstæðu
fram í útvarpsumræðunum, að
átökin í bæj arstj órnarkosning-
unum nú snerust aðallega um
það hvort Ileykvíkingar veldu
heldur Pjetur Sigurðsson 8.
mann á lista Sjálfstæðismanna,
D-listanum, eða Nönnu Ólafs-
dóttur, sem er 5. frambjóðandi
kommúnista á C-lista, sem bæj-
arfulltrúa. .Teg fullyrði að eng-
um Öðrum en sanntrúuðum
kommúnistum getur látið sjer
detta slíka fjarstæðu í hug, og
ætla jeg með nokkrum orðum
að sanna þessa fullyrðingu
mína.
Pjetur Sigurðsson hefur gert
það að lífsstarfi sínu að varða
sjóleiðina vi5 strendur íslands,
það er að mæla upp allar vand-
farnar skipaleiðir og kortleggja
þær betur en áður var, enn-
fremur að kortleggja alt sem
sjófarendunum má að gagni
koma til öryggis Iífi sjcmanna
við þá hættulegu strönd; sem
þeir á öllum tíma árs verða að
sigla að og frá. Þeir sem hafa
haft skipstjórn á hendi og dval-
ið á sjónum í áratugi, vita best
hvers virði þessi starfsemi Pjet-
urs er og kunna áreiðanlega að
meta það. — Auk þessa hefur
hann verið að fræða íslenska
æskumenn, sem hafa gert það
að lífsstarfi sínu að sigla út á
hafið og ætla sjer að verða yfir-
menn á skipum þegar þeim
gefst til þess tækifæri.
Ef þetta, sem hjer er sagt um
Pjetur, er borið saman við það
sem sjest hefur á prenti í Þjóð-
viljanum eftir Nönnu Ólafsdótt
ur, þá virðist sá samanburður
sanna mínar fullyrðingar, að sú
fjarstæða sem kommúnistar
halda fram komi ekki til mála.
Þar sem Nanna notar sína hæfi
leika og mentun til að lokka
æsku þessa lands til fylgis við
þá stefnu, sem allar lýðræðis-
þjóðir telja að heimsfriðnum
standi mest hætta af „komm-
únistastefnunni“.
Reykvískir kjósendur, allir
þeir sem unna lýðræði og frelsi
einstaklingsins, kjósa D-listann.
Guðbjartur Ólafsson.
eu(iiiiMifMiiiiiiiiiiiiiirmfiiiiiiiiiiiiiiiiiMiitiimmii>
■ r
f SÖLL'BÍtÐ. VIÐGERÐIR, I
VOGIR
I r Reykjavík og nágrenni lánum i
| við sjálfvirkar bi'ðarvogir a |
s meðan á viðgerð stenjur.
I Hverfisgötu 49. Simi 81370. [
Í Ólafur Gíslc^on & Co. h.f. :
Frá Kvenrjeftmdafjelagslundi.
Þrjár konur í faldbúningi, Edda Kvaran, Lára Sigurbjörns
dóttir og Arnheiður Jónsdóttir.
KVENRJETTINDAFJELAG Is-
lands hjelt afmælisfagnað sinn
í Tjarnarcafé s.l. þriðjudags-
kvöld. Formaður fjelagsins, frú
Sigríður J. Magnússon, flutti á-
varp og minntist þess, hve þörf
þessa fjelagsskapar væri brýn
fyrr og síðar.
Undir borðum fóru fram
skemmtiatriði. Fyrst komu
fram þrjár konur, klæddar
fögrum faldbúningi, þær Edda
Kvaran, leikkona, frú Arnheið-
ur Jónsdóttir og frú Lára Sig-
urbjörnsdóttir — og fluttu þær
talþátt. Töluðu þær saman sem
móðir, kvenfrelsiskona og ung
stúlka. Síðar söng frú Svava
Einarsdóttir einsöng með und-
irleik dr. Urbantschitsch. — Þá
las frú Edda Kvaran tvö kvæði
eftir frú Halldóru B. Björnsson,
Sænski listmálarinn, frú Siri
Derbert, sagði þarna frá góðum
árangri af starfi sænskra kven-
rjettindakvenna, þó skorti á þar
í landi sem annarsstaðar, að
konur hefðu losað sig úr göml-
um hömlum, því að enn hefðu
þær ekki jafna hlutdeild og
karlar í aðalmálum þjóðanna
og því næðu áhrif kvenna
hvergi til þess að sitja svip á
heiminn.
Frú Steinunn H- Bjarnason
ávarpaði siðast samkomuna og
minntist ýmissa áfanga í bar
áttumálum kvenna.
Hófið stóð til kl. 1 eftir mið-
nætti.
Tilkynning frá Byggingarsamvinnufjelagi Reykjavíkur:
Þeir fjelagsmenn, sem hafa í hyggju að sækja um
íbúðir, sem kynnu að verða byggðar á þessu ári á veg-
um BSFR, snúi sjer til skrifstofu Byggingarsambands-
ins, Garðastræti 6, sem skrifar niður nöfn umsækjenda og
gefur allar upplýsingar.
IIIIIIIIIIIMIIIflllltl 11(1(111
.mnciiiMiimiiiiimi
1
Markús Jit & ák Eftir Ed Dodd
Wmile plant fishes up-
ST^TAM AND SCCfTTV HUNTS
FGR UNUSUAL BEAVER PIC-
TURES, THE OTTER SPOTS "OLD
PLUNGER"THE RECORD TROUT
biOW THE GREEDV OTTER,
UNABLE TO RESIST EASY
PREY, STARTS FOR THE
BIG FISH
AAEMBERINQ THC VICJOUS
OTTER'S ATTACK OL' HlS
SEAVER BABv. SPfl&S MR'.
si~emv fðom -rw® to»j »•'
HIS HOUSF.
TAKS ANOTHER LOOK AT
AND MAKE SURE
— Meðan herra Vífill kastar
nokkrum sinnurh ofar við ána
og Siggi reimir að ná óvenju-
legum bjórnyndum, hefur ot-
urinn komið auga á gamla Kaf-
ara, sem er bundinn við bakk-
ann. Og græðgin logar í otrin-
inum.
En þar er líka annar við-
staddur, sem sjer oturínn. Það
er Stubbur bjór. Og hann hatar
oturinn, eftir árásina forðum.
Fullur af græðgi tekur otur-
inn loks þá ákvörðun að kastá
sjer út í ána og hann ætlar að
jeta silunginn sem bundinn er
við bakkann.
-— Heyrðu, við skulum fara
snöggvast til balca, Siggi. Mig
langar til að sjá, hvort mig
hefur ekki verið að dreyma.
Hvort jeg er virkilega búinn að
veiða gamla Kafara.
Flokkurinn með
lungumsr Ivær
UM NOKKURRA vikna skeið
hefir Tíminn verið að fræða
Reykvíkinga á því, að enginn
bæri jafn mikla umhyggju fyr-
ir hag þeirra og Framsóknar-
flokkurinn.
Ef til vill láta einhverjir
blekkjast af þessum óvandaða
málflutningi, en það er þá að-
eins vegna þess, að þeir hinir
sömu hafa ekki kynnst þeim
svívirðilega áróðri, sem Fram-
sóknarmenn reka gegn Reykvík
ingum, þegar þeir eru staddir
annars staðar á landinu.
Út um byggðir landsins reyna -
Framsóknarmenn af öllum
mætti að ala á fjandskap til
ReykjavíkUr og staðhæfa þar,
að Reykvíkingar sitji yfir lilut
allra landsmanna. Berið þetta,
góðir Reykvíkingar, saman við
skrif Tímans um Reykjavík
þessa dagana.
Út um land er það helsta á-
róðursvopn Framsóknar gegn
Sjálfstæðismönnum, að þeir
sjái ekkert nema Reykjavík og
skapi Reykvíkingum allskonar
hlunnindi umfram aðra lands-
menn. Nú er Reykvíkingum
sjálfum aftur á móti sagt, að
Sjálfstæðisflokkurinn hirði ekk
ert um málefni Reykvíkinga.
Út um land saka Framsókn-
armenn Sjálfstæðisflokkinn um
það að eiga sök á því óþolandi
ástandi, að næstum allur inn-
flutningur tjj landsins fari um
Reykjavík. En þegar fundið er
að því, að SÍS sje úthlutað
milljóna gjaldeyrisleyfi til að
reisa vörugeymslur og skrif-
stofubyggingar í Reykjavík með
an ekki er hægt að fá nægilegt
efni til íbúðarhúsa, segir Tím-
inn í rammagrein þann 22. jan.:
„Sannleikurinn er sá, að fyrir
atvinnumál Reykjavíkur skipt-
ir fátt meira máli en að í Reykja
vík sje gerð ódýr umskipunar-
höfn, því að annars mun mikil
versl. og vöruflutningar færast
hjeðan og fylgjá því mikil at-
vinnurýrnun“. — Það verður
sannarlega gaman að heyra
Framsóknarmenn segja fylgis-
mönnum sínum út um land frá
því, hversu SÍS vinni gott starf
með því að koma í veg fyrir
að innflutningurinn færist frá
Reykjavík!! Það má mikið vera,
ef málið verður ekki túlkað þá
dálítið á annan veg.
Þegar íhuguð er þessi hræsni
og yfirdrepsskapur Framsókn-
armanna, hljómar það næsta
kaldhæðnislega, þegar Tíminn
talar um „óheiðarlegan mál-
flutning“. Einmitt málflutning-
ur Tímans og Framsóknar-
manna við bæjarstjórnarkosn-
ingarnar hjer í Reykjavík hlýt-
ur að vekja fyrirlitningu allra '
rjettsýnna manna, bæði hjer í '
Reykjavík og út um allt land.
-- ' ' .. I
Frjálslyndir ganga frá
kosningaávarpi sínu
LONDON, 27. jan.: — Frjáls- .
lyndi flokkurinn í London situr
nú á tveggja daga ráðstefnu, til
þess að ganga frá kosriingaá-
varpi sínu. Hann hefir þegar
lýst yfir, að hann líti svo á, að
alþjóðamál eigi að vera höfuð-
mál í stefnuyfirlýsingum flokk
anna. — Reuter.