Morgunblaðið - 23.04.1950, Síða 9

Morgunblaðið - 23.04.1950, Síða 9
I Sunnudagur 23. apríl 1950. MORGUNBLAÐIÐ 0 REYKJAVÍKURBRJEF Vorið er komið VÍGSLA Þjóðleikhússins á sum -ardaginn fyrsta, á að marka mikilvægt spor í menningar- málum þjóðarinnar. Alt fram á þenna dag hefur leiklist lands -manna verið borin uppi af fórnfúsum áhugamönnum, sem haí'a þurft að hafa leiklistina í hjáverkum. Með allri virðingu fyrir Iðnó hefir mátt segja, að leiklistin hafi verið húsnæðislaus að kalla. Ef veðráttan leyfði, myndi leikstarfsemin hafa far- ið fram undir beru lofti eins og þing haldið til forna- Þessari húsnæðislausu list Ihefir nú verið búið giæsilegra húsnæði hjer í Reykjavík en Siokkurri annari starfáemi. Og að því er tekur til orðlistarinn- ar, verður öllum landslýð gef- inn kostur á að njöta þess, sem þar fer fram. Útvarpið getur sjeð fyrir því. Við vígslu Þjóðleikhússins skýrðu forráðamenn þess frá, hvaða verkefni biðu stofnunar- innar. Þau eru bæði mikil og vandasöm. Þó einhverjum kunni að finnast að risið sje ekki hátt á íslenskri nútíma- menningu, þá er það stórt orð, að ætla sjer, að efna til mið- stöðvar hennar, einskonar há- borgar, sem m. a. að kynna það besta í erlendri list, svo ís- lenskum anda sje þannig búin leið til að eflast og frjóvgast við erlend kynni. En það eitt er mikið verk, og vandasamt, að gerá Þjóðleikhúsið að mið- stöð íslenskrar málfegrunar að öllu leyti. Því leikhúsið hefir þar ekki við að styðjast erfða- venjur frá fyrri leikstarfsemi í landinu. Við skulum vonarað þetta alt megi takast giftusamlega. Einangrun rofin Einangrunin hefir verið mein allrar menningar með okkar fámennu þjóð Þetta hefir ekki verið öllum jafnljóst. Stundum hefir það heyrst hjá nágranna- þjóðum okkar að íslensk menn- ing hafi haft sjerstök lífsskil- yrði, þroskast í emverunni, á löngum dimmum vetrarkvöld- um við grútarlampa og önnur álíka lífsþægindi. Hjer heima hefir því verið trúað alt fram á síðustu tíma, að hjerlendir menn gætu naumast orðið skáld, eða listamenn í öðrum greinum, ef þeir lentu í þeirri „ógæfu“, að hafa nægilegt lífs- viðurværi. Mönnum hefir líka láðst að veita því eftirtekt að á þeim öldum, sem menning okkar stóð hæst, í samanbúrði við sam- tímamenning frændþjóðanna, var það gæfa okkar að við vor- tun farandþjóð sem hafði öllu meiri kynni við fremstu Evrópuþjóðir en aðrir Norður- landabúar. Á síðustu árum hefir íslensk leikment notið meiri áhrifa frá öðrum þjóðum en áður. Ungt leikfólk hefir sótt mentun til ýmsra þjóða. En nú, þegar Þjóð- leikhúsið tekur til starfa, verð- ur fyrst áuðvelt að kveðja hing- að listamehn, til að koma fram á þjóðsviðinu, og kynna al- menningi list sína. Á þann hátt . verður hægt að veita áhrífum erlendrar leiklistar bejnt, til al- áýðu manna hjer á landi. Þær fáu heimsóknir erlendra úrvalsleikara, sem við hingað til höfum notið, örfa Þjóðleik- húsið til, að leita inn á þessar brautir í framtíðinni. Myndlistin Á þessu ári gerast væntan- lega fleiri atburðir á sviði ís- lenskra menningarmála, sem valda svipbreytingum og að- stöðumun frá því sem áður var. Þess er vænst, að Listasafn ríkisins fái húsnæði, í hinni nýju byggingu Þjóðminjasafns- ins. Og Þjóðminjasafnið sjálft fái um leið það húsrými til yfir- ráða, að það geti notið sín, hægt sje að sjá alla markverða muni, sem það hefir að geyma. Þar verði í stuttu máli aðgengileg mynd af menningarsögu þjóð- arinnar, sem öllum safngestum liggur opin, eftir því sem efni standa til. í Listasafni ríkisins er fyrst og fremst íslensk mvndlist frá þessari öld. Osjeð er enn, þang- aðtil listaverkin koma í fyrsta sinn öll á sama stað hve full- nægjandi úrvai þar er. Hvernig safnið fullnægir því hlutverki að gefa yfirsýn yfir íslenska nútímamyndlist. En þegar eign -ir safnsins eru komnat á einn stað, þá fyrst verður hægt að vinna að því, að fylla í skörð- in, af viti og fyrirhyggju. Þegar Listasafnið er komið upp, er nauðsynlegt, að gera öllum almenningi ljóst, hvaða erindi myndlistin á til almenn- ings. Hvernig hún getur auðg- að alt líf manna, víkkað sjón- deildarhring þeirra, og leið- beint þeim til, að hafa ánægju af allri fegurð, er þeir fyrir- hitta á lífsleiðinni. Sýningar En þegar safnið er komið upp, eða þau húsakynni, sem því eru ætluð. ætti það að vera hqggðarleikur. að koma þar upp við og við sýningum erlendrar myndlistar, svo almenningi geti gefist kostur á, að kynna sjer með eigin augum, erlenda list, frá ýmsum tímum og fá hana til samanburðar við það, sem hinir innlendu Hstamenn hafa fengið þjóðinni í hendur. Verða bessi tækifæri ómetanlegur fengur, bæði fyrir þá íslenska myndlistamenn sem heima eru, og fyrir allan listunnandi al- menning í landinu, sem á þess kost að sjá hjer sýningar. Miðaldarár 20. aldarinnar ætti því á margan hátt að geta orðið merkisár í sögu íslenskra menningarmála. Sundruð þjóð I hvert skifti sem rætt er um menningarmál íslensku þjóðar- innar, og þau ráð sem eru fyrir hendi, og liklegust eru til þess að íslensk menning geti orðið skjólgarður um sjálfstæði okk- ar og þjóðartilveru, fer ekki hjá því, að menn renni hugan- um til þeirrar ömurlegu stað- reyndar, að jafnvel í þeim mál- um standa íslendingar ekki lengur sameinaðir. Við íslendingar, sem aðrar vestrænar þjóðir höfum orðið fyrir þeirri ógæfu, að verða að sjá á.bak allmörgum5jn<ipnui-n senfi sagt hafa sig ur menning- arsambandi við vestrænan hugsunarhátt, og frelsishug- sjónir, til þess að ganga á hönd einræðisflokki, sem stefnir leynt og ljóst að heimsyfirráð- um. Þessir menn af íslenskum ættum hafa skift um fóstur- jörð, hafa gengið í Fimtuher- deild kommúnista. Flokkur þess.ýra manna, kommúnista- flokkurinn, lýtur stjórn hins alþjóðlega kommúnistaflokks, eða framkvæmdastjórn hans, „Kominform“ Meðal Norðurlandaþjóða eru tiltölulega flestir íslendingar í Fimtuherdeildinni. Tiltölulega flestir, sem hafa ekki enn skil- ið, hvað Kominform er, eða hver er raunveruleg stefna kommúnistaflokksins. Þegar flokksdeildir komm- únista í Vestur-Evrópu hefja áróður fyrir ,.heimsfriði“, þá veit allur almenníngur það og skilur í Vestur-Evrópulöndum, að sú ,,friðarhugsjón“ sem kommúnistar ala i brjósti er, að einræði Moskvavaldsins nái sem víðast um heiminn, og kommúnistum takist með her- valdi Rússa, að leggja undir sig sem flest lönd, og það sem fyrst, þurka frelsi þjóðanna út. Þessvegna er „herdei)dum“ kommúnista fvrirskipað að vinna að því. að lýðræðisþjóð- irnar, sem enn hafa varist of- beldi Moskvamanna, verði sem varnarlausastur. Allir óblindaðir Islendingar vita í dag, að Atlantshafsbanda -lagið miðar að því, að halda uppi því jafnvægi í heiminum, sem eitt getur trygt friðinn. Kommúnistar rísa andvígir gegn allri viðleitni í þessa átt. Því þeir vilja ekki jafnvægið. Þeir vilja að húsbændum þeirra megi takast, að skella hersveitum sínum sem þeir hafa vígbúnar austan Járn- tjalds, vestur yfir löndin. Svo flokksdeildirnar í sem flestum löndum geti sem fyrst brotist til valda eins og kommúnistar fengu tækifæri til í Tjekkó- slóvakíu í febrúar 1948. Þeir sem vinna fyrir flokks- deildir kommúnista, hvort held- ur hjer á landi, eða annarstað- ar, vinna markvisst gegn þjóð sinni fyrir Kominform og sam- kvæmt fyrirskipunum þaðan. Ellegar þeir eru svo mikil erkifífl, að þeir gera sjer ekki minstu grein fyrir því, hvað þeir eru að gera, eða til hvers þeir eru notaðir, af erlendu valdi. I»eir sem hverfa frá villu síns vegar Fyrir nokkru síðan sagðí einn af forystumönnum dönsku flokksdeildar komrhúnista sig úr flokknum, Frode Danielsen að nafni. Hann hafði fengið nóg af þjónkun flokksmanna sinna við hið erlenda ofríki. Hann hafði verið í kommúnistaflokkn -um í 30 ár. Svo hann var starf- seminni kunnugur. Þótti á- gengni Kominform keyra fram ur hófi. Nokkru síðar sagði héil fjelagsstjórn sig úr kommún- istaflokknum danska, formað- ur, ritari og gjaldkeri fjelags- deildar járnbrautarmanna. Þeir birtu ítarlega skýrslu um frá- hvarf sitt. Og sögðu m. a. að Deim væri það óskiljanlegt, hversvegna þessi flokkur, kommúnistar, gætu ekki rekið stjórnmál með hagsmuni þjóð- ar sinnar fyrir augum, og mið- aði að því, að þeir möguleik- ar sem þjóðin hefir yfir að ráða, geti komið að sem mestu gagni. Aðalmálgagn Jafnaðarmanna í Danmörku svaraði þessari spurningu um leið og það birti úrsagnarskýrsluna. Þar stóð í forystugrein að spurningin sje í sjálfu sjer eðlileg, hversvegna kommúnistar geti ekki unnið ajóð sinni og fynr hana. En iað væri alveg jafn eðlilegt að spyrja úlfinn hvernig á því stendur, að hann skuli vera rándýr. „Því sannleikurinn er, að engin flokksdeild kommúnista getur rekið sjálfstæða pólítík, með tilliti til hagsmuna þjóðar sinnar. Allar eru flokksdeild- irnar ekkert annað en umboðs- menn fyrir sovjet-rússneskan kommúnisma, sem er í sjálfu sjer ekki orðinn neitt annað en skálkaskjól fvrir ágenga yfir- ráðastefnu stórveldis“, segir í blaðinu. I Danmörku er reynslan sú, að með degi hverjum fjölgar þeim mönnum, sem segja skilið við stefnu kommúnista og þau skaðsemdar verk, sem þessi flokkur vinnur en reynir að fela undir því yfirskyni, að þeir sjeu að vinna að sátt og friði þegar þeir þjóna hernaðar og yfirgangsstefnu. Þeir þykjast vinna að frelsi, þegar þeir eru erindrekar erlendrar kúgunar, þykjast vinna að jöfnuði og bættum lífskjörum almennings, þegar þeir ætla sjer að hneppa verkalýðinn í ánauð og þræl- dómsfjötra. Loftslagið og þjóðin í Lesbók Morgunblaðsins i dag er gerð nokkur grein fyr- ir niðurstöðum þeim, sem Jón Eyþórsson veðurfræðingur hef- ir komist að, við rannsóknir sín -ar á íslenskum veðurskýrsl- um. Allir sem muna íslenska veðr -áttu fyrir 25—30 áruní gera sjer ljóst, að hjer hefir hlýnað á síðustu áratugum. En það er mikils virði, að geta gert sjer grein fyrir því nákvæmlega hversu mikil hitabreytingin er. Eins og kunnugt er, er þetta ekkert sjerstakt fyrirbrigði. hjer á landi. Þeim mun nær sem dregur heimskautinu, þeim mun meiri hefur loftslagsbreyt -ingin orðið. En þegar þess er gætt, að meðalhitinn þarf ekki að lækka meira, frá því sem hann er nú, en um einar 5 gráður, til þess að hjer yrði isöld, og landið óbyggilegt með öllu og meðal- hitinn hefir hækkað um alt að því 2 gráður frá því sem hann var á síðustu áratugum 19 ald- arinnar, þá gefur að skilja hversu breytingin er þýðingar- mikil. AÖ bæta landið Enginn getur um það spáð með nokkrum líkindum, hve Laugardagur 22, aprrl varanleg þessi hlýindi verfa. En þessar athuganir gefa sagn- fræðingum okkar umhugsunar- efni. Því vel geta menn ímynd- að sjer, að veðurfarsbreytingar á umliðnum ðldum hafi haft mikil áhrif á líf og sögu þjóð- arinnar. Enda bendir kornrækt -in hjer fyrr á öldum til þess, að þá hafi verið hjer hlýrra■ en á síðustu öldunum. En hvernig sem menn spyrja og.spá.um þessi efni, þá er'eitt víst, að það er hið mesta nauð- synjamál fyrir komandi kyn- slóðir, að sú kynslóð, sem-'nú er uppi noti yfirstandandi hlý- indatímabil sem best, komi -þv*' til leiðar, eftir fremstu getu,’ctí> þetta veðurlag sem nú er komt landsmönnum að varanlégi* gagni. Með því að leggja -ná áherslu á að koma hjer upp skógargróðri. Með skógunum batnar veðr- áttan, þar sem skógarnir ná að veita skjól. Og þegar þeir ero komnir upp, eða þar sem þeii komast upp, bæta þeir skilyrð- in fyrir komandi kynslóðir skóga. Skógrækt íslendinga er hags- munamál og hugsjónamál iands -manna. I fáum efnum haldast innilegar í hendur hugsjónir og hagsmunamál einsog í skóg- ræktinni. Sjerkenni skógræktarmál- anna eru þau, að þeir sem vinna að gróðursetningu skóga uppskera lítið af arðinum sjálf— ir. Hann geymist eftirkomend- unum. Margir skilja í dag, að það er tryggara og afiarasælla, að afhenda eftirkomendunum skóg í uppvexti, en sparisjóðs- bækur. Myndarieg sam- koma UMF á Selfossl ANNAN páskadag efndi Ung- mennafjelagið á Selfossi til samkomu með fjölbreyítri dag- skrá í Selfossbíó. Hófst skemmtiinin kl. 9 siðd. með því að Leifur Eyjólfsson, kennari, mælti nokkur orð, skýrði frá fyrirkomulagi skemt unarinnar og drap á helstu við- fangsefni Ungmennafjeiag.Áns. Hófst þar næst dagskráin með því að sýndir voru víki- vakar, en þar næst sungu þr jár ungar stúlkur nokkur lög við gitarundirleik. Var söngur- þeirra Ijettur og látlaus. — Að þvi loknu voru dansaðir þjóð- dansar og gjörðu það hinir sönia og þeir eru sýndu víkivakana. Voru það 12 piltar og stúlkur, undir stjórn Aldísar Bjarnar- dóttur, íþróttakennara, en húit hafði æft dansana og víkivak- ana og augsýnilega tekist pa® með ágætum, enda voru sýning' ar þessar áhorfendum til hinn- ar bestu skemtunar. Að síðusta var svo glímusýning 10 pilta, undir stjórn . Kristjáns Giít- mundssonar, bakara, en ung- mennafjelagar á Selfossi haía 4 vetur æft glímu af hinu mesta kappi, og mátti það reyndar sjá af glírhusýningU þessari.’ Skemtiatriðurú öllum lar mjög vel tekið, enda sýniíegt að vel hafði verið uniiið að urfd- Frhábls. 12i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.