Morgunblaðið - 16.05.1950, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 16. mai 1950.
Norðmenn hjer
maí
Sendiherra Norðmanna.
FJELAG Norðmanna hjer í bæ,
Nordmannslaget, minnist að
venju þjóðhátíðardags Norð-
manna, sem er á morgun, mið-
vikudag, 17. maí.
Að morgni þess dag, kl- 9,30
t'er fram í Fossvogskirkjugarði,
stutt athöfn við minnismerkið.
Sendiherra Norðmanna Terger
Anderssen-Rysst, leggur í nafni
norsku þjóðarinnar blómsveig
að minnismerkinu, svo og Einar
Farestveit, í nafni Norðmanna
búsettra hjer í bæ, en hann
er formaður Nordmannslaget.
Sendiherrahjónin hafa frá
kl. 11—12,30 árd. móttöku fyrir
norsk-íslensk börn í sendiherra
bústaðnum. Síðar um daginn,
frá kl. 4—6 hafa sendiherra-
hjónin svo þjóðhátíðarmóttöku
fyrir gesti, eins og venja er til.
Um kvöldið hefur svo Nord-
mannslaget samsæti í Tjarnar-
kaffi fyrir Norðmenn og Nor-
egsvini og er öllum heimil þátt-
taka, svo sem húsrúrn frekast
leyfir.
Panis* þyngja hegning-
arákvæðin um háltsemi
fimmtuherdeiidarmanna
Einkaskeyti til Mbl.
K.HÖFN, 13. maí — í gær lagði
Steincke, dómsmálaráðherra
Danmerkur, frumvarp fyrir
Ríkisþingið þar sem gert er ráð
fyrir þyngdum viðurlögum við
hverskonar landráðastarfsemi.
Dauðarefsing.
Meginatriði frumvarpsins eru
þessi: Dauðarefsing getur legið
við því, ef menn reyna að
steypa löglegri ríkisstjórn af
stóli. Ennfremur er gert ráð fyr |
ir dauðarefsingu fyrir tilraun
til að koma landinu undir er-
lend yfirráð, fyrir meiri hátt-
ar skemmdarstarfsemi, ólög-
mæta framleiðslustöðvun og
við stjórnskipulagið, ef tjeð
háttsemi er höfð í frammi með-
an á styrjöld eða umsátri stend-
ur eða er yfirvofandi Að öðr-
um kosti liggi ævilangt fang-
elsi við þessum afbrotum.
Njósnarar í ævilangt
fangelsi.
Þá geta njósnir varðað ævi-
löngu fangelsi. Það varðar allt
að 16 ára fangelsi að lama bar-
áttuþrek landsins og að beita
Ríkisþingið eða stjórnina of-
beidi.
I frumvarpinu er gert ráð
fyrir allt að 6 ára fangelsisvist
fyrir að láta sjer um munn fara
ummæli, sem fallin eru til að
efna til fjandskapar erlendra
ríkja í garð Danmerkur.
Erlendir áróðursstyrkir
refsiverðir.
Loks verður allt að tveggja
ára fangelsi lagt 'við að þiggja
fjárhagsstyrk til stjórnmála-
áróðurs frá erlendp valdi, ef
ekki er tilkynnt um þesskonar
aðstoð.
Dómsmálaráðherranum fór-
ust m. a. svo orð, er hann mælti
fyrir frumvarpinu:
„Lagafrumvarp þetta er al-
varleg viðvörun til þegnanna
um að athuga sinn gang í tíma,
þegar sjálfstæði og stjórnskipu-
lag ríkisins er í hættu statt“.
ÍI» B Ó T T E
Tiarnarboðhlaupið
Verkalýðsfjefögin í
Júgóslavíu segja sig
«r
LUNDUNUM, 15. maí: — Að
sögn útvarpsins i Belgrad afrjeð
miðstjórn verklýðsfjelaganna í
Júgó-Slavíu í dag að segja sig
úr alheimssambandi verkalýðs
fjelaga, sem kommúnistar ráða
lögum og lofum í. í mars s. 1.
skýrði alþjóðasambandið svo
frá, að það hefði afráðið að
slíta öllum tengslum við verka-
lýðsfjelög' Júgóslavíu, þar sem
leiðtogar þeirra væri „svikarar
við verkamennina“. — Reuter.
Gullbrúðkaup
Verður Baldur
Möíier skáfcmeisiari
íslands 1950!
Líður að lokum laitds-
liðskeppninnar
SÍÐASTL. laugardag voru tefld
ar biðskákir á lándsliðskeppn-
inni, og fóru þær sem hjer seg-
ir: Bjarni vann Sturlu, Hjálm-
ar vann Sturlu, en jafntefli var
hjá Hjálmari og Gilfer og Jóni
og Sturlu. Biðskákum Ásmund
ar og Gilfers og Ásmundar og
Benónýs varð ekki lokið.
Níunda umferð var tefld á
sunnudag. Þá vann Baldui Lár
us og Benóný vann Hjáimar.
Jafntefli varð hjá Sturlu og
Guðjóni og Bjarna og Jóni. —
Biðskákir hjá Guðmundi og Ás
mundi og Margeir og Gilfer.
Staðan eftir 9. umferð:
Baldur Möller 8 vinn. Guðm.
Ágústsson 6, 1 bið. Guðjón M.
Sigurðsson 5 46, Benóný Bene-
diktsson 5, 1 bið. Bjarni Magn-
ússon 5. Ásm. Ásgeirsson 4y2,
3. bið. Eggert Gilfer 4V2, 2 bið.
Lárus Johnsen 3, Sturla Pjet-
ursson 3. Hjálmar Theódórsson
2. JónKristinsson 2. Margeir
Stéingrímsson 1%, 1 bið.
Sigurmöguleikar Baldurs eru
miklir, en hann á þó eftir að
tefla við tvo harða skákmenn,
Ásmund og Benóný.
Tíunda umferð var tefld í
gærkvöldi, en ekki lokið, er
blaðið fór í prentun. Eilefta og
eíðasta umferðin verður tefld á
fimmtudag, en biðskákir verða
tefldar fyrir þann tíma.
í DAG eiga þau hjónin, Þórður Bjarnason (frá Reykhólum)
cg Hansína Linnet, hálfrar aldar hjúskaparafmæli — gullbrúð-
kaup. Þau voru gefin saman í hjónaband í Borgarnesi hinn
16. maí árið 1900 af sjera Einari Friðgeirssyni á Borg, og byrjuðu
búskap sinn í Borgarnesi, en fluttust nokkrum árum síðar til
Reykjavíkur, þar sem þau hafa átt heimili síðan, telji maður
Lambastaði á Seltjarnarnesi með, sem óhætt er í þessu sam-
tandi.
Þau hjónin eignuðust 7 börn en eitt þeirra, drengur, andaðist
í æsku. Nú eiga þau 13 barnabörn og tvö barnabarnabörn á
lífi. Eitt barn, stúlku, tóku þau mjög unga til fósturs, en hún
hafði misst foreldra sína úr „spönsku veikinni“ árið 1918. —
Einnig ólu þau upp sonarson sinn, sem fárra daga gamall missti
móður sína.
Heimili þeirra hjóna hefur frá upphafi verið alþekkt að rausn
og myndarskap, sem fjölda margir, skyldir og óskyldir, hafá
notið góðs af, hvort sem með bljes eða móti. Vinsældir þeirra
hafa vaxið eftir því, sem árin liðu, og þeir munu margir, sem
nú minnast þeirra með hlýhug á þessum merkisdegi í æfi þeirra.
J. L.
Haukur Clausen, sem hljóp síðasta sprettinn fyrir sveit ÍR í
Tjarnarboðhlaupinu, kemur að marki. — Sagt frá úrslitmn á
öðrum stað I blaðinu. — (Ljósm. Mbl. ÓI. K. M.).
Reykjavíkurmótið:
Enn stór ósigur
fyrir Víking
Fram vann með 6:1
FYRST 5:1 gegn KR og nú 6:1
gegn Fram! Segja má að kominn
sje timi til fyrir Víking að spyrna
við fótum, en eftir þeim nýlið-
um, sem fjelagið hefir kynnt í
vor, að dæma, er skjótra um-
skifta ekki að vænta. Liðið náði
aldrei neinum tökum á leiknum,
ijek undantekningarlítið á 2.
fiðlu að undanteknum stuttum
köflum, og þegar við bætist, að
framherjum andstæðinganna
stóðu lengst af allar dyr opnar,
þurfa úrslitin ekki að vekja
furðu.
Markasyrpan hófst um miðjan
fyrri hálfleik, er há sending lend
ir á vítateig Víkings, og vegna
óskiljanlegra mistaka Helga Ey-
steinssonar, tókst Lárusi að
skalla inn. Næstu tvö komu úr
aukaspyrnum, það fyrra skoraði
Ríkharður eftir aukaspyrnu á
markteig en hið síðara skoraði
hann úr vítaspyrnu. Undir lok
hálfleiksins eftir þvögu við
mark Víkings tókst Óskari að
bæta því fjórða við með skalla.
í síðari hálfleik bætti Fram
síðan tveimur við áður en Vík-
ingur skoraði huggunarmarkið.
Það fyrra var verk Lárusar, en
hið síðara var með fallegri
mörkum sem hjer hafa sjest. Eft-
ir sókn hægra megin kemst Ósk-
ar með knöttinn að endamörkum
og sendir Ríkharði hann að horni
vítateigs. Augnabliki síðar hafn-
ar hann innan á hliðarneti
Víkingsmarksins, Ingvar Pálsson
skoraði eina niark Víkings stund-
arfjórðungi fyrir leikslok.
Ríkharður var nú allur annar
maður en gegn Val, ljek mun
meir með samherjum sínum en
hans er venja.
Bjarni Guðnason er bersýni-
lega ekki í æfingu, gamli bar-
áttuviljinn og dugnaðurinn er
horfinn og þar með er sókn
Víkings „skotfæralaus". — Veik-
ustu blettir Víkings voru útherj-
arnir, sjerstaklega var v.-úth.
gjörsamlega dauður punktur í
liðinu. Ekki vottaði fyrir tækni
og vegna umsvifa gafst honum
aldrei tóm til að afgreiða knött-
inn svo að gagn væri að. í marki
Víkings ljek nýliði, Sigurjónl
Nielsen. Sýndi hann nokkrum
sinnum góðar „dýfingar", en
ekki bar hann úthlaup við utaif
einu sinni, er af hlautst mark.
Fram: Adam Jóhannsson, Karl
Guðmundsson, Guðmundur Guð-
mundsson, Sæmundur Gíslason,
Haukur Bjarnason, Hermann
Guðmundsson, Óskar Sigurhergð
son, Ríkharður Jónsson, Lárus
Hallbjörnsson, Karl Bergmann,
Magnús Ágústsson.
Víkingur: Sigurjón Nielsen,
Guðmundur Samúelsson, Svein-
björn Kristjánsson, Kjartan Elíaa
son, ' Helgi Eysteinsson, Gunn-
laugur Lárusson, Sigurður Jóns«
son, Ingvar Pálsson, Bjarnl
Guðnason, Baldur Árnason, Ei-
ríkur Helgason.
Ahorfendur voru um 1000 og
veður gott. — S.
Staðan í mótinu:
KR ........... 2 2 0 0 9:1 £
Fram ......... 2 2 0 0 7:1 £
Víkingur....... 2 0 0 2 2:11
Valur ........ 2 0 0 2 0: 5 0
ÍR vann TjankirboÓ-
hlaupið í 5. jhn
TJARNARBOÐHLAUP KR fÓJ?
fram s. 3. sunnudag og lauk me3
sigri ÍR í fimmta sinn í röð.
Keppt er um bikar, sem Morg-
unblaðið hefir gefið og er bettá
í annað sinn, sem ÍR vmnui?
hann.
Eftir þriðja sprettinn hafðl
IR tekið forystuna, en Ár-
mannssveitin hjelt forystunna
þangað til eftir forskot, sens
Hörður Haraldsson gaf sveit-
inn á fyrsta 200 m. sprettinum,
Eftir það jókst bili 3 nær jafní
og þjett og var um 25 m. S
markinu.
ÍR-sveitin hljóp á 2.30,8 mín.
Ármannssveitin var önnur á
2.35,4 mín. og KR þriðja át
2.36,2 mín.
í ÍR-sveitinni voru: Reynií
Sigurðsson, Pjetur Einarsson;.
Rúnar Bjarnason, Þorvalduc
Óskarsson, Finnbjörn Þorvalds-
son, Ólafur Örn Arnarson, GarA
ar Ragnarsson, Vilhjálmup
Ólafsson, Stefán Björnsson og
Haukur Clausen.
Erlendar frjettir
ENGLAND og Portúgal ljeki
á. sunnudag landsleik í Lissa
bon. Sigraði England meg 5:3
þar af skoraði v.-úth. Finne.'
fjögur. í hljei stóðu leikar 3:0
en síðan náði Portúgal gjörsam
lega yfirhönd um stund o;
skoraði þrisvar á 20. mín. Síð
ast sigraði England í Lissaboi
með 10:0!
ÞAÐ er orðin venja í Englandi,
að fjelagsskapur íþróttablaða-<
manna velji í lok knattspyrnu-
tímabilsins „Knattspyrnumanns
ársins“, daginn f>rir úrslit bik-
arkeppninnar. í vor varð fyrii?
valinu fyrirliði Arsenal, fyrr-
um fyrirliði Englands, J. Mer-
cer.