Morgunblaðið - 25.05.1950, Blaðsíða 2
I 2
MORGVNBLAÐIÐ
Fimtudaður 25. maí 1950.
Eftir bókavörð Þjóðleikhússins
Lárus Sigurbjörnsson.
] í LEIKRITASAMKEPPNI Þjóð
lleikhússins varð, eins og kunn-
|ugt er, hlutskarpastur Tryggvi
‘Sveinbjörnsson, sendiráðsrit-
uari með leikriti sínu „Útlagar".
.Orðasveimur hefur verið uppi
i-um það, að dómnefndin hafi
pátt að byggja dóm sinn á
• c’anskri gerð leikritsins og jafn
■ :vel verið gert kunnugt um höf-
■undinn fyrirfram. Skorað hef-
. ýur verið á dómnefndina, að
;..gera hreint fyrir sinum dyrum
; í þessu efni. Það skal fúslega
igert. en fyrst skal kveðin nið-
|ur ásökun þess efnis, að dóm-
|nefndin hafi tekið til álita leik
|rit sem flutt hafi verið í út-
|varp áður en það var sent nefnd
tinni. Slíkt er gripið úr lausu
Úofti og er auðvelt að sanna
|með því að hafa hliðsjón af
ídagsskrárefni Ríkisútvarps-
iins.
Leikritið „Útlagar" var sent
nefndinni með höfundarnafn-
íinu: Landi. Handritið var á
'dönsku, en í brjefi umboðs-
..manns höfundar, hr. þjóð-
'jminjavarðar Kristjáns Eldjárns,
Jvar tekið fram, að þýðing leik-
Jritsins yrði senn tilbúin. Ljet
Inefndin gott heita, ef þýðingin
fbærist henni áður en hún lyki
ústörfum. Nefndarmenn lásu að
vísu danska textann til að
-'i.kynna sjer tækni höfundar og
•efrú leiksins, en á tveim fund-
fum nefndarinnar var vand-
Úega farið yfir íslensku þýðing-
una og dómur nefndarinnar.
byggður á henni. Síst er að
..:ynja fyrir, að nefndarmenn
gátu sjer til um höfundinn
. Landa eins og aðra, sem þátt
tóku í samkeppninni, en til-
gáturnar voru sitt á hvað eins
og gengur, einnig um Landa.
Ef tryggilega hefði átt að ganga
frá því, að enginn dómnefnd-
armaður hefði minnsta hugboð
urn nokkurn hinna 18 höfunda,
hefði þurft að velja í nefndina
reynslulitla unglinga eða a. m.
k. fólk, sem fer ekki of oft í
leikhús og handfjatlar ekki
■ leikrit að staðaldri.
Um einn höfundinn vissi
nefndin fyrirfram, þó ekki
Landa, en dæmdi hann samt
^ekki úr leik, þar sem upplýs-
ingu um leikritið var aðeins að
finna í skrá Landsbókasafns-
ins um íslensk leikrit og eng-
inn nefndarmaður hafði áður
lesið það.
’ Dómar geta orkað tvímælis
og gagnrýni á leikritinu ,,Út-
- lagar“ er rjettmæt og sjálfsögð
hvað sem líður niðurstöðu dóm-
nefndarinnar. Menn verða að
hafa í huga, að þar sem 13
keppa verður einhver fyrstur
og hinum þykir ef til vill súrt
í brotið, en úr því sem fór, tel
jeg tvímælalaust happ, að
, dómsniðurstaðan skyldi verða
til þess að hnýta tengsl á milli
íslenska leiksviðsins og jafn
góðvirks og mikilsvirks leik-
ritahöfundar og Tryggvi Svein
björnsson er, en óneitanlega
var nokkur hætta á því, að
hann ætti ekki afturkvæmt frá
því leiksviði, sem hann hefiír
skrifað fyrir um hríð.
, Annars vil jeg með línum
' þessum vekja athygli á því. ný-
. mæli nefndarinnar, sem reyn-
í ast mpn leiklist vorij giftu-
' drjúgt, ef. vel tekst um fram-
kvæmdirnar. Nefndin mælti
með því, að leikhússtjórnin
setnji við höfunda nokkurra
leikrita, sem voru í samkeppn-
mni, um sýningar á þessum leik
ritum, ef samkomulag fæst við
höfundana um æskilegar breyt-
ingar. Leikritin voru sex tals-
ins og hafa nú fjórir höfund-
anna gefið sig fram við leik-
hússtjórnina og óskað eftir
samvinnu við ráðunauta og
trúnaðarmenn leikhússins í
þessum efnam.
Tveir höfundanna eru nýir
menn á sviði bókmenntanna,
þeir Einar Kristjánsson og Jó-
hannes Stcinsson, hinn fyrri
með gamanleikinn: Skrúfan,
hinn síðari skopleikinn: Nótt-
in íanga. Þriðja og fjórða leik-
ritið reyndist vera eftir höí-
unda, sém voru áður kunnir á
bókmenntasviðinu, þá Gunnar
M. Magnúss og Sigurð Róberts-
son, en sjónleikir þeirra heita:
Signýjarhárið og Maðurinn og
húsið. Tvö önnur leikrit höfðu
og sitthvað til síns ágætis, eins
og þau, sem hjer voru talin, en
höfundar þeirra hafa að svo
stöddu ekki gefið sig fram við
leikhússtjórnina. Þessi leikrit
heita: Vestmenn og Konan,
sem hvarf, án höfundarein-
kenna bæði. Með þessu er ekki
sagt, að hinum ellefu, sem ekki
fundu náð fyrir augum nefnd-
arinnar, sje á eld kastað. Þjóð-
leikhúsið hlýtur að líta á það
sem eina helstu skyldu sína
gagnvart íslenskum leikrita-
skáldum að veita þeim allan
þann stuðning og allar þær upp
lýsingar, sem þeim er nauðsyn
á, svo að verk þeirra geti orðið
írambærileg á leiksviði, sem
gerir kröfu til kunnáttu og
tækni í leikritun. Nefndin
mælti með þessum sex leikrit-
um, af því að hún sá þar svo
margt gott og nýtilegt, en þar
með er engan veginn sagt, að
hvergi sje bítatækt í hinum
ellefu. Þetta ættu höfundarnir
að taka til athugunar um leið
og þeir endurheimta leikrit sín,
en því mega þeir og aðrir, sem
semja leikrit, treysta, að það er
af heilum hug mælt, er Þjóð-
leikhúsið óskar samvinnu við
þú með kröfur listarinnar einn-
ar fyrir augum og á grundvelli
gagnkvæms skilnings og vin-
semdar. — Vísir að sjerbóka-
safni um leiklist, sem Þjóðleik
húsið á nú, ætti að koma hjer
að nokkru liði, og sjálfsagt mun
leikhúsið sjá sjer fært, er
stundir líða fram, að greiða fyr
ir aðgangi leikritahöfunda að
sýningum og æfingum leikrita,
því að fátt mun þeim dýrmæt-
ara en sjón og raun, sem vilja
verða smiðir í Völundar-smiðju
leikhússins.
L. S.
Grikkir læra að nofa efni
fil að eyða iilgresi
SALONIKI, 13. maí — Fyrir
skömmu var farið að gera til-
raunir á vegum Marshallhjálp-
arinnar í Grikklandi með notk-
un kemiskra efna til að eyða
arfa, mosa og öðru illgresi. Þeg
ar fyrstu tilraunirnar voru
gerðar, voru grískir bændur
mjög vantrúaðir á að þessi efni
kæmu að nokkru gagni, en nú
hefur svo skipt um að eftir-
spurnin eftir efnunum er langt-
um meiri en hægt er að anna.
Best þykir reynast efni, sem
kallað er ,2 4-D“ og þykir nú
sýnt að meginhluti allra grískra
bænda noti það efni til að eyða
illgresi á hveitiökrum..
VORÞING Umdæmisstúku Suð
Urlands yar háð í Reykjavík og
Hafnarfirði dagana 18.—21. maí
s. 1. í tilefni af 60 ára afmæli
umdæmisstúkunnar þann 31.
maí n. k. fóru fram ýmis hátíð-
arhöld í sambandi við þingið.
Á þinginu mættu 159 fulltrúar
frá stúkum víðs vegar í um-
dæminu, en meðlimir Góðtempl
arareglunnar á Suðurlandi voru
um síðustu áramót 6550. Þing-
ið samþykkti margar ályktanir
í reglu- og áfengismálum, m. a.:
1. Að beina þeirri áskorun til
allra einstaklinga hinnar ís-
■lensku þjóðar að þeir veiti hver
og einn alvarlega athygli þeirri
hættu, sem yfir þjóðinni vofir
af völdum áfengistískunnar og
áfengisneyslunnar. Jafnframt
lýsir Umdæmisstúlkan yfir því,
að hún telur það ótvíræða
skyldu ríkisvaldsins, að efla
sem best hverskonar bindindis-
gtarfsemi, áfengisvarnir og
hjúkrun arykkjusjúkra manna,
en vill hinsvegar benda á, að
fullkomin lausn áfengisvanda-
málsins næst ekki nema með
algjöru áfengisbanni.
2. Að lýsa vanþóknun sinni
á því að Alþingi það, sem nú
er nýlokið hefir ekki tekið til
fullnaðarafgreiðslu þingsálykt-
unartillögur þær um áfengis-
mál er fyrir Alþingi lágu og
skorar á næsta Alþingi að taka
þau upp að nýju til endanlegr-
ar afgreiðslu og samþykktar.
3. Að fela framkvæmdanefnd
inni að hafa samvinnu við á-
fengisvarnarnefndirnar og
lækni væntanlegs sjúkrahúss
drykkjusjúklinga, um að hjálpa
þeim, sem útskrifast af þessu
sjúkrahúsi og styðja þá með ráð
um og dáð til þess að sjá sjer
farborða t. d. með því að út-
vega þeim vist og atvinnu á
góðum stöðum og á allan hátt
styðja að því að þeir geti aft-
ur orðið nýtir borgarar í þjóð-
fjelaginu.
----o-----
Umdæmistemplar var endur-
kosinn Sverrir Jónsson. Önnur
í framkvæmdanefnd fyrir
næsta ár voru kosin: Þorsteinn
J. Sigurðssón, Guðrún Sigurð-
ardóttir, Sigurður Guðmunds-
son, Páll Jónsson, Páll Kol-
beins, Kristjana Benediktsdótt-
ir og Guðgeir Jónsson, öll úr
Reykjavík. Guðjón Magnússon,
Kristinn Magnússon og Sigríð-
ur Snæland úr Hafnarfirði. —
Mælt var með Gísla Sigurgeirs-
syni, Hafnarfirði, sem umboðs-
manni stórtemplars.
Engir leynisamning-
ar um
RÓMABORG, 24. maí. — ítalsk
ir kommúnistar hafa undanfar-
ið verið með dylgjur um að
Sforza greifi, utanríkisráðherra
Ítalíu, hafi gert leynilegan
samning við Atlantshafsríkin
um Trieste í ferð sinni til
London um miðjan mánuð. -
Þegar nokkrir kommúnistaþing
menn hófu þessar dylgjur í dag
á þingi, tók Sforza greifi til
máls. Hann sagði, að á fundi
Atlantshafsríkjanna hefði ekki
verið minnst einu orði á Tri
este. Hinsvegar kvaðst hann
hafa átt viðræður við Bevin,
Schuman Og Acheson um Tri-
etse-málið, enginn samningur
hefðj þar verið undirritaður, en
utanríkisráðherrarnir hefðu gef
! ið í skyn, að þeir væru fylgj-
| andi málstað Ítalíu í Trieste-
deilunni. — Reuter..-
' n'-rr s "
Úr hvítasunnuferð Heimdallar í Fljótshlíð.
Hvítasunnuierð Heirt
dalla að Vik í Mýrd m
Skemmlisamkoma aS Laugarlandi í Hoili m
HEIMDALLUR, fjelag ungra
Sjálfstæðismanna, efnir til
'kynnis- og skemmtiferðar um
hvítasunnuna austur í Vík í
Mýrdal. Á annan hvítasunnu-
dag verður tekið þátt í skemmti
samkomu er ungir Sjálfstæðis-
menn í Rangárvallasýslu halda
að Laugarlandi í Holtum.
Farið í Dyrhólaey.
Lagt verður af stað kl. 3 e. h.
á laugardag og farið til Víkur
um kvöldið og gist þar. Sunnu-
dagurinn verður síðan notaður
til að skoða Mýrdalinn og verð-
ur m. a. farið í Dyrhólaey, en
þar er landslagið mjög sjer-
kennilegt og fallegt.
Á mánudagsnótt verður aftur
gist í Vík, en á mánudagsmorg-
un farið af stað suður.
Samkoma að Laugarlandi
Ungir Sjálfstæðismenn í
Rangárvallasýslu halda sam-
komu að Laugarlandi í Holtum
á annan í hvítasunnu og munil
Heimdellingar taka þátt í henni.
Verða þar fluttar stuttar ræður
Og einnig verða ýmiss skemmti-
atriði og að síðustu dansað. Á
mánudagskvöld verður svo far-
ið til Reykjavíkur. Matur fæst
keyptur á leiðinni, en nauðsyn-
legt er að ferðafólkið hafi medi
sjer svefnpoka.
Farmiðar verða seldir í skrif-
stofu Sjálfstæðisflokk ins í dagl
og á morgun, verði eitthvad
eftir óselt. Ættu þeir, sem hugsa
sjer að taka þátt í íerðinni að
tryggja sjer farmiða sem íyrsfi
því búast má við mikilli þatt-
töku, en vegna þrengsla í gis.ti-
húsinu í Vík er ekki unnt ad
taka nema takmarkaðan hóp.
Hvítasunnuferðir Heimdailaí*
eru með afbrigðui i vinsælar,
enda hafa þær alltaf heppnasfi
vel og verið öllum þeim senl
tekið hafa þátt í þeim tii ó-
skiptrar ánægju.
Ungir Sjálfsfæiismenn
samkomu í Yestmanna
um hvítasnnnuna
FJELAG ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum helduC
útbreiðslusamkomu nú um hvítasunnuna. Verður samkomau
lialdin í samkomuhúsinu í Vestmannaeyjum á hvítasunnudag.
Þar verða fluttar stuttar ræð*'
ur og ávörp og verður Magnús
Jónsson, formaður S.U.S. meðal
ræðumanna.
Nína Sveinsdóttir skemmtir
með gamanvísnasöng og auk
þesg eru ýmiss fleiri skemmti-
atriði.
Ungir Sjálfstæðismenn í Vest
mannaeyjum hafa undanfarin
ár efnt til sjerstakra hátíða-
haida um hvítasunnuna. Hafa
þessi hátíðahöld allt af tekist
með afbrigðum vel og verið fje-
laginu til sóma.
Fjelag ungra Sjálfstæðis-
manna í Vestmannaeyjum er nú
mjög öflugt. Er það Iang stærsta
pólitíska æskulýðsfjelagið í
Eyjum og fer fjelögum þess
stöðugt fjölgandi. Formaður fje
lagsins er Jóhann Friðfinnsspn.
Úfhreiðið rrSteínirr
fímarif
Sjálfslæðismanna
STEFNIR, tímarit Sjálfstæð-
ismanna, hefnr nú verið sent lií
áskrifenda og umboðsmannai
um land allt. Eins og getið vae
um á síðustu síðu S.U.S., hafaa
þegar margir gerst áskrifend-
ur að ritinu en áskrifendasöfn-
un stendur nú yfir. — HeitiiS
sijórn S.U.S. á alla trúnaðar-
menn sína og aðra velunnaraj
Sjálfstæðisstefnunnar, að vinngj
ötullega að útbreiðslu ritsins',
svo að settu marki verðí náð,
það er, að rifíð verði útbreidd-
asta tíinarit landsins. j