Morgunblaðið - 06.06.1950, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.06.1950, Blaðsíða 10
10 Þriðjudagur 6. júní 1950. noftcr^BLÁÐim ..niiiimiinir Framhaldssagan 49 iiiiiiiiiiiiiiiimmmiiiHHinnminiimnj Gestir hjá „Antoine Eftir Frances Parkinson Keves 44 Himitiiimauim: mn „En jeg get ekki beðið svo lengi, Joe. Jeg er búin að segja ungfrú Hickey að jeg komi með henni og það er búið að gera allar ráðstafanir. Ef jeg þyrfti að segja henni að jeg hefði skipt um skoðun, að jeg geti ekki komið fyrr en seinna og jeg viti ekkert hvenær það verður. .... Skilurðu það ekki, Joe, að jeg verð að fara. Ef Haas og Hector fá það álit á mjer að jeg sje svo óákveðin og skipti um ákvarðanir frá degi til dags, þá er ekkert líklegra en þeir taki tilboðið aftur, og þar með missi jeg betta tækifæri, sem mjer er svo mjög umhugað um að nota mjer af“. „Jeg held að þú hafir óþarfa áhyggjur. Það er mjög ólíklegt, að ungfrú Hickey hafi lesið um sjálfsmorð. Odile og hafi hún gert það þá setur hún ábyggi- lega ekki nafnið Odile St. Am- ant í sároband við Caresse Lalande. Hversvegna segir þú henni ekki .bara að það hafi orð ið dauðsfaH í fjölskyldunni, og móður þinni hafi fallið það svo þungt. Þú hafir haldið í fyrstu að þú mundir geta komið með henni, en sjáir nú að þú munir þurfa að vera hjá móður þinni í viku eða svo“. „Nei, jeg get það ekki. Þú hlýtur að skilja að jeg get það ekki. Og jeg skil ekki hvað það getur snert þig hvort jeg fer eða ekki ún því mamma bað þig ekki um að tala við mig“. „Jeg er ekki að tala um það við þig, hv.ort þú eigir að fara eða ekki. Jeg er að reyna að koma þjer í skilning um það að þú getur ekki farið“. „Get það ekki? Og hvers- vegna? Hver segir það?“ „Toe. Tqe Murphy“. Augu Caresse urðu snöggvast stór og óifaslegin. Hún starði á Joe dálitla'stund, eins og það væri skyndilega komið fram, sem hún hafði lengi ákviðið. „Vegna þess að hann tekur mig þá fasta? En hann getur það ekki, Joe. Þeir eru búnir að taka Tossie. Maðurinn sagði að hún hefði myrt Odile. Jeg veit að hún gerði það ekki, en hann sagði það. Þú heyrðir það sjálfur, Joe. Þú mátt ekki láta þá taka mig. Jeg hefi ekkert gert af mjer. En jeg veit hvað jeg geri. Jeg fer strax í kvöld. Jeg hringi til ungfrú Hickey og -segi henni . ... ja, jeg veit ekki hvað jeg á að segja henni. En mjer dettur sjálfsagt ein- hver skýring í hug. Jeg er næstum búin að taka saman dótið mitt. Þeir geta ekki tek- ið mig fagta, Joe. Ef þeir gerðu það og ungfrú Hickey heyrði það, þá væri öllu lokið. — Þú hjálpar mjer, Joe? Jeg segi það satt að jeg hefi ekki gert neitt....“'. „Hættu þessu, Caresse", sagði Joe hvasslega. Hún hrökk við, eins og hún áttaði sig og þagnaði. Hún horfði spyrjandi á hann, en hristi svo höfuðið. „Jeg haga mjer eins og kjáni“, sagði hún rólega. — „,Segðu mjer, hversvegna Murphy vill ekki lofa mjer að fara til Nev/ York“. „Það er dálítið flókið mál. —• Það er ekki um að ræða neina handtöku eða slíkt. Hann mundi i mesta lagj taka af þjer heit um að vera viðstödd sem vitni þegar yfirheyrslurnar byrja. En hann gerir ekki einu sinni það, ef þú lofar að fara ekki til New York fyrr en hann hefir gefið þjer sitt samþykki“. „Jeg skil. Auðvitað fer jeg ekki fyrr, því að hann mundi sjálfsagt hafa einhver ráð með að sækja mig hingað aftur og það mundi vera það versta sem fyrir gæti komið. Verra heldur en að segja að jeg verði að vera hjá mömmu í aðra viku vegna dauðsfalls í fjölskyldunni. En hvers vegna vill Murphy að jeg verði kyrr hjer?“ „Jeg var að reyna að skýra það fyrir ykkur um daginn, hvernig maður Toe er. Hann er enginn afburðamaður. En hann tekur eftir öllum smáatriðum og skrifar þau á bak við eyrað. Eins og til dæmis blettirnir sem hann sá á kjólnum þínum um kvöldið. Manstu að hann spurði þig, hvernig á þeim stæði. Og þú sagðir að það væru blóð- blettir, því að þú hefðir lent í bílárekstri". „En það var satt“. „Vissulega. En það er ekki bílliryr þinn, sem þú fórst í nið- ur í bæinn um daginn, sem hafði lent í árekstrinum. Og ekki heldur bíll Léonce. Toe ljet athuga það strax um kvöld ið. ílann hefir látið safna skýrslu um alla bílaárekstra. Þú veist að samkvæmt lögun- um verður að tilkynna vissum yfirvöldum um öll slys, hversu lítilfjörleg sem þau kunna að vera, ef þau verða hjer í New Orleans“. „En þetta var....“, byrjaði Caresse en hún þagnaði. ,Já?“ „Ekkert. En það gekk svo mikið á heima þennan dag og um kvöldið, að mjer datt það alls ekki í hug að jeg þyrfti að gefa skýrslu. Auk þess var það Léonce sem sat við stýrið svo það var hann sem átti að gera það. Það hljóta að verða mörg smáslys sem ekki er tilkynnt um“. „Auðvitað. Og Toe veit það líka. En þetta voru engir smá- blettir á kjólnum þínum, svo Toe bjóst hálfpartinn við að hinn bílstjórinn mundi til- kynna það. Og nú langar hann til að leggja nokkrar spurn- ingar fyrir þig og Léonce“. „Eins og hvaða spurningar?“ „Til dæmis hvaða númer hafi verið á hinum bilnum. Hann segir að- fólk sje vant því að setja á sig númerið á hinum bílnum í svona tilfellum. Og hvort þið hafið gefið skýrslu hjá tryggingarfjelaginu til þess að fá gert við skemmdirnar. — Annaðhvort ykkar hlýtur að muna númerið á hinum bíln- um?“ Caresse hristi höfuðið. „Jeg man það ekki“, sagði hún. „Og jeg held að Léonce muni það ekki heldur“. „Já, þarna sjerðu. Þið Lé- once eruð bæði með skrámur og þú sagðir honum sjálf að þetta væru blóðblettir. Toe sagði....“. „Hvernig stóð á því að þú varst að tala við hann um mig í sambandi við þetta“, spurði hún. „Mjéb finnst þetta alls ekki koma- málinu við. Og ef þessi afskiptasemi þín verður til þess að-jeg missi stöðuna í New York, skal jeg aldrei fyrir gefa þjer það“. „Talaðu ekki eins og krakki, Caresse. Rqyndu að skilja það að þú ert 'jÉyanda stödd .... eða þú gætir að minnsta kosti ver- ið í vanda stödd. Jeg var sann- arlega ekkert að hnýsast í það sem ekki kom mjer við. — Jeg fór til að tala við Murphy um allt anriáð. Mjer datt dálitið í hug og jeg fór til að segja hon- um frá !því. Og það kom ekkert þjer við. Toe leist vel á hug- myndina. Það var ekki fyrr en seinna að talið barst að þjer. — Og það var ekki jeg sem minnt- ist á þig að fyrra bragði. Það var Toe. „Hvernig vissi hann að jeg ætlaði að fara frá New Orle- ans?“ „Jeg sagði honum það. Þú hafðir ekki minnst á það að jeg ætti að halda því leyndu. Hann spurði um þig .... og um Lé- once. Jeg sagði honum að jeg hjeldi ekki að þú hefðir sjer- stakan.áhuga á Léonce, þó að þú hefðir duflað við hann eitt- hvað lítilsháttar. Auk þess væri þjer það svo mikið áhugamál að fá þessa stöðu sem þjer hefði boðist í New York, að Léonce væri alveg úr sögunni hvað þig snerti. Og þá sagði hann að þú mundir ekki geta farið strax“. „En hversvegna ekki? Jeg hefi ekki gert neitt. ...“. „Reyndu að líta á málið frá sjónarmiði Toe. Odile er dáin og Toe er sannfærður um að hún hafi verið myrt. Hann tek- ur eftir blóðblettum framan á kjólnum þínum og þú segir að þeir hafi komið þegar þú lentir í bílslysi þennan sama dag. En bíllinn þinn er óskemmdur og bíll Léonce er óskemmdur. Það hefir ekki verið tilkynnt um neinn bílárekstur, hvorki hjá lögreglunni eða tryggingarfje- lögum .... en þú heldur því fram að þú hefir lent í bílslysi". „En það er satt, Joe. — Jeg get svarið það við heilaga ritn- ingu“. 30% og 40% OSTAR fást í heildsöiu hjá: Sambandi ísL samvinnufjelaga Sími 2678. Hús til sölu ■ Húseignin nr. 7, við Sunnuveg í Hafnarfirði, er til sölu ; nú þegar og laus til íbúðar 1. sept. n.k. Tilboð sendist undirrituðum fyrir 15. þ. m. | Upplýsingar gefa Ásgeir G. Stefánsson, framkvstj., i og undirritaður. i KJARTAN ÓLAFSSON. í. S. í. K. R. R. K. S. í. > . Knattspyrnumót Islands 4. leikurjer fram í kvöld kl. 8,30 ^ * Þá keppa og Vikingur Dómari: Hrólfur Benediktsson Komið og sjáið góðan leik Mótanefndin. íbúð — Einhleypur : • • Einhleypur skrifstotumaður, óskar eftir 1—2ja her- ; ■ i bergja íbúð strax, eða seinna í sumar. | : Nánari upp). þessa viku í síma 7700. ; ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ m Góð stúlka ■ ■ ■ óskast í iy2—2 mánuði, til heimilisstarfa. : ■ Sími 3074. : ■ ■ * ■ HALDID VIÐ YND1SÞ0KKA ÆSKUNNAR MEÐ PALM0LIVE SÁPU » Almenn bólusetning gegn bólusótt fer fram í Kópavogs- og Seltjarnarnes- hreppum, sem hjer segir: í Kópavogsskóla miðvikud. 7. júní kl. 2—5. í Mýrarhúsaskóla fimmtud. 8. júní kl. 2—4. Skyldug til frumbólusetningar eru öll börn, 2ja ára eða eldri, ef þau hafa ekki haft1 bólusótt, eða hafa verið bólusett með fullum árangri eða þrisvar án árangurs. Skyldug tií endurbólusetningar eru öll börn, sem á þessu ári verða fullra 13 ára eða eldri, ef þau hafa ekki haft bólusótt eða verið bólusett með fullum árangri eftir að þau eru fullra 8 ára eða þrisvar án árangurs. BORGARLÆKNIRINN í REYKJAVIK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.