Morgunblaðið - 01.07.1950, Qupperneq 1
iandarískur landher ú leið til Kóreu — Loftúrósir fyrir-
skipaðar ú N-Kóreu — Hnfnbann sett ú allan skagann
SANIMAÐ ER, AÐIIMNRAS-
IIM í kóreijlVðveldið
VAR LÖIMGU FYRIRHUGUD
LAKE SUCCESS, 30. júní. — í skýrslu Kóreunefndar
S. Þ. segir, að allt bendi til, að innrás kommúnista í lýð-
veldi S-Kóreu sje „gaumgæfilega hugsuð árás, sem hafi
verið undirbúin og hafin með mikilli leynd“
Segir í skýrsluimi, að ’ind-*
anfarin 2 ár hafi kommún-
istastjórn N-Kóreu „lcitast
við að gera stjórn S-Kóreu
valta í sessi með illskeyttum
áróðri, ógnunum og leyndar-
starfsemi.“
Þessi skýrsla Kóreunefndar-
innar kom út 26. júnl eða
skömmu eftir að innrás komm-
únista hófst.
„Friðarsóknin" í reynd.
Nefndin segir frá því, að
marga mánuði áður en innrás-
in hófst, hafi linnulaus áróðurs-
hríð dunið á lýðveldinu. Henni
fylgdi svo „friðarsókn“, sem
geinna reyndist undirbúningur
undir hernaðaraðgerðir,
Lýðræðislegar kosningar.
Kommúnistar Norður-Kóreu
reyndu með ýmsu móti að koma
í veg fyrir að frjálsar þingkosn
ingar færu fram í lýðveldinu 30.
tnaí s.l. Kóreunefndin hafði eft-
irlit með kosningunum, og tel-
ur, að þær hafi farið fram með
heiðri og sóma í andrúmslofti
laga og reglu. Allir virtust ein-
huga um að taka þátt í kosmng-
unum, aðrir en kommúnistarnir
í landinu.
Rússar vilja Soka
EystrasaEii
KAUPMANNAHÖFN, 30. júní:
I lögfræðitímaritinu „Stat og
Lov“ er fjallað um þá tillögu
rússneska lögfræðingsins Molo
dtsov, að loka Eystrasalti fyrir
herskipum þeirra landa, sem
ekki liggja að því. Fer Molodt-
sov hörðum orðum um lcenn-
ingu „hinna vestrænu yfir-
drottnunarríkja" um frjálsar
siglingar um Eystrasaltið. Hann
heldur því fram, að Eystrasalts
löndin hafi bæði lagalegan og
sögulegan rjett til að banna
herskipum annarra landa ' að
sigla inn í Eystrasalt. — Segir
Molodtsov að lokum, að nú beri
vel í'veiði að loka Eystrasaltinu
og kollvarpa þannig „áætlunum
bresku og bandarísku yfirráða
sinnanna.
Lög um þegnrjett
OTTAWA: — Þingið í Kanada
hefir breitt lögunum um þegn-
rjett. Hjer eftir getur hver sá,
sem fæddur er í kanadiskri flug-
vjel, krafist þegnrjettar í Kan-
ada.
Kaóþiski flokkurinn sfyð-
ur einsi ríkissfjórn Belgíu
BRÚSSEL, 30. júní. — Ríkis-
stjórn kaþólskra í Belgíu blaut
traustsyfirlýsingu neðri mál-
stofunnar í kvöld. Þingmenn
jafnaðarmanna, kommúnista og
frjálslyndra greiddu atkvæði á
móti stjórninni, en einn frjáls-
lyndur sat þá hjá. — NTB.
Forseíi Filipseyja
Qtiirino heitir forseti Filips-
cyja, en þær eru eitt þeirra
landa, sem njóta aukinnar að-
stoðar Bandaríkjanna eftir inn-
rás kommúnista í Kóreulýð-
veldið.
Breski Kyrrakafsfiofinn
SINGAPORE, 30. júní: —
Kyrrahafsfloti Breta er nú kom
inn til Kóreu og hefir þegar tek
Henri Queuille reynir
sfjórnarmyndun í Frakkl.
PARÍS, 30. júní. — Henri Que-
uiHe Úr flokki róttækra lagði' ið‘Vátt'T'aðgerðum” þar!_Ekki
stefnuskrá sína fyrir franska hefir þó fengist staðfest, að
þingið t dag, en forsetinn hefur hann háfi gert árásir enn.
falið honum að mynda stjórn.
Fer hann nú fram á traust þings
ins, og þykir ekki ólíklegt, að
honum lánist stjórnarmyndun.
— NTB.
Brauð frá miðöldum
SLAGELSE: — Það kom fyrir í
Danmörku fyrir nokkru, er ver-
ið var að grafa í gömlum rústum,
að þar fannst korn frá miðöld-
unum. Og viti menn, í kornhrúg-
unni fannst brauð — frá mið-
öldum.
Reuter.
Mikil móðisrásf
HADERSLEV, Danmörku: —
Nýlega kom það fyrir hjer, að
tík, sem hvolparnir höfðu verið
teknir frá, stal litlum grís og
tók að fóstra hann upp. Tíkin
með stóra móðurhjartað hefir
nú fengið leyfi til að halda fóst-
urbarninu, sem er harðánægt
með tíkarmjólkina.
Ályktun S.Þ. nýtur fseg<
ar stuðnings 17 ríkja
LAKE SUCCESS, 30. júní. — Þegar hafa 13 þjóðir auk
Breta, Bandaríkjamanna, Frakka og Kínverja tjáð sig
fylgjandi aðgerðum öryggisráðsins í Kóreu, Fleiri og
fleiri bætast í hópinn.
Ástralía Ieggur til lierskip
Ástralíustjórn hefir lagt fram
2 herskip, og í dag var tilkynnt
að þeir mundu leggja fram
meiri aðstoð við varnir Kóreu-
lýðveldisins. Fulltrúi Pakistan
hjá S. Þ. hefir lýst yfir, að stjórn
sin veiti aðgerðum öryggisráðs-
ins „fullan stuðning“ í viðleitni
þess að stöðva styrjöldina.
Heita stuðningi sínum
Þessi ríki hafa m. a. þegar
lýst því yfir, að þau styðji að-
gerðir öryggisráðsins í Kóreu-
málunum: Uruguay, Belgía,
Kína, Nýja-Sjáland, Ástralía,
Brasilía, Holland, Tyrkland.
Þeir hlufssf ekki fii
um máiefni annara
Lundúnum 30 júní. —
Rússar hafa nú svarað þeim
tilmælum Bandaríkja-
manna, að þeir beittu áhrif-
um sínum til að kommúnist-
ar í Kóreu ljetu af bardög-
um. I svarinu segir, að Kó-
reulýðveldið hafi gert árás á
Norður Kóreu, og það sje alls
ckki vani Rússa, að skifta
sjer af innanríkismálum ann
ara þjóða. —NTB.
Sveitir norðanmanna rjúfa
varnir lýðveldishersins
FAnkaskeyti til Mhl. frá Reuter.
WASHINGTON, 30 júní. — Truman forseti átti fund með
ýmsum áhrifamestu mönnum landsins í Hvíta húsinu í
dag. Að fundinum loknum var gefin út sú tilkynning, að
Truman hefði fyrirskipað landher að taka bátt í aðgerð-
unum 1 Kóreu. Ennfremur hefði forsetinn mælt svo fyrir,
að Bandaríkjaflugvjelar skyldu gera árásir í N-Kóreu.
Loks hefir verið sett hafnbann á alla strandlengju Kóreu.
Egypfaland sfyður ekki
álykfun öryggisráðsins
LAKE SUCCESS, 30. júní: —
Egyptaland er eitt þeirra 11
ríkja, sem sæti eiga í öryggis-
ráðinu. Þegar ráðið kom saman
til fundar í kvöld, lýsti fulltrúi
Egypta því yfir, að land sitt
styddi ekki ályktun öryggisráðs
ins um hjálp við Kóreulýðveld-
ið.
Egypski fulltrúinn sagði, að
hjer væri í raun og veru ekki
um annað að ræða en enn einn
þátt í átökunum milli vesturs
og austurs. í annan stað væri
það engin nýlunda, að stofn-
skrá S. Þ. væri brotin án þess
gripið væri til nokkurra refsi-
aðgerða.
Talið er, að Svíþjóð muni
taka svipaða afstöðu og Egypta
land í þessum málum. •
— Reuter.
Liðssveifirnar urðu
kyrrar í Japan
CANBERRA, 30. júní; —-
Menzies, forsætisráðherra
Ástralíu, skýrði frá því í
dag, að landher sá frá
Ástralíu, sem tók þátt í
hernámi Japans og enn er
þar í landi, mundi ekki
hverfa heim að sinni. Ann
ars var lið þetta á förum
heim____Reuter.
Tundurspillar Kanada-
manna í Kyrrahafi
OTTAWA, 30. júní. — Þremur
tundurspillum Kanada hefur
verið fyrirskipað að taka þátt
í aðgerðunum við Kóreu, ef þörf
krefur. Tundurspillarnir eru
staddir á Kyrrahafi. — NTB.
Brefar skora á Rússar að
þeir stuðii að friði
LUNDÚNUM, 30. júní. — Bret-
ar hafa skorað á Rússa að eiga
hlut að því að setja niður deil-
ur manna í Kóreu. Fyrir nokkr-
um dögum sendu Bandarískin
sams konar orðsendingu.
NTB.
Herliðið á leiðinni.
Skömmu eftir að tilkynn-
ingin vár gefin úi, var skýrt
frá því, að herliö væri þegar
á leið til Kóreu.
Enn hefur ekki verið staðfest
sú frjett, að vjelflugur Banda-
ríkjamanna hefði þegar gert á-
rásir á staði norðan 38. breidd-
arbaugs en Johnscn hermála-
ráðherra sagði frjettamönnum í
kvöld, að fyrirskipun forsetans
um að gera árásir á þessa staði,
væri þegar komin til fram-
kvæmda.
Óvíst hvaðan liðið kemur.
Omar Bradley, forrnaður her-
foringjaráðsins, skýrði frjetta-
manni Reuters svo frá, að skip-
un forsetans um að beita land-
her í Kóreu, þyrfti ekki endi-
lega að tákna það, að fullkomn-
ar hersveitir færi á vettvang,
þar með talið fótgöngulið og
bryndrekar. Komst hershöfð-
inginn svo að orði: „Jeg get ekki
sagt frá, hvers konar herlið for-
setinn átti við, því að um leið
mundi jeg ljóstra upp, hvar það
væri niður komið.“
Sókn norðanmanna.
Norðanmenn brutust yfir'
:Kanfljótið snemma í dag, fót-
göngulið í kjölfar bryndreka,
en þar var meginvarnalína sunn.
janmanna. Talið er, að 40 til 50
i bryndrekar sjeu í her þeim, sem
j yfir fljótið er kominn og sækir
fram.
Er herinn nú kominn 15 til
20 km suður fvrir fljótið og
virðist beina sókn sinni að flug-
vellinum við Suigen og hefir
gert á hann loftárásir.
Loftárásir.
Frá aðalbækistöovum Mc-
Arthurs bárust þær fregnir í
kvöld, að bandarísk risaflug-
virki hafi gert árasir á bryn-
dreka innrásarhersins og aðrar
sveitir meðfram Kanfljóti fyrir
austan og vestan S<mul. Einnig
hafa Bandaríkjaflugvjelar flog-
ið víðs vegar yfir vígsteðvarnar
og gert árásir.
Tjón norðanmanna.
Undanfarinn sólarluing hefur
fl’ugher Bandaríkjanna ónýtt 56
flutningavagna fyri r norðan-
mönnum, einn eimvagn, 10 bif-
reiðar og 5 bryndreka. Banda-
ríkjamenn skutu og niður 5
Framh. á blsu 8.