Morgunblaðið - 20.08.1950, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 20. ágúst 1950.
Áffræður er í dag
Sígurður Ólafsson
í Hellishólum
SIGURÐUR Ólafsson í Hellis-
hólum í Fljótshlíð er fæddur þar
og uppalinn. Foreldrar hans
voru Ólafur Jónsson og Guðný
V. Sigurðardóttir. Ungur misti
Sigurður móður sína, en seinni
kona föður hans, Elín Jónsdótt-
ir, var honum sem besta móðir.
Hellishólaheimilið hefir fyr og
síðar hlotið virðingu allra
þeirra, er hafa átt því láni að
fagna, að kynnast því. Þar er
að finna hina fornu dygð, sem
ekki er eitt í dag og annað á
morgun. Ungur að árum fór
Sigurður til sjós að afla heim-
ili sínu tekna. Allsstaðar var
hann eftirsóttur þar sem hann
hafði áður verið. Dugnaður,
prúmenska og samviskusemi
veittu honum traust og virð-
ingu. Þau systkin Sigurður og
Elínborg urðu að hafa alla bú-
stjórn, er foreldrar þeirra,
vegna aldurs og vanheilsu gátu
ekki annast það, og hafa þau
æ síðan búið saman með mikl-
um myndarskap Alið hafa þau
upp 4 fósturbörn, Ólaf íngvars
son, til heimilis að Hellishólum,
Elínu Ingvarsdóttur, gift Sig-
urði Einarssyni. Búðarhóli A-
Landeyjum, Lovísu Ingvarsdótt
ur, gift Óskari Ólafssvni Hellis-
hólum og Sigurjón Magnússon,
giftur Elínu Emilsdóttur í Rvík.
Þetta er mikið og fagurt starf
og gæfusöm eru þessi börn að
hafa fengið að njóta umsjár
Sigurðar og ástríki Elínborgar,
er vakti yfir velferð þessara
barna eins og besta móðir. Gott
er þau systkin heim að sækja.
Höfðingleg rausn og einlægni er
hverjum verður ógleymanleg
er að garði ber. Sigurður var
mjög eftirsóttur til fylgdar yfir
hin erfiðu jökulvötn. Hann var
svo aðgætinn og glöggur að
velja vöðin, að þeir er nutu
fylgdar hans, höfðu ávalt fullt
öryggi. Sigurður átti jafnan
góða hesta, sem hægt var að
reiða sig á, enda hafði hann
yndi af þeim, og fór vel með þá.
Svo var það og hressandi að
vera með Sigurði, einlægni
hans í öllum tilsvörum og góð-
látleg fyndni kom manni í gott
skap. Á það var hann hinn
mesti hagleiksmaður, enda
prýðis vel greindur. Enginn var
kærkomnari gestur á heimili
okkar en hann. Jeg verð nú að
segja það, að Sigurður á sæti í
h'trga mínum sem einn af hinum
ágætustu drengjum sem jeg hef
kynst. Það er nú svo að heimili
hans var næsti bær við bernsku
heimili mitt, Aurasel, en Þverá
rann milli bæja og var hinn
straumþungi niður hennar sem
undirspil þeirrar einlægu vin-
áttu er altaf var milli heimila
okkar. Hlíðin blasir öll mót aug
um frá Auraseli og sá jeg oft
sólskinsbletti til og frá um Hlíð
ina, en hvergi fanst mjer jeg
sjá þá eins oft og yfir Hellis-
hólum, að jeg sem unglingur
gerði þá ályktun að það væri
af því, að fólkið þar væri svo
gott og einlægt og það get jeg
sagt, að í nærveru við Sigurð
finst mjer altaf bjart. Það verð-
ur því áreiðanlega bjart yfir
Hellishólum í dag. Þangað
streyma heillaóskir og hlýhug-
ur hinna mörgu vina.
Nói Kristjánsson.
Píus páfi hvílir sig.
RÓMABORG, 19. ágúst; Píus
páfi hefir verið mjög önnum
kafinn í sumar vegna þess, að
nú er árið helga 1950. — Hefir
hann þreyttst á þessu um-
stangi og ætlar að taka sjer
hvíld það sem eftir er sumars.
Hefir verið tilkynnt að hann
muni engin einkaviðtöl hafa út
ágústmánuð. — Reuter.
15 þús. ára api finnsf
RÓMABORG, 19. ágúst: — í
fornleifaleit í nágrenni Pisa
hafa fundist ýmsir munir frá
neólítöld. M. a. hefir þarna
fundist beinagrind af apa, sem
talin er hafa legið 15 þúsund ár
í jörðu. — Reuter.
- Kvöld hjá skáldi
Framh. af bls. 7
Kommúnisminn hefir flætt
yfir heiminn undanfarin ár
með þeim afleiðingum, sem nú
eru að koma í ljós.
„En það er trúa mín og vissa,
að hin illu öflin muni sigra sig
í hel og þá fyrst rennur upp
blómatimabii mannkynsins á
ny
Þurfa a'S gegna mörgnm
brunaköllum.
NEW YORK. — Óvenjumikið var
um bruna i New York á siðasta ári.
Var slökkvilið borgarinnar kallað 16
þúsund sinnum út. Stærsti brunmn
var í sambandi við skotfæraspreng-
fngu skammt frá borginni.
Ljósin hafa verið slökkt í
flestum húsum nágrannanna
þegar kvatt er þetta síðsumars-
kvöld í „Garðshorni11 skáldsins
í Hveragerði.
Ekki spurði jeg Kristmann,
hvort það væri af tilviljun, eða í
ákveðnum tilgangi. að hann
skýrði hús sitt Garðshorn. Það
kemur út á eitt. En táknrænt er
það og eins og í barnaævintýr-
unum, þar sem hinn ungi fá-
tæki og umkomulausi piltur
leggur af stað úr Garðshorni til
að leita sjer frægðar og frama
og sigrast á því, sem konungs-
synirnir rjeðu ekki við, og gáf-
ust upp á að leysa.
Þannig er ævintýri -Krist-
manns Guðmundssonar, sem
lagði einn út í heiminn með
ljettan mal og fáar heillaóskir
í vegarnesti. — En hann sigrað-
ist á öllum þrautum, sem fyrir
hann voru lagðar og fjekk að
launum „prinsessuna og kon-
ungsríkið hálft“ í heimi bók-
menntanna. — Slíkir menn eign
ast að jafnaði öfundarmenn
meðal smámenna, en aðdáend-
urnir verða margfalt fleiri, þeg-
ar sönn afrek eru unnin.
í. G.
Eif f eltarninn
Framh. af bls. b.
„vængi“, sem áttu að bera hann
til jarðar.
Sjálfsmorðingjar hafa og allt-
af verið hrifnir af turninum,
og í ár hafa þrír framið sjálfs-
morð með því að varpa sjer úr
honum.
1926 ljet franskur flugmað-
ur lífið, er hann reyndi að
fljúga undir turnbogann.
Turninn „seldur“.
Annað uppátæki, sem þó tókst
betur, átti rót sína að rekja til
borgarstjóra Montmatre. Hann
hafði veðjað við kunningja sinn
að hann gæti hjólað niður þau
347 stigaþrep, sem eru frá
fyrstu hæðinni. Honum tókst
þetta, en síðan hefur enginn
leikið það eftir.
Furðulegasta sagan snýst þó
um hollenska grænmetissalann,
sem tókst að selja nokkrum trú
gjörnum löndum sínum sjálfan
turninn. Hann fjekk þá til að
trúa því, að í ráði væri að rífa
turninn, og þeir fjellust á að
kaupa járnið. ■ Hollendingurinn
var handtekinn eftir að hafa
hagnast á þessu um þúsundir
sterlingspunda.
Enginn íbúi.
Furðulega margir þeirra, sem
koma í turninn, hafa heyrt, að
Eiffel, svissneski verkfræðing-
urinn, sem reisti þetta stór-
virki, hafi búið í herbergi efst
í turninum og að herbergið sje
nú varðveitt.
Þetta er rangt. Eiffel bjó
aldrei í Eiffelturninum; þar hef
ur enginn búið, frá því að hann
var byggður.
Pólsk slríðshetja
deyr í fangelsi
kommúnisla
BÉRLÍN, 19. ágúst: Fregnir
hafa borist hingað frá Póllandi,
um að einn af foringjum
mótspyrnuhreyfingar Póllands
gegn Þjóðverjum í síðustu styrj
öld, K. Pusak, hafi látist í fang
elsi kommúnistastjórnarinnar í
V.-Póllandi. Pusak var einn af
foringjum jafnaðarmannaflokks
ins pólska. Hann var m- a. for-
seti hins leynilega þings mót-
spyrnuhreyfingar Pólverja í
styrjöldinni. Kommúnistar
handtóku hann í júní 1947 á-
samt 200 öðrum foringjum og
þingmönnum pólska jafnaðar-
mannaflokksins. Sat hann i
fangelsi án dóms og laga í nærri
tvö ár, en var svo á s. 1. ári
færður fyrir dómstól, sem taf-
árlaust dæmdi hann í ævilangt
fangelsi. — Reuter.
Albanar skjófa
á fliitningaskip
RÓMABORG, 19. ágúst: — Það
hefir vakið mikla gremju á
Ítalíu, að fyrir skömmu var
skotið á ítalskt flutningaskip
úr strandvirkjum Albana við
Korfu-sUnd. Síðan hafði skip-
ið verið tekið af strandgæslu-
mönnum og flutt til albanskrar.
hafnar. Skip þetta, 450 smál.
að stærð var að flytja timbur-
farm til Gomenissa í Grikklandi
og fylgdi venjulegri siglinga-
leið. — Reuter.
— Flskveiðar í nýlendum
Framh. af bls. 5
Hvað viðvíkur afríkönsku
veiðisvæðunum, þá hafa verið
gerðar miklar ráðstafanir til
þess að bæta veiðiaðferðir og
auka veiðarnar, og það einnig
á hinum miklu fiskivötnum. —
Uganda hefir t. d. flutt út ár-
lega fisk fyrir 40.000 sterlings-
pund til neyslu fyrir námu-
menn í belgísku Kongo. Fisk-
veiðarnar á austurströnd Afríku
eru ennþá reknar með gamal-
dags aðferðum á róðrarbátum
og prömmum sem ekki geta
þolað verulegan sjógang. Fisk-
veiðarnar eru ekki skipulagð-
ar, og það er ekki hægt að fá
neinar sundurliðaðar skýrslur
um þær. Að möguleikar sjeu
þar til endurbóta er alveg aug-
ljóst.
FRÁ SPÁIM!
útvegum við flestar fáanlegar
VEFNAÐARVORUR;
Fataefní Gabardine
Kjólaefni Corduroy
Kápuefni Fóðurefni
Dömusokka
Sýnishorn og allar upplýsingar í skrifstofu okkar.
H. ÓLAFSSON & BERNHÖFT
Símar 2090, 2790, 2990.
LOFTLEIÐIS— REYKJÁVÍK - ÁKUREYRI
FRÁ REYKJAVÍK KL. 15,30 FRÁ AKUREYRI KL. 17,30
Loitlei&ir, Lækjargötu 2 sími 81440
niiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Markús
— Þetta er hundurinn. Jeg
held jeg þekki hann ólánið að
tarna. Jeg fer yfir girðinguna
til þess að vera viss um að
hitta hann.
Og Hjeðinn klifrar yfir girð-
inguna staðráðinn í að drepa
Trygg, en hann festist í gadda-
vírnum og missir byssuna ....
í fallinu rekst byssu-
haninn í trjágrein og skotið ríð
ur af.
Hjeðinn veinar af kvölum.
Skotið fór í hnjeð á honum.