Morgunblaðið - 03.09.1950, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 03.09.1950, Qupperneq 5
Sunnudagur 3. sept. 1950 MORGUXBLAÐIÐ 6 Á finnskrl foldu Frá aðalfundi norrænna búvísindamanna 'Á finnskri foldu. I. í FEBRÚAR 1918 kom sænskur Ibúnaðarfrömuður, ríkisráðu- nautur A. Elofson fram með þá hugmynd, að þeir fræðimenn á Norðurlöndum, er fengust við rannsóknir á sviði landbúnað- arins, mynduðu með sjer fje- Jagsskap til þess að styrkja störf 6Ín. Dagana 18.—20. mars 1918 Var haldinn fundur í Stokk- friólmi, til þess að ræða þessa friugmynd, er leiddi til þess, að fjelagið var stofnað á öðrum fundi í Malmey 6. ágúst sama ér, — fjelagið Nordiske Jord- foruksforskeres Forening. Að stofnuninni stóðu þá menn frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Fjelag þetta, sem í daglegu tali er nefnt NJF, hefir 'dafnað vel og fært út kvíarn- ar. Deildir þess eru nú á Norð- Urlöndunum öllum 5, því að brátt bættist við deild í Finn- Jandi og síðar deild hjer á landi. Auk þess starfar NJF í níu fagdeildum sem nú eru þess- ar: 1. Jarðvegsfræðideild. 2. Jurtaræktardeild. , 3. Garðyrkjudeild. 4. Jurtasjúkdómadeild. ð. Búfjárræítardeild. 6. Grasræktardeild. 7. Búvjela- og bygginga- deild (býnaðartækni). 8. Ræktunartækni og 9. Búnaðarhagfræðideild. NJF gefur út tímaritið Nord- Ssk Jordbruksforskning,. — í sambandi við það hefir fjelagið íengst af gefið út árlegar skrár yfir búfræðirit, sem út eru gef- Sn á Norðurlöndum og merk- ustu tímaritagreinar um bú- fræði. Þing 3. hvert ár Þriðja hvert ár efnir NJF til Sameiginlegs búnaðarþings fvr- ir Norðurlönd. Hafa þau verið haldin í löndunum til skiptis, nema hjer á íslandi. Á stríðsárunum lá starfsemi NJF niðri að mestu, að því er varðaði mannfundi og útgáfu- Etarfsemi. En það er jafnframt ópinbert leyndarmál, að mikl- Sr þræðir lágu þá á milli NJF roanna í löndunum fjórum á meginlandinu, til styrktar bjarg ráðum þessara þjóða. Að stríðinu loknu var NJF foúnaðarþing háð í Oslo 1947. Þá var ákveðið að næsta þing Iskyldi háð í Helsingfors 1950. NJF-þingin hafa alltaf ver- Ið fjölmenn og all-mikill við- fourður í því landi, þar sem þau hafa verið haldin. Gest- risni Finna og myndarskapur, er þeir þurfa og vilja gera garð sinn frægan, er alkunnur. Svo yarð einnig í þetta sinn. j»ingið í sumar í NJF eru nú um 1350 fje- itagsmenn, og á 8. þingi NJF, sem háð Var í Helsingfors 26. 30. júní í ár, rnættu nær 700 tnenn og konur. Auk Finnanna, sem auðvitað voru fjölmennastir, að þessu sinni, voru um 160 frá Svíþjóð, 110 frá Danmörku, 90 frá Nor egi og 2 frá íslandi. Hjer segi jeg- ofurlítið frá þessu þingi NJF og ýmsu sem fyrir augu og eyru bar á finnskri foldu, dagana, sem við hjónin dvöldum þar. íslensku þátttakendurnir voru því mið ur ekki aðrir en við að þessu Einni. Oftast hefir verið eitt- I Helsingfors í sumar Prófessor Virtanen skýrir frá búskap sínum. Maðurinn með húfuna er Karsten Ivarsen tilraunastjóri í Askov, en við hlið lians er Englund búnaðarsjerfræðingur ameríska sendiráðsins í Stokkhólmi. íslenskir þátttakendur, kom hann brosandi til móts við okk- ur og spurði, hvort við þekktum Gunnar borgarstjóra í Reykja- vík og „frú Vala“, og bar nöfn- in vel og rjett fram, — ,,og svo Guðmundur Ásbjörnsson?“ — Var þá skammt um liðið að Guðmundur hafði verið í.Hels- ingfors í tilefni af 400 ára af- mæli borgarinnar. Eins og venja er til var einu kvöldi varið til þingsamsætis á kostnað þeirra er það sóttu, var þá fullsetinn stærsti og glæsi- legasti samkomustaður borgar- innar Fiskartorpet og margt vel mælt þá um kvöldið. Allar voru samkomur þessar hinar ánægjulegustu, átti það vafalaust sinn þátt í því, að kvenþjóðin var óvenju fjölmenn og vel mennt á þinginu, alls um 190 konur. hvað betur að verið frá hendi Islandsdeildarinnar, en nú var um langan veg að sækja og urðu ekki fleiri til fararinnar. Það er mikið í fang færst að taka á móti 700 gestum og skipa öllu varðandi fundahöld í hinum 9 fagdeildum NJF, svo að vel fari. Forráðamenn finnsku deildarinnar leystu það allt af hendi með hinni mestu prýði. Undirbúningurinn varð hinn besti svo að engu skeik- aði í framkvæmdinni. Hefir á- valt verið virðulegur blær yf- ir búnaðarþingum NJF, en þó aldrei sem nú í Helsingfors. Þingsetningin Fundahöld fóru öll fram í háskólanum og í skógarhöllinni (Forsthuset) sem er mikil og glæsileg bygging. Þar var skrif stofa og miðstöð þingsins. Þingið var sett í hátíðasal há- skólans, með mikilli viðhöfn. Við þá athöfn voru meðal ann- ars til staðar: Forseti Finn- lánds, Paasikivi, Kekkonen for- sætisráðh., Taavi Vilhula, land- búnaðarráðh, Langfors, rektor háskólans og Rydman, aðalborg arstjóri Helsingforsborgar, en prófessor T. Haapanen stjórn- aði útvarpshljómsveitinni, er ljek á milli þess sem ávörp vortí flutt. Formaður finnsku deildarinn ar, próf. Valle, bauð gestina velkomna. Hann minntist þess að 21 ár væri liðið síðan NJF þing var haldið í Helsingfors (á því þingi flutti Sig. Sigurðs- son heitinn búnaðarmálastjóri, erindi um búskap á íslandi) og benti á það, að NJF væri að árum jafn gamalt sjálfstæði Finnlands. Hann benti ítarlega á að bændaþjóðin finnska kynni að meta störf og afrek bún- aðarrannsókna og fræði- mennsku, því að fátt hefði orð- ið sjálfstæði Finnlands og lýð- ræði til meiri happa, en hin mikla framþróun búnaðarins, er svo mjög styddist við þau fræði öll. Hann fagnaði frumherjunum tveimur, sem þarna voru mætt- ir, föður NJF, dr. A. Elofson og E. Lunding forstjóra, Danan um, sem hefir verið fram- kvæmdastjóri NJF frá stofnun þess og þangað til í fyrra, er Sviinn próf. R. Torssell tók við þeim vanda. Þriðja frumherjanum, Norð- manninum próf,-E. Korsmo, sem ekki var mættur, var sent kveðjuskeyti. Þá fluttu þeir kveðjur, for- sætisráðherra Kekkonen og dr. Elofson og loks flutti K. J. Ellilá, búnaðarmálastjóri land- búnaðarráðuneytisins, erindi um landbúnað Finna eftir stríð ið, þróunarhorfur hans og möguleika. Mun jeg víkja síðar að ýmsu er hann skýrði frá. Er athöfn þessari lauk og forsetinn heilsaði miðstjórnar- mönnum NJF, og ýmsum öðr um og ræddi við, fór mjer svo að mjer fannst jeg hafa sjeð þennan mann áður og rætt við hann. Síðar komst jeg að raun um, að þetta var ekki hugar- burður minn. Er NJF þing var háð í Uppsölum 1938, var Paasikivi sendiherra Finna í Sviþjóð og tók virkan þátt í þinginu. Þannig var sú gáta ráðin. Margháttuð kynning Nær 80 fyrirlestrar voru fluttir á þessu þingi. — Varð því hver og einn að halda sig við það fræðilega heygarðs- horn sem honurn þótti fýsileg- ast, því enginn mátti öllu sinna, enda alls ekki til þess ætlast. En Finnarnir viðurkenna fylli lega þau fornu sannindi, að maðurinn lifir ekki á brauði einu saman' og breyttu eftir því. Enda er það góð NJF- regla að meta fyrirlestra og opinberar umræður um fræði- leg efni mikils, en kynnin manna á milli og viðræður met- um vjer engu minna. Er marg- reynt að sá þáttur samvinn- unnar á sviði búvísindanna hef ir miklu góðu til leiðar komið á Norðurlöndum. Jafnframt fundarhöldum og fyrirlestrum Var efnt til mann- fagnaðar meira og betur en áð- ur hefir verið á þessum þing- um og hefir þó oft vel verið. Einn daginn bauð landbúnaðar- ráðherra til samdrykkju, og öðru sinni hafði Rydman borg- arstjóri boð inni fyrir alla er- lenda gesti og margt hinna finnsku þinggesta. Er hann varð þess var, að þarna voru í heimsókn hjá Virtanen Loks hófu Finnar þá ný- breytni að ýmsir kunnustu bún aðarfræðimenn þeirra buðu þinggestum heim til sín í flokk um og völdu sjer þá gesti að miklu leyti eftir hugðarefnum. Eitt slíkt heimboð var hjá próf. Virtanen, efnafræðingnum mikla og Nobelsverðlaunamann inum, á búi hans Joensuu, skammt frá Helsingsfors. Það er allstórt býli á finnska vísu, en um útihús, vjelakost og þess háttar ekki neitt fram úr meðal hófi, enda ekki að því stefnt. En þarna reynir og fram- kvæmir' próf. Virtanen, sem margir kannast við frá komu hans hingað til lands 1948, kenningar sínar varðandi köfn- unarefnissvinnslu á hverju búi. Síðustu 17 árin hefir ekki verið notaður neinn aðkeyptur fóðurbætir á búi þessu og eng- inn tilbúinn köfnunarefnisá- burður, og yfirleitt enginn til- búinn áburður nema lítið eitt af forfórsýruáburði. Smárinn ög bakteríurnar sjá fyrir köfn- unarefninu. Kornuppskeran á búinu* hefir þó nærri tvöfald- ast á þessum árum, svo að ekki hefir ræktunin gengið úr sjer, enda sýndu túnin það glögg- lega. Smáragróður, verkaður sem vothey — með aðferð Vir- tanens — AÍV aðferðinni, er það eggjahvítukjarnfóður, sem þarna er notað og dugir vel því að nythæð kúnna og mjólkur- gæði eru með ágætum, svo að óvíða er betur hjá finnskum bændum, en finnsk nautgripa rækt og mjólkurframleiðsla er kunn að magni og gæðum. Heimsóknin hjá Virtanen var bæði fróðleg og hin ánægjuleg- asta. Á meðal þeirra, sem þar var ákafastur að spyrja og rita vasabók sína, var dr. Englund, búnaðarsjerfræðingur ameríska sendiráðsins í Stokkhólmi, hann var ótrúlega víða viðlátinn og oftast með myndavjelina eða vasabókina á lofti. Jeg hafði mætt honum áður á ferðalagi í Noregi, þá spurði hann margs frá íslandi og í ljós kom að hann þekkti Björn Björnsson frá Minneapolis og þá bræður, syni Gunnars Björnssonar. Landbúnaði sýnd mikil virðing Mjer hefir orðið tíðrætt unr* setningu og mannfagnaðar- fundi búnaðarþingsins. Var þaíí þá aðalatriðið? Nei, því íer fjarri, en því verða mjer mót~ tökur Finnanna og þessi hlHS þingsins minnisstæð, að þar tel jeg komi í ljós það sem vjer megum mikið af læra, íslend- ingar. Það er virðing sú, sem landbúnaðinum er sýnd og þeim frömuðum hans er’ mest leggja til málanna með rannsóknum og fræðimennsku. Það var auf> sjeð á öllu, að Finnar töldu sjer það vegsauka að NJF þingiO var háð í Helsingfors og afl æðstu menn lands og borgar vildu að það sæist og skildist að þjóð þeirra er bændaþjóð að uppruna. Að þar er flest aH jörðu komið er þjóðinni fram- fleytir og að það er þjóðinni allri heiður, sem hátt ber k sviðið búnaðar, bæði í viðburð- um og framkvæmdum. Þar i landi ríkir ekkert kæruleysi um það sem fram fer í búnaðarmál irni, öðru er ekki meiri gaum- ur gefinn. Þannig er þetta rauiv ar um öll Norðurlönd, allt eðru vísi en hjer á hólmanum. Öss verður flest meira í munni hel<J ur en hornsteinahleðslur á sviði búnaðarins. Oss hættir svo ótrúlega mik- ið til að hampa skrumi og skýja borgavaðli, en vanmeta hina kyrrláta þekkingu og störf, er grunninn byggja. Oft mun þetta frekar vera af fákænsku og skilningsskorti heldur en af ill- um vilja, en afleiðingarnar leyna sjer ekki: rislágur land- búnaður er nýtur sín hvorki a<5 sjálfsvirðingu nje þjóðaráliti og jafnvel minnst þár sem og þeg- ar mest á ríður. m kaupum Silf urgripi, Listiuuni, Brotasilfur. Gull. Jön Sípunílsson Skertjripaverrtun Laugaveg 8. GUFUPRESSUN KE^ISK HREINSUN I Hús og íbúðir | til sölu af ýmsum stærðum og s gerðum. Eignaskipti oft mögu- ! leg. : Harnldur GuðmundwoD lögg. fasteignasali | Hafnarstræti 15. Símar 5415 og i 5414 heima. Eggert Cíaessec Gústaf A. SveinssoB hasetarjettarlögmeœ r Oddíelloshúsið. Sixni 1171 Ailskonar lögfrseðistðrf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.