Morgunblaðið - 05.01.1951, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.01.1951, Qupperneq 6
6 MORGUK BLAÐIÐ Föstudagur 5. janúar 1951. JHí!f|pusMatíiÍ> Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. iTramkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 16.00 á mánuði, innanlands. í lausasölu 75 aura eintakið. 1 króna með Lesbók. Víkverji sknfar: ý R DAGLEGA LÍFINU Einangrun komm únista - * • s Oryggí Islands í ÁRSBYRJUN 1949 var í und- irbúningi samvinna hinna vest- rænu lýðræðisríkja til öryggis frelsi og sjálfstæði þeirra, gegn yfirgangi kommúnismans. Sov- jetríkin höfðu algerlega inn- limað hinar sjálfstæðu smá- þjóðir við Eystrasalt, Lettland, Lithaugaland og Eistland, og kúgað til undirgefni hverja þjóðina á fætur annarri í Aust- ur- og Mið-Evrópu. Skömmu eftir hina geigvænlegu heims- styrjöld, sem háð hafði verið í nafni frelsis og mannrjettinda gegn nazismanum, höfðu Rúss- ar dregið hið kommúnistiska jámtjald fyrir þjóð eftir þjóð, þar sem löndunum var lokað frá umheiminum, skoðanafrels- ið afnumið og traðkað á rjettar- öryggi borgaranna með miklu geigvænlegri valdbeitingu en nokkru sinni áður hafði þekkst. Undirbúningi lýðræðisríkjanna til varnar þessari hættu lauk, eins og kunnugt er, með stofn- un Atlantshafsbandalagsins. Þegar þetta varnarbandalag lýðræðisríkjanna var í undir- búningi, voru ýmsir, sem ekki höfðu fyllilega áttað sig á þeirri geigvænlegu hættu, sem aí kommúnismanum stafaði. Að sjálfsögðu tóku kommúnistar hjer upp harðvígtuga baráttu gegn þessu lýðræðisbandalagi, eins og kommúnistar um allan heim, og eins og þeir fyrr og síðar hafa hringsnúist, eftir því sem þeir hafa fengið fyrirmæii um frá Rússum. Hefði mönnum átt að vera fullkomlega minn- íssfætt, hvernig þeir í upphafi styrjaldarinnar, þegar Rússar voru ekki orðnir hernaðarað- ilar, töldu, að hvorugum hinna stríðandi aðila mættu íslend- ingar óska sigurs, og baráttan milli Vesturveldanna og naz- ismans væri baráttan milli tveggja rándýra um bráð. Eft- ir að Rússar urðu hernaðar- aðilar með Vesturveldunum, varð stríðið svo fyrst að frels- isbaráttu í augum kommúnista hjer og Bretavinnan svokall- aða, sem hjer var unnin í þágu Vesturveldanna, og Þjóðviljinn hafði kallað „landráðavinnu', varð á máli kommúnistanna „landvarnarvinna“. En þótt svo væri, eins og fyrr segir, að sumir ættu fyrir tveimur árum nokkuð erfitt með að átta sig á fláræði komm únismans, þá er nú, sem betur fer, gjörbreyting á þessu orðin hjer á landi. Eitt vitnið í því efni er m. a. afstaða íslendinga til hins svo- kallaða Stokkhólms-ávarps, sem er eitt fyrirlitlegasta hræsn isplagg sögunnar, en kommún- istar reyndu að safna undir- skriftum undir og töldu gjört í þágu friðarins í. heiminum. Hjer reyncju þeir að fara af stað með þessa . „friðarhreyf- ingu“ kommúnismans, og byrj- uðu á því að birta nöfn undih- skrifendanpa. Brátt kom í ljós, að þeir voru fæstir utan komm- únistaklíkunnar og þeir, sem jfyrst höfðu látið blekkjast til I undirskrifta, sáu eftir verkum ! sínum og einn sýndi þann mann jdóm að láta strika nafn sitt út Eftir þetta hættu kommúnistar að birta nöfn og undirskrifta- smölunin fjell niður. Eins hafa kommúnistar á liðnu hausti algjörlega lent í minnihluta í hópi stúdenta í þessum málum, en þeim hafði áður orðið furðanlega gott af „þjóðfrelsisblekkingum“ sinum í hópi menntamanna. Loks er svo þess að minnast, að hin svokallaða ,;Þjóðvarnar- hreyfing,“ sem bryddi á sjer hjer í sambandi við þátttöku íslands í Atlantshafsbandalag- inu, lætur heldur ekki lengur á sjer bæra. y , Kommúnistar virðast því al- gerlega einangraðir, eins og vera ber, í öryggismálum fs- lendinga, en á þjóðinni að öðru leyti hvílir sem fyrr sá vandi að gjöra hverjar þær ráðstaf- anir, sem best geta tryggt sjálf- stæði og frelsi íslendinga. Þeir atburðir hafa gerst og gerast nú í heiminum, sem hljóta áð fylla hvern hugsandi íslending kvíða. Geigvænleg jstyrjöld geysar í Austur-Asíu .milli herja Sameinuðu þjóð- janna, sem komið hafa málstað lýðræðisins til hjálpar, sam- kvæmt þeim skuldbindingum, sem felast í sáttmála Samein- uðu þjóðanna, gegn ofbeldi kommúnismans, sem stjórnað er af sömu stjórnendum raunveru- lega og kommúnismanum alls staðar annars staðar 1 heimin- um. Hið friðsamlega samstarf inn- an vjebanda Sameinuðu þjóð- anna virðist allt í mjög mikilli hættu vegna yfirgangs komm- únismans og þau helgustu mannrjettindi, sem barist var fyrir í síðustu heimsstyrjöld eru troðin niður í duftið. Að sjálfsögðu er hinum smæstu mest hætta búin af styrjöld og ófriði í heiminum. íslendingum er því sannarlega ekki síður en öðrum þjóðum fullkomlega ljós hin yfirvofandi hætta. Þeir sjá þó best af öllu og skilja fyllilega, að hrein tor- tímingarhætta íslensku sjálf- stæði er aðeins búin úr einni átt, — frá kommúnismanum. Aukið samstarf hinna vest- rænu lýðræðisríkja til varnar kommúnistahættunni er því I eðli sínu sama og aukið öryggi fyrir hinn íslenska málstað sem og frelsið annars staðar í heim- inum. Hjer hefur verið vikið að því sem mikilvægu atriði, að komm únistar einangruðust í þjóðfje- laginu. Það er vegna þeirrar sjerstöðu kommúnismans að fela í sjer tvöfalda hættu fynr þjóðirnar — að innan frá sem utan. Um gjörvallan heim, þar sem kommúnisminn hefur kom- ið við sögíiy einkehnir þétta að- ferðir hahs. Pimmta herdeildm heima fyrir hefur allis Staðax boðið innrásina velkomna. FARSOTTIR OG BARNASAMKOMUR MISLINGAR hafa verið að stinga sjer niður í bænum undanfarið og hefir hina síðustu dagana orðið vart við verri tilfelli en áður. Læknar telja þetta ekki óeðlilegt, þar sem fjögur ár eru liðin síðan, að mislingar gengu hjer í bænum fyrir alvöru. í gær átti jeg tal við borgarlækni, dr. Jón Sigurðsson, utn heilsufarið í bænum almennt og mislingana sjerstaklega, einkum með tilliti til aukinnar smithættu meðal barna vegna jólatrjeskemmtana, sem nú standa sem hæst. Borgarlæknir sagði, að heilsufarið mætti almennt teljast heldur gott í bænum, en benti þó á, að vitanlega væri smithætta hvað mest, ef barnafarsóttir ganga í bænum, þegar mest væri um barnasamkomur. FORELDRAR HVATTIR TIL AÐ FARA VARLEGA BORGARLÆKNIR sagðist eindregið vilja ráðleggja foreldrum, að fara ekki með börn sín á jólatrjesskemmtanir, ef þau væru lasin, eða miður sín á eínhvern hátt og ekki þyrfti að taka það fram, að óráðlegt væri og raunar óforsvaranlegt ,að leyfa börnum, sem væru greinilega með einhverja umferðarveiki, að sækja skemmtanir. Foreldrum hættir stundum til að fara óvar- lega í þessum efnum. En það væri sjerstaklega hættulegt gagnvarf. öllum og gæti einnig haft hin verstu áhrif til frekari útbreiðslu um- ferðarsjúkdóma. SKORTUR Á MISLINGASERUM ÞÁ GAT borgarlæknir þess, að skortur væri nú sem fyrr á serum, eða varnarlyfi gegn mislingum. Varnarlyf þetta er unnið úr blóði þeirra, sem nýlega háfa haft mislinga og eru þeir, sem orðnir eru 17 ára, eða eldri og sem hafa fengið mislinga nýlega, beðnir að gefa sig fram til blóðgjafa, annaðhvort í skrif- stofu borgarlæknis, eða Ránnsóknastofu há- skólans við Barnósstíg. Síðast þegar beðið var um blóð mislinga- sjúklinga gekk ekki vel, en vonandi að menn taki þessi tilmæli til greina nú. Það gæti hjálpað mörgum vmglingunum til að korhast Ijettar ýfir sjúkdómihn. • ENGIN MÆNUSÓTTARTILFELLI AÐ LOKUM spurði jeg borgarlækni, hvort nokkuð hafi orðið vart við mænusótt í bæn- um undanfarið, en það hefir flogið fyrir manna í milli, að einhver ókunn veiki, sem vel gæti verið mænusótt, gengi í bænum. Borgarlæknir sagði, að hann vissi eklti um eitt einasta tilfelli af mænusótt hjer í bænum síðustu vikurnar og þætti sjer ótn.ilegt, að honum hefði ekki borist vitneskja um það, ef satt væri, þótí stuivdum komi skýrslur nokkuð seint til skrifstofu hans. • SLÆMT ÚTLIT MEÐ NÝJAN FISK ÞAÐ HEFIR gengið illa að útvega nýján fisk til bæjarins í haust og í vetur. Sjaldan verið jafn mikill skortur á nýjum fiski hjer í bænum. Og þvi miður er ekki gott útlit fyrir að úr rætist. Að vísu hafa nokkrir fisksalar tekið sig til og leigt bát til fiskveiða og verða þá tveir bátar sem íiska fyrir bæinn. En éf aflabrögð verða ekki því betri á næstunni, má búast við að afli þessara tveggja báta hrökkvi skammt til daglegrar eftirspurnar, þar sem Reykvíkingar borða allt að 20 smál. af nýjum fiski þegar hann fæst á annað borð. • FÓLK ORÐIÐ LEITT Á TROSINU FISKVERSLANIR hafa jafnan haft á boð- stólum saltfisk, skötu og frystan fisk, en fólk er orðið leitt á sífelldu trosi og hvernig sem á því stendur, hafa menn ekki almennt kom- ist upp á lagið að borða frysta fiskinn. Nýr fiskur er aðalfæða flestra heimila og er illt þegar hann fæst ekki. Meðan skortur er á fiski, er líka hætt við að fljótar gangi á kjötbirgðir landsmanna og þær hafa ekki verið meiri en svo undanfarin ár, að kjötíð hefir verið uppjetið fyrir mitt sumar. Gangi svo til lengdar enn, að ekki fáist nýr íiskur í vertíðarbyrjun, er athugandi, hvort bæjarstjórnin verður ekki að gera einhverjar ráðstafanir til þess, að nýr fiskur komj á markaðinn nokkuð reglulega. Formúluljód Einars Bogasonar FYRIR nokkru komst jeg í kynni við litla bók, sem nefn- ist Stærðfræðileg formúluljóð og er eftir Einar Bogason frá Hringsdal. Bókin er ekki fyiir , ferðamikil, en eigi þarf skarp ' skyggni til að sjá, að bak við hana stendur, ef til vill, meiri ósjerplægni og lærdómur en flestra þeirra bóka, sem meira hefir verið haldið á lofti í ár. í kveri þessu eru flestar þær formúlur í stærðfræði, sem nota þarf í daglegum störf um, sumar settar fram á mun einfaldari og handhægari hátt en almennt gerist í kennslubók um, og aðrar, sem fágætt er að finna annarsstaðar. Höfundur getur þess í for- mála, að hann hafi snúið hin- um tyrfnu formúlum í bundið mál, til þess að auðvelda mönn um að festa sjer þær í minni. Þau alkunnu sannindi, að fátt mun taka fram töframætti höf uðstafa og stuðla að festa í minni almennan fróðleik, þarf ekki að ræða. Það gegnir því nokkurri furðu, að ljóða skuli ekki gæta meira í almennum kennslubókum um efni, sem auðveldara er að koma í rím en stærðfræði. Slíkt gæti orð- ið hið besta „krydd“ í kennslu stundum og námi. Stærðfræði þykir flestum þurr fróðleikur, enda segir höfundur í eftirmála við bókina, að hinum kunna ríriifraeðlngi, Öir William Crai- gié hafi þótt mikið til bókarinn ar koma, einkum sökum þess, hversu höfundi hafi tekist að kóma efninu í rím. Það verkefni, sem höfuridur hefir leyst af hendi mun vera einstætt í bókmenntum vest- rænna þjóða, því þótt einstak- ar stökur um stærðfræðileg efni, svo sem vísan „Sig mest merkir sá fyrsti", sem höfund- ur rekur í eftirmála upphaf að langt aftur í aldir, þá hefir ekki verið um skipulega heild að ræða fyrr en nú. Hinsvegar er fyrrnefnd vísa gott jarðteikn þess, hversu ljóð geta legið lengi á vörum fólks, þótt gildi þeirra felist aðallega í stund- legu gagni. í almennum skólum skipar stærðfræði veglegan sess, sem vera ber. Hinsvegar mun mörg- um þykja, að þeir hafi í þeirri grein meira erfiði en erindi. Á- steytingarsteinn flestra er efa- laust formúlurnar, sem eru heilafrumunum litlir auðfúsu- gestir. Kunningi minn nokkur sagði mjer í fullri hreinskilni, að eftir fimm ár frá því hann hafði tekið stúdentspróf, sem var gott, hefði hann kunnað eina gamanvísu úr öllu stærð- fræðinámi sínu í menntaskólan um, en það var jafnframt eina stakan um stærðfræðileg efni, sem hann hafði komist í kynni við. Þótt vinur minn hafi cenni lega ýkt, má draga af þessu þá ályktun, að stakan risti dýpra í minni hans en margar formúl urnar, margendurteknar og skýrðar. í daglegum störfum þurfa iðnaðarmenn og aðrir, sem fást við „teknisk“ störf, að hafa jafnan á taktoinum ýmsar stærðfræðilegar formúlur. Hver§ virði þáð væri þeim, sem erfitt eiga með að muna þær, að geta greypt þær í minni með mætti höfuðstafa og stuðla. geta þeir best dæmt um sjálfir. Jeg gæti best trúað, að formúlu- ljóð Einars reyndist þeim hrein asti kraftakveðskapur. Nemendur í skólum ættu að gefa kveri þessu mikinn gaum. Það myndi, efalaust, leysa margan námsmanninn úr dróma minnimáttarkenndar og örvæntingar um sáluhjálp sína í stærðfræði að kunna srmar þessar formúluvísur, reiprenn- andi. Jeg leyfi mjer að taka. hjer sýnishorn: i Flatarmálið ferjafnhliðans finnst með því að hlið ein hans í annað velcd er hafin í. Og annað sýnishorn; Þegar þekkjast þríhyrningsíns hliðar, en hornin ekki, ávallt á ummáls reglu nota þá. Þannig eru flest erindin kveðin á mjög ljettu og auð- skildu máli og auðlærð fyrir börn og unglinga. Þeir, sem ekki hafa trú á að læra í bundnu máli, má benda á, að allar meginreglur í flatarmáls- fræði, algebru, hornafræði og logaritma eru prentaðar neðan við tilsvarandi erindi, og er það handhægt að hafa þær á einum og sama stað. Þeir, sem til þess eru útsett- ir, geta efalaust fundið ýmsa gálla við kvérið. Mergur máls ins mun þó standa óhaggaður. Ef börn og unglingar væru látn Frh. á bls. 8„ .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.