Morgunblaðið - 20.01.1951, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 20. jan. 1951.
Jóníiia
Mlnningarorð
HINN 9. þ. m. anaaðist í Lands-
spítalanum Jónína Eiríksdóttir,
ljósmóðir í Hveragerði. Mjer
þykir vel við eiga, að þeirrar
ágætu konu sje að einhverju
minnst opinberiega.
Hún fæddist 12 mars 1902 í
Miðbýli á Skeiðum. Foreldrar
hennar voru: Eiríkur Guðmunds-
son, bóndi þar og kona hans,
Ingveidur Jónsdóttir. Tveggja
ára gömul fluttist hún með for-
eldrum sínum og systkinum að
Efri-Gróf og síðan að Ferjunesi
í Villingaholtshreppi í Árnes-
sýslu og ólst þar upp síðan. En
móður sína missti hún um 9 ára
gömul. Ljósmóðurfræði nam
hún í Reykjavík og árið 1934 kom
hún til Hveragerðis sem ljósmóð-
ir þorpsins og vestari hluta Ölfus
hrepps. Hún giftist 17. júlí 1936
Sigurlaugi Jónssyni bílstjóra í
Hveragerði. Með honum eignað-
ist hún einn son og eina fóstur-
dóttur hafa þau hjónin alið upp.
Heimilislíf hhnnar mun hafa ver-
ið með ágætum, enda var hún
prýðilegasta húsmóðir.
Óhætt er að fullyrða, að hinn-
ar látnu ljósmóður er mjög sakn-
að í hjeraði hennar. Konur, sem
kynntust henni og nutu starfs
hennar, hafa komist svo að orði,
að byggðarlagið hafi orðið fyr-
ir miklu tjóni við fráfall henn-
ar. Hjer á þó ekki við hinn gamli
orðskviður: „Enginn veit, hvað
átt hefur, fyrr en misst hefur“,
því að hún var í iifandi lífi í
miklum metum hjá fólki, þó að
það kæmi ekki fram í stórum
samsætum eða löngum lofræðum,
enda hafði hinni hóglátu konu
ekkert verið slíkt kærara.
Jeg hygg, að hún hafi lagt
fyrir sig' ljósmóðurstarfið af
sterkri löngun til að vinna líkn-
arstarf og þegar þar við bættist,
að hún hafði til að bera alla hina
nauðsynlegustu hæfileika til að
sinna slíku starfi, hlaut svo að
fara, að hún rækti verk sitt með
ágætum. Enginn, sem þekkti
hana að ráði, getur minnst henn-
ar án þess, að í hugann komi
hugtök eins og háttprýði, ljúf-i
lyndi, skyldurækni og traust-
leiki. Framkomu hennar alla
auðkenndu elskulegt viðmót og
andlegt jafnvægi. Hún var æðru-
laus, þó að vanda bæri að hönd-
um, og henni fylgdi sjerstakur
styrkur. Því fór mjög fjarri, að
hið rólega og örugga fas hennar
væri sprottið af kulda eða kæru-
leysi, eins og stundum á sjer
stað, heldur bar það vott um
þrek hennar og traust hennar á
því, að allt færi vel, ef hún gætti
fyllstu skyldu sinnar. Hún vann
öll sín ljósmóðurstörf með mik-
illi nærfærni og miklum hlýleik,
bæði við móður og barn. Starf
heimar varð því árangursríkt og
vel heppnað.
Þeir voru orðnir á þriðja
hundrað hjer í Ölfusi, sem hún
veitti fyrstu viðtöku í þennan |
heim, og verða því þakkirnar
bæði margar og miklar nú við
leiðarlok hennar. Til marks um
hinar miklu og almennu vin-
sældir hennar má geta þess, að
konur í umdæmi hennar hafa
nú hafið samtök um söfnun til
sjóðs eða minningargjafar, er
beri nafn hennar. Má því öllum
vera ljós þakkarhugur fólksins til
hennar. Margri konu og manni
mun lengi í minni mynd hennar,
þar sem hún gengur um húsið
hvítklædd við líknarstarf sitt og
umhverfis hana sú milda birta
og sá hljóðláti styrkur, sem
henni fylgdu, hvar sem hún
fór.
Hún er nú sárt hörmuð af
manni sínum, syni og fósturdótt-
ur, sem öll hafa mikils misst.
En þeirra söknuður er að viss-
um hluta jafnframt söknuður
þessa byggðarlags. Vandfyllt
skarð stendur opið. En hin látna
ljósmóðir átti bjarta trú, sem nú
hefur rætst. Vinkona fólksins
| hjer í Ölfusi er horfin, en trúin
sjer bjarta stjörnu skína handan
hins opna skarðs.
Hveragerði, 18. jan. 1951.
Helgi Sveinsson.
Hvelja til ákveðiimar Annar sendiherra
afstöðu gegn Kína tundur Nehrus
WASHINGTON, 19. jan. — OU
helstu blöð Bandaríkjanna ræða
í íiiitstjórnargreinum sínum
höfnun kínversku kommúnista-
stjórnarinnar við sáttatillögu
Sameinuðu þjóðanna. Hvetja
þau öll eindregið til þess, að
S. Þ. líti á Kína sem árásarþjóð
og hagi aðgerðum sínum í sam-
ræmi við það.
Samþykki þingsins
ekki nauðsynlegf
WASHINGTON, 19. jan. — Á
fundi sem Truman forseti átti
með blaðamönnum í gær, Jjet
hann í ljós það álit sitt að hon-
um væri heimilt að samþykkja
sendingu bandarísks herliðs tii
Evrópu, án sjerstaks samþykkis
þingsins.
— Hæsfarjeftardómur
Framh. af bls. 6
örugglega geta fundið neinar
vörur úr sendingunum.
Þá hefur verðlagsstjóri sam-
kvæmt ósk hjeraðsdómara í
brjefi 26. október 1950 gert
nýjan verðútreikning á um-
ræddum vörusendingum, og tek
ið þar tillit til þess, að 89406
frankar af kaupverði varanna
voru greiddir með hinu hærra
gengi. Samkvæmt þeim verð-
útreikningi nemur sá hagnaður
ákærða, sem verðlagsyfirvöld
telja ólögmætan, kr. 45,662,71.
Með skírskotun til raka hjer-
aðsdóms verður að telja, að á-
kærði hafi gerst sekur við laga-
ákvæði þau, er þar greinir. —
Þykir refsing hans hæfilega á-
kveðin 8000 króna sekt til ríkis
sjóðs, og komi í stað sektarinn-
ar varðhald 50 daga, ef hún er
ekki .greidd innan 4. vikna frá
birtingu dóms þessa. Þá ber og
samkvæmt 69. gr. laga nr. 19/
1940, sbr. 2. mgr. 22. gr. laga
nr. 70/1947 að gera upptækan
t.il ríkissjóðs ólögmætan ágóða
ákærða, er samkvæmt framan-
söeðu nemur kr. 45,662,71.
Staðfesta ber ákvæði hins á-
frýjaða dóms um greiðslu sak-
arkostnaðar í hjeraði. Ákærði
greiði allan áfrýjunarkostnað
sakarinnar, þar með talin mál-
flutningslaun skipaðs sækjanda
og verjanda fyrir Hæstarjetti.
Hreyfill
PARÍS, 19, jan.: ,— Nehru átti
í dag annan fund sinp méð ind-
verskum sendiherrum, sem
komnir eru til móts við hann
í París. Meðal fundarmanna
voru systir hans, sem er sendi-
herra Indlands í Bandaríkjun-
um, og indversku sendiherrarn-
ir í Bretlandi og Rússlandi.
— Reuter.
5 ára áætlun
BERLIN — Nv 5 ára áætlu’’
Hófst í Austur-Þvskalandi um ný-
árið. Stefnt er að því að tvöfalda
;fi~'^ðarframleiðslu landsins fyrir
1955.
Framh. af bls. 5
ingunni lokinni og hefur Stein-
grími sennilega þótt ræða sín
bera lítinn árangur í þá átt að
bæta bifreiðastjóra.
,,Eining“ kommúnista
Lýðræðissinnar hafa, eins og
kunnugt er stjórnað Hreyfli í
nokkur ár. Hefur kommúnistum
sviðið sárt ósigrar sínir og fylg-
isleysi og sóst eftir því, að fá
fulltrúa í stjórn fjelagsins, þó
ekki væri það nema eihn maður
af sjö. Með því tryggja þessir
fimmtuherdeildarm. sjer flugu-
mann í stjórn fjelagsins, sem
þeir gætu notað til njósna og
skemmdarverka. Þessi við-
leitni þeirra hefur þó aldrei
verið eins áb.erandi eins og nú,
því að nú sjá þeir fx-am á meira
fylgishrun en nokkru sinni áð-
ur og ætla því með þessu að
reyna að bjarga því, sem bjarg-
að verður.
En bifreiðastjórar og aðrir
launþegar þekkja af biturri
reynslu hver er ,.eining“ kom-
múnista. Þeir vita, að hvar sem
kommúnisti starfar kemur hann
fram sem friðarspillir og skemd
arverkamaður, tilbúinn til að
fórna hagsmunum fjelags síns á
altari hinnar Ikommúnistisku
kúgunarstefnu, sem nú ógnar
öllum heiminum. Þess vegna
munu bifreiðastjórar nú sem
fyr snúa bökum saman til varn-
ar samtökum sínum og til bar-
áttu gegn þeim mönnum í stjett
inni, sem hafa verið svo óláns-
samir að fórna lífsskoðun feðra
sinna fyrir erlenda helstefnu.
Hreyfilsfjelagi.
- Úr heimsfr jettum
í'ranu. ut Dls. 7
fregnum er enginn fótur að
sögn.
inflúensufaraldurinn
í Breflandi
í Englandi geisar nú skæður
innflúensufaraldur, svo að ann
ar eins hefur ekki komið þar
síðan 1918. Hafa menn látist úr
veikinni hundruðum saman. ■
Var jafnvel komist svo að orði,
að sums staðar í landinu gæti
prestarnir ekki sinnt neinum
skyldustörfum öðrum en jarð-
syngja fólk. Annað varð að sitja
á hakanum.
| Til sölu |
j taurulla, brún kvenkápa no. 44 j
: og ensk barnavagga nieð tjaldi. :
Sími 5568.
Sem ný ensk
og tvenn karlmannaföt til sölu j
á Laugaveg 19 uppi.
•NIIIIHIIHII
JEPPI
Vjelalaus jeppi til sýnis og sölu
í skemmunni á móti * Tivoli,
milli kl. 2 og 6 í dag. Simi
5948.
Ung kona með t.veggja ára dreng i
óskar eftir
Ráðskonusföðu
nú þegar. Ýmislegt fleira kem- j
ur til greina. Uppl. í sima j
81243.
............r rniT—rrrtTiniiiim^nmiMiMimuMi
iitiiiiim'tutiMU
Markús
m»»»o* antiiiRHmnm!
&
Eftir Ed Dodtí
ypj-.h, TUA'f'S DkURy OV£R
THEPUI... WjTUwMP SO<vttmtȒu
ABOUt "HU-’JNO A íffrt tOB J
PUO! Zt-íOU no:„ ctv Mi.v,
m. LL tflK!. caat o'
, '*£)
fi 'h— ,/. '1 ■ —»r»
P./SS; 'ví,/-• ,f->" Jb U'if.v.
m
l/tj
»»£. Viíij rtUO »0 J«p
AT, a.ND «»ibH
; i ** £
'L*í 3 * C'* t ( ó
’ i -£ i . .
SSgjgiSHB^;*
■'ioj
1) — Eid að spyrja um hann ískipshöín
Dlðrik. Hajrm lig r "þarna við' Viljið t
borðið. Hcnin >: síöðugt að ræíli á b. -t
þv la • iað ha n ; igi að ráða 2) — Jú.
: i hann.
ir King prófessor. 3) —; Við
:ki koma þessum út á okkar sktp
. vrir mig. sjá um ma;
:kulum sjá um Kings prófessc
; , .. i
tiúrn hann brrá | 4) Bíddu rólegur, Láki.
í, jeg verð aS :g held að einhver sje að veita
: á skip okk ftirför.
•s. I
•nnuiiimiiiifinutMiiiiiiiuiiiimuiiitniiiMnniciiiinmi