Morgunblaðið - 23.01.1951, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 23. janúar 1951
1 KNOW WMAT YOU A\EAN... )
COME ON> GLENISTER ... t
WANT YOU TO MEET TME BOSS.
..... ER...THERE WAS A
MOUNTIE GETTING KINDA II
CLOSE /
WHISKERS
>«iim«n>NNMte«>M«iimimmmm«mm«im«*mimitummmm«imtmtmmmiimmmmmimimiifm«iiH
Markús
Eftir Ed Dodd
Eyþpr Sfefánsson söng-
sfjóri fimmfugair : o
■
1 DAG á Eyþór Sleíánsson,
hinn ; fjolhæfi listamaður á
Sauðárkróki, tvöfalt afmæli.
Hann er fimmtugur að aldri og
hefir haft söngstjóm á hendi
í þrjátíu ár, Það er nærri ótrú-
legt, hvað Eyþór er fjölhæfur
og vél gefinn listamaður, enda
er hann nú landskunnur mað-
ur fyrir afrek sín á sumum
sviðum listanna. Utan hjeraðs
er hann einkum kunnur fyrir
hin fallegu sönglög sin og af
söng hins blandaða kórs, sem
vakti hrifningu á Jóns Arason-
ar hátíðinni á Hólum og víðar
s. 1. sumar, en einnig af leik
Leikfjelags Sauðárkróks utan
hjeraðs og innan. Auk þéss að
vera söngstjóri og tónskáld er
hann mjög góður leikari og
hefir náð ágætum árangri með
markvissri og vandvirknislegri
leikstjórn sinni. Leikfjelag
Sauðárkróks, sein mun vera
eitt af elstu leikfjelögum hjer
á landi og stendur því á góð-
um og gömlum merg, hefir not-
ið starfskrafta Eyþórs um mörg
ár og hafist stig af stigi eftir
að hann tók við því.
Einnig má geta þess, að Ey-
þór hefir sjálfur sungið tals-
vert sem einsöngvari, enda
hafði hann og hefir vist enn
góða og hreina söngrödd, sem
hann kann að beita af smekk-
vísi. Auk kóra hefir hann
stjórnað hornaflokki, verið
söngkennari við Gagnfræða-
skólann og barnaskólann og
organisti kirkjunnar.
Allt sitt merka og fjölþætta
menningarstarf hefir hann innt
af hendi í hjáverkum, því að
hann hefir jafnframt gegnt
verslunar- og skrifstofustörf-
um — þangað til haustið 1949,
að hann fjekk aðstöðu til að
sinna menningar- og lista-
starfinu einvörðungu, enda var
ekki hægt með góðri samvisku
að leggja það lengur á hann að
vinna svo sem hann varð að
gera dag og nótt.
Það mun vera einsdæmi enn
hjerlendis, hvernig úr þeim
vanda rættist: Hann var gerð-
ur að sönglistar- og leiklistar-
forstjóra fyrir Skagafjarðar-
sýslu, með launum úr sýslu-
sjóði, bæjarsjóði Sauðárkróks
o. fl. samtökum og hefir hann
nú á hendi umsjón með kórum
og kirkjukórum sýslunnar og
söngkennslu yfirleitt. Þetta gleð
ur alla þá, sem kynnst hafa
listagáfum og hinni þrotlausu
þjálfun hans og starfi á mörg-
um sviðum hinna fögru lista.
Afmælisbarninu munu í dag |
berast margar hlýjar kveðjur
og bestu óskir um ný og góð
afrek um ókomin ár. B. K. *
Brjef:
Fáein orð um úf-
flulninpverslunina
MJER HEFIR verið bent á grein
Ólafs Jónssonar: Útflutnings-
verslunin og samtök framleið-
enda.
Maðurinn er með skæting til
mín. Hann líkir mjer við ein-
hverja Þjóðverja í Austur-Þýska
landi, sem verið hafi með full-
yrðingar út í bláinn. Ýms ann-
ar skætingur er í greininni til
mín. Sleppum slíku. Sjaldnast er
það þess vert, að svara skæt-
ingi.
Á einum stað segir Ólafur
Jónsson: „— og heyrst hefur að
ríkisstjórnin væri í miklum
vanda yfir hvað gera skyldi“.
Ójæja, ekki skal um það dæmt,
hvort þetta er rjett eða rangt.
Og hýggja má, að eitthvaðtsjer-
lega veigamikið þurfi nú til, að
setja ríkisstjórn íslands í vanda.
En ef þetta, sem Ólafur Jónsson
segir um ríkisstjórnina, er í raun
og veru satt, mætti ímynda sjer,
að um tvær ástæður gæti verið
að ræða. Önnur ástæðan væri
sú, að það sem Ólafur Jónsson
og fjelagar hans hafa gert og
þykjast geta gert hvað viðkem-
ur sölum á hraðfrystum fiski,
sje nú hreint ekki eins glæsilegt
nje árangursríkt, eins og þessir
menn vilja að fólk trúi. Hvað i
segja eigendur hraðfrystihús-
anna, útgerðarmenn, og enn aðr-
ir aðilar? Eru þeir ánægðir? í-
mynda sjer mætti, að sú hin
seinni ástæða sje sú, að það sem
jeg hefi lagt fyrir ríkisstjórn ís-
lands um þessi mál, sje raun-
hæfara og haldbetra en svo, að
sniðganga megi, samanborið við
árangur Ólafs Jónssonar og fje-
laga hans eftir margra ára
brölt.
Á öðrum stað segir . Ólafur
Jónsson: „Þess skal getið, að verð
það, er sagt var, að Espholin
hefði selt fyrir, eða gæti selt fyr- I
ir, er mun lægra en núverandi
markaðsverð í USA, en sennilega
lítil trygging fyrir, að kaupin
haldi, ef markaður fellur niður
fyrir söluverðið“. En sá vísdóm-
ur! Hvaða tryggingu býður Ólaf- i
ur Jónsson og fjelagar hans, ef
markaður fellur niður fyrir verð
það, sem þeir hafa lofað að
greiða hraðfrystihúseigendum?
Út af markaðsverði í USA nú og
undanfarið, ætti Ólafur Jónsson
að spyrja hraðfrystihúsaeigendur,
hvað þeir hafi fengið mikið í
sínar hendur frá honum og fje-
lögum hans, og bera saman við
það, sem jeg hefi boðist til að
greiða og hefi greitt. En ef mitt
verð er of lágt, og Ólafur Jóns-
son og fjelagar hans treysta sjer
til að greiða hærra, vaknar spurn |
ingin: Hversvegna er ekki hægt1
að greiða bátunum hærra og
sæmilegt verð fyrir fiskinn, og
senda flotann út á veiðar tafar-
laust? ?
Ingólfur G. S. Espholin.
Hltaveiia
GÍSLI JÓNSSON flyiur á Al-
þingi tillögu til þingsályktun-
ar um hitaveitu á Reykhólum.
Tillagan er á þessa leið:
„Alþingi ályktar að fela rík-
isstjórninni að láta gera upp-
drætti og kostnaðaráætlun yf-
ir hitaveitu á Reykhólum í
Austur-Barðastrandarsýslu, er
sje nægileg fyrir fyrirhugaðar
byggingar í landi staðarins.
Skal verkið framkvæmt í sam-
ráði við skipulagsnefnd Reyk-
hóla og því lokið á þessu ári.
Kostnaður við framkvæmd-
ina greiðist úr ríkissjóði.“
í greinargerð segir:
„Með því að búast má við,
að á næstu árum aukist all-
verulega byggð á Reykhólum,
m. a. vegna þess, hversu mik-
ill jarðhiti er þar til afnota,
bæði til upphitunar á húsum
og til annarra þarfa, er sýnt,
að nauðsynlegt er að láta sem
allra fyrst undirbúa hitaveitu
fyrir staðinn, er nægileg sje
fyrir væntanlega byggð þar. Og
þar sem ríkissjóður er nú orð-
ið einn eigandi jarðarinnar og
allra hitarjettinda, er eðlileg-
ast, að hann láti framkvæma
verk þetta.
Það er á engan hátt æskilegt,
að hvert hús, sem á hita þarf
að halda á framtíðinni, þurfi
sjálft að standa undir þeim
kostnaði, sem af því leiðir að
leggja aðalhitaæð að hver, enda
miklu kostnaðarsamara en að
þetta sje gert skipulega fyrir
byggðina í heild. Jafnskjótt og
kostnaðaráætlun og uppdrátt-
ur liggur fyrir, er unnt að á-
kveða, á hvern hátt .veitunni
verður komið upp og hvernig
hún verður starfrækt.
Rjett þykir, að verkið sje
framkvæmt í samráði við skipu
lagsnefnd staðarins, sem kunn-
ugust er þörfum hans og á
hvern hátt hugsað er að nota
jörðina í framtíðinni".
Telur loffárásir á Kína
ekki ávinning
NEW YORK, 22. janúar. —
Franski aðalfulltrúinn hjá S. Þ.
hefir lýst því yfir, að Frakkar
rnuni beita sjer gegn hverri til-
lögu, sem gerði ráð fyrir loft-
árásum á kínverska grund. Það
græðir enginn á að lenda í striði
við Kína. —Reuter-NTB
Samgrónir tvíburar.
SYDNEY — Tíu mánaða gaml-
ir samgrónir tvíburar dóu ný-
lega í Ástralíu. Höfuð tvíbur-
anna voru samföst. Þeir dóu með
fimm mínútna millibili.
Vjelbátur dreginn
fil Rvíkur
UM kl. 10 s. 1. sunnudagskvöld
kom hingað breski togarínn
„British" frá Grimsby með
vjelbátinn Ágúst Þórarinsson,
en stýri bátsins hafði bilað, er
hann var í róðri NV af Snæfells
nesi. —
M:b. Ágúst Þórarinsson hafði
verið skoðaður fyrir þremur
dögum af skipaeftirlitinu, er
hann. var í þessari sjóferð. —
Skipverjar voru að draga lín-
una er stýrið bilaði. — Mun
stýrisásinn hafa brotnað. Var
skipjð alíjörlega ósjálfbjarga,
og stormur skollinn á.
Togarinn „British“ kom m.b.
Ágústi Þóraripssyni til aðstoð-
ar, og bað skipstjórinn á vjel-
bátnum togarann að draga bát-
inn í var. En hinn enski skip-
stjóri Houn hafa misskilið
þetta, og eftir að vírum hafði
verið komið milli skipanna,
hjelt hann viðstöðulaust áfram
uns komið var til Reykjavíkur
eftir 10 stunda siglingu.
muginn gegn
Eisenhower
PARÍS, 22. janúar. Eisenhow-
er skreppur til Parísaí á mið-
vikudaginn. Hafa kommúnistar
í Frakklandi hvatt menn til hóp
fundar fyrir framan Astoria-
gistihúsið til að láta í ijósi van-
þóknun sína á hershöfðingjan-
um og störfum hans. Talið er,
að múgfundur þessi verði bann
aður. —Reuter-NTB
— Ferðaskrifstofan
"vtq—r*
Framh. af bls. 6.
ið verði einnig þegið með þökk-
um úr hendi þátttakenda í skíða-
ferðum á vegum Ferðaskrifstof-
unnar. En svo er það með fjöll-
in, snjóinn og sólskinið, sem mjer
skilst að sje það, sem mestu varð-
ar hjer. Meðan að enginn getur
helgað sjer eignarrjettinn á þess-
ari þrenningu, mun Ferðaskrif-
stofan halda áfram, við hlið
skíðafjelaganna, að stuðla að
því, að sem flestir geti átt kost
á þvi að njóta þeirrar gleði og
hollustu, sem fylgir því, að sækja
til snæviþakinna fjalla.
Þorleifur Þórðarson.
Ibúð
S 4 herbergi og eldhús í Kópa-
| vogi til leigu gegn standsetn-
: ingu. Miðstöð lögð. Tilboð send-
| ist afgr. blaðsins merkt: „Ibúð
|, — 212“.
r " 'v.Jf* l GOT A YEN TO
Gí£JV/ST£fí/ 1 DIDN'T KNOW J COME NOR.TH FOR TMAT
YOU AT F/RST WITHOUT THEM / JOB YOU PROMISED M£/
ENISTEk... !
ON THAT
want you
Wt
LANt, 1
SAV60
TH
m
1' r~”
I
von Ið
búi’. ' ;
flóki.ú
Grírnur. ::ð var ekki 2) — Jeg kom hingað norð-j 3) — Jeg skil. Við þurfum 4) — Láki, má jeg kyt
. g þí. kkti þig. Þú ert ur eins og þú sagðir mjer. — ekki tala nteira um það. En þig. Þetta er Grímur vinur |
ka af þjer skogg- .Bæðí vantoði mig eitthvað að köm lu nú Grímur. Jeg ætla að minn. Hann bjargaði mjer út >
gera ........ og ef satt skol'kýnna-þig fyrir fjelöguir.tm. úr ógöngum í álftaleiðangrin 1
segja, var löggi eirn farirm að j
verða nokkuð nærgöngull. ' 1
um síðast. Nú vil jeg, að hann
verði t kmn í fjelagsskapinn. 1
i