Morgunblaðið - 11.05.1951, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.05.1951, Blaðsíða 1
16 síður 38. árgangur. 104. tbl. — Fösíudagur 11. maí 1951. Prentsmiðja Morgunblaðsins. ISeldur rolaðl lii á duef- Fkráriœndmniiu í gæsr Hargar þrautir þó éleystar þar emrþé Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. PARÍS, 10. maí: — Eftir dagskrárfundinn í París í dag gera menn sjer heldur meiri vonir um árangur en fyrr. Rússneski varautan- rlkisráðherrann, Gromikó, lýsti yfir, að Rússar gæti fallist á 2. tillögu Vesturveldanna um dagskrá fyrirhugaðs fjórveldafundar, ef lagfærð væri tvö atriði. . Formælandi Vesturveldanna^ sagði að fundi loknum, sem var l sá 48. í röðinni, að aðgerðarleys- ið væri nú rokið út í veður og vind, en enn þá væri margir erf-,| iðleikar, sem þyrfti að sigrast á. VIBTAL ViÐ FRJETTAMENN I Gromikó sagði í langri tölu, að Rússar hjeldu fast við skoðun síaa um vígbúnaðinn. Að fundi lókr.um veitti hann blaðamönn- um áheyrn, aldrei þessu vant. TVÆR BREYTINGAR Tvær eru þær breytingar, sem Rússar vilja gera á tillögum Vesturveldanna um dagskrá. Sú fyrst, að umræður um afvopnun l>ýskalands færist fram á dag- skránni, en Vesturveldin hafa gert ráð fyrir þeim seinast.'—- í annan stað verði rætt um Atlants : hafssáttmálann og herstöðvar Bandaríkjanna í öðrum heims- álfum. Kynna sjer ÍGÍfhernað EUNDÚNUM, 10. maí: — Sjer- fræðingar 9 ríkja eru á förum til Kóreu, þar sem þeir kynna sjer lofthernað. M.a. senda Danir þangað sjerfróðan mann í þessu skyni.____________ Kommúnislum ekki vært í Pakislan KARAKI, 10. maí: — í dag hófst í Pakistan leit að kommúnistum, sem sjerstaklega skaðsamlegir verða taldir. Níu forsprakkar þeirra hafa þegar verið teknir Höndum. í hópi þeirra 6, er hand teknir voru í Lahore, er aðalrit- ari verklýðssambandsins í Pun- jab, Mohammed Afzal. Verkfallið var ólö^jegt STOKKHÓLMI, 10. maí — 1 dag voru 137 verkamenn ið.juvers í Svíþjóð dæmdir í 75 til 150 kr. sekt hver fyrir þátttöku í ólög- mætu verkfalli. 35 voru sýknaðir með öllu. Verkamennirnir voru óánægðir með einn verkstjórann og heimtuðu, að hann væri rekinn. IÞví var ekki sinnt. Lögðu þeir þá niður vinnu, en vinnudómurinn kvað upp þann úrskurð, að verk- fallið væri ólöglegt. —NTB. Vlðhafnarmikil hjónavígsla MUNCHEN, 10. maí — 1 dag gengu þau í hjónaband Otto von Habsburg, erkihertogi, sá er gerir tilkall til krúnu Habsborgarætt- arinnar, og þýska prinsessán Regina von Saxen-Meiningen. — Hann er 38 ára, en hún 26. Vígsl- an var borgaraleg, en mikið var um dýrðir, svo að 19. öldin hefði jafnvel verið fullsæmd af. Rússneskur liðsfsringi flýr fi! V-B$rlínar BERLÍN, 10. maí -— Rússnesk- nr liðsforingi, Vassili Ivano- vitsj að nafni, hefir gefið sig fram við bresku yfirvöldin í V,- Berlín og lcitað þar hælis sem flóttamaður. Var liðsfóringinn nýkominn úr lcyfi heima í Rúss landi. Póttist hann þá sjá, hversu „allt var óbærilegt aust- ur þar“. Bresk yfirvöld í borg- inni hafa tillcynnt Rússum, að þau hafi orðið við beiðni manns ins, og muni fá honum griðland —Reuter-NTB. ÍSfiufningurinn til Kína fakmarkaður LUNDÚNUM, 10. maí — Hartley Shav/cross, viðskipta- málaráðherra Breta, skýrði frá því í neðri málstofunni í dag, að breska stjórnin muni fallast á þá tillögu Bandaríkja manna, að flyt.ja ekki hráefni til Kína, sem hafi hernaðar- legt gildi. Þá sagði ráðherr- ann, að stjórnin hefði gefið sumum nýlendunum fyrirmæli um að senda ekki meira tog- leður til Kína á þessu ári. Kvað ráðherrann togleðurs- innfluting Kínverja hafa ver- ið óeðlilega mikinn á fyrsta ársf jórðungi þessa árs, og má gera ráð fyrir, að þörfum þessa árs sje fullnægt að öðru leyti en því, sem fer til hern- aðar. —Rcuter-NTB. HERLIÐIÐ ER ADEIH5 TIL VARNAR KHÖFN, 10. maí: — Sjóhernaðar- fræðingur sænska dagblaðsins Dag- ens Nyheter ræddi í gær um várnarsamning ís lands og Banda- ríkjanna og '«n u bandarísks herliðs til íslands. — Ræddi hann um þetta frá hernað- arfræðilegu sjón- armiði. — Taldi hann aðgerðir þessar aðeins til varnar. Herstöðv- ar Atlantshafs- bandalagsins á Is- landi væru ómiss- andi til að verja skmaleiðirnar yf- ir Atlantshafið gegn kafbátum Rússa, sem bæki- stöðvar hafa í Murmansk. Hann telur að með þess- um aðgerðum sje og komið í veg fyrir að Rússar hernemi landið með skyndiárás. — Páll. Tveir ríkisíorsetar eru í Panama sem stendur áí!:ed Rcbens Sá, som selfur var af, nýlur lulllingls lög- reglunnar, svo að bingið fær ekki að gert Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. BALBOA, 10. maí: — í dag sátu hvorki meira nje minna en 2 for- setar að ríkjum í Panama. Annan þeirra hafði þjóðþingið tilnefnt, en lögreglan fjellst ekki á kjör hans. Sat hann rólegur heima hjá sjer í hópi vina sinna. Allir voru þeir óvopnaðir, en sannfærðir um engu a<? síður, að forsetinn gæti setst að í forsetahöllinni. Hinn hefir þjóðþingið sett af, en það virðist ekki nóg, því að hann hefir búist um í forsetahöllinni, og umhverfis hann sitja vinir hans gráir fyrir járnum. Úti fyrir er sterkur hervörður vopnaður vjelbyssum. láfinn Eans Hann varS verkamálaráðherra eftir Aneurin Bevan, er sagði sig úr ríkisstjórn breska Verka- mannaflokksins fyrir skömmu Engin sljórnarbreyl- ing í vændum STOKKHÓLMI, 10. maí: — Blað í Stokkhólmi hefir skýrt frá þvi, að breytingar í ríkisstjórninni væri í vændum. Væri i ráði að Bændaflokkurinn tæki þátt 1 henni. Erlander, forsætisráð- herra, hefir nú borið þessar sögu- sagnir til baka. — NTB. PRAG, 10. maí — Hollenski kaup- sýslumaðurinn Johannes Louwers var dæmdur í 15 ára nauðungar- vinnu í Prag í fyrra. Var hann sakaður um njósnir í Tjekkó- Slóvakíu. Hann hefir nú verið lát- inn laus og er lagður af stað heim til Hollands. —Reuter-NTB. Htkil spilling ríkis- sljórnar Kóreu ^ FLSAN, 10. maí — Leo Shi Yong, • faraforseti S.-Kóreu, sagði af sjer í dag í andmælaskyni við þá spill- ingu, sem hann telur hafa grafið um sig innan r-íkisstjórnarinnai'. Sagði Yong, að borið hefði verið fje á ráðherra og háttsetta liðs- foringia. „Ríkisstjórnin ber ábyrgð á þessu, og þar sem leiðrjetting hefir ekki fengist, hefi jeg engin önnur ráð en segja af mjer“. —Reuter-NTB. SShMu sýninguna LUNDÚNUM, 10. maí: — Dönsku konungshjónin eru enn ‘í Lund- únum. í dag skoðuðu þau þann hluta sýningarinnar miklu, sem er á suðurbakka Thems-árinnar. FeikiSegyr olíubruni í Ausfurrski VÍN, 10. maí: — Fvrir liálfum mánuði kom upp eldur í Mat- zen-olíusvæðinu á hernáms- svæði Rússa í Austurríki um 50 km norðaustan Vínarborg- ar. Talið er, að 600 til 1000 smái. olíu og millj. rúmfet af gasi brenni þar daglega. Eldurinn magnaðist enn í dag, og stóðu eldsúlurnar 16 m í loft upp. Svört reyk- og sótský hylja hjeraðið. Fólk verður sótsvart í margra km fjarlægð. Svo ægilegur er hit- inn, að slökkviliðsmenn verða að halda sig í 200 m fjarlægð frá eldinum. — Reuter-NTB. Bandai íkjamenn Eeggfa að Döniim, að þeir lengi erþjónustulímann OEIRÐIR Svona var umhorfs í kvöld, en áður hafði komið til óeirða, þar sem fjellu 3 menn, en yfir hundr- að særðust. NAM STJÓRNARSKRÁNA ÚR GILDI Ástæða þessara átaka er sú, að Arias, sá er nú hefir verið settur af, nam úr gildi stjórnarskrá landsins frá 1946 upp á sitt ein- dæmi, en úrskurðaði, að stjórnar skráin frá 1941 skyldi ganga í gildi í staðinn. Þetta var á mánu- daginn var. Þinginu þóttu þetta nokkuð skrýtnar aðfarir og óþol- andi. Þegar hann vildi svo bæta fyrir brot sitt vegna þeirrar and- úðar, er hann sætti, var það um seinan, því að þingið hafði vikið honum frá, og skipað varaforset- ann, Arosmena, í staðinn. STUÐNINGUR LÖGREGLUNNAR Nýir erfiðleikar skutu upp kollinum, er lögreglustjóri lands- ins lýsti yfir, að lögreglan mundi framvegis skoða Arias sem lög- legan forseta Panama, og vernda hann með öllum sínum tækjum, ef nauðsyn krefði. ALLT Á RINGULREIÐ Þingið hefir líka gert ályktun, þar sem þess er krafist, að Arias verði kvaddur fyrir rjett, sak- . aður um stjórnarskrárbrot. Sam- þykkt þingsins um að vikja hon- um frá er líka að öllu leyti lög- mæt og bindandi eftir stjórnar- skránni, en meðan hann hefir alla lögreglu landsins um 3000 manns á sínu bandi, er ekki sennilegt, að Arosmena komist í forseta- höllina. Segja má, að allt hafi verið á ringulreið í landinu í kvöld. Öll opinber starfsemi hefir stöðvast til fulls. Einkaskeyti til Mbl. frá NTB. KAUPMANNAHÖFN, 10. maí: — Dönsku morgunblöðin segja frá því, að danska ríkisstjórnin hafi fengið tilmæli frá bandaríska sendiherranum um, að herskyldutiminn verði lengdur úr 10 mán- uðum í 3 misseri. BER UNDIR LANDVARNARÁÐIÐ Bandarísku yfirvöldin eiga að hafa bcðið um svar um hæl. Berlingske Tidende segir, að hergagnahjálpin við Dan- mörku verði stöðvuð, ef ríkis- stjórnin sinni málaleituninni ekki. Danir eru þeirrar skoðunar, að þetta mál verði að taka til meðferðar í landvarnaráði Atlantshafsríkjanna. I.iggi í augum uppi þeir erfiðleikar, sem lenging herþjónustutím- ans mundi hafa í för með sjer. EKKI í NOREGI NTB hefir snúið sjer til norska utanríkisráðuneytisins, þar sem oss var tjáð, að ekki hcíði borist nein tilmæli frá Bandaríkjunum um, að herþjónustutíminn í Norcgi yrði lcngdur. RYSKINGAR STÚDENTA OG LOGREGLUIHAMBORG HAMBORG, 10. maí: — í dag kom til átaka í Hamborg milli lögreglu og 1200 stúdenta og annarra æskumanna. Stofn- uðu þeir til hópgöne'u, er stefnt var lil ráðhússins, en 100 ■ lögreglumenn skárust í ' leikinn og reyndu að sundra hópgöngumönnum, en það tókst ekki fyrr en beitt var vatnslöngum. Sagt var, að sumir stádentanna hafi notað hnífa. Voru þeir að andmæla því, að fellt hafði verið úr gildi ákvæði, er heimilaði þeim að ferðast með járnbraut um við niðursettu verði. — Nokkrir særðust. — Reuter-NTB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.