Morgunblaðið - 12.05.1951, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.05.1951, Blaðsíða 6
6 IUORGVNBLAÐIÐ Laugardagur 12. maí 1951, tfVðistiHiifetft Ctg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 16.00 á mánuði, innanlantia. í lausasölu 75 aura eintákið. 1 króna með Lesbók. Villandi frdsögn Þjóð- viljans um leigumiðlun Vinnufriður eöa uppiausn og öngþveiti TÆP VIKA er nú eftir af þeim tima, sem til stefnu er, til þess að ná samningum milli vinnu- veitenda og þeirra verkalýðsfje- laga, er sagt hafa upp samning- um og boðað verkfall hinn 18. þ. m., ef samkomulag hefir ekki náðst fyrir þann tíma. Því verð- ur engan veginn neitað að mikill fjöldi fólks horfir með kvíða til þeirrar ógæfu, sem langvarandi verkföll og vinnudeilur hlytu að hafa í för með sjer fyrir það og raunar þjóðina í heild. Veturinn, sem nýlega hefur verið kvaddur, var mjög erfiður. Ekki aðeins bændum og búaliði heldur al- menningi við sjávarsíðuna. Afli á vetrarvertíð hefur yfirleitt ver- ið mjö tregur. í mörgum ver- stöðv'um hefur orðið tilfinnan- legur aflabrestur. Hin miklu snjóþyngsli hafa einnig valdið því, að framkvæmdir t. d. við byggingar og aðra útivinnu, hafa verið í minnsta lagi. Allt þetta hefur haft í för með ,sjer mjög rýra atvinnu hjá fjölda manns og jafnvel atvinnuleysi á einstökum stöðum. Almenningur kaupstaða og sjávarsíðu mætir sumrinu þessvegna við erfiðar aðstæð- ur. Þetta fólk er þess mjög vanbúið að mæta verkföllum og vinnudeilum. Því ríður þvert á móti mest á hinu, að njóta stöðugrar og góðrar sum aratvinnu. Ef litið er á þarfir atvinnu- veganna, gegnir svipuðu máli. Mikilsvert er að framleiðslan geti haldið áfram óhindruð. Vöruskiptajöfnuður okkar við útlönd hefur á fyrstu fjórum mánuðum ársins orðið óhag- stæður um tæpar 30 milj. kr. Stöðvun framleiðslutækjanna um lengri eða skemmri tíma hlyti að gera hann ennþá ó hagstæðari á næstu mánuðum. Auk þess væri hinu aukna viðskiptafrelsi þá stefnt í mikla hættu. Forsenda þess er beinlínis sú, að framleiðslan geti gengið vel og örugglega. Niðurstaðan er með öðrum orðum sú, að verkföll og fram leiðslustöðvun nú í sumar- byrjun eftir hinn erfiða vetur væri hreinn voði, ekki aðeins fyrir þær stjettir, sem fyrst og fremst eiga þar hlut að máli, heldur og fyrir þjóðina í heild. Hjer skulu ekki ræddar þær höfuðkröfur, sem þær deilur snúast um, sem nú ógna atvinnu- öryggi landsmanna. Það hefur oft verið gert áður. En á það skal aðeins bent að engar líkur benda til þess að launþegar geti bætt hag sinn og tryggt afkomu sína með því að knýja fram fulla mánaðariega vísitöluuppbót á laun sín. Afieiðing þess hlyti að verða ör vöxtur verðbólgunnar og þverrandi atvinnumöguleik- ar. —■ Atvinnurekendur og launþeg- ar hafa fyrir nokkru tekið upp viðræður sín í milli. Ennfremur hefur verið skipuð sjerstök nefnd af hálfu vinnuveitenda og Al- þýðusambands íslands til þess að rfcða við ríkisstjórnina um þessi ifaál. Um það, hver árangur verð- úr af þessum tilraunum til þess áð ná samkomulagi, skal ekki fullyrt. En þess verður að vænta 'að allra ráða verði freistað til þess að koma í veg fyrir það öngþveiti og upplausn, sem hlyti að verða afleiðing víðtækra verk- falla og framleiðslustöðvunar í j byrjun mesta annatíma árs- ins. | Auðsætt er að kommúnistar ætla sjer að nota þessar kaup- j J deilur í áróðri sínum gegn ráð- ! stöfunum lýðræðisfIokkanna í , ‘öryggismálum þjóðarinnar. En J almenningur mun ekki láta ! fimmtu herdeildinni takast að blanda innbyrðis ágreiningi um kaup og kjör saman við lífsnauð- synlegar ákvarðanir í öryggis- og utanríkismálum. Kommúnistar eru allstaðar eins. Takmark þeirra er alls- staðar það sama, hvort heldur er í innanlandsmálum eða út á við: Að grafa undan hags- munum lands og þjóðar, spilla friði og leiðu hrun og ógæfu yfir almenning. Jarðvegur þeirra eru rústir og niðurlæg- ing. En íslenska þjóðin vill ekki skapa þeim þennan jarðveg. Hún vill lifa í friði í landi sínu, tryggja lífskjör sín og sjálfstæði og öryggi þess lands, sem hún byggir. Eðlileg og óhjá- kvæmileg ráðstöfun YFIRLEITT má segja að blöð á Norðuriöndum hafi tekið ráðstöf unum ríkisstjórnar íslands í ör- yggismálunum mjög á sömu lund. Þau telja þær sjálfsagðar og eðli- legar. Þau ummæli, sem í stystu máli gera grein fyrir afstöðu fslend- inga í þessum efnum eru á þessa leið: „ísland er á hernaðarlega mikil vægum stað innan umráðasvæðis Norður-Atlantshafsríkjanna. Það er gjörsamlega varnarlaust og það skýrir óskir íslendinga um að fá ameríska hervernd í land- inu sjálfu. Þetta þýðir öryggi gegn árás á ísland og um leið styrkir það varnir þær, sem Atlantshafsríkin hafa komið upp til varðveislu friðar og frelsis“. Þetta var umsögn Social-Demo- kraten í Kaupmannahöfn. Annað blað kemst þannig að orði að með vörnum íslands hafi verið fyllt upp i hættulegt skarð í vörnum Atlantshafsríkjanna. Það telur ráðstafanir íslendinga eðlilegar og óhjákvæmilegar. Það sætir engri furðu þó að Norðurlanda- þjóðirnar skilji aðstöðu okkar ís- lendinga fvllilega í þessum efn- um. Sjálfar vinna þessar þjóðir kappsamlega að eflingu land- varna sinna og njóta til þess að- stoðar Norður-Atlantshafsbanda- lagsins, sem þær eru þátttakend- ur í. Hinar norrænu þjóðir eiga fvrst og fremst eitt takmark með þátttöku sinni í alþjóð- legu samstarfi, sköpun friðar og öryggis í heiminum, friðar fyrir þær siálfar og allar aðr- ar þjóðir. Það er þessve"na hámark brjálæðisins þegar kommúnistar halda því fram að þessar þjóðir sieu að undir búa árás á Sovjetríkin!! E. t. v. sýnir sú staðhæfing betur en nokkuð annað, hversu þeir eru órafjarri öllum raunveruleika og sannleika. í SUNNUDAGSBLAÐI „Þjóðvilj- ans“ er á öftustu síðu birt feit- letruð rammagrein um húsnæðis málin og starfsemi leigumiðlunar þeirrar, sem Fasteignaeigendafje lag Reykjavikur er nú að gera tilraun með. Eru þessi skrif blaðs ins talin byggð á viðtali við fram kvæmdastjóra Fasteignaeigenda- fjelagsins. Þar sem viðtal þetta er túlkað á mjög villandi hátt, vil jeg taka fram eftirfarandi um starfsemi leigumiðlunarinnar, og er það í meginatriðum samhljóða því, er jeg tjáði ritstjóra Þjóð- viljans, þótt hann hafi af ein- hverjum ástæðum ekki hirt um að fara rjett með þær upplýsing- ar: * Til leigumiðlunarinnar hafa leitað um *200 manns og beðið um húsnæðí. Við lauslega athugun hefir komið í ljós, að allmargt af því fólki er ekki raunverulega húsnæðislaust heldur hefir það búið í ljelegum íbúðum eða hjá skyldfólki sínu. Mun naumast meira en helmingur umsækjenda um húsnæði vera húsnæðislaus vegna brottfalls festingarákvæðis húsaleigulaganna. „Þjóðviljinn“ segir, að illa gangi að telja hina húsnæðislausu og segir mig hafa afsakað það með því, að stæði á fulltrúum Leigjendafjelagsins til að aðstoða við talninguna. Þetta er villandi frásögn. Fyrir alllöngu síðan skýrði jeg „Þjóðviljanum" frá tölu umsækjenda um íbúðir. Hins vegar sagði jeg, að ekki hefði far- ið fram nein talning á því fólki, sem umsækjendur hefðu á fram- færi sínu, enda skiptir það ekki miklu máli fyrir leigumiðlunina sem slíka. Gat jeg þess einnig, að ekki hefði heldur verið athugað hverjir af umsækjendum væri algerlega húsnæðislausir, en reynt myndi verða að kanna það í ramráði við Leigjendafjelagið. Það skal játað, að treglega hef ir gengið með að fá íbúðir, en þó ef til vill.ekki ver en við var að búast, miðað við allar aðstæður. Þó hefir leigumiðlunin þegar leigt milli 20 og 30 íbúðir, og fyrir hennar tilstilli hafa verið fram- lengdir leigumálar við allmarga leigjendur, sem sagt hafði verið upp ibúðum sínum. Nokkrir, sem látið höfðu skrá sig, hafa síðan útvegað sjer íbúðir sjálfir. Er það auðvitað ekkert undrunar- efni, því að leigumiðlun hefir ekki áður tíðkast hjer í bæ og þess því ekki að vænta, að allir ( húseigendur, sem laust húsnæði hafa snúi sjer til hennar. Var líka síður en svo gerð nokkur tilraun til að gylla horfurnar um öflun húsnæðis fyrir þeim, sem til leigumiðlunarinnar hafa leit- að, heldur voru þeir einmitt hvattir til að gera sjálfir tilraun- ir til að fá sjer húsnæði, ef þess væri kostur, því að leigumiðlun- in væri aðeins tilraun og ekki væri hægt að gefa neina trygg- ingu fyrir því, að hún gæti út- vegað þeim húsnæði, sem til henn ar leituðu. Orsakir hins tiltölulega litla [ framboðs á húsnaéði eru ýmsar,' en megin ástæðan mun þó sú, að margir vilja ekki leigja íbúðir þær, sem þeir hafa sagt upp leigu afnotum áf, fyrr en víst er, hvort þeir geta með góðu móti losnað við núverandi leieiendur. Er það baeði, aá fæstir húseigendur j munu, ne'ma í ítrustu nauðsyn, ' bera út leigjendur sína, ef þeim hefir ekki tekist að fá sjer neinn samastað 14. maí, o® einnig hafa bollaleggingar um það, að ekki muni vera löglegt að segja leigj- endum upp fyrr en 14. maí, og þá með þriggja mánaða fyrirvara gert það að verkum, að ýmsir hús eigendur þora ekki að leigja aft- ur íbúðir, fyrr en úr þessu fæst skorið. Þessi skilnin^ur er að vísu vafalaust röng túlkun á um- ( ræddu ákvæði húsaleigulaganna, ( en hvað um það, áhrifin eru engu að síður þau, að ýmsir eru hik- andi við að ganga frá leigumál um fyrr en eftir 14. maí. Unnið er nú að því á skrifstofu Fasteignaeigendafjelagsins að ná tali af sem flestum þeirra hús- eigenda, sem vitað er um, að sagt hafa upp leiguíbúðum frá 14. maí til þess að athuga, hvort þær hafi þegar verið leigðar. Meiri hluti þeirra íbúða, sem nú þegar hefir verið spurt um, hefir verið leigður áfram sömu leigj- endum. Mun athugun þessari haldið áfram alla þessa viku. Leigumiðlun er fyrirtæki, sem mikilvægt er, bæði fyrir leigjend ur og húseigendur, að hægt sje að starfrækja. Er því áreiðanlega engum greiði gerður með því að reyna að gera lítið úr slíkri starf semi, allra síst leigjendum. Það vita allir, að húsnæðisvandræðin eru nú mikil, en ekkert bendir til þess, að þau vandræði hafi aukist við það, að húseigendum hefir verið aftur fenginn sá sjálf sagði rjettur að fá að ráða því, hvaða fólk býr í húsum þeirra. Sum blöð hafa Iagt sig eftir því að svívirða það fólk, sem með dugnaði og ráðdeildarsemi hefir eignast hús yfir höfuðið, og þess jafnvel krafist, að opinberir aðil- ar fengju að setja húsnæðislaust fólk eftir eigin mati inn á heim- ili þess. Er vert fyrir þá, sem lengst hafa viljað ganga í ofbeld- isárásum sínum á heimilishelgi og eignarjett að gera sjer það ljóst, að ekki er hægt að aðgreina húseigendur og leieiendur sem öreiea og burgeisa, því að margir húseigendur eru áreiðanlega miklu ver stæðir fjárhagslega en margir leigjendur, þótt auðvitað sje einnig í hópi leigjenda margt mjög efnalítið fólk, sem ekki hef- ir haft aðstöðu til að eignast hús. Eina leiðin út úr húsnæðis- ' vandræðunum er að sjálfsögðu sú að reisa fleiri íbúðarhús. Um það atriði ættu allir að geta verið sammála. Magnús Jónsson. Rauða akurliljan AUSTURBÆJARBÍÓ sýnir um hvítasunnuna nýja litmynd sem heitir „Nýir sigrar Rauðu Akur- liljunnar". Kvikmynd þessi er byggð á gömlum frásögnum af hetjudáðum Englendingsins Sir Percy Blakeney, sem á tímum stjórnarbyltingarinnar gekk mjög djarflega fram í því að bjargá frönskum aðalsmönnum undan ofsóknum Jakobínanna og frá fallöxinni. Sögurnar af Rauðu Akurliljunni, eftir Orczy barón- essu, eru vinsælar og hafa víða farið sigurför. Aðalhlutverkín f myndinni leika David Niven og Margaret Leighton. Tvær sænskar kvikmyndir STJÖRNUBÍÓ sýnir 2 sænskar kvikmyndir. Annað er söngva- myndin „Prins Gustaf“. Segir hún frá stúdentalífinu í Uppsöl- um á dögum Óskars I. Svíakon- ungs, þegar hann sendi syni sína í skóla. Aðalhlutverkin leika Alf Kjellin og Mai Zetterling. Hin J myndin er ætluð fyrir yngri áhorfendurna og er um Línu Langsokk, „sterkustu stúlku í j heiminum", sem fer í ferðalag út í heim. Aðalhlutverkið leikur i Viveca Serlachius. —Víkverji skrilarr —---- LR DAGLEGA LÍFINL Alþjóða fegurðar- samkeppni. ISAMBANDI við Bretlandshá- tíðina efnir breska tímaritið „Dance News“ til alþjóða feg- urðarsamkeppni kvenna, sem vafalaust mun vekja athygli víða um heim. Fyrir utan heiðurinn af því að vera kjörin fegurðar- drotning Bretlandshátíðarinnar, fær sigurvegarinn eitt þúsund sterlingspund í verðlaun (45.000 krónur), en alls verða veitt fimmj verðlaun. Fegurðarsamkeppnin innan Bretlands fer fram í mörgum borgum, en ætlast er til, að þátt-| takendur frá útlandinu keppi í danshöllinni Lyceum í London þann 23. júli í sumar. Tekur íslensk stúlka þátt? HVAÐ kemur þetta okkur við? gætu margir spurt? Það fer alt eftir þvíy hvernig á málið er litið. — Árum saman hefir ekk- ur verið sagt, að íslenska kven- fólkið beri af öðru hvað fegurð snertir og hjer er tækifæri til að fá úr því skorið, hvort þær full- yrðingar eru annað en kurteisis- hjal útlendinga, sem koma til íslands. Ef hjer á landi er slíkt úrval friðra kvenna, að annað eins er ekki til annarsstaðar, þá ætti ís- lensk eða íslenskar stúlkur að taka þátt i þessari alþjóða-feg- urðarsamkeppni. Þyrfti að velja vel AN EFA efnir Fegrunarfjelag Reykjavíkur til fegurðarsam- keppni í sumar eins og gert var í fyrra. En það verður varla fyr en á afmæli Reykjavíkur í ágúst-j mánuði. Væri nú ekki tilvalið, að einhver fjelög tækju sig saman um að efna hjer til fegurðarsam- keppni fyr í sumar og velja nokkrar fegurstu stúlkurnar og senda þær síðan til London til að taka þar þátt í alþjóðasam- keppninni. En þá þyrfti að velja vel. Keðjubrjefafargan KEÐJUBRJEFIN eru komin á stað, rjett einu sinni. Fjöldi manns hjer í bænum hefir undan- farna daga fengið keðjubrjef í pósti, þarsem mönnum er hótað óláni miklu, ef þeir sendi ekki 10 manns samskonar brjef, en gæfa á að fylgja því að senda þessa vitleysu til kunningjanna. Besta ráðið til að kveða þetta niður undir eins er að taka ekki mark á hótanabrjefunum. Skothríðin við Akurey. yESTURBÆINGUR skrifar á V þessa leið: „Það er vor í Vesturbænum þessa dagana og við fögnum þvi. Aldrei þessu vant er sjórinnt spegilsljettur út í hafsauga og farfuglarnir að koma með sínum yndislega söng. En hinir smáu íbúar Akureyjar, fuglarnir þar, hafa. aðra sögu að segja. Daglangt má sjá hraðskreiða vjelbáta ösla í kringum eyna og skotin úr byss- unum kveða við í sífellu. I hljóði bölva jeg vonsku mann anna og hvellirnir trufla mig í að njóta fegurðar vorsins þarna i Selvörinni. En þegar jeg sný von- svikinn heim í kvöldmatinn bíð- ur mín rjúkandi fugl, sem konan er nýbúin að kaupa, og var skot- inn í gær, og jeg blessa hana fyr- ir huguisemina.“ Ljótt að heyra EKKI ER hún falleg lýsingin á vorinu í Vesturbænum, en því miður er hún sönn. Nú er komið að varptíma hjá fuglunum og það ætti ekki að vera til of mikils mælst að skot- menn leggi niður sína þokkalegu iðju rjett á meðan á varptíman- um stendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.