Morgunblaðið - 04.07.1951, Page 10

Morgunblaðið - 04.07.1951, Page 10
HORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 4. júlí 1951 r 10 grtiiiiiiiuiititiiiiuinuu'i Framhaldssagan 3 IIIIIIIIIIIIIIUIUUIIIIIIIIUIIIIUUIIIIIIIIfUIUIIIIIIIIIIIIIIUIIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIUIMIIIUIIIIIIIIIi 'i I STÍLKAN 0G DAUÐINN I ' .IIIIIIIIIIIIIUIIIIIIIIIIIimilllllMIIIIIIIIIIIIUU Skáldsaga eftir Quentin Patrick IIIIIIIHIIIIIIIIII* þeirra sem síðastir höfðu komið inn í anddyrið. Á eftir þeim kom Appel. Hann var óg-iftur en sást oft í fylgd með Marciu Parson. Hún var yngst og vinsælust af kennslukonunum. Þetta var vægast sagt óþægilegt augnablik. Við komumst ekki burt. Við urð- um að fara inn í salinn og jeg hafði gefið Grace aðgöngumiðann minn. Við urðum að láta eins og við værum hingað komnar til að fara í leikhúsið. Þau gengu öll fjögur til okkar, Penelope Hud- nutt í broddi fylkingar. Hún var há og grönn í svörtum flauels- kjól, og hreifði sig eins og drottn- ing. „Jeg sj'e 'að þið hafið komist hingað heil á húfi“, sagði hún. Hún talaði með áberan li enskum áhersl um. „Hvar eru Norma og Grace?“ Penelope hafði óhugnanlega hæfileika til að muna nöfn. Hún mundi eftir skíinarnafni okkar allra. Jeg varð fyrir svari og sagði að við værum að bíða eftir þeim. Hún kinkaði kolli og hjelt áfram inn ásamt Hudnutt sem brosti sínu ópersónulega brosi .... eins og hann vissi að hann átti að þekkja okkur, en hefði í rauninni ekki hugmynd um hverjar við vorum, en „Feiti Appei“, eins og við köll- uðum hann reyndi að glettast við okkur vegna áhuga okkar á leik- listinni. Faðir hans var lögfræð- jngur bæði fjölskyldu minnar og Hough-fólksins í Newhampton. Marcia Parson brosti vingjarn- lega til okkar. Hún var ekki vit- und kennslukonuleg og jeg þótt- ist vita að hún hlakkaði ekkert til að sjá leiksýninguna. Það vai' bara af skyldu sem hún hafði far- ið. Við Elaine störðum hvor á aðrá þegar þau þau voru öll fjög- ur horfin inn í salinn „Þú segir satt'Y sagði jeg. „Við sitjum laglega i því. Þau svipast ábyggilega um eftir okkur á milli þátta. Og jeg sem er í efsta bekk og á að vera öðrum til fyrir- rhyndar". „Bíddu við“, sagðí Elaine. Það birti yfir svip hennar og hún hljóp þangað sem afgreiðslu- maðurinn stóð og talaði við hann að því . er virtist með miklum ákafa. Á meðan birtist Grace. Hún sagði að allt væri í lagi og vinur hennar kæmi á hvaða augnabliki. Mjer sýndist hún vcra í meiri geðshræringu en nokkru sinni íyrr. Elaine kom hlaupandi aftur. „Þetta * var prýðismaður", hrópaði hún. „Hann skrifaði upp fyrir mig nákvæmlega hvenær þáttaskiptin eiu. Við þurfum ekki annað en skréppa yfir göt- una og standa hjerna meðal á- horfendanna á meðan. Hudnutts- hjónin hafa ekki hugmynd um það hvort við erum í leikhúsinu. Þau sítja uppi á öðrum svölum". „Hudnuttshjónin?“. Grace hafði ekki tekið eftir Elaine, en nú sneri hún sjer að henni og starði á hana stórum augum með hálfopinn munninn. „Áttu við að Penélope Hudnutt sjer hjerna í leikhúsinu? En jeg hjelt að hann....“. Hún þagnaði. Augnaráð henn- ar var undarlega neistandi. Svo tautaði hún eitthvað um það að hún ætlaði ekki að bíða eftir kunningja sínum fyrir utan, og fór inn í dimman salinn. Elaine horfði á éftir henni og sló fingrunum á enni sjer. „Hún er eitthvað lítilsháttar biluð", sagði hún. „Það er jeg viss um. Jæja, komdu". Jeg er viss um að það hefur mátt sjá það á mjer að jeg hafði slæma fcamvisku þegar við geng- um yfi^götuna. Einkennisklæddur máður fylgdi okkur að blómskreyttu borði, sem stóð við dansgólfið. Steve Carteris var einn af þeim mönnum, sem að því er virtist án nokkurrar fyrirhafnar fá alltaf besta borðið á veitingahúsum og bestu þjónana. Þetta kvöld var síst nokkur undantekning. — Kampavínsflöskurnar, ábyggi- lega af bestu tegund, stóðu í föt- unum. Á miðju borðinu var stór kaka með tuttugu og einu kerti og í kring um hana alls konar góðgæti. Það var meira að segja eins og dansgólfið hefði verið bónað í tilefninu og undir per- sónulegu eftirliti Steve. Stev.e stóð á fætur og heilsaði okkur. Hann var svo fínn og strok inn að það var næstum ótrúlegt að hann væri einn af nemendum Wentworthskólans. En Steve hafði meðfædda hæfileika til að vera vaxinn öllum kringumstæð- um. Carteris-ættin var ein helsta og elsta ættin í Suðurríkjunum og Steve var sonur Carteris, fylk- isstjóra, sem kvað vera hátt skrif aður á listanum við næstu for- setakosningar. „Þú átt að sitja hjer í heiðurs- sætinu, Lee", sagoi hann. Jeg gat ekki stillt mig um að senda illkvittnislegt augnatillit til Normu, þegar hann bauð mjer sætið við hægri hlið sjer. En Norma virtist vera ánægð á milli formannsins fyrir fótboltafjelag- inu og leikstjórans okkar. Elaine settist við hliðina á Nicholas Dodd, en hann var herbergisfje- lagi Steve. Hann var einn af þeim fáu á skólanum, sem hafði vit á því að setja Elaine ofar systur hennar. Meðan þjónarnir gengu um og helltu í glösin okkar, sagði jeg Steve frá því hvers vegna Grace ekki kom. „Það var leiðinlegt", sagði hann. „Jeg hafði vonast eftir að taka upp vináttuna við Hough- fjölskylduna í kvöld. En þar sem Jerry liggur með fótinn í gibs- umbúðum....“. Hann þagnaði og brosið hvarf snöggvast úr aug- um hans. „Jeg vona að Grace hafi ekki fundið upp á þessari leik- húsferð til þess að losna við að koma hingað?". „Nei, hreint ekki", sagði jeg; Jeg sagði honum frá hraðbrjef- unum og að herbérgisfjelagi minn hefði breytt um ákv'rðun á síðastá augnabliki. Jeg sagði hon ; um að við neyddumst til að vera í leikhúsanddyrinu á milli þátta. | Hann sneri sjer að hinum gest- unum og við töluðum ekki meira um það. En þegar við stóðum upp til að dansa, tók hann aftur upp sömu umræðurnar. „Jeg fann það á mjer að Grace mundi ekki koma". sagði hann. Hann talaði ekki eins kæruleys- islega eins og hann átti vanda til þegar hann hjelt áfram: „Hún .... hún hefur kannske sagt þjer hvers vegna þetta ósamkomulag varð á milli mín og systkin- anna?“. Jeg vissi að vináttunni á rhilli Jerry og Steve var lokið. Þeir höfðu áður verið óaðskiljanlegir vinir og þangað til fyrir skömmu höfðu þeir búið saman í herbergi. En enginn hafði gefið mjer neina skýringu og jeg hafði heldur ekki spurt að því. Jeg kærði mig heldur ekk'i um að vita það núna. Jeg var hrædd um að jeg neyddist til að'tgka málstað annars þeirra. „Grace er illa við mig“, sagði Steve. En jeg greip fram í fyrir honum. „Hvaða vitleysa, Steve. Hverj- um okkar er illa við þig. Þú ert auðvitað óttalega ómerkileg og lítilssigld persóna, en við tilbiðj- um þig fyrir það“. „Þú mátt ekki segja það, ef þjer er ekki alvara, Lee“. Hann þrýsti hönd mína og jeg gleymdi öliu öðru en ánægjunn- ^ar að dansa við hann og fylgja hljómfallinu í músikinni. Mjer jleið alltaf vel í návist Steve. Ef jeg hefði ekki verið svona ást- fangin af Jerry, þá hefði jeg sjálf sagt gert mjer allt far um að vinna ástir hans og rutt mjer braut í gegn um allan aðdáunar- skarann. En eins og var, vorum við ekki annað en heimsins bestu vinir .... og það var dásamlegt að dansa við hann. Þegar við hættum að dansa, stakk jeg litla sígarettukveikjar- anum, sem jeg hafði keypt handa honum, í lófa hans. Það var slökkt á ljósunum í loftinu og kveikt á ijóskastara. Fyrsta skemmtiatriðið byrjaði. Söngkona gekk fram á gólfið. Hún var í áókaflega fleygnum kjól, svo að jeg bjóst við hneyksli á hverri stundu. Hún gekk á milli borðanna og söng vinsælt dgegijr- lag. Við borðið okkar sjjjcfcjiváði hún beint fyrir framan Steve og söng af fullum hálsi, svo"nð mjér sýndist kjóllinn ætla að rifna ut- an af henni. Blómapottar, serrs prýða hvern glugga Fást í blómabúðum og sjcrverslunum. — Sendum hvert á land sem er. — Heildsölubirgðir sími 7398 og 1332. Pottaaeiiin Auglýsíng um útgáíu vegabrjeía til útlanda Þeir, sem hafa í hyggju að ferðast til útlanda og þurfa á vegabrjefi að halda, eru beðnir að sækja um útgáfu þess með a. m. k. hálfs mánaðar fyrirvara. Leggja ber fram 2 Ijósmyndir, ásamt vottorðum toll- stjóra og borgarstjóra. Lögreglustjórinn í Keykjavík, 2. júií 1851. BILA OG IIUSGAGNARYKSUGUK NYKOMNAR. — VERÐ KR. 535,00. — LJÓSAFOSS Laugaveg 27 — Sími 2303 ARNALESBÓK 1 JXlcT£unblabsins 1 VPPREISN I AFRÍKU EFTIR J. BOSTOCK 7 — Já, herra, sagði svertinginn og brosti svo skein í hvítar tennurnar. — Jæa, farðu þá strax af stað. Og Nawamba þaut af stað í gegnum skóginn. En Merrill skip- aði hermönnum sínum að skipa sjer í einfalda röð. Þegar hann hrópaði áfram gakk, hreyfðist öll röðin skipulega áfram með byssu við öxl inn í myrkviðinn í fótspor Merrills, sem gekk fremstur. Fljótið beygði allangt til vesturs á þessu svæði og tók á sig stóran krók, svo að Merrill reiknaðist svo til, að með því að fara þvert í gegnum skóginn yrði leiðin svo mikið styttri, að hann yrði sennilega ekki mikið lengur til Bawali fótgangandi en með skipi upp fljótið. Ein ókosturinn var, að erfiðara var að verjast árásum á landi en á skipsfjöl úti á miðju fljóti. En á það varð að hætta, ef hægt ætti að vera að bjarga lífi Alexanders trúboða. 2. kafli. — Sssu! — Merrill gaf hermönnum sínum fnerki um að hafa lágt um sig og þeir atöðvuðu göngu sína, en læddust eilitið nær. Þeir sáu eldana loga á hlóðum hjá híbýlum Osaríánna og þegar þeir voru komnir svo nærri þorpinu vaf nauðsynlegt að íara varlega. Ef þeir kæmu upp un| fsig og Osariarnir tækju ’ eftir þeim, þá gat það kostað líf þeirrá allra. Til sölu Við Nökkvavog fokhelt timburhús. í húsinu eru 3 íbúðir, kjallari, hæð og ris. Selst hvort heldur er í einu lagi eða hver íbúð út af fyrir sig. — Nánari uppl. gefur Málaflutningsskrifstofa Áka Jakobssonar og Kristjáns Eiríkssonar, Laugaveg 27. — Sími 1453. ■I • 4 Danskur fiskibátur til sölu Fyrsat flokks danskur fiskibátur byggður 1941 í danskri skipasmíðastöð, stærð 34 tonn í ágætu lagi, með nýjan 75/85 ha. HUNDESTED mótor (1950—’51), ásamt sendi- og móttakara, er til sölu nú þegar gegn fastákveðnu verði. 112 þús. dönskum krónum. Uppl. gefur fulltr. C. Larsen, Esbjerg Bank A/S Fiskerihavnen, Esbjerg, Danmark. HREINLÆTIS VÖRUR Vim-ræstiduft — Bibby sápuspænir í pökkum Lux handsápa — Colgate-tannkrcm, fyrirliggjandi. EGGERT KRISTJÁNSSON & Co. hf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.