Morgunblaðið - 14.09.1951, Side 1

Morgunblaðið - 14.09.1951, Side 1
 ) 38. árgangur. 209. tbl. — Föstudagur 14. sept. 1951. Prentsmiðja MorgunWa3sin.Sc ' Mófaðgerðir í Vesfur-Berlín liisi Borgarstjórinn í Kreuzborg, einum hluta Berlínarborgar, hóf á dögunum mótaðgerðir gegn þeirri ákvörðun austur-þýsku yfirvaldanna, að leggja vegatoll á allar bifreiðar, er fóru yfir hernámssvæði Rússa. Borgarstjórinn skipaði starfsmönnum sínum að stöðva alla bíla, sem komu úr austurátt inn á borgarhverfi hans og leyfa þeim ekki að halda áfrarn förinni fyrr en þeir hefðu greitt vegatoll, jafnháan þeim, sem kommúnistarnir höfðu lagt á. — Myndin sýnir er bifreiðastjórarnir eru karfðir vegatollsins. ViSræður ufanríkisráðhgrranna þriggja: StóFveldin snmmúla um þýska liluiddM í Evrópuher Uáðherrarnir halda flug- leiðis til Ottawa í dag Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB WASHINGTON, 13. sept. —- Utanríkisráðherrarnir Morrison, Ache- son og Schuman áttu fjórða viðræðufund sinn í Washington í dag. Ræddu þeir m. a. ýmsar leiðir til að auðvelda eftirlit með þýska sambandslýðveldinu eftir að hernámslöggjöfin gengur úr gildi. Viðstaddir fund þeirra voru hernámsstjórar Vesturveldanna þriggja í Þýskalandi. Fyrir fundinum lá einnig frönsk tillaga um stofnun Evrópuhers, sem meðal annars samanstæði af þýskum hersveitum. EVRÓPUHER STOFNAÐUR «---------------------------- Frjettir af fundi þessum herma að Morrison og Acheson hafi fall- ist á hina frönsku tillögu í aðal- atriðum. Munu þeir nu allir þrír Bammála um, að stofnaður verði sameiginlegur Evrópuher Frakk- lands, V-Þýskalands, Belgíu, Hol- lands, Luxemborgar, undir forustu Eisenhowers yfirhershöfðingja og að her þessi hafi náið samstarf við her Breta og Bandaríkja- tnanna. A FUNDI TRUMANS Útanríkisráðherramir þrír gengu í kvöld á fund Trumans forseta í Blair House, en á morgun halda þeir flugleiðis til Ottawa, þar sem |>eir sitja ráðstefnu Atlantshafs- ríkjanna, en þá kemur endanlega til umræðu stofnun Evrópuhersins, ásamt ýmsum öðrum mikilvægum málum, t. d. upptöku Grikklands og Tyrklands í samtök Atlants- hafsríkjanna. Fundirnir í Ottaw hefjast eftir pæstu helgi. Fjarsiýrðar sprengi- flugvjelar • WASHINGTON, 13. sept. — Innan skamms verður form- lega mynduð fyrsta deild bandaríska flughersins, sem eingöngu hefur yfir að ráða fjarstýrðum sprengjuflugvjel- um. • Fyrst um sinn mun deildin fá aðsetursstað við Cocoa í Flor'- ida, en þar hefur verið megin- tilraunastöð Bandaríkjamanna með fjarstýritæki og flugvjel- ar. • Það eru aðallega Matadorflug- vjelar, sem deildin fær til um- ráða en þær eru framleiddar í Glenn Morris verksmiðjun- um í Baltimoori. Fyrst um sinn verða þær notaðar til flutninga, en síðar meir til á- rása á ákveðinn stað. — Reuter—NTB Segir breska sljórnin af sjer! LONDON, 13. sept. — Winston Churchill kallaði í dag saman til fundar leiðtoga breska íhalds- flokksins. Mun á fundi leiðtog- anna verða rætt um stefnu flokks ins í tilvonandi kosningum. Góðar heimildir í London herir.a að Attlee forsætisráð- herra hafi áformað að leysa upp stjórnina og boða til kosn inga fyrir næstu jól. Ástæðan fyrir þcssu er sögð sú að verkamannaflokkurinn óttist um að hann muni ekki halda meirihluta sínum á þingi. — Þrjár aukakosningar eru nú í vændum og fái verkamanna flokkurinn engan þingmann- anna mun hann ekki hafa meirihluta á þingi. Þá er og tilgreint að Attlee vilji fá nýja stjórn áður en fjárhagsáætlun fyrir næsta ár er lögð fyrir í aprílmánuði, en þá mun ef til vill reynast nauðsyn að leggja nýjar birgðar á breska skattþegna. Erlend lántaka er eina bjargrá fjárhagslegs hruns í Persíu Mófspyrnan gegn flokki Mossadeqs fer vaxandi Einkaskeyti til Mbl. frá Reutet- TEHERAN, 13. sept. — Forsætisráðherra Persíu, Mossadeq, hefm1 staðfest að alvarleg skref verði að stíga ef takast eigi að forða fjárhags og efnahagslegu hruni í Persíu. Eitt þeirra nauðungar- ráða, sem nauðsyn reynist að grípa til strax í næstu viku, sje a'9 taka stórt lán erlendis til þess að komist verði yfir erfiðasta hjall- ann í fjárhagsmálum landsins. ---——----------------------Áður hafði Fatomi aðalráðgjafi forsætisráðherrans tilkynnt blaða- □_____________________□ mönnum þessa ákvörðun stjórn- Sjávarsjónvarp LONDON, 13. sept. — Breska flotamálaráðuneytið hefur gefið út tilkynningu þar sem segir að flak breska kafbátsins Affrey, sem fórst s. 1. vor hafi fundist með nýju tæki — sjávarsjónvarpi. Strax cftir slysið voru tilraunir hafnar með smíði slíks tælcis ng eftir margra vikna tilraunir kom árangur fyrst í ljós í júnímánuði. Nokkru síðar sást báturinn í tæki þessu, þar sem hann lá á 300 feta til vill reynast ókleift að Flugvjelar með 39 manns innanborðs saknað PARÍS, 13. sept. — Franskr- ar Dakotavjelar er saknað. — Flugvjelin fór í gær áleiðis til Oran í Afríku. Sást síðast til hennar er hún flaug yfir Val- encia á Spáni. Með flugvjel- inni voru 36 farþegar auk 3 manna áhafnar. Allir innan- borðs voru frá Frakklandi eða Algier. — Reuter. □—------------------□ Ekki við sama borð og ísraclsmenn PARÍS, 13. sept. — 1 dag hófst hjer í París ráðstefna sú sem S.Þ. boðaði til í því skyni að reyna að koma á sættum í deilunni milli ríkjanna í Mið-Austurlöndum. Ræddu sáttafulltrúar S. Þ. í dag við fulltrúa Arabaríkjanna og ráð- gerður hefur verið annar fundur með þeim og fulltrúum Israel. — Sameiginlegum fundi er ógerning- ur að koma á því fulltrúar Araba- ríkjanna hafa þvertekið fyrir að sitja við sama borð og fulltrúar Isralesmanna. Komu þeir til ráð- stefnunnar með þeim fyrirvara. —Reuter-NTB. arinnar. NÝR MAÐUR Á SJÓNARSVIÐINU Álitið er að nú kunni að koma til alvarlegra innanlandsátaka í Persíu. Fyrverandi forsætisráð- herra Sayed Zia Tabadtadri, sem að sögn er vinveittur Bretum, hef- ur nú stungið upp kollinum á ný á stjórnmálasviðinu eftir 5 ára þögn. Hann er formaður flokks þess er kennir sig við „vilja þjóð- arinnar". Wti FJANDMENN BINDAST 4 SAMTÖKUM Jafnframt mun pólitískur and- stæðingur Tabadtadri nú hafa haf ið samstarf við hann og þeir stað- ráðnir í því að gera Mossadeq sena erfiðast fyrir. Þeir munu hafa stuðning að minnsta kosti 25 þingmanna, eu búist er við að fleiri muni verð.v til þess að veita þeim lið ef slík mál bæri á dagskrá. Strandaði — og ^ dregið út * KRISTIANSTAD, 13. sept. —• S.l. nótt strandaði 8000 tonna skip, Austría, á eynni Nam. í dag laust fyrir kl. 6 tókst tveim herskip- um og 2 dráttarbátum að ná skipinu út. Er talið að skemmdir á því sjeu litlar sem engar. NTB. Her S, ,Þ hefur nú frumkvæðið á öllum vígsföðvum Kóreu i Hernaðaraðgerðr á ailri víglínunnir ' en sóknarþunginn mesfur á mið-vígsföðvunum Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB TÓKÍÓ, 13. september: — Her S. Þ. hefur nú frumkvæðið á öllum vígstöðvum Kóreu. í dag sótti hann fram nálega á öllum víg- stöðvum, en hjer er þó ekki um alvarlegar aðgerðir að ræða. Á vesturvígstöðvunum var t. d. aðeins verið að styrkja varnar- línuna, en mótspyrna kommúnista reyndist lítil. VEL UNDIRBÚIN SÓKN ®------------------------ Sóknin á miðvígstöðvunum er sú mesta, sem gerð hefur ver- ið þar um margra vikna skeið. Undanfari hennar var látlaust kúlna- og sprengjuregn. Síðan komu fótgöngu og vjeladeild- ir og þrátt fyrir harða mót- spyrnu og öflug gagnáhlaup, hjelt sóknin áfram hægt, en örugglega. Hver hæðin af annarri fjell sóknarhernum í skaut og er á daginn leið fór mótspyrnan heldur minnk- andi. Á austurvígstöðvunum var einnig talsvert um bardaga og veitti her S. Þ. betur, þó að ekki væri um meiriháttar framsókn að ræða. I HVERJU ER HÆGT. AÐ SVARA? Mjög er nú bollalagt um hvert verði svar Ridgways við þeh’ri orðsendingu kommúnista, að annar viðræðustaður en Kaesong komi ekki til greina. Pekingút- varpið tyggur stöðugt á fleiri og fleiri hlutleysisbrotum af hálfu S. Þ., en þau voru s.l. þriðjudag orðin 139 að sölu, að sögn hins kommúnistiska útvarps, __

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.