Morgunblaðið - 24.10.1951, Page 6
6
MORGVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 24. okt. 1951
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavllc.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgOarm.)'
Lesbók: Ámi Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1800.
Áskriftargjald kr. 16.00 á mánuði, innanlands.
í lausasölu 75 aura eintakið. 1 króna meO Leabók.
Sameinuðu þjóðirnar
t DAG er Sameinuðu þjóðanna
minnst með öllum þeim þjóðum,
er aðild eiga að þessum merki-
legu alþjóðasamtökum.
Scx ár eru nú liðin frá því að
stofnskrá Saxneinuðu þjóðanna
gekk í gildi. Á þeim tíma lá meg-
inhluti heims flakandi í sárum
Og þjóðir heimsins voru að slig-
ast undir oki hinnar ægilegustu
styrjaldar, er yfir heiminn hef-
ir gengið. Stofnun Sameinuðu
þjóðanna kveikti því vonarneista
í hjörtum alls mannkyns. •— Nú
skyldi í annað sinn reynt að
leggja grundvöll að alþjóðlegu
samstarfi, er tryggði friðsamlega
lausn allra ágreiningsmála, svo
að hið stríðsþjáða mannkyn
mætti fyrir fullt og allt snúa
huga sínum frá styrjöldum og
mannvígum og beita í staðinn
allri orku sinni til þess að byggja
upp heim friðar og bræðralags,
þar sem allar þjóðir legðust á
eitt um að uppræta ómenningu,
örbyrgð og þjáningar.
Því miður stendur mannkynið
sennilega fjær því í dag en fyrir
sex árum að ná þessu göfuga tak-
marki. Reynslan hefir leitt í ljós,
að ofbeldisöílin í heiminum voru
ekki endanlega kveðin niður með
ósigri nasismans og fasismans. —
Enn ein ofbeldisstefna ógnar nú
frelsi einstaklinga og þjóða, og
málsvarar þessarar stefnu innan
Sameinuðu þjóðanna hafa hvað
eftir annað leitast við að gera
þær óvirkar sem baráttutæki
gegn ofbeldi. Sem betur fer hafa
þó frelsisunnandi þjóðir snúist
öndverðar gegn öllum tilraunum
til að eyðileggja Sameinuðu
þjóðirnar og hafa með samhent-
um aðgerðum í fyrsta sinn í sögu
alþjóðlegra samtaka snúist með
vopnavaldi gegn árás á þjóð, er
nýtur verndar Sameinuðu þjóð-
anna. Með einbeittri mótspyrnu
sinni gegn ofbeldisárásinni á
Kóreu hafa Sameinuðu þjóðirnar
styrkt þá von, að í þetta sinn
myndi alþjóðabandalag reynast
þess megnugt að halda ofbeldis-
öflum í skefjum.
Li ★
Mörgum hættir til að gera lít-
ið úr Sameinuðu þjóðunum og
einblína um of á erfiðleika þeirra
við að leysa ýms deilumál milli
þjóða.
Fólk verður að gera sjer
ljósa þá feikilegu erfiðleika,
sem Sameinuðu þjóðirnar
eiga við að stríða. Þess er eng-
in von, að í einu vetvangi
verði sköpuð hjá öllum þjóð-
um heims sú virðing fyrir al-
þjóðlegum ðómstólum og rjett
' arfari, að Sameinuðu þjóðirn-
ar geti auðveldlega leyst
hverja deilu með meiri hluta
samþykkt sinni einni saman.
! Það tekur langan tíma að
þroska þjóðimar svo, að Sam-
I einuðu þjóðunum reynist frið-
í argæsla sín auðveld og því að-
eins getur þetta tekist, að
þjóðirnar missi ekki trúna á
það, að Sameinuðu þjóðunum
auðuist með tímanum að ná
þ'.í takmarki, að allar þjóðir
heims hiýti úrskurði þeirra.
Þótt Sameinuðu þjóðunum hafi
treglega gengið áð leýsa ýms á-
;greiningsmál milli þjóða, tná'
ti.ki gleyma I i, áð morg hættu-
leg deilumá’ ifa þegar verið
friðsamlega iykta leidd fyrir
jnilligöa^u þeirra, Er nérar vik-
ið að þessu í greinargerð þeirri
um starfsemi Sameinuðu þjóð-
anna, sem birt er á öðrum stað
hjer í blaðinu í dag.
Vjer heyrum mest getið um
hin pólitísku viðfangsefni Sam-
einuðu þjóðanna og margvíslega
flokkadrætti innan þeirra og
árangurslitlar þrætur um þau
mál. Sannleikurinn er þó sá, að
til þessa hafa Sameinuðu þjóð-
irnar náð miklu merkilegri ár-
angri á öðrum sviðum. Starf
þeirra í menningarmálum, fje-
lagsmálum og efnahagsmálum
hefir skilað glæsilegum árangri,
sem einungis hefði verið auðið
að ná með einhuga samstarfi
fjölda þjóða. Á þessum sviðum
hafa Sameinuðu þjóðirnar unnið
ómetanlegt starf, sem eitt út af
fyrir sig er nægilegt til þess að
sanna hið mikla gildi þessara
samtaka.
ísland gerðist aðili að Sam-
einuðu þjóðunum með samþykki
allra stjórnmálaflokkanna. Með
því sögðu íslendingar skilið við
einangrun sína og hlutleysi um
alþjóðleg deilumál. Viðburðir
stríðsáranna sönnuðu það, að ís-
lendingar gátu ekki lengur treyst
á einangrun lands síns til vernd-
ar öryggi þjóðarinnar. íslending-
ar vildu ekki ganga í Þjóðabanda
lagið á sínum tíma til þess að
hverfa ekki frá hlutleysisstefnu
sinni, en nú gerðu flestir sjer
ljóst, að hlutleysið var þjóðun-
um engin vernd, heldur urðum
vjer að tryggja öryggi vort á
annan hátt.
Frelsi og sjálfstæði íslend-
inga og annarra smáþjóða er
undir því komið, að lög og
rjettur ráði í heiminum, en
ekki ofbeldi og harðstjórn.
Engum er það meira virði en
oss íslendingum, að Samein-
uðu þjóðunum takist að
tryggja frið og rjettlæti í
heiminum. Þetta er staðreynd,
sem vjer megum aldrei
gleyma, og þess vegna ber oss
að Ijá Sameinuðu þjóðunum
allt það lið, sem vjer megnum,
í baráttu þeirra fyrir friði,
frelsi og rjettlæti í heimin-
um.
★
Sameinuðu þjóðirnar eru tví-
mælalaust merkilegustu samtök
sem stofnuð hafa verið í heim-
inum. Þar sitja hlið við hlið sem
jafnsettir meðlimir stórveldi og
smáríki, dökkir menn og hvítir,
kristnir menn og heiðnir. Á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna
hefur sama gildi atkvæði smárík-
isins íslands með sína hundrað
og fjörutíu þúsund íbúa og stór-
veldisins Rússlands með sínar
tvö hundruð milljónir íbúa. All-
ar þjóðir eiga þar sama rjett til
þess að kveðja sjer hljóðs og
bera fram vandamál sín.
Vjer íslendingar hljótum al-
veg sjerstaklega að styðja slík
alþjóðasamtök af heilum hug og
sameinast í dag öllura friðar-
unnandi þjóðum hei ' þ ri
bær., að Sameinuðu . óou . urn
takist að leysa af hei , sítt göf-
uga hlutverk að tryggja öllum
þjóðum heims írið og örj-ggi,
hjálpá frumstæðum þjóðum til
aukins þroska og menningar og
tryggja m.eð sameiginlegu -átaki
öllum pjóðum og einstaki.ii n
frelsi gegn áþján, sjúkdórau »
skortu
Sonur Mahatmus Gandhis býður
stjórn Malans byrginn
Bersf gegn kynþáffalegunum í Suður-Afríku
GÖÐLEGUR, lítill maður brúnn á
hörund og í brúnum fötum gekk
inn í bæjarbókasafnið i Durban,
settist innan um nokkra hvíta
menn og tók að blaða 1 tímariti
skjálfandi fingrum. Þeim hvítu
brá í brún.
BRYTUR KYNÞATTALOGIN
Eftirlitsmaður spratt upp, hvísl-
aði, að bókasafnið væri ekki fyrir
aðra en hvíta menn, svo að hann
yrði að fara út. Aðkomumaðurinn
svaraði: „Jeg ætla mjer að brjóta
kynþáttalögin ykkar, sem eru reist
á falskri, ókristilegri kenningu um
að kynþættirnir eigi ekki að njóta
jafnrjettis.
Sonur Mahatmas Gandhis.
Næst fór maðurinn á aðaljám-
brautarstöð borgarinnar og settist
á bekk, sem á stóð skýrum stöfum:
„Aðeins fyrir Evrópumenn". Lög-
reglumaður brá skjótt við og
spurði sökudólginn að nafni. Hann
gaf greið svör: Manilal Gandhi,
58 ára, útgefandi vikublaðsins
„Indverjinn“ £ Durban. Lögreglu-
þjónninn sagði, að höfðað yrði mál
á hendur honum, og Gandhi fór
Bæjarsljórnarkðsn-
ingarnar í Frakk lendi
UM FYRRI helgi lauk atkvæða-
talningu í almennum bæjarstjórn
arkosningum í Frakklandi, síðari
umferðinni, og hafa flokkarnir
1 að þeim loknum þau sæti, sem
íhjer greinir (í svigum sætatölur
flokkanna eft
1945):
Kommúnistar
Sósíalistar
Ýmsir vinstrifl.
Róttækir o. fl.
Kaþólskir miðfl.
Frjálsl. og óháðir
Gaullistar
kosningarnar
315 (351)
551 (846)
132 (151)
659 (626)
218 (220)
802 (572)
539 (253)
Fyrir tveim árum fór fram
fyrri umferð þessara kosninga í
813 kjördæmum í Frakklandi,
auk kjördæma í nýlendunum. Að
þessu sinni var kosið í síðari um-
ferðinni, í 702 kjördæmum innan
Frakklands.
Bæjarstjórnirnar munu á sín-
um tíma kjósa þingmenn til efri
deildar þingsins.
Heildartala sæta í Frakklandi
sjálfu (án nýlendnanna) er á
þessa leið (í svigum tölur frá
1945):
Kommúnistar 78 (176)
Sósíalistar 278 (417)
Ýmsir vinstrifl. 51 ( 62)
Róttækir 382 (374)
Kaþólskir miðfl. 108 ( 83)
Frjálsl. og óháðir 468 (326)
Gaullistar 150 ( 70)
Á ;.'að sk bent, að í viðtali
; við Bjarna Guðmundsson, blaða-
jfuiitrúa á laugardag u'm frönsku
kosningarnar, vo.u þe sar ,osn
ingar taldar þingkosningar,. ei
kosningarnar í vor basjarsijórn
1 arkosningar. Þ.irsu er öfugt íarið,
• og kemur þá alU heim, ef lesið er
í r Uiö.
heim til sín á bóndabýlið fyrir ut
an Durban og beið stefnunnar.
ÆTLAR AÐ HAFA ÁHRIF
Á STJÓRNINA
Þannig hóf elsti sonur Mahatmas
Gandis baráttu sína við lög þau,
sem sett hafa verið til höfuðs
svertingjum og Indverjum í Suður
Afríku. Þeir njóta þar ekki jafn-
rjettis við hvíta menn.
Fyrir skömmu varaði Gandhi
forsætisráðherrann, Daniel Malan
við, og sagði, að kynþáttalögin
„gerðu menn að kommúnistum
hvort sem þeir vildu eða ekki“.
Markmið hans er, að hann verði
tekinn höndum og settur í fang-
elsi. Þannig hyggst hann að
breyta hugarfari stjómarinnar
með því að hún verði að horfa
upp á „þær þjáningar, sem jeg
tek á mig af fúsum vilja".
En einhvem veginn hafði Man-
ilal ekki með sjer lán Mahatmas.
Hann stóð einn. Við manntalið á
þessu ári kom á daginn, að Ind-
verjar voru orðnir fleiri í Suður-
Afríku en hvítu mennimir, og þeir
hvítu eru nú fjandsamlegri Ind-
verjunum en nokkru sinni fyrr.
Manilal reyndi að fá mál sitt
tekið upp á þingi Indverja í S.-
Afríku, sem faðir hans stofnaði.
En þingið gekk fram hjá syni
1
skapara síns, en eyddi í staðinn
öllum tíma sínum í að víta „að-
gerðir bandarísku heimsvalda-
stefnunnar í Kóreu“, enda rjeðu
kommúnistar lögum og lofum á
þinginu.
ALDREI KALLAÐUR FYRIR
En það var þó verst af öllu. að
stjórn Malans gekk líka fram hjá
honum og reyndi það að hið þögla
viðnám getur verið besta vopnið
gegn þöglu viðnámi. Honum var
aldrei stefnt fyrir rjett.
Fyrir nokkram dögum fór
Gandhi í bókasafnið og á jám-
brautarstöðina. Hann tók konu
sína með. En allt kom fyrir ekki,
hann var ekki tekinn höndum. Og
Gandhi ók burtu í bláa Chevrolet-
inum ásamt konu sinni, niðurdreg-
inn.
Hann fastaði og baðst fyrir
heilan dag, þvínæst lýsti hann yfir,
að hann mundi framvegis ganga
enn frekar í berhögg við kyn-
þáttalögin, þótt hann stæði einn,
og neyða ríkisstjórnina til að taka
sig fastan.
„1 öllum öðrum löndum mundi
jeg finna hamingjuna frekar en
hjer, en skylda mín býður mjer
að vera“, segir sonur Mahatmas
Gandhis.
Velvakandi skrifar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
í frímmútunum
HVAÐ haldið þið, góðir hálsar,
að nemendur gagnfræðaskól-
anna hafist að í frímínútunum?
Þið haidið vitaskuld, að í kaffi-
hljeinu sitji þeir inni í skólastof-
unni og drekki mjólk og jeti vín-
arbrauð og halgdabrauð eða fljúg
ist á. Nei, svo nærtækt er svarið
ekki.
Takið þið ykkur stöðu við til-
teknar verslanir, þegar hringt er
út, og börn á fermingaraldri
streyma þangað’inn eins og flóð
bylgja. Þau kaupa kókakóla og
kex og jeta með góðri lyst. Það
er ekki auraleysið þar. Þá hefjast
reykingarnar. Strákar og stelpur
draga upp vindlinga eins og
þrautreyndir nautnaseggir og
kveikja í.
Of mörgum skrikar
fótur
SEM betur fer eru öll börnin
ekki undir þessa sök seld, og
jeg get ekki dæmt um, hvort
ósóminn viðgengst í öllum gagn-
fræðaskólunum, en of mörgum.
Hugsið þið ykkur 20—30 börn
á fermingaraldri í einni kös
og reykjandi vindlinga. Hafið
þið sjeð kvenfólk reykjandi úti
á götu eða inni í sölubúðum? Jeg
get bent ykkur á verslanir þar
sem stúlkur á fermingaraldri
standa í hvirfingu og reykja
hirðuleysislega eins og lauslætis-
drósir, að jeg nú ekki tali um
strákana.
Eitthvað bogið
I FYRRA gaf menntamálaráðu-
neytið út ströng fyrirmæli um
reglusemi kennara og bindindi,
svo að tryggt væri, að börnin
gæti tekið þá til fyrirmyndar.
Ekki dreg jeg í efa, að þeim regl
um hafi verið fylgt út í æsar, En
betur má ef duga skal.
Hjer verður annars ekki fjöl-
yrt um reykingar krakkanna í
skói 'r iu.m að þessu sinni nje
af þi. dregnar ályktanir. Hins
v.eg.- c ekki úr vegi að spyi ja
noV ; .ra spurninga, áður. en
;k|. ej' við málið.
Nokkrar fyrlrspun *
Vr . iD þið, foreldrar, sem gið
börn á fcrmingaraldri í gn-
frgr'ðaskólanum, að þau rc. ia í
skólatímanum? Ef svo er, hafa
þau aurana frá ykkur, sem þau
kaupa vindlingana fyrir?
Vitið þið, kennarar og skóla-
stjórar gagnfræðaskóla, að krakk
arnir standa hópum saman revkj-
andi í búðum og á gangstjettum
í frímínútunum? Otrúlegt, að
uppeldisáhuginn nái ekki út fyrir
skóladyrnar.
En ef þið vitið um reykinga-
hneykslið, teljið þið það ykkur þá
óviðkomandi eða hafið þið ekki
myndugleik til að kveða það nið-
ur?
Svar væri æskilegt.
Sex ára afmæli S.Þ.
IDAG eru 6 ár liðin frá stofnun
S.Þ., en afmælisdagurinn, 24.
okt., er haldinn hátíðlegur ár
hvert.
Sameinuðu þjóðirnar eru banda
lag 59 ríkja, sem bundust sam-
tökum eftir seinustu heimsstyrj-
öld og settu á fót ýmsar stofnan-
ir til varðveislu friðar og efling-
ar framfara í heiminum, en hlut-
verk þessara stofnana er annars
margvíslegt.
Kunnust þeirra er Allsherjar-
þingið, en þar eiga allar þjóðirn-
ar fulltrúa. Öryggisráðið er líka
mjög oft nefnt í frjettum, þó a<S
þar sjeu fulltrúarnir ekki nema
11, en það er vitaskuld af því, að
stórveldunum 5 er tryggt þar
sw'arandi aðild, en smáþjóðirnar
fá aðeins að vera með til skipt-
is. Margir kannast við Efnahags-
og fjelagsmálaráð S.Þ. og svo
mætti lengi telja.
Allsherjarþingið, það 6. í röð-
inni, hefst í Chaillot-höllinni 1
París 6. nóvember.
d
Merkileg barátta
HJER verður ekki reynt að
bollaleggja um störf S. Þ. Un
þar er deilt, en engum blandast
hugur um, að tilraunin var neð
góðum huga gerð, enda hefir
tofnunin mörgu nytjamálinu
íiiglt, ií örugga höfn. Glappaskot-
unum.tjóar ekki heldur að leyna.
Þátttaka S. Þ. í baráttunni í
Kóreu er tyímadalaust alhygl's-
verðasta skref, se í bandalagið
hefir stigið. Aldrt- syrr í sögun ii
hafa nokkur san gert ámóta
átak og S. Þ. gmt þar. _ .