Morgunblaðið - 23.12.1951, Page 9

Morgunblaðið - 23.12.1951, Page 9
[ Sunnudagur 23. des. 1951 MORGUNBLAÐIÐ ^ a i 7iwiwiww<! 55W5S??- * ■ ‘ * '&ír-i'ý ■ ■'•Í&Sv' V-í.; í.* A' } & <; 4 - arhús fyrir sig og f jöfekyldu sína. iffitlan hans var engrn önnur en sú, að búa áfram í Reykjarfirði og halda áfram að gera jörðina betri og byggilegri. En þá fóru allir nálasgir bæir í eyði. Guð- finnur gerði um skeið hlé á bygg- jngunni. Allar horfur voru á að einnig Reykjarfjarðaxfólkið yrði að flýja óðal sitt. Einangrunin yar að bera það ofuriiði. Ennþá hefur þó ekki orðið úr flutning- um. Hver niðurstaðaa verður, yeit ég ekki. Reykjarfjarðarbærínn stendur í fjarðarbotni við rætur Dranga- jökuls. En þar er þó ylur í jörðu. Upp úr ískaldri jökulánni, sem fellur undan skriðjöklinum, stíga hvítir gufustrókar. Heima við bæ ínn eru heitar laugar. Heimilið í Reykjarfírðier hlýtt eins og sjálfur staðurinn, sem það stendur á. Þar ber allt vott um hagleik og myndarskap fólksins. iVfir öllu þar er svipur þjóðlegr- ar ræktarsemi og festu. Ef þetta býli norðiir á Horr,- Síröndum fer í eyði, ef Reykjar- fjarðarfólkið neyðist til að slíta hin traustu tengsl við uppruna sinn, skilja við mikið Xífsstarf og hverfa frá óðali sínu, þá hefui mikið tjón orðið. Þá hefur eitt- hvað brostið, sem ekkimá bresta. BRÉFIÐ FRÁ JÓHANNESI í REYKJARFHtÐI Vorið 1950 skrifaði Jóhannes Jakobsson í Reykjarfírði, næst filzti sonur bóndans, mér langt bréf. Hann rakti þar að nokkru þá atburðarás, sem ég hefi lýst hér að framan. Eg hygg að ekkert sýni betur hug og tilfinningar Strandafólks- sns gagnvart eyðingu byggðar Jþess, en einmitt þetta bréf hins greinda og dugmikla bóndasonar. í>ess vegna leyfi ég mér að birta kafla úr því hér á eftir; ísafirði á páskunum 1950. — Þannig horfir í dag, að Heykjarfjörður í Grunnarvikur- Sireppi verði síðasta byggða bólið á Ströndunum, eins og þetta byggðarlag er kallað í daglegu íali af þeim hagvönu. Ég finn að snig skortir orð til að segja það, sem hugur minn vildi. Ég vildi að orð mín væru gædd þeim eld- anóði og raunsæi, þeim töframætti að þau mættu snerta víðkvæm- SJstu sálarstrengi þjóðhollra snanna í þessu fámenna, en sund- urleita þjóðfélagi. Það er ekki öllum sársauka- 3aust að sjá heilar sveitir leggj- ast í auðn. Og alltaf fer þeim fækkandi, sem viíja una lífinu við störf sveitarinnar. En þeim fer fjölgandi, sem viJja hafa hana að leikvangi. Þegar litið er á kortið af N.- ísafjarðarsýslu verður sú stað- reynd ljós, að tveir hreppar henn ar eru alveg að þurrkast út, sem byggðar sveitir. Ef dæma á af reynnslu síðustu ára, verður þess ekki langt að toíða, að fólkið, sem enn spyrnir við fótum, verði að neyðast til að yfirgefa eignir sín- ar og vita þær verða tímans tönn að bráð. Fúslega skal það viður- kennt, að náttúruöflin taka oft harkalega á þeim bömum sinum, sem þennan útkjálka hafa byggt. Bæirnir á Horni. „Nú er auðn og tóm á þessum norðlægu slóðum“ En þrátt fyrir það hafa á síðusta áratugum verið unnin þarna þrek virki við erfiðar samgöngur á sjó og landi og óblíða veðráttu oft á tíðum. FJÖLMENN HEIMILI Það verður hvergi gert átaka- lítið að framfleyta 10—15 manna fjölskyldum, eins og víða heíur verið gert á þessum stöðum. Mætti nefna mörg fjölmenn heim ili í þessu sambandi, en ég sleppi því. Einhverjum kann að virðast að það sé ekki neinn þjóðarvoði þótt útkjálkabyggð leggist niður. Þó er það svo að með því slitnar hlekkur í þjóðarstarfinu. Þjóð- félagið þar að starfrækja vita á strandlengju landsins og veður- fregna þarf að afla, ekki síst af yztu nesjum. Tii þess ber brýna nauðsyn vegna sjófarenda og loft ferða, sem nú eru all tíðar orðnar hér á landi. En það verða að vera til menn til að sinna þessum störf um. Skoðun mín er sú að erfitt muni reynast að fá fóik til þeirra staða, sem engin byggð er nærri, þó að störfin séu launuð af al- mannafé. SLYSAVARNIR Þá má geta slysavarnanna, sem einnig koma hér við sögu. Þótt það sé mikilvægt, að komið sé upp skipbrotsrnannaskýium og matarbirgðir þar geýmdar á ein- stöku stöðum, þá er margfailt meira öryggi í hinu, að fólk sé fyrir á ströndinni, sem getur veitt aðstöð þar, sem henni verður á annað borð við komið frá landi, ef slys bera að höndum. Á þetta ekki sérstaklega við um Horn- strandir, heldur útskaga landsins yfirleitt. Lítið hefði orðið úr heimsfrægu björguninni við Látrabjarg hefðu ekki verið fyrir á ströndinni þróttmiklir menn, aldir upp við erfið lífsskilyrði og baráttu við óblíða veðráttu. Einn- ig hafa talstöðvarnar, eftir að þær komu á afskekkta bæi, gert mik- ið gagn. Oft hafa skip kallað bær upp og fengið fregnir um veður og aðrar leiðbeiningar kunnugra manna. Þegar það skeði í fyrra- vetur, að m.b. „Barðinn“ hrakkt- ist með bilað stýi'i og talstöð inn á Reykjarfjörð, í stórsjó og slæmu veðurútliti, hefði senni- lega illa farið ef þar hefði þá ekki verið byggð. Sem betur fór voru þar fyrir menn, sem leiðbeindu bátnum í eina landvarið, sem þar var að finna, settu niður sexær- ing og fóru um borð, gerðu við stýri og talstöð og leiðbeindu síð- an bátnum til Þaralátursíjarðar yfir grynningar í miklum sjó, náttmyrkri og snjókomu. Frá þessum sjónarmiðum tel ég það þjóðarnauðsyn, að allt sé gert til þess, að hlynna að fólki, sem vill byggja útskaga landsins, t. d. með bættum samgöngum, sér staklega að póst- og talstöðvum verði komið á alla bæi, sem ekki hafa síma. Líka gætu margir lagt málum þessum lið, með því að skrifa um þau í blöð og hvetja heldur fólk til að vera kyrrt. Bezt. væri Slysavarnarfélagi Islands treystandi til að veita þessu máli lið og líklegast til að hafa áhrif. Frá mínu sjónarmiði er það mál, sem alla þjóðina varðar, að ílis staðar sé haldinn vörður um oilt sem að slysavörnum lýtur og ör- yggi sjófarenda. Svo miklar mátt arstoðir eru siglingar og sjávar- útvegur þessarri þjóð. TRYGGBIN VIB ÁTTIIAGANA Ég hef þessar hugleiðingar ekki mikið lengri. Aðeins nokkur orð 1 til Reykjarfjarðar. Foreidrar mínir hafa búið á Reykjarfirði allan sinn búskap, eða um 40 ár, ! og eiga jörðina. Er hún ættar- óðal móður minnar. Móðir mín hefur dvalið í Reykjarfirði síðan i hún fæddist og hafa foreldrar mínir eignast 13 börn og eru 12 I þeirra á lífi, Eru þau svo rótgróin við fæðingarstað sinn, að öll vilja I helzt heima vera. Ekkí til þess að (Ljósm. Þorsteinn Jósefssón) þurfa ekki að vinna, heldur til að vinna. Ég ætla ekki að þylja neina lofræðu um okkar starf og baráttu, bezt er að hver dæmi eftir kvnnum og reynnslu. Ennþá eru 9 okkar systkina heima. Hefur þó verið togað í sum okkar og góðar stöður boðn- ar. En átthagatryggðin hefur ver- ið ölium öflum sterkari. Munu þess þó fá dæmi, að svo stór sy?t- kinanópur skuli ekki vera fyrir bæjar, miðað við venjulega laná- leið milii þessara bæja, Það svar- ■ ar til að á vetrariagi séu tvær dag leiðir milli byggða í ReykjarfirBj. Sú staðreynd setur mikinn óhug að þeirri átthagatryggu fjöl- skyldu, sem á síðustu árum bef- ur lagt fram alla krafta sína til að endurbyggja og bæta iífsaf- komu sína í trú á landið og starfs- krafta sína. Það munu fáir gera sér grein fyrir því, hve mi-kíl vonbrigði það er ungum hjónusn, sem eru að byggja bæinn sinn v;ð yl úr iðrum jarðarinnar í sterkri trú á það, að fá að njóta þar verka sinna, að sjá nú ekki annað framundan en að verða að rífa það niður, sem byggt hefur veri'ð upp eða yfirgefa það með öllu. Er þá ekki hætt við að eitthvað' bresti af þvi dýrmætasta i manni. sjálfum, þeim máttarstoðum menningarlífsins, serft afskekkta fólkið mun eiga í ríkara mæli en almennt gerist. Ég gæti imyndað mér, að eitthvað af kjörnum menningarinnar leystist upp í slíku umróti, svo sem sjálfsvirð- ing, átthagatryggð, eignarréttur, verkmenning, vinnusemi og nýtni. Eftir yrði þá kjarnlaus sál. Óskandi er að ekki þurfi til þess að koma, að við verðum að hrekjast frá okkar hjartkæra Reykjarfirði. Blessaður sértu alia tíma, með þín traustu fjöll, fann- hvítu jökultinda, grösin og blóm- in þín, og þá ekki sízt þínar heitu lindir, sem hafa veitt okkur svo margar gleðistundir, að ógleymd- um öllum hinum. 4 Jóhannes Jakobsson, frá Reykjarfirði. 1 Rekafjara í Þaralátursfirði. — (Ljósm. Þorst. Jósefsson) Nyrsti hluti Vestfjarða, Grunnavíkur og Sléttuhreppur. iöngu floginn út í ólgu mannlífs- ins, úr fámenninu í fjölmennið. UMMÆLI EGGERTS OG BJARNA Til gamans tek ég hér upp það sem Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson segja um Reykjarfjörð, þegar þeir ferðuðust um Strand- ir fyrir tæpuia 200 árum, eða 1754 „í Reykjarfirði er fallegt og grösugt, enda voru hér nokkrir bæir. Tveir þeirra voru byggð- ir á síðastliðinni öld. Annar þeirra fór ekki í eyði fvrr en fyrir 10 árum. Þar var kirkja og áttu Reykfirðingar og aðrir bæir þar norður á Ströndunum sókn þangað. Hvergí á íslandi höfðum við séð jafn grösug tún og hér, og við undraðumst það, að þessi sveit slcyldi vera í eyði, þar sem bæir eru þé á báðar hliðar, ekki mjög fjarri. Þa@ væri mjög æski; legt að Reyk jarf jörður byggðist aftur". Þetta sögða þeir Eggert og Bjarni. TVÆR BAGLEIÐIR TIL NÆSTU BÆJA En nú eru engir bæir nærri þegar Furufjörður er kominn í eyði, sem áformað er að verði á þessu vori. Þá verður a. m. k. 9—10 stunda gangur til næsta NORÐUR VIÐ YZTA HAF Þetta bréf Jóhannesar í Reykj- arfirði lýsir ekki aðeins tilfinn- ingum hans og fólksins norður þar. Þar er vakin athygli á þjóð- félagslegum vandamálum, senv sigla í kjölfar eyðingu byggðar- innar á útkjálkum landsins. Atf þessu sinni verða þau ekki rædd hér. Skammdegið grúfir nú yfir byggðum þessa norðlæga lands. Norður við yzta haf, þar sem heita Hornstrandir, er veldi þess ríkast. En hvort sem þar er í dag stjörnubjartur himinn, sléttur sjór eða stormur og hríðarkóf, mun vera bjart og hlýtt hjá fólk- inu í Reykjarfirði. Skuggar Strandafjalla ná hvorki inn í hug" skot þess né híbýli. Þar er haldin kyrriát en sönn jólahátíð. S. Bj. Svör við spurningum á bls. 5. 1. s og t. í orðinu steinn — einn 2. biðja pabba að borga ekki vatnsskattinn 3. lykkjuföll 4. nafnið þitt ! 5. það er nctt á milli ___1 _ 6. svampur 7. þögn j í', , ::r"’ w3. Æ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.