Morgunblaðið - 23.12.1951, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 23.12.1951, Blaðsíða 15
Sunnudagur 23. des. 1951 MORGUNBLAÐIÐ 15 1 á NÁMSKEXÐI HJÁ S.Þ. Framh. af bls. 13 Ur þessi einhliða upptalning að nægja, en þú, lesandi góður, get- ur sjálfur reynt að gera þér nokkra grein fyrir hinni geysi- legu vinnu, sem á bak við þessa fjölþættu starfsemi Sameinuðu þjóðanna liggur. CAGNKVÆM KYNNI Auk fræðslu þeirrar er við nutum bæði í starfi oklcar og í fyrirlestratímum þá voru hin persónulegu kynni þessa mjög svo fjarskylda hóps í senn fræð- andi og þá ekki síður skemmti- leg. Juku þessi kynni mjög á þekkingu okkar á högum og hátt- um hinna ýmsu landa þátttak- enda, ekki sízt þar sem landa- fræðikunnátta flestra okkar var nokkuð farin að ryðga. Þó var þekking flestra á heimskauta- landinu lítið farin að ryðga, þar eð hún var oft heldur bágborin, ef hún þá var nokkur. Nú veit ég að fleira er fram- leitt í Persíu (Iran) en skraut- ábreiður og olía unnin úr jörðu, kynni mín af Javat ollu því, en með honum ók ég ásamt mönnum af 4 öðrum þjóðernum frá Colum- bia háskólanum til Lake Success frá kvölds og morgna. I þeim hópi var einnig Marjan, ákafur Titoisti, en þó bezti strákur, frá Júgóslavíu. Hafði hann nær því snúið sosíalistanum honum Say- eed frá Pakistan til „réttrar trú- ar“, er námskeiðinu lauk, með sinni ciceroisku mælsku. Já, og það urðu fleiri hissa en Chan frá Burma, er hann komst að raun um að til væru bílar á íslandi, og það ekki svo fáir, þá auðvitað miðað við fólksfjölda eins og ávallt. Það þótti Burmabúanum hástig menningarinnar hér á landi, er hann sá Tívolí-bílana á litkvikmynd frá Reykjavík, sem ég hafði með mér að heiman og sýndi á alþjóða-kvikmynda- kvöldi, sem fram fór í funda- herbergi Öryggisráðsins kvöid nokkurt. ALÞJÓÐLEGUR HÓPUR Já, þetta er vissulega alþjóð- legur hópur, sem dregur andann þarna innan veggja Lake Succ- ess, hvort heldur það eru sendi- menn hinna 60 ríkja, er fulltrúa eiga hjá Sameinuðu þjóðunum eða starfsfólk. Ekki líður svo dagur, að maður ekki kynnist nýju fólki á göngunum, í skrif- stofunum eða í matarsainum. — Dag nokkurn sat andspænis mér við matborðið Indverji, með hag- lega vafinn turban um höfuð sér. Bágt átti ég með að bera fram nafn hans, fannst mér það helzt líkjast framburði enska orðsins pyjamas (náttföt). Ekki var ég heldur ánægður með framburð hans á mínu nafni, en nöfnin voru aukaatriði, hefðu hvort eð er gleymzt að lokinni máltíð. ÓLÍKAR MANNTEGUNDIR Þarna getur að líta hinar ólik- ustu manntegundir frá Evrópu, Ameríku, Afríku, Asíu og Ástra- lxu — svarta, gula, brúna og hvíta menn, — Lorda og Sira, sendiherra og ráðherra og fleira skrítið fólk og saman við allt þetta blandast svo allra þjóða ferðamenn, sem mega til með að sitja einn fund í Öryggis- ráðinu eða Gæzluverndarx-áðinu og hvergi í heiminum eru undir einu og sama þaki töluð fleiri tungumál en einmitt í Lake Success. Það getur verið hrein- asta bíó að stúdera þetta samsafn ólikustu þjóða og það oft fræð- andi bíó. Þetta eru Sameinuðu þjóðirn-' ar og engan skyldi furða, þótt árekstrar verði í jafn sundurleit- um hóp, þar sem á rekast margs konar hagsmunir, trúarbrögð og margt fleira. FÓLKIÐ MÁ EKKI TAPA TRÚ SINNI Á S. 1». En þótt tíminn hafi eigi enn hert til fúHnústu hornstein þann, er lagður var í San Francisco fyr- ir tæpum -6' ácum vundir þpssi Nemendur í námskeiði Sameinuðu þjóðanna. U.f. Eimskipaféfag íslands óenclir uikdiÍHaniönnitm voidugustu alþjóðasamtök, sem maðurinn hefur skapað, þá skyldu þjóðir heimsins — það er fólkið — ekki tapa trú sinni á þessi samtök sín. Sameinuðu þjóðirnar bregðast ekki fólkinu, það er fólkið, sem bregzt sjálfu sér, er það ásakar leiðtoga sína, en eru þeir ekki einmitt spegil- mynd fólksins eða svo er til ætl- azt, þar sem kosningar fara iram. GERA EKKI ICRAFTAVERK Nei, Sameinuðu þjóðirnar gera ekki kraftaverk fremur en þú og ég, er. þær geta stuðlað að friði og betri lífsafkomu þjóðanna og það hafa þær gert með því að stefna saman þjóðum heimsins til þess að leysa hagfræðileg og þjóðfélagsleg vandamál — fá- tækt, hungur, sjúkdóma, fá- fræði, frelsisskerðingu og aðrar plágur, en allt eru þetta hindr- anir á vegi þeim, er stefnir til bættra lífskjara og mannlegrar göfgunar og dulbúin orsök styrj- alda. Og að lokum: megi Samein- uðu þjóðirnar halda áfram að ryðja hindrununum úr vegi og þroskast og dafna við hverja raun, svo að hornsteinninn fái að herðast um ókominn tíma. J. M. ómi/im nm fancl aft (J3eótu jóíuóáLir Okaútgafa v/m? C5? 4t leotiet^ joi og farsælt nýtt áy.. Með þökk fyrir viðskiftin á líðna árinu. BijreiöastöSin Éifrost, HvérfisgÖtU 6. fO 4! Silkibúöin. f t° 4! Landssmiðjan. » r t° (! Eggert Krisljánsson & Co., h.f. ec^ fo 4! gott og farsælt nýár! Jón Símonarson h.f. Bræðrahorgarstíg 16. (jfefifecý jóf! gott og farsælt nýár! Áoi li.f. t° (! Verslunin Þórsmörk Jóhannes Jóhannsson Grundarstig 2, Óskum öllum starfs- og viðskiftavinum okkar 4a leöilecfra jola og farsæls komandi árs og þökkum fyrir liðna árið. Byggingarfélagið Brú h.f. e<fl /O (! Sjókhvði & Fatnaður s.f. Varðarhúsmu. eff fo 4! Kjötbúðin Borg: \>. s i , \ i S '. i V s I s s s V s • S i V Ý s i V V V s s s s s f s • s s s s s s s s s s s s s S’ s s - s s > s > s > s s s s s s s s s s s s s i s I > I s I > s s s s - s s s I I I s s i s s s s > > s s s i s > s s i I 1 > s i V I s í V I I I V > I I * s '5 V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.