Morgunblaðið - 05.01.1952, Síða 1
39. árgangur.
3. tbl. — Laugardagur 5. janúar 1952.
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ummæli fullfrúa kommúnisfa:
Víð viljum ekki skipta á
siuktrr
lcimi oo særð^m fönpm
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter—NTR
TÓKÍÓ 4. jan. — Viðræðurnar í Panmunjom urðu enn í dag ár-
angurslausar. Fulltrúar kommúnista í undirnefndinni er ræðir I
fangaskipti skýrðu það á einfaldan en tvímælalausan hátt að þeir I
rnyndu aldrei fallast á að hlutlausir fulltrúar fengju að ræða við
fanga þeirra eða óbreytta borgara í Norður-Kóreu.
NEITA, NEITA '♦
OG NEITA AFTUR
Þá hafa þeír og neitað að
verða við þeirri ósk fulltrúa
S. Þ. að þegar í stað fari fram
skipti á sjúkum og særðum
föngum.
LANGUR FUNDUR
Fundur nefndarinnar í dag
stóð látlaust yfir í 4 stundir og
20 mínútur. Vopnahlésnefndin
hélt og fund í dag en cnginn
árangur náðist.
Urðu við beiðni
forsetans
ATLANTIC CITY, 4. jan. —
Stéttarsamband stáliðnaðarmanna
í Bandaríkjunum hefur ákveðið
að fresta uppsögn samninga sinna
um kaup og kjör. Er þetta gert
fyrir beiðni Trumans forseta. —
Tryggt er nú að elcki mun koma
til verkfalls fyrr en í febrúarlok
ef sanmingar hafa ekki tekizt fyr-
ir þann tíma.
, Samningar stáliðnaðarmann-
anna voru útrunnir s. ]. áramót.
•—P.euter-NTB.
Misnoiaðir
BERLÍN — Sigurvegarinn í hrað-
iltunarkeppni ' í Austur-Þýz'ka-
láridi riú nýverið, Hans Bernhard,
fékk ekki skrifstofumannsstöðuna
vegna „hlédi-ægni í stjórnmálum“
að því er útvarpið í Vestur-Berlín
tilkynnir. Bernhard hefur hins-
vegar fengið starf sem afgreiðslu-
maður á bar í Gera á austur-
þýzka hernámssvæöinu.
I hraðritunarkeppninni tókst
honum að skrifa 440 orð á mínútu.
—NTB.
Árangurinn af sfarf-
inu 1920 kemur í ijós
BRÁTT verður byrjað að nýta
stærstu skóga, sem mannshöndin
hefur gert. Það eru Kaingaroa-
skógarnir í Nýja-Sjálandi. Gróð-
ursetning skóga þessara, sem
þekja 1000 fermílna svæði fór fi am
árið 1920. í hinu tempraða lofts-
lagi Nýja-Sjálands hafa furutrén
þroskast og stækkað hraðar en í
heimkynnum þeirra í Kaliforníu
og Oregon.
Pappírsverksmiðjum og sögun-
armyllum verður komið upp í skóg
unum og framleiðslugeta þeirra
er áætluð um 100 þús. tonn blaðu-
pappips, 10 þús. tonn annars
pappírs og 10 þús. tonn trjákvoðu
árlega. Tveir þriðju hlutar fram-
leiðslunnar verður selt úr landi.
(UNESCO)
Júflát fyrir spellvirki
ANKARA: — Tyrkneska stjórnin
hefir leitt í lög dauðarefsingu fyr
ju: spellvirki.
25 milljarðar dala
PARÍS, 4. jan. — Vesturveldin
þrjú, Frakkland, Bretland og
Bandaríkin munu á fyrsta helm-
ingi þessa árs veita Júgóslöfum
25 milljarða dollara lán.
Á s. 1.' dri veittu Vesturveldin
þrjú Júgóslöfum 50 milljarða
dollara að láni. •—Reuter-NTB.
Churcfiiill
í New York
QUEEN MARY, 4. jan. — Á laug-
ardagsmorgun kemur hraðskreið
snekkja til móts við hafskipið
Queen Mary, úti fyrir New York,
tekur Churchill og fylgdarlið hans
og flytur til hafnar. Er þetta gert
til þess að viðræður hans og Tru-
mans geti hafizt hið fyrsta, en
hafskipið er mjög á eftir áætlun
sakir illviðris.
Meðal þeirra sem móti Churc-
hill taka er borgarstjóri New York
og sendiherra Breta í Bandaríkj-
unum, Sir Oliver Frank.
Churehill ekur gegnum borgina
í fylgd fjölmenns lögregiuliðs til
flugvallar þess er hann leggur upp
frá til Washington.
—Reuter-NTB.
Fjórir Egyptar líflátnir
Vopnaðir hópar vaða uppi
ISMAILIA 4. jan. — Ástandið á Suezsvæðinu snerist enn til hing
verra i dag er herstjórn Breta ákvað að loka skyldi öllum vegum
ti] og frá Suez. Þetta þýðir að olíuflutningar til Kairo eru stöðvaðir.
rvykkja bönnuð í Persíu
TEHERAN: — í Persíu hefir ver-
ið sett bann við, að menn neyti
áfengis í veitingahúsum og öðr-
um opinberum stöðum.
Tvö hafrannsóknar-
skip við Noreg
BERGEN, 4. jan. — Norðmenn
munu halda úti 2 hafrannsóknar-
skipum á slóðum síldarinnar í ár.
Viðgerðinni á G. O. Sars er nú
senn lokið. Tekur þá skipið aftur
við fyrri verkefnum sínum af
Andenes. Síðar mun rannsóknar-
skipið Johan Hjort hafa nána sam
vinnu við G. O. Sars. -—NTB.
^ÓLGA í SUEZ
★ í Suezborg er mikil ólga og
★ segja má að yfirvöldin hafi
★ misst alla stjórn á málunum.
★ Flokkar vopnaðra Egypta fara
★ um göturnar og kom í dag til
★ bardaga milli þeirra og
★ brezkra flokka, sem lyktaðí
★ með því að 2 Egyptar Iétu
★ Hfið.
V
„Fl.ving Enterprise" í því ástandi, sem það nú heggur öldur Atlantshafsins, 500 sjóniílur undan strönd-
um írlands.
Carlsen skipstjóri ekki lenpr einmana
LONDON, 4. jan. — Hinn ein-
mana skipstjóri, Henrik Kurt
Carlsen, á bandaríska kaup-
farlnu „Flying Enterprise"
fékk í dag kærkomna send-
ingu. Fyrsta stýrimanni á
brezka dráttarbátnum „Tur-
moil“ tókst að komast um borð
í hið hallandi skip.
Nú eru 5 sólarhringar liðn-
ir frá því að áhöfn kaupskips-
ins ameríska yfirgaf það. —
Skipið fékk mikla slagsíðu í
aftaka veðri og skipshöfnín og
farþegar vörpuðu sér í ískalt
hafið og var bjargað um borð
í annað skip, sem nú er komið
til Rotterdam. Skipstjórinn
einn varð eftir um borð og lét
þau orð falla, að hann yfirgæfi
ekki skipið meðan það flyti.
Bandarískur tundurspillir
kcm fljótlega á vettvang og
er reiðubúinn til að bjarga
hinum 31 ára gamla danskætt-
aða skipstjóra, ef í nauðirnar
rekur. Dráttarbáturinn Tur-
moil er og kominn á staðinn
og gerði í dag 7 árangurslaus-
ar tilraunir til að koma taug
í kaupfarið, en Carlsen tókst
ekki að handsama línuna.
Veður hefur nú versnað að
mun og tilraununum hætt í
bili. Skipið er ilía á sig kom-
ið. Það hallast 60° og sjór
gengur yfir það í sífellu. Það
lyftir sér þó vel úr öldunum,
en er nokkuð tekið að síga að
framan. Leki er kominn að
því miðskips og er talin hætta
á að það klofni í tvennt, en
Carlsen segir að afturendinn
muni fljóta og hann megi
draga til hafnar.
Seigla og harðfengi hins
danska skipstjóra er aðalfrétt
blaða og útvarps um alla álf-
una. Segja má að fylgzt sé
með hverri hreyfingu hans er
hann með erfiðismunum fótar
sig á þilfari hins haliandi
skips. Enska blaðið „Daily Ex-
press“ hefur sent foreldrum
hans í Kaupmannahöfn flug-
farmiða til London og heim
aftur. Eiga þau að fagna sín-
um hrausta syni er hann kem-
ur í land. Leggja gömlu hjón-
in af stað á sunnudag.
SKRIÐDREKUM BEITT
í kvöld var brezkum skrið-
drekum beitt gegn egypzkum
leyniskyttum, sem búið höfðu um
sig í grennd við vatnsból Bret-
anna. Beittu skriðdrekasveitirn-
ar falibyssum og vélbyssum og
er hermt að minnsta kosti 2 leyní
skyttur Egypta hafi látið lífið.
Breytingartiilögur |
Arabaríkjanna
PARÍS, 4. jan. ■— Umræður urðvt
miklar í dag í París um tillögu
Vishinskis um að kallaður yrði
saman fundur í öryggisráðinu þan
sem freistað yrði að koma á sætt-
um í Kóreu og draga úr þeim
spenningi sem nú ríkir í heimsmál-
unum.
Sjö Arabaríki, þar á meðal
Persía, lýstu í dag yfir stuðningi
sínum við tillöguna, en báru frani
þá breytingartillögu að hið sam-
eiginlega varnarnefnd skildi ekki
leyst upp.
Báru þau einnig fram tillögu
þess efnis að herliði S. Þ. sem
beitt skal gegn árásaraðilja, skuli
ekki sent á vettvang tii nokkurs
lands, nema viðkomandi land óski
þess. —Keuter-NTB.
Mossadeq biður um
endurskoðun
LONDON, 4. jan. — Breska ut-
anríkisráðuneytinu hefur borizt
bréf frá Alþjóðabankanum. Er
það mjög sniðið eftir því bréfi
sem bankinn sendi ríkisstjórn
Irans á dögunum varðandi rekst-
ur olíuhreinsunarstöðvanna.
Mossadeq forsætisráðherra hef-
ur favúð þess á leit við stjórn bank
ans að endurskoðuð verði ákvæðin
um skiptingu hagnaðarins af
rekstri hreinsunarstöðvanna.
•—Reuter-NTB.
Meisiaraverkið end-
urreisi fyrir gjafafé
FYRIR gjafafé sem safnað hef-
ur verið um gjörvallt Austurríki
mun endurbyggingu St. Stephens
dómkirkjunnar í Vínarborg verða
nær fulllokið á næsta vori.
Þetta 800 ára gamla meistara-
verk, — tákn hinnar gotneskvt
listar, var nær því gereyðilagt á
síðustu mánuðum ófriðarins. Hvert
einstakt hérað landsins hefur lagt
fram sinn skerf til endurbygging-
arinnar. Woralberg t. d. hefur
lagt til gluggana, Tyrol kerta-
stjakana, Carintthia klukkurnar,
sem vega 120 tonn o. s. frvj
(UNESCO);