Morgunblaðið - 05.01.1952, Síða 12
Greiðsíuifgangi ríkissjéðs
varið fii aivinnuaukningar
Nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar
EINS og lýst var yfir fyrir jól af hálfu ríkisstjórnarinnar hefur nú
verið lagt fram stjórnarfrv. í neðri deild um ráðstöfun á greiðslu-
aígangi ríkissjóðs árið 1951. Er í frv. farið fram á, að ríkisstjórn-
inni sé heimilað að verja 38 millj. kr. af tekjum ríkissjóðs árið 1951
til ýmissa bráðnauðsynlegra framkvæmda og munu því auka at-
vinnu í landinu.
STÓRFÉ VARIÐ
TIL FRAMKVÆMDA
Ríkisstjórninni er heimilt að
verja 38 millj. króna af tekjum
ríkisgjóðs árið 1951 sem hér
segir:
Að lána Ræktunarsjóði og
Byggingarsjóði 15 millj. kr. Að
lána byggingarsjóði verkamanna
4 millj. kr. Að lána sveitarfélög-
wm til útrýmingar heilsuspillandi
íbúða, skv. III. kafla laga nr. 44/
1946 4 millj. kr. Að lána til bygg-
ingar smáíbúða 4 millj. kr. Að
kaupa hlutabréf í Iðnaðarbar.ka
ísiands h.f. fyrir 3 millj. kr. Að
greiða upp í hluta ríkissjóðs af
stofnkostnaði við skóia, sem þeg-
ar hafa verið byggðir 5 millj. kr.
Að greiða upp í hluta ríkissjóðs
af kostnaði við hafnargerðir, sem
þegar hafa verið framkvæmdar
2 millj. kr. Að lána veðdeild
Búnaðarbanka íslands 1 millj. kr.
Vextir af lánum, skv. 1., 2., 3.,
4. og 8. tölulið skulu vera 5'/2%
á ári og lánstími 20 ár.
VERULEGUP,
GREIÐSLUAFGANGUR 1951
I athugasemdum við lagafrum-
varp þetta segir svo:
„Verulegur greiðsluafgangur
mun verða hjá rikissjóði árið
1951. Á þessu stigi er ekki hægt
að segja nákvæmlega um það,
hversu mikill þessi afgangur
verður, en þess er vænzt, að hann
verði ekki innan við 50 millj.
króna. Þar sem fjárþörf til þeirra
mála, sem um ræðir í 1. gr.
þessa frumvarps er mjög brýn,
hefur ríkisstjórnin talið rétt að
fá heimild Alþingis til þess að
verja 38 millj. króna af greiðslu-
afgangi ríkissjóðs svo sem þar
greinir. Reyndar hefði ríkisstjórn
in talið æskilegra að hægt hefði
verið að vei'ja til skuldagreiðslu
eða hafa tiltæka stærri fjárhæð
af greiðsluafgangi ársins en hægt
verður að gera þegar búið er að
ráðstafa því, sem frumvarpið
gerir ráð fyrir, einkum þar sem
tvísýnt er um aíkomuhorfur, en
vegna þess hve þörfin er brýn
fyrir framlög þau, sem í frum-
varpinu eru greind, þykir ríkis-
stjórninni nauðsyn til bera að
leggja fram það fé, sem frum-
varpið gerir ráð fyrir og leitar
því heimíldar Alþingis.“
Fðr í reynsluför
í næslu viku
HANNES PÁLSSON skipstjóri,
er farinn til Bretlands til að
sækja hið nýja skip sitt, Bæjar-
útgerðartogarann Þorkel Mána.
Fór Hannes skipstjóri héðan á
miðvikudaginn með Gullfaxa og
fór með honum Jón Axel Péturs-
son framkvæmdastjóri. Þorkell
Máni er byggður í skipasmíðastöð-
inni í Goole. Er ráðgert að skipið
fari í reynsluför á þriðjudaginn
kemur. Hingað heim er togarinn
væntaniegur seinnipart mánaðar-
ins.
Hannes Pálsson var síðast skip-
stjóri á Þorsteini Ingólfssyni, en
Gunnar Þórarinsson er tekinn við
skipstjórn þar af honum.
Fyrstu róðrarnir
á vertíðinni
BÁTARNIR úr verstöðvunum
hér við Faxaflóa og á Suðurnesj-
um fóru í fyrrakvöld í róður. Er
þetta fyrsti róðurinn á vertíðinni
og þar eð skipin eru almennt
ekki enn bixin tii veiða voru að-
eins fáir bátar á sjó. Afli mun
b"a verið allmisjafn. Bæði var
sjóveður ekki gott og sumir bát-
aana tentu , suðaustan veðrinu.
Var aflinn frá rúmlega tvö til sjö
og hálft tonn á bát._
Allgott heilsutar
samkv. síðustu
skýrslum
SAMKVÆMT síðustu skýrslum
lækna bæjai'ins til skrifstofu borg-
arlæknis um heilsufar bæjarbúa
22. des s. 1., virðist heilsufar bæj-
arbúa hafa verið m.jög sæmilegt
þá. Mest áberandi kvillar eru þá
kverkabólga og kvef. — Skýrsla
skrifstofu borgai-læknis fer hér á
eftir, í svigum eru tölur frá næstu
viku á undan:
Kverkabólga ............ 88 (96)
Kvefsótt ..............t 46 (89)
Gigtsótt ................ 0 ( 2)
Iðrakvef ............... 15 (26)
Influenza ./............... 2(2)
Hvotsótt .................. 4(2)
Kveflungnabólga ........... 6(6)
Munnangur ................. 1(2)
Kikhósti ............... 1 ( 4)
Hlaupabóla..........: ... 2(5)
Ristill :................ 1 ( 0)
Leftur Guðmundssoe
Ijésmyndari, láfinn
LOFTUR Guðmundsson, kgl.
hirðijósmyndari, andaðist í
Landsspítalanum í gær eftir löng
veikindi. — Loftur heitinn var á
marga lund óvenjulegur maður,
framtakssamur og hugmyndarík-
ur. Hafði rekið hér ljósmynda-
stofu i mörg ár og verið braut-
ryðjandi í starfi sínu. — Hann
réðist meðal annars fyrstur
manna í það þrekvirki að gera
samfellda kvikmynd frá íslenzku
þjóðiifi og atvinnuháttum.
íbóðarhús brennur ’
í Seláibyggðinni 1
I FYRRADAG brann ofan af
fjögurra manna fjölskyldu sem
bjó í einu litlu húsanna í Selás-
byggðinni. —Svo bráður var eld-
urinn að engu vai’ð bjargað. Hús-
móðirin var ein heima með tvij
börn sín og tókst henni á sfðastáj
augnabliki að komast út með þaiu
1 húsi þessu, sem var Selás-
blettur 22A, bjó Kolbeinn Sigur-
geirsson vörubílstjóri. Var hús
hans úr timbri en múrhúðað og
brann það áð grunrii á skömmum
tíma.
Unnið er nú að því að hreinsa snjóinn af Tjörninni með það fyrir
augum að gera þar skautasvell. Hefur Skautafélag Reykjavíkur
fengið tvær snjóýtur til þess verks. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
Ríkisstjórninni haía nýlega
borizt forsendur Haagdómsins
Þegar Slökkviliðið kom, var hús
ið allt orðið alelda og vonlaust að
bjarga því frá eyðileggingu. Branri
þar allt sem fólkið átti, húsbún-
aður og fatnaður. Á fólkið ekki
annað fata en þau, sem það var í
er húsið brann. Hús og innbú mua
hafa verlð lágt vátryggt og er
tjónið því tilfinnanlegt.
Vatnslaust er þarna og höfðu
slökkviliðsmenn ekki annað vatir
en það sem var í vatnsgeymum
slökkviliðsbílanna. Eldsupptök eru
talin vera út frá rafmagni.
Ákveður aðgerSir sínar að vei yfirveguðu máii
Á FUNDI Efri deildar í gær spurðist Haraldur Guðmundsson fyrir
um það, utan dagskrár, hvort hingað til lands væru komnar for-
séndur að dómi Haagdómstólsins í landhelgismáli Breta og Norð-
manna og hvort ríkisstjórnin hefði tekið ákvörðun um, hvað næst
skyldi gert til að koma fram kröfum íslendinga um stækkun land-
helginnar.
Bjarni Benediktsson varð fyrir^
svörum og sagði, að vegna ó-
heppilegra póstferða nú um há-
tíðirnar hefði dómurinn ásamt
forsendunum fyrst komið í hend-
ur ríkisstjórnarinnar nú fyrir fá-
einum dögum. Ráðherrann sagð-
ist hafa lesið dóminn ásamt for-
sendurtum og væri nú þegar haf-
ir athugun á því, hvern lærdóm
mætti af forsendunum draga og
roundu sérfræðingar þeir, er rík-
isstjórrtin hefur kvatt til, halda
þeirri athugun áfram nú næstu
daga.
EINSKIS LÁTIÐ ÓFREISTAÐ
Enn væri því óf snemmt að
ræða um væntánlegar aðgerðir í
einstökum atriðum, en óhætt
væri að lýsa yfir, að ríkisstjórnin
mundi einskis láta ófreistað, sem
líklegt væri til þess að koma
fram nauðsynlegri friðun á fiski-
miðunum hér við land. Enn væri
of snemmt að segja til um, hvort
unnt mundi að kveða á um til-
teknar aðgerðir, áður en Alþingi
því er nú sæti yrði slitið. Skipti
það og ekki máli heldur hitt, að
þær ákvarðanir, sem teknar yrðu,
gæti staðizt svo að ekki væri
verr farið en heima setið.
MÁLIÐ VEL UNDIRBÚIÐ
Mundi ríkisstjórnin undirbúa
allt málið svo vel sem nokkur
kostur væri á og um allar fram-
kvæmdir hafa samráð við rétta
aðila, svo að sem mestar líkur
sköpuðust fyrir heillaríkum
framgangi þessa mikilsverða vel-
ferðar máls.
Amerísku itúdenf-
arnir sigruðu
AMERlSKU körfukriattleiksmenn
irnir sýndu og kepptu í körfu-
knattleik að Hálogalandi í gær-
kvöldi. Leiknum við lR lyktaði
með sigri stúdentanna. Hlutu þeir
65 stig gegn 16.
Fullt hús áhorfenda var að
keppninni. Nokkuð mikið vantaði
á að húsið væri í fullkomnu lagi.
M. a. slökknuðu ljósin fjórum eða
fimm sinnum meðan á keppninni
stóð. Og ekki var hægt að bjóða
gestpnum upp á heitt bað að
keppninni lokinni.
Guilfaxi úr iyrstu
utaniandstörinni
a arinu
Kona verður fyrir bíi
í gærdag varð kona fyrir bíl á
Laugavegi, við gatnamót Vita-
stígs og Laugavegs. Konan heitir
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Háa-
leitisvegi 19.
Hún fékk slæma byltu, meidd-
ist bæði á baki og höfði. — Var
hún flutt í sjúkrahús, én síðan
heim til sín, er meiðsli hennar
höfðu verið rannsökuð og búið
um þau. Það var R-5200 er lentl
á konunni.
----------------- H
Áframhaldandi
GULLFÁXI kom frá Prestvík og,
Káupmánnahöfn kl. 2 í gær. — Vél
in hafði þá tafist í sólarhring
vegna veðurs. — Með flugvélinni
voru 27 farþegar, á þriðja tonn
af Vörum og 550 kg. af pósti. —
Ekkert af þeim pósti var kominn
í box í gærkveldi kl. 6, enda ekki
byrjað að vinna við póstinn fyrr
en nokkru síðar.
HLÁKA var um land allt í gær.
Hér í nærsveitum Reykjavíkur
voru vegir víða ruddir og er mi
betra ástand í samgöngumálurn
en verið hefur. í nótt var snjó-
koma, en með degi í dag spáðí
Veðurstofan suðaustan stormi,
8—10 vindstig, með slyddu og sí5
ar rigningu.
HeitigagsíslII cii karla
eannars sama iiskleysi^
ENN er afli mjög trégur hjá togurunum, sem stunda ísfiskveiðaií
fyrir Bretlandsmarkað. — Aftur á móti hefur verið reitingsafli á
karfaveiðunum. Frá áramótum hafa tveir togarar selt í Bretlandi.
Eins og stendur eru 17 íogaraF-—---- ~ *------*
á ísfiskveiðum fyrir Bretlands-
markaðinn. Er afli þeirra mjög
tregur eins og verið hefur undan-
farið. Togarar sem á útleið eru
nú, hafa verið lengi á veiðum og
eru með 2000—2800 kit hver. Einn
þeirra tók afla úr öðrum togara
til viðbótar eigin afla. .
REITINGUR AF KARFA
Eeitingsafli hefur verið í karfa
undanfarið. Um daginn kom
Neptúnus inn með um 250 tonn.
Hafði hann verið 13 daga úti og
verður það að teljast stutt veiði-
ferð miðað við þann tíma sem
farið hefur í veiðiferðir skipanna
undanfarið.
Nú eru sex togarar á útleið.
Sólborg, sem tók fisk úr Isborg,
mun sel.fa á mánudaginn, og þá
selur einnig Hallveig Fróðadóttir.
— Á þriðjudaginn selja Ólafur
Jóhannsson, Helgafell og Kefl-
víkingur á miðvikudaginn. Elliði
sem fer í dag til Bretlands selur
væntanlega á fimmtudaginn kem-
ur.
Tvær síðustu ísfisksölur eru hjá
Þorsteini Ingólfssyni, sem seldi
2862 kit fyrir 8862 pund og Fyiki
er seldi 2482 ikit fyrir 8468 pund.