Morgunblaðið - 02.03.1952, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 2. marz 1952
Skýrsla ulanríkisráðherra
Framh. af hls. 1
«ns, því að eins og er tekur á-
( fcyrgðaryfirlýsingin, sem í
Atlantshafssáttmálanum felst,
«innig til setuliðs hernámsríkj-
anna í Vestur-Þýzkalandi.
Auðvitað er of snemmt að
«egja til um það, hvort samning-
«r þessir verða endanlega stað-
Cestir af aðildarríkjunum og er
®.m.k. gert ráð fyrir, að staðfest-
4ngin muni taka alllangan tíma.
Engu að síður er talið. að n.jög
«nikið hafi nú áunnizt til aukins
«ryggis, því að með þessu eru
■iskapaðir miklu meiri möguleikar
til haldgóðrar samvinnu Frakka
■og Þjóðverja en nokkru sinni
; fyrr, jafnframt því sem styrk-
leiki lýðræðisríkjanna í heild til
varnar gegn óréttmættri árás vex
-«njög.
ji: Oi.
VAH.VARSAMTÖKIN ÍÞVNGI
«KKt FJÁRHAGNUiVI UM OF
Annað merkasta viðfangsefni
fundarins var samþykkt á tillög-
tim og skýrslu svokallaðrar bráða
tbirgðánefndar, sem Harriman,
‘fuiltPúi Bandaríkjanna veitti for-
*töðii^i í tillögum nefndar þess-
^rar yar gerð grein fyrir hvernig
fcyggja mætti upp nægílégan vavn
arstyrk á skömmum tíma án þess
að af því leiddi of mikla trufiun
é fjárliag og félagsmálum þeirra
cíkja, 'sém standa undir endurvíg-
fcúnað*4num. Þetta er mjög erfitt
viðfangsefni, því að þjóðir þessar
taka nú ’á sig ótrúíega þungar
Ijyrðar til að tryggja varnir sínar
«g samtakanna í heild.
Þá vaj ákveðið. að efnahags-
*amvinnan, sem áður var kennd
við Marshall, breytist í samvinnu
til verndaiv»öryggi aðildarrikj-
anna, og kom hin nýja skipan
t>eirra mála mjög til greina í sam-
fcandi við skýrslu Harrimannefnd
arinnar.
ísland þarf-að visu ekki að
Ætanda undir kostnaði af varnar-
framkvæmdum umfram það, sem
aegir í varnarsamningnum milli
íslands og Bandaríkjanna, en
Ijóst er þó að okkur varðar mjög
miklu hverju fram vindur í þess-
um fjárhagsmálefnum. Verðum
við því sérstaklega að fylgjast
með þeim.
Enn eitt vandamál, sem tókst
að semja um á fundinum, var um
fjárframlög til byggingar á flug-
völlum, eflingar á fjarskiþtaþjón-
ustu og byggingar á bækistöðv-
um fyrir herstjórnir. Er hér um
að ræða hluta af ákveðinni á-
ætlun, sem tekur til þeirra landa,
er lagt hafa til heri undir stjórn
Eisenhowers hershöfðingja, og
varðaði þetta mál því ekki Is-
land.
BREYTT STARFSTILHÖGUN
Þá var á fundinum gerð þýð-
ingarmikil breyting á starfshátt-
um Atlantshafsráðsins. Er ákveð-
áð að í stað þess að koma saman
öðru hvqru, eins og hingað til,
*kuli það riú hafa stöðuga, sam-
fellda furjjdi og velji ríkisstjórn-
irnar sérstaka trúnaðarmenn og
fceina umboðsmenn sína til fastr-
ar setu í ráðinu, en jafnframt er
f)ó ætlast þil að ráðherrarnir sjálf
ir mæti á fundum öðru hvoru,
oða sennilega þrisvar'á ári.
Samtímis, og þessi breyting
kemst á verða lagðar niður ýms-
ar undirnefndir, sem áður hafa
starfað innan ráðsins eða í um-
Uoði þess. Nauðsynlegt þótti að
bækistöðvar ráðsins yrðu á sama
*tað og nokkrar aðrar alþjóð-
legar stofnanir, sem fjalla um
«vipuð mál, svo sem t.d. Marshall
«tofnunin í Evrópu og varnarsam
Aök Evrópu, og var ráðinu því
fenginn staður í París, en hingað
"til hafa aðalbækistöðvar þess
verið í London.
Þá var ákveðið að velja sér-
*takan forstjóra stofnunarinnar
og var skorað á sendiherra Breta
-í Washington, Sir Oliver Franks,
bnn árætasta mar.n, að taka það
.ft?rf að.sér, en hann reyndist ó-
f' ■ -!p"ur til þ•>«'!. ng ve-ð"” því
r \ annan'tiJ "ð b'ó-!i
v'’das?ma en mik'h æ-f’ t-nn-
^nð’rstvfi, o" nin s'm:ð um
Irve'r ■þ'a'ð' ‘fdi’ðtfr íýí'iv rníiiigöngu
varamanna utanríkisráðherranna
í Londo.n.
ÖRUGGAR VARNIR BEZTA
TRYGGING GEGN ÁRÁS
Aðilar Atlantshafsbandalags-
ins eru sannfærðir um, að örugg-
ar varnir muni reynast bezta
hindrunin gegn árás, en það var
vegna slíkrar yfirvofandi hættu,
sem samtökin urðu til í fyrstu og
þau síðan hafa verið efld. Til-
gangurinn með samtökunum er
að stuðla að því að friður haldist
og þeim liðsstyrk, sem nú er ver-
ið að koma upp með sameigin-
legum átökum aðildarþjóðanna,
verður einungis beitt til varnar
löndum-þeirra og til öryggis fyr-
ir þátttökuþjóðirnar. Vaxandi
vonir standa til þess, að beinni
á”ás verði bægt frá, en vitanlega-
tekst það ekki með því að slappa
af og láta undir höfuð leggjast
nauðsynlegar aðgerðir til vernd-
ar friði og frelsi i heiminum. En
með nægri árvekni, atorku og
samvinnu vonast aðilar til, að
, hægt sé að koma í veg fyrir ófrið,
og treysta því einnig, að þeir tím-
j ar muni koma, að ekki þurfi að
|eyða jafnmikilli orku og nú til
,varna, heldur geti menn í vax-
andi mæli beint kröftunum að
samvinnu um önnur efni til vei-
farnaðar fyrir þióðir sínar og til
framfara öllum til heilla.
Þess vegna verða allir góðvili-
aðir menn, að halda áfram að
efla Atlantshafsbandalagið, ekki
einungis að því er varðar varn-
irnar, heldur einnig til aukning-
ar efnahagslegrar og margskonar
menningarlegrar samvinnu, því
tryggja ber að þeir friðartímar,
sem menn vona að í vændum séu,
verði tímar farsældar, hamingju
og framfara öllum almenningi til
góðs.
209 keppendur í
Handknaitleiksmóli
skélanna
HANDKNATTLEIKSMÓT skój-
anna hefst á morgun kl. 3 í í-
þróttahúsinu við Hálogaland. —
Flestir framhaldsskólar í Reykja
vík og Hafnarfirði senda lið til
keppninnar, eða Háskólinn,
Menntaskólinn, Verzlunarskól-
inn, Flensborgarskóli, Kvenna-
skólinn, Gangfræðaskóli Vestur-
bæjar, Gagnfræðaskóli Austur-
bæjar og Iðnskólinn. Einnig taka
nú tveir miðskólar þátt í mótinu
í fyrsta sinn, Laugarnesskólinn
og Hringbrautar-skólinn.
Keppendur eru mjög margir,
eðg um 200 alls. Er þetta því fjöl-
mennasta íþróttamót ársins. —
IFRN sér um mótið.
Sigurvegarar 1951 voru:
Kvennaskólinn í kvenflokki,
Menntaskólinn í I.-flokki og II,-
flokki og Gagnfærðaskóli Vestur-
bæjar í Ill.-flokki.
Búnaðarþing gerir
ályklun um báta-
gjaldeyri
Á FUNDI Búnaðarþings í gær
var samþykkt svofelld ályktun
um bátagjaldeyrisskipulagið:
„Búnaðarþingi telur að hlunn-
indi þau, sem útgerðinni eru veitt
með svokölluðum bátagjaldeyri
séu mjög vafasöm ráðstöfun og
komi illa við hag bænda, sem
anharra landsmanna.
Skorar þingið því á ríkisstjórn-
ina að láta fara fram rækilega
athugun á því, hvort vandkvæði
útgerðarinnar verði ekki leyst á
annan hagfelldari hátt, svo að af-
nema megi bátagjaldeyrisfríðind-
in í núverandi mynd.
Verði hins vegar þessi ráðstöf-
trtjn ói’mflý.janlcg, sem varan
>'•—hn »o-ðu- Búnrðsr-
bíng rð i—ef’rst þess, að slík fríð-
indi ve:ð! látin >-á til útfiuttra
landbúr.aðarafin ða“/ ■
Rögnvaldur
Sigurjónsson heldur
píanóhjólmleika
á mióvikudaginn
RÖGNVALDUR Sigurjónsson
efnir til hljómleika í Austurbæj-
1 arbíói á miðvikudaginn kl. 7.15.
Á efnisskránni verður prelúdía
(og fúga í F-moll eftir Mendel-
sohn, rondó í Es-dúr eftir
Hummel og hin fræga H-moll
sónata Chopins (ópus 58). Á síð-
ari hluta efnisskrárinnar verða
Paganini-tilbrigðin eftir Brahms
(fyrri bókin), intermezzo og
1 glettur eftir Pál ísólfsson og
Polonaise eftir Liszt.
I Þetta verða einu hljómleikar
Rögnvalds á þessum vetri, og
verður ekki hægt að endurnýja
i þá, vegna tímaskorts, kostnaðar
og annarra orsaka. Má því búast
j við mikilli aðsókn, þegar einn
;af fremstu hljómlistarmönnum
landsins efnir til einstæðra
hljómleika.
Eins og sjá má af söngskránni,
hefur Rögnvaldur að þessu sinni
nær eingöngu takmarkað efnis-
val sitt við rómantíska tímabilið,
en flest þeirra verka, sem hann
leikur mega teljast nfbð því feg-
ursta, sem samið var á þessu
mikla gróskuskeiði tónlistarinnar
í Evrópu. Má sérstaklega nefna
H-moll sónötu Chopins, sem langt
er síðan heyrzt hefur hér á hljóm
leikum, og talið er bæði eitt til-
komumesta og bezt gerða verk
hins mikla píanista. Þá má nefna
Paganini-tilbrigðin eftir Brahms,
sem eru byggð um einfalt stef
eftir fiðlumeistarann alkunna.
Samdi Brahms tvö sjálfstæð verk
um sama stefið, og nefnast þau
venjulega fyrri og síðari ,,bókin“.
Verk þetta er í senn meistaralega
samið og reynir til hins ítrasta á
tækni píanóleikarans. Svo sem
sjá má af þessu ágripi, færist
Rögnvaldur ekki lítið í fang, og
eru þessir hljómleikar hans ár-
angur af margra mánaða vinnu
og æfingum, enda þótt fyrirhafn-
arlaust muni sjálfsagt virðast
þegar á pallinn er komið. Það er
því rík ástæða til þess að benda
söngelsku fólki á þessa einstæðu
hljómleika og hvetja það til þess
að láta ekki tækifærið ganga sér
úr greipum.
B. G.
UTSVARSMALI
í HAFNARFIIBI
Greinargerð frá fulltrúum Sjálhstæðis-
ílokksins í niðurjöfnunarnefnd
ÞAR SEM nokkrar umræður
hafa orðið í blöðum út af störf-
um niðurjöfnunarnefndarinnar í
Haínarfirði, þykir okkur undir-
rituðum fulltrúum Sjálfstæðis-1
flokksins í niðurjöfnunarnefnd-
inni, rétt að skýra þetta mál, svo
að hið rétta komi fram.
UPPHAF MÁLSINS
Á meðan útsvarsskrá lá frammi
var allmikið rætt um útsvör ein-
stakra manna eins og venja er
í bæjar- og sveitarfélagi, þar sem
hver þekkir annan og við þær
umræður og samanburð á útsvör-
um kom í ljós, að tveimur gjald-
endum, þeim Emil Jónssyni og
Ásgeiri G. Stefánssyni hafði ver-1
I ið gert að greiða lægri útsvör en ’
I þeim bar samkvæmt þeim álagn-
i ingarreglum, sem niðurjöfnunar-
jnefnd setti sér við ákvörðun út-
svara. — Yfir þessum skekkjum
(var ekki kært, þótt sumum nefnd
‘ armönnum væri frá þeim skýrt ]
og þeim þannig ljóst, að mistök
jhöfðu átt sér stað.
j MÁLIÐ TEKIÐ FYRIR
Þegar niðurjöfnunarnefnd tók
útsvarskærur fyrir, vakti annar
fulltrúi Sjálfstæðismanna í
1 nefndinni athygli á þessum mis-
tökum á fyrsta fundi nefndar-
innar og var þá ákveðið að taka
Imál þetta fyrir, þegar lokið væri
afgreiðslu þeirra erinda, sem
j skrifleg höfðu borizt til nefndar-
innar. Var það síðan gert á fu.ndi
; nefndarinnar, sem haldinn var
19. júlí og yfirreiknuð útsvör
Enskð knðlfspyrnan
ÚRSLIT í I. deild brezku knatt-
spyrnunnar, sem fram fór í gær:
Bolton 2 — Wolves 2
Butyiley 0 — Arsenal 1
Chelton 2 — Blackpool 0
Fulham 1 •— Liverpool 1
Manch. U. 1 — Aston Villa 1
Middlesb. 2 -— Portsmouth 1
Newcastle 6 — Huddersfield 2
Preston N.E. 1 — Manch. C. 1
Stoke 1 — Sunderland 1
Tottenham 5 — Derby 0
W. B.A. 0 ■— Chelsea 1
Tapleikur Portsmouths kom
mest á óvart í leikjunum á laugar
dag og jafnframt hinn sterki leik-
ur Newcastle, sem er vísbending
um, að það lið muni vinna Ports-
mouth, er áður var talið óliklegt.
— Að öðru leyti má geta glæsi-
legs leiks Tottenhams gegn Derby.
II. deild:
Burmingham 3 — Coventry 1
P.rentford 3 — Luton 3
Cardiff 1 — Westham 1
Doncaster 1 — Notts C. 5
Everton-3 — Q.P.R. 0
Leeds 1 — Bansley 0
Lester 1 — Svansea 1
Nottingham F. 1 — Bury 0
Rotherham 3 — Cheffield U. 1
Sheffield W. 6 — HulJ 1
Southamton 2 — Blackburn 1
1 annarri deild kom tap Black-
burn mest á óvænt, en BlackbUrn
leikur við Burnley í bikarkeppn-
inni n.k. laugardag.
í bikarkeppninni er ennþá óút-
kljáð miili Leeds og Chelsea. Leik
urian Silv -miðviku<Iag oíKlaði 1:1.
fyrrnefndra gjaldenda og var bá
nefndinni allri ljóst, að mistök
höfðu átt sér stað.
MALINU FRESTAÐ
Á téðum fundi voru tveir að-
alnefndarmennirnir, þeir Þor-
valdur Árnason skattstjóri og
Helgi Hannesson bæjarstjóri fjar-
verandi, en varamenn voru mætt
ir í þeirrá stað og skipaði vara-
bæjarstjóri, Guðmundur Gissu”-
arson formannssætið. Forrnaður
sagðist þá ekki vilja taka ákvörð
un um þctta mál með tveimur j
varamönnum og óskaði eftir því!
að afgreiðslu yrði frestað þar till
Þorvaldur kæmi í bæinn, en hans
var von um kvöldið eða næsta
dag. Sagðist formaður þá mundi'
strax kalla nefndina saman. Var I
þá og talið rétt að nefndin gerði
athuganir á útsvörum fleiri gjald
enda til að ganga úr skugga um,
hvort um fleiri mistök þessu lík
væri að ræða. Fundur þessi var
svo ekki haldinn þrátt fyrir ítrek
aðar beiðnir þar um, að vísu
munnlegar, af hálfu okkar undir-
ritaðra.
FUNDAR KRAFIZT
MEÐ BRÉFI
Við, sem skipum minnihluta
nefndarinnar litum svo á, að
skekkjur þessar bæri að leið-
rétta, enda þótt ekki bærist skrif-
leg kæra, og tilkynna viðkom-
andi aðilum og gefa þeim kost á
að kvarta yfir útsvari sínu eftir
breytinguna, enda töldum við
fulla heimild í lögum tiLslíkra
breytinga/ Við töldum einnig, að
þetta bæri að gera án óþarfa
dráttar, og nánast sagt, að það
ætti að úrskurða þetta um leið og
kærur voru úrskurðaðar. Á með-
an ekki var gengið frá þessum
atriðum tóldum við að störfum
nefndarinnar væri ekki lokið.
j Þegar svo fundur hafði ekki
verið haldinn þrátt fyrir ítrek-
aðar óskir okkar, þá skrifuðum
við 19. nóv. s.l. bréf til for-
manns níðurjöfnunarnefndar,
Helga Hannessonar, þar sem við
kröfðumst þess að fundur yrði
hakrinn innan viku/eða-að öðr-um
kosti mundum við grípa til ann»
arra ráða í máli þessu.
FUNDUR HALDINN
Árangur bréfs þessa varð sáá
að fundur var haldinn í refnd-
inni, þó ekki fyrr en 3. des. s.l.
og voru þá mál þessi tekin fyrirt
ásamt öðrum málum, sem til
nefndarinnar höfðu borizt. Stóð
þá þannig á, að framtöl ársing
195,0 voru öll komin til ríkis-<
skattanefndar, en náð hafði ver<
ið í þau framtöl, sem snertu þa>4
erindi, sem fyrir láu. i
Var nú ennþá farið fram á þacS
af meirihluta nefndarinnar að afi
greiðslu þessara mála yrði fresti
að og áðurnefndar „stikkprufu^‘,
gerðar til að athuga, hvort urra
fleiri slíkar skekkjur væri a0
ræða. Var það samþykkt og jafn<
framt ákveðið að Þorvaldui?
Árnason og Helgi Hannesson at-<
huguðu um fundartíma hið allrai
fyrsta og m. a. það, að fá a<3
halda fund inni í Reykjavik til
að þurfa ekki að hafa fyrir því,
að flytja framtölin, sem var nokl^
ur fyrirhöfn. Hinir nefndarmenn-*
irnir, allir, tjáðu sig geta mætH
fyrirvaralítið á fundi í þess4
efni. (
NY VIÐHORF
Ennþá dróst, að bæjarstjórj
kallaði saman fund í nefndinni,
en þá skeður það 18. des. s.l., að
tekin er á dagskrá bæjarstjórn?
arfundar kosning manna í niður-<
jöfnunarnefnd. Því verður ekkl
neitað, að hjá okkur vaknaði eft-<
ir allt, sem á undan var gengið
grunur um, að það væri ætlurt
meirihluta nefndarinnar að koma
sér hjá því að leiðrétta áðurnefncl
útsvör og svipta okkur umboðj
til að ljúka störfum og láta mál->
ið falla þannig niður. Við rit<
uðum því bæjarstjórn Hafnar->
fjarðar bréf, þar sem við skýrð-*
um frá því, að störfum nefndar-*
innar væri ekki lokið og vitnuð-
um í því sambandi til bókunap
niðurjöfnunarnefndar frá 3. des-
s.l. svo og til bréfs þess, sem við
skrifuðum formanni niðurjöfn-
unarnefndar 19. nóv. s.l., en þari
var að finna fullar upplýsingar;
um það, sem ólokið var af störf?
um nefndarinnar.
BRÉFIÐ KEMUR EKKI FRAIVT
Þegar hér er komið sögu, skeð-
ur það, að kosning niðurjöfnunar-
nefndar er tekin út af dagskrá og
bréfið ekki lagt fyrir fundinn. |
blaðinu Hamri, 22. febr. s.l., vap
svo vakið máls á því, að ’bréfl
þessu hefði verið stungið undiij
stól, því það hafði ekki verið lagfi
fram í bæjarstjórn þrátt fyrir
að fundir höfðu verið haldnir, né
heldur verið lagt fram í bæjar-
ráði. Fundur hafði heldur ekk3
verið haldinn í niðurjöfnunar-
nefnd eða kosning hennar tekira
á dagskrá á ný. Að vísu léði bæj-
arstjóri máls á því við annara
okkar, að hann þyrfti að fara aSi
halda fund, en slíkt var búið aði
gerast í sumar án þess nokku<3
meira yrði úr því.
^ I
FYRIRSPURNIR
í BÆJARSTJÓRN
Á bæjarstjórnarfundi, serra
haldinn var 26. febr. s.l. gerð4
bæj arfulltrúar Sj áifstæðisí'okk;-
ins fyrirspurn til bæjarstjóransa
Helga Hannessonar, um áður-
nefnt bréf svo og hvað störfunS
niðurj öfnunarnefndar liði. Kröfð-
ust þeir þess, að bréfið yrði lesið
upp á fundinum, en bæjarstjór?
neitaði að géra það.
Fundur var síðan boðaður j
niðurjöfnunarnefnd 28. febr. s.l,
og var þá gengið frá málum þess-t
Frh. á bls. 12, J