Morgunblaðið - 23.03.1952, Qupperneq 15
Sunnudagur 23. marz 1952
MORGVffBLAÐIB
15
Félagslíf
K.H., meisliirar og 1. fl.
Æfing að Háloganlandi i dag kl.
3,30. — Þjálfarinn.
F RAM!
Útiæfingar á Framvellinum i dag
fyrir 3)a fltvkk kl. 10,00, og meistara,
1. og 2. flokkur kl. 11,00. — Mætiá
stundvislega. — INefndin.
F r jálsíþróttaHómara-
námskeið F. U. R.
'hefst annað kvöld. Ennþá getá
þeir, sem vilja taka þátt í þessu
námskeiði, eða prófi að námskeiðinu
loknu. sótt um það í dag til Þórarins
Magnússonar i sima 7458.
— F. D. R.
Handknattleiksstúlkur
Armanns!
Æfing vorður í kvöld kl. 6 fyrir
yngri flokk, að Hálogaland:. Mætið
stundvislega. — Nefndin.
VlKIl\GAR! Knattspyrnnmenn!
Meistarar, 1. ojs; 2. flokkur: —>
Hlaupaæfing verður frá Vaisheimil-
inu að Hliðarenda í dag kl. 10,3Q
fyrir hádegi. Mjög áríðandi að allir
mæti. — Þjálfarinn.
■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■
I. O. G. T.
9t.-Framt4Sin nr. 173
Fundur annað kvöld kl. 8,30. —
Stúkan Einingin heimsækir. -— Kosn
ing embættismanna, fjármálanefndar
og þingstúkufulltrúa. — Æ.t.
St. Víkingur nr. 104
Fundur mánudag 24. þ.m. kl. 8,30
stundvislega. St. Freyja nr. 218
kemur í heimsókn. Dagskrá fund-
arins:
1. Móttaka heimsækjanda.
2. Inntaka og önnur' íundarstörf.
3. Hagnefndaratriði.
4. Danssýning.
i 5. Leikþáttur.
Eftir fund' verður sameiginlegt
kaffi o. fl. til skemmtunar.1—? Fjöl-
sækið, félagar. ■—- Aðrir lemplarar
velkomnir. -— Æ.t.
Frey juf élagar!
Munið heimsóknina til stúkunnar
Vikings annað 'kvöld kl. 8,30. Æ.l.
—mi—iiii—mi—.u»—»mt—mi—nn—mi——nn—im——tiu—mu
Barnastúkan Æskan nr. 1!
Fundur í dag á venjulegum stað
og tíma. -— Gæzlumenn!
St. Morgunstjarnan nr. 11
• Fundur m'énudag kl. 8.30. Bræðra-
kvöld: —' Allar stúkusysturnar sér-
staklgga boðnnr velkomnar á fund-
inn.Verðið við óskum vorum og
mætið sem flestar, því „ékki er gott
að maðurinn sé eins.amall“.
Bræðranefndin.
Samkomur
Krislnihoðshúsið Betanía,
Laufásvegi 13.
Sunnudagurinn 23. marz: Sunnu-
dagaskólinn kl. 2. — Almenn sam*
koma kl. 5 e.h. — Cand. theol. Gunn
ar ■ Sigurjónsson talar. — AUir vel-
komn i r.
K. F. U. M.
- Kl. 10 f.h. Sunnudagaskólinn. KI.
10 f.h. Barnaguðsþjónusta í Fossvogs-
kirkju. Kl. 1,30 e.h. Y.D. og V.D. Kl.
5 $.h. Unglingadeildin. Kl. 8,30 e.h.
Samkoma. Tveir'ræðumenn. — Ffni:
Heimsslitavonir. Allir velkomnir.
K. F. U. M. og K., Ilafnar f irði!
Almenn samkoma í kvöld kl. 8,30.
Séra Sigurbjörn Einarsson próf.
talar: •—
Fíla'deiíía!
Almenn samkoma kl. 11. Sunnu-
dagaskóli kl. 2. Safnaðarsamkoma kl.
4. Almenn samkoma kl. 8,30.
HjálpræSislierinn!
Sunnudag kl. 11: Samkoma. — Kl.
14: Sunnudagaskóli. — Kl. 20,30:
Samkoma. — Þriðjudag, fimmtudag,
laugardag: Vakningarsamkomur. —
Majór og frú Bárnes stjórna. — Allir
Velkomnir.
Á Bræ'Sraborgarstíg 34!
Sunnudagaskóli kh 2. -— Alrrlenn
samkoma ;ki.- 8,'30. Alílr velkomnir,
Almennar sainkomur
Boðun Fagnaðarerindisins ,ej á
sunnndögum kl. 2 og 8! é.h'í íÁust-
lirgötu 6, Hafnarfirði.
Innilegar þakkir til barna minna, tengdabarna, syst-
kina, sveitunga og annarra vina, sem' með heimsóknum,
gjöfum, skeytum og vinsamlegum orðum glöddu mig á
sextugsafmæli mínu þann 14. marz s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Sighvatur Andrésson,
Ragnheiðarstöðum.
Hjartans þakkir fyrir gjafir, heimsóknir, heillaskeyti
og aðra vináttu mér sýnda á sjötugsafmæli mínu 12. þ. m.
Sérstaklega þakka ég hjónunum Þórdísi og Sigurði
Pálssyni, Framnesvegi 22 A", sem höfðu opið hús fyrir
gesti mína áðurnefndan dag.
Guðjón Jónsson.
TILKYNNING
um bótagreiðslur almanna-
trygginganna árið 1952
Yfirstandandi bótatímabil almannatrygginganna hófst
1. janúar s.l. og er nú almanaksárið, í stað þess, sem
áður var frá 1. júlí til 30. júní árið eftir.
Lífeyrirupphæðir þær, sem greiddar eru á fyrra helm-
ingi ársins 1952, eru ákveðnar til bráðabirgða með hlið-
sjón af bótum síðasta árs og upplýsingum bótaþega. Sé
um tekjur að ræða, sem áhrif geta haft til skerðingar á
lífeyri, verður skerðingin miðuð við tekjur ársins 1951
og endanlegur úrskurður um upphæð lífeyrisins 1952
felldur, þegar framtöl til skatts liggja fyrir.
Þeir, sem nú njóta lögboðin ellilífeyris, örorkulífeyris, *
barnalífeyri^ eða fjölskyldubóta, þurfa ekki ,að þessu
sinni, að sækja um framlengingu lífeyrisins. Hins vegar
ber öllum þeim, sem nú njóta samlcvæmt heimildar-
ákvæðum almannatryggingarlaganna, að sækja á ný um
bætur þessar, vilji þeir áfram njóta þeirra.
Hér er um að ræða örorkustyrki, ekkjulífeyri, maka-
bætur, bætur til ekkla vegna barna, svo og lífeyris
hækkanir.
Umsóknir um endurnýjun bóta þessara, skulu ritaðar
á viðeigandi eyðublöð Tryggingastofnunarinnar, útfyllt
rétt og greinilega eftir því, sem eyðublöðin segja fyrir
um, og afhent urhboðsmanni ekki síðar en 15. maí
næstkomandi.
Áríðandi er að örorkustyrksþegar, sem misst hafa 50
—75% starfsorku, sæki á tilsettum tíma, þar sem ella er
með öllu óvíst að hægt sé að taka umsóknirnar til greina,
vegna þess að fjárhæð sú, er verja má í þessu skyni,
er takmörkuð.
Fæðingarvottorð og önnur tilskilin vottorð skulu fylgja
umsóknum, hafi þau eigi verið lögð fram áður. Þeir um-
sækjendur, sem gjaldeyrisskyldir eru til tryggingarsjóðs,
sanna með tryggingaskírteini sínu eða á annan hátt,
að þeir hafi greitt iðgjöld sín skilvíslega. Vanskil varða
skerðingu og missi bótaréttar.
Umsóknir um aðrar tegundir bóta en þær, sem hér að
ofan eru nefndar, svo sem fæðingarstyrki, sjúkradag-
peninga og ekknabætur, svo og allar nýjar umsóknir um
lífeyri eða fjölskyldubætur verða afgreiddar af umboðs-
mönnum á venjulegan hátt, enda hafi umsækjandi skil-
víslega greitt iðgjöld sín til tryggingasjóðs.
Athygli er vakin á, að bætur úrskurðast frá 1. degi
þess mánaðar, sem umsókn berst umboðsmanni, enda
hafi réttur bótanna þá verið fyrir hendi. Þeir, sem
telja sig eiga bótarétt, dragi ekki að senda umsóknir
sínar, þar sem bótaréttur getur fyrnst að öðrum kosti.
Reykjavík, 15. marz 1952.
Tryggingastofnun ríkisins.
Vinna
Hreingerninga-
miðstöðin
Sító 6813. — Áyallt yanir menn.
i Fyrsta flokks yipn.a,
Hreingemingar og
málaravinna.
Jiikull Hélutslson, málarameistari
Sími 7981. —
Tek aS mér hreingemingar
Sigurjón Guðjónsson, málari. —
Sími 81872. —
Hrcin gerningamiSlunar-
skrifstofan 'ii. :
Hreingernirigar, gluggahreinsun
Simi 7897. — Þórður Einarsson.
Hreingemingastöð
Reykjavíkur
.Simi 2173. Hgfur ávqllt vana (
vandvirka menn, til hreingerning
Ég þakka af heilum hug öllum þeim mörgu, sem heiðr-
uðu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeyt-
um á 50 ára afmæli mínu 15. marz s.l.
Sérstaklega þakka ég systkinum mínum og frú Herm-
ínu og Birni Kristjánssyni og sonum þeirra höfðing-
legar gjafir. — Lifið heil.
Bergþóra Magnúsdóítir,
i i Ásvallagötu 11.
Hefi opnað í dag
nýlenduvöruverzlun á Óðinsgöíu 3, undir
nafninu VERZL. MARCO
Mjög fjölbreyttar nýlenduvörur. Ennfremur alls-
konar smávörur og nauðsynlegustu ritföng.
22. marz 1952.
Marteinn ÞorSteinsson.
i •>
AUÐUIÍ FRÍMANNSDÓTTÍR,
lézt að heimili sínu, Skólabraut 8, Akranesi, laugardag-
inn 22. marz.
Vandamenn.
Föðurbróðir minn,
IIELGI TIIORDERSÉN
trésmiður, Óðinsgötu 6, lézt í Landakotsspítalanum laug- ■
ardaginn 22. þ. mán.
Fyrir hönd vandamanna,
Stefán Thordersen.
SOFFÍA SNORRADÓTTIR
lézt að heimili dóttur sinnar, Grímsstöðum, Reykjavík,
þann 18. marz s.l.
Kveðjuathöfn fer fram í Fríkirkjunni mánudaginn 24.
þ. mán. klukkan 2 e. h.
Jarðarförin ákveðin að Hvanneyri í Borgarfirði, mið-
vikudaginn 26. marz kl. 3 e. h.
Börn og tengdabörn.
Faðir okkar,
GUÐMUNDUR E. GEIRDAL,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 25.
þ. mán. kl. 2 síðdegis.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Ingólfur Geirdal og systkini.
Jarðarför
JÓNS GÍSLASONAR
póstafgreiðslumanns frá Ólafsvík, fer fram þriðjudaginn
25. marz og hefst með húskveðjú að heimili hans, Hjarð-
arholti í Ólafsvík, kl. 2 siðdegis.
Lára Bjarnadóttir.
Hugheilar þakikr flytum við þeim öllum, sem á einn
cða annan hátt sýndu samúð og hlutteknin'gu Við andlát
og jarðarför móður okkar
BJARGAR EINARSDÓTTUR.