Morgunblaðið - 11.05.1952, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.05.1952, Blaðsíða 2
i M0RGZJNBLAÐ1Ð Sunnudagur 11. maí 1952. ÍSAFIRÐI, 7. mai. — Afli var yfirleitt góður í apríl, en heí'ur Jieldur tregast að undanförnu. Aðallega hefur verið róið að vest anverðu út af Arnarfirðinum og jafnvel vestur í Patreksfjarðar- f lóa og hefur aflinn eingöngu ver- ið steinbítur. Afii hefur verið betri h]á heim bátum, sem hafa beitt loðnu, en mun tregari á aildina. I april stunduðu 7 bátar land- xóðra frá ísafirði og varð Vébjörn aflahæstur, með 91 tonn í 13 róðr- um. Haíði hann einnig mestan afla i róðri, rúm 8 tonn. Skip- stjóri á Vébirni er Kristján -Jens- son. Asbjörn fékk 84 tonn, einnig i 18 róðrum. Sæbjörn 69 tonn, :t 16 róðrum, Gunnbjörn 44 tonn í í) róðrum, Bryndís 25 tonn í 9 xóðrum. en hún hætti um 23. apríl. Jódís 22 tonn í 4 róðrum, en hún hóf róðra 25. april og JVTorgunstjarnan 16 tor.n í 8 róðr- um. í>rír línubátar voru á útilegu og varð Hafdís aflahæst með 34 tonn. Freydís fékk 69 tonn og Ásúlfur 15 tonn en hann hætti um 20. apríl. Útilegubátarnir eru xlú aliir hættir línuveiðum og eru nú að búa sig á togveiðar. Isafjarðarbátarnir beittu ein- göngu með síld, nema útilegubát- arnir, sem munu eitthvað hafa beitt loðnu. Afli ísafjarðarbátanna hefur að mestu leyti verið frystur og var Íshúsíélag ísfirðinga búið að írvsta um 5800 kassa og Norður- tanginn h.f. 9600 kassa um síð- Tistu mánaðarmót. Togararnir hafa báðir verið á saltfiskveiðum að undanförnu og hafa lagt afl- ann upp hér á ísafirði. Þeir hafa undanfarið verið að veiðum á Sel vogsbanka, en eru nú komnir vest ur, en afii hefur verið mjög treg- íir undanfarin ár og vírðist vera algjörlega fisklaust hér fyrir vestan ennþá. Hnífsdalur: Hnífsdalsbátarnir lirír fóru í 16 róðra í mánuðinum og varð Páll Pálsson aflahæstur, með 88 tonn, en skipstjórinn á Páli er Jóakim Pálsson. Smári fékk 86 tonn og Mímir 82 tonn. Hraðfrystihúsið h.f. í Hnífsdal liafði fryst 10880 kassa frá ára- mótum. Súðavík: í Súðavík voru einnig gerðir út 3 bátar og fóru þeir í 13 xóðra. Aflahæstur varð Valur, ekipstjóri Árni Guðmundsson. Fékk hann 50 tonn í mánuðinum. Sæfari fékk 47 tonn og Andvari 31 tonn. Hefir afli þeirra allur verið frystur. Þingeyri: Frá Þingeyri réru tveir bátar í apríl, Sæhrímnir, sem afiaði 92 tonn í 15 róðrum og Gullfaxi, sem fékk 75 tonn eir.nig í 15 róðrum. Aflinn var eingöngu steinbítur, eins og í ölium öðrum verstöðvum hér vestra. Mesti afli í róðri var 8 Ví tonn. Sæhrímnir og Gullfaxi beittu l æði síld og loðnu. Aflinn hefur allur verið frystur og hraðfrysti- húsið búið að frysta 7500 kassa um síðustu mánaðarmót. Togari Dýrfirðinga, Guðmundur .Túní, hefur að undanförnu verið á salt- fiskveiðum en aílinn hefur verið heldur tregur. Er ætlunin að hann sigii með aflann til Esbjerg. Flateyri: Frá Flateyri :érur einnig tveir bátar í apríl. Afla- hæstur var Sjöfn, skipstjóri Sölvi Ásgeirsson með 97 tonn í 16 róðr- um. Garðar fékk 57 tonn í 15 róðrum. Aflinn var allur hrað- frystur. Einnig landaði togarinn Jörundur frá Akureyri tvisvar í ínánuðinum og var afli hans einnig hraðfr-ystur. Flateyrarbát arnir beittu að mestu leyti loðnu. Suðureyri: Frá Súgandifirði voru gerðir út 5 bátar í apríl og voru þeir langaflahæstir af línu- bátum hér vestra, og þakka menn Úað aðallega því, að þeir beittu eingöngu loðnu. Mestan afla í róðri fékk Gyilir, 15 tonn, en skipstjórinn á honum er Gísli Guðmundsson. Har.n vár etnnig aflahæstur rapríh -með 131 tonn í 16 róðrum. Freyja fékk 120 tonn í 16 róðrum, Súgfirðing- aíli Vestfiarðabáta ur 109 tonn i 14 róðrum, Örn 107 tonn í 16 róðrum og Aldan 105 tonn í 16 róðrum og var aflinn eingöngu steinbítur. Var hann svo til allur frystur og nam fram- leiðsla frystihússins 4.100 kössum í mánuðinum, en framleiðslan frá áramótum, er um 10 þúsund kass ar. Hásetahlutur á Súgandafjarð- arbátunum er frá 11—14 þúsund krónur frá áramótum og er það mun hærri hlutur en verið hefir á undaníörnum árum. — T. Fram sigraði Víking með 2:0 ÞRIÐJI leikur Vormóts neistara- flokks var leikinn í gær á íþrótta- vellinum. Leikar fóru svo að Fram sigraði með 2:0, og voru mörkin skoruð sitt í hvorum hálf leik. Víkingur lék fyrst undan NA- golu, en strax á Tyrstu mínútun- um tókst Fram að skora, og stóð Lárus Hallbjörnsson fyrir því. — Allan hálfleikinn var Víkingur frekar í sókn, en mistókst að hag- r.týa fjölmörg tækifæri og náði liðið mun betri samleik en Fram, en skotmennirnir voru miður sín, I síðari hálfleiknum sótti Fram sig og var þá tekið að gæta þreytu.merkja á leikmönnum Vík ings og' síðasta stundarfjórðung- inn átti Víkingur miög í vök að verjast. Um 5 mín. fyrir leikslok tókst Dagbjarti, v. úth. Fram að komast inn fyrir og skora með föstu skoti. í dag leika KR og Valur og hefst sá leikur kl. 2 e. h. Sýslufundur Norður-ísafjarðarsýslu var haldinn i ísafirði clagana 26.—30. apríl. Var þá þessi mynrl tekin af sýslunefndinni á heimiii sýslumannshjónanna. Á henni sjást taiið frá vinstri, sitjandi: Einar Steindórsson, Hnífsdal, Jóhann Gunnar Ólafsson sýslumaður og kona hans frú Ragna Haraldsdóttir, Eirar Guðfinnsson, Bolungarvík, Jón H. Fjalldal, Melgraseyri og Gunnlaugur Haildórsson sýslu- skrifari, ísafirði. Standandi frá vinstri: Sölvi Betúelsson, Hesteyri, Ásgeir Guðmunclsson, Æðey, Áki Eggertsson, Súðavík, Jónmundur Halldórsson, Stað, Páll Pálsson, Þúfum og Bjarni Sigurðsson, Vigur. Ljósm. Árni Matthíasson. Krabbamelnsféiag siofnað á Akureyri AKUREYRI, 10. maí. — Prófess- or Niels Dungal hefur verið staddur hér á Akureyri siðan á fimmtudag. í gærkvöldi fl^lti hann erindi að Hótel KEA fyrir bæjarbúa um krabbamein og krabbameins- varnir. Var þá haldinn stofn- fundur aö Krabbameinsfélagi Akureyrar og gengu í félagið 50 manns á íundinum. Samþykkt var að halda framhaldsstofnfund og ganga þ>á frá lögum félagsins. Geta þá fleiri gerzt stofnmeðlim- ir félagsins. * Kosnir voru til undirbúnings i framhaldsstofnfundar, læknarnir JJóhann Þorkelsson og Stefán | Guðnason og Jakob Frímanns- son, kaupfélagsstjóri. — H. Vald. Norræmi félaganrea Húsvíkingar ánægð- ií með strand- ferðirnar HÚSAVÍK, 10. maí — Það virð- ast allskiptar skoðanir vera um það, hvernig strandferðum Ríkis- skipa sé bezt fyrir komið. Húsvík- ingar eru mjög ánægðir með það fyrirkomulag, sem upp var tek- ið á s. 1. ári, að skip það, sem fer frá Reykjavík og vestur um land, fari hraðferð til Akureyrar og þaðan með viðkomu á öllum höfnum austur um land og til Reykjavíkur. Hin leiðin er venjuleg strand- ferð frá Reykjavík austur um land til Akureyrar og þaðan hraðferð til Reykjavíkur. Húsvíkingar sjá enga ástæðu til bieytinga á þessu fyrirkomulagi og engin rök hafa heyrst nýrri breytingu til stu4ji- ings. Bæjarstjðrn Húsavíkur. og sýslumaðuc Þingeyjásýslu hafa báðir serit ’forstjórá 'Skipaútgei'8- ar ríkisins þákkir 'fyrir fyrirkomu lagið eirvs og það er-nú með á- skoiun um að það verði látið vera áfram. —Fréttaritari. NORRÆNA félagið í Danmörku gengst fyrir norrænni æskulýðs- vikd dagana 20.—27. júlí í sumar að Hindsgavl á Fjóni. Ungt fólk á Norð.urlöndum á aldrinum 17— 35 ára' er velkomið þangað. Lögð verður áherzla á að skapa mönn- um tækifæri til persónulegra kynna, fyrirlestrar haldnir um norræn menningarmál, norræna samvinnu, árangur hennar og markmið. Þátttakendum mun einnig boðið í ferðalög og gefinn kostur á fjölþættri útivist, íþrótta iðkunum og sólbaði. Þátttöku- gjaldið er 75,00 danskar, og er það allur kostnaður í sambandi við dvölina á Hindsgavl. íslenzkt æskufólk, sem hefur möguleika á því að ferðast íil Danmerkur í su.mar, er hvatt til þátttöku i þessu móti. NÁMSKEIÐ FYRIR SÖNGSTJÓRA Norræna félagið í Svíþjóð gengst fyrir námskeiði íyrir söngstjóra og leiðbeinendur um þjóðdansa dagana 29. júní til 5. júlí. Tilgangur námskeiðsins cr að kjmna þátttakendum söngva, þjóðdansa og leiki Norðuriand- anna og skapa þeim tækifæri til persónulegra kynna. Námskeiðið verður haldið i Bohusgárden, Uddevalia. KENNARANÁMSKEIÐ Norræna féiagið í Danmörku heldur námskeið fyrir kenr.ara dagana 27. júlí til 3. ágúst. Til- gangur námskeiðsins er að fræða kennara frá hinum Norðurlönd- unum um „Danska náttúru“. — Verða haldnir fyrirlestrar um danska clýrafræði, jurtafræði, landbúnað og landafræði. Fimm Islendingum er boðið að taka þátt í námskeiðinu, og er þátttöku- gjaldið d. kr. 120,00. NÁsMSKEIÐ VERKAMANNA Norræna félagið í Noregi gengst fyrir námskeiði verlca- manna i samvinnu við Uppjýs- ingasamband verkamanna í Nor- egi. Verður það haldið dagana 29, júní til 5. júlí í sumar. Þang- að er tveimuf íulltrúum boðið frá Islandi. Fluttir verða fyrir- lestrar til að kynna norsk þr.ál- efni, farið verður í ferðalög? sögulegir staðir skoðaðir og at- vinnufyrirtæki heimsótt. Þátt- tökugjaldið er 125.00 kr. norsk- ar, og er það fyrir allri dvölinni og ferðalögum i Noregi. Þeir, sem áhuga hafa á ofan- nefndum mótum eru eindregið hvattir til að sækja þau. Nánari upplýsingar veita íormaður Nor- ræna félagsins á íslandi, Guð- laugur Rósinkranz, þjóðleikhús- stjóri, og ritari þess, Sveinn Ás- geirsson, hagfræðingur, bæjar- skrifstofunum. maour i aðairæðiS raðar BLAÐINU hefur borizt eftirfar- andi tilkynning frá danska sendi- ráðinu: | „Hans hátign Friðriki níunda hefur þóknazt að sæma Carl Ol- sen, aðalræðismann, fyrra st-igi ( Danriebrogsorðunnar. Aðalræðis- . maðurinn er meðal hinna fyrstu, j sem hlýtur þetta orðustig, sem ( er nýstofnað og svarar til heið- , ursmerkis Dannebrogsmanna áð- ur.“ skarpasíur í sam- keppnmni l-BNSYNINGIN 1952 í SAJÍKEPPNI um merki Iðn- sýningarinnar 1952 bárust rúm- lega 40 tiilögur. Fyrir valinu vai'ð tillaga frá Ásmundi Sveinssyni, myndhöggvara, um að nota högg- mynd hans „Járnsmíði“, sem merki sýningarinnar. Aðrar tillögur verða afhentar eigendum á skrifstofu sýningar- innar, Skólavörðustíg 3, neestu daga. Unnið er nú af kappi við bygg- ingu Iðnskólans, þar sem sýningin verður opnuð þ. 18. ágúst. Öllum undirbúningi sýningarinnar miðar vel áfram og er áhugi iðnaðar- manna og iðnrekenda fyrir þátt- töku í henni mjög almcnn.ur. Er. talið mjög nauðsynlegt, að menn tilkynni þátttöku hið allra fýrsta. ÁKVEÐIÐ hefir verið, að enska atvinnuliðið Brentford komi hing að til lands síðast í þessum mán- uði og keppi fyrsta leik sinn hér 27. maí, en alls mun félagið heyja fimm leiki hér á landi. Það fer héðan 9. júní. Lundúnablaðið Star skýrir frá því, að Brentford hafi ætlað að fara til Mexico og Mið-Ameríku, en sú för hafi farist fyrir og ís- landsferðin því ákveðin. Félagið hefir nýlega fengið hinn fræga knattspyrnumann Tommy Law- ton, en hann kemur ekki með hingað. 15 leikmenn taka þátt í förinni. Brentford er í Il.-deildinni brezku. Stevenson eoo NEW YORK, 10. maí — Næst komandi föstudag fer fram full trúak.jör í Oregonfylki í Banda ríkjunum. Búizt er við að Eisen hower og Kefauver fari með sig ur af hólmi hvor í sínum flokki Republikanar kjósa 18 fulltrúí og demókratar 12. Flokksforust; demókrata er nú orðin mjög ugg andi vegna þess fylgis sem Kefau' er öldungadeildarmaður hefur hlo ið meðal kjósenda við kosning arnar að undanförnu. Telja fróðir menn, að ekki si með öllu útilokað að Adlai Stev enson fylkisStjóri í Ulinois gef kost á sér fyrir þrábeiðni flokks forustunnar ef svo fer að Taf' verður ofan á í flokki repúblikam í sumar. Stevenson er eindregim andstæðingur cinangrunarstefn .ujijrai' og telur öryggi Bandaríkj anna og hins frjálsa heims stofnai í voða með kjöri Ttafts.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.