Morgunblaðið - 13.05.1952, Qupperneq 2
MORGUNBL4ÐIÐ
Þriðjydagur 13. maí 1952 ]
- Alþýðuflokkurinn
Framh. af b!s. 1
vilja ekki á þessg. skoðun íallazt,
að Ihugmyndin uqp etningu í sam-
bandi við Ásgeir Ásgeirsson er
gersemlega úr sögunr.i.
Ef Ásgeir Ásgeirsson og
stuðningsmenn hans gera sér
Jjað ekki l.jóst hlýtur að verða
litið svo á, að fyrir þeim hafi
ckki vakað eiiting heldur það
eitt, að fá Ásgeir Ásgeirsson
kosinn í hæstu virðingarstöðu
iþjóðarinnar með einingu, ef
:það var hægt, en óeiningu, ef
ekki betur.
Þetta er sjónarmið fvrir sig,
en það er víst að það er ekki
sjónarmið yfirgnæfandi meiri
hluta íslenzku þjóðarinnar.
Yiirlýsing um for-
setakjör frá Gunnari
Thoroddsen borg-
arsijóra
SAMKVÆMT stjórnarskránni er
ekki ætlazt til þess, að forseti
íslands hafi pólitísk völd. Stjórn-
skipunin gerir ráð fyrir því, að
tiann sé einingarafl þjóðarinnar,
óháður stjórnmálaflokkunum.
Ég taldi eðlilegt, að reynt yrð:
að ná allsherjarsamkomulagi um
íorsetakjör. Þegar það tókst ekki,
iagði ég til í flokksráði Sjálf-
stæðismanna, að flokkurinn byði
ekki fram og tæki ekki flokkslega
efstöðu til málsins.
í samræmi við þessa skoðun
iýsi ég yfir því, að ég-tel mig og
jaðra Sjálfstæðismenn alveg
ébþndna af samkomulagi því,
ssm meirihluti flokksstjórnar
stjórnarflokkanna stanaa að.
lariakór IsafjarSar
hylltur á jm'fugs-
afmælinu
ÍSAFIRÐI, 12. maí. — Karlakór
ísafjarðar minntist 30 óra af-
mælis síns með samsöng í Al-
þýðuhúsinu á ísafirði s. 1. laug-
«udagskvöld. Á efnisskránni voru
>13 lög eftir innlenda og erlanda
höfunda. Söngnum var vel tekið
af áheyrendum, sem hylltu kór-
ánn og söngstjórann, Ragnar H.
Rágnar ákaft. Varð kórinn að
endurtaka mörg lögin og syngja
r.okkur aukalög.
í lok efnisskrárinnar stjórnaði
íyrsti söngstjóri kórsins, Jónas
Tómasson, tónskáld, lagi, sem
tiann hafði sjálfur samið, og að
Jokum stjórnaði Högni Gunnars-
eon. sem var söngstjóri kórsins í
€ ár, tveimur lögum. Voru þeir
fcáðir ákaft hylltir.
Söngnum lauk með því að kór-
tnn söng tvö aukalög undir
etjórn núverandi söngstjóra,
Jíagnars H. Ragnars. Einsöngvaaá
tneð kórnum var Gísli Kristjáns-
Bon, en frk. Elisabet Kristjáns-
«ióttir, aðstoðaði við hljóðfærið.
Að söngnum loknum bauð
ctjórn kórsins söngfélögum og
gestum til kaffidxykkju í kjall-
.ura Alþýðuhússins. Voru þar
fluttar margar ræður og lesnar
vpp kveðjur og árnaðaróskir,
sem kórnum höfðu borizt í tilefni
afmælisins. Síðan var stiginn
dans fram eftir nóttu. — J.
Eisenhower í Kaupmannahöfn
Mynd þessi er tekin af Eisenhower hershöfðingja á Kastrup-
flugvellinnm í Kaupmannahöfu. Xit vinstri á myndinni er Ilarald
Petersen iandvarnarráðherra Ðana. Við hlið hans gengur Quistgaard
aðmíráll yfirmaður iandvarnanna.
Mfkil vinna við nýfingu aflans
Frá fréttaritara Mbl.
á BOdudal.
BÍLDUDAL, 0. maí. — Prýðis
góður steinbítsafli var hér í apríl-
mánuði h.já línubátum. Komst afl-
inn alit upp í 16 smálestir í sjó-
ferð. Aftur á móti gat varla heit-
ið að þorskur sæist á línuna, þó
að beitt væri loðnu. Kom jafnvel
fyrir að enginn þorskur fékkst
á yfir 30 bjóð, er þetta algjört
einsdæmi hér.
I kynabfðr tll #
Bandaríkjanna ■'
FARINN er í kynnisför til Banda
ríkjanna Bragi Sigurjónsson rit-
Btjóri Alþýðumannsins á Akur-
«yyi. Fer Bragi í þessa kynnisför
ásamt 10 biaðamönnum frá sjö
aðaldarríkjum Atlantshafsbanda-
ttagsins.
iHópurinn mun ferðast víða um
Byndarikjn og skoða ýmis mann-
viýki og sögufræga staði, ,og eins
rnfin hópurinn kanna flotabæki-
,og. íluggtöðyar._
300 SMAL A BAT
Afli bátanna í april var sem
hér segir: M.b. Jörundur Bjarna-
son 156 smálestir, m.b. Sigurður
Stefánsson 142 smál. og Svanur
sem byrjaði eftir iiáska 67 smál.
Frá vertíðarbyrjun til 1. mai er
aflinn orðinn tæiiar 300 smálestir
hjá þeim m.b. Jörundi og m.b.
Sigurði og er það óvenju gott.
Einn bátur, m.b. Kári, hefur
stundað rækjuveiðar frá páskum,
hefur hann aflað ágætlega eða um
8 smálcstir. Rækjan er fryst heil
og pökkuð til útflutnings í hrað-
frystihúsinu hér.
ÁGÆT ATVINNA
Atvinna var ágæt í mánuðinum,
en nær eingöngu í iiraðfrystihús-
inu við nýtingu aflans. Greidd
vinnulaun h.já hraðfrystihúsinu
í apríl-mánuði voru 146 þúsund
krónui'. Það sem af er maí hefur
lítið verið róið, stafar það aðallega
af beituskorti, en aðallega hefur
verið beitt frystri loðnu.
VEÐURFAR
Veðiii'far hefur verið ágætt og
einmuna blíða frá páskum til mán-
aðarmóta. Smá noiðangarð gerði
fyrri hluta þessarar viku, en snjó-
koman, sem var á norðanverðum
Vestfjörðum náði ekki hingað svo
nokkru næmi.
j SAUÖBURÐUR
, Sauðburður er að hefjast hér í
þorpinu, en margir eiga hér fé.
H.já bændum byr.jar sauðburður
ekki fyrr en eftir miðjan mánuð-
inn.
VEGABÆTUR
Jarðýta ræktunarsambandsins
hefur unnið að því undanfarna
daga að ryðja akveginn út í
KetildaLi, fellur alltaf nokkuð á
Ketiidalaveginn á hver.jum vetri,
enda iiggur nokkur hluti hans ut-
an í brattri f.jallshlíð. Einnig er
byrjað lítilsháttar á að lagfæra
veginn inn í Suðurfirði.
Jörð er iöngu orðin auð í byggð
og fremur snjólétt til fjalla.
—Páll.
Aðalfundur Kaup-
félags Eyfirðinga
AKUREYRI, 12. maí. — Aðal-
fundur Kaupfélags Eyfirðinga
lauk 8. maí s. 1. Vörusala félags-
ins jókst um 40% að krónutali
1951 og' fastir sjóðir hækkuðu
um 1—1% milljón króna. Ann-
ars er rekstrarafkoma félagsins
svipuð og 1950.
Félagið hefir haft opnar 15
sölubúðir á Akureyri auk mjólk
ur- og brauðbúða. Samþykkt var
að greiða félagsmönnum af á
góðaskyldum viðskiptum í stofn
sjóð og endurgreiða 5 aura af
benzínlítra.
Þórarinn Kr. Eldjárn og Eiður
Guðmundsson voru cndurkosn-
ir í stjórn félagsins og Ármann
Sigurðsson var kjörinn endur
skoðandi í stað Valdimars Páls-
sonar, er baðst undan endur-
kosningu. — H. Vald.
Erlingur Pálsson endur-
kjérinn formaður SSÍ
AÐALFUNDUR Sundsambands íslands var haldinn i sambandi við
Sundmeistaramót íslands, er að þessu sinni var háð í Hveragerði
um síðustu helgi, eins og frá hefur verið skýrt. Sundsamband ís-
lands hefur nú starfað í rúmt ár. Á árinu hefur það m. a. stað-
fest 22 íslenzk met I sundi, staðið að keppni utanbæjarmanna við
Reykvíkinga og á annan hátt stuðlað að eflingu sundíþróttar-
innar í landinu.
Tvö héraðssaxnbönd gerðust
aðilar að Sundsambandinu á
árinu, og er þá tala héraðs-
sambauda og sundráða innan
Sundsambandsins komin upp
í 13.
STJÓRNARKJÖR
JErlingur Pálsson, ..yfiíIÖgreglu-
þjpnn var einróhia' bndúrkjörinn
forseti sambandsins, en aðrir i
stjórn þess Logi Einarsson, Þórð-
ur Guðmundsson, Guðjón Ingi-
mundarson og Stefán Þorleifsson.
í varastjórn voru kjörnir Ragn-
ar Vignir, Ingvi Rafn Baldvins •
son og Ögmundur Guðmundsson.
Á aðalfundinum ríkti mikill
áhugi fyrir íramgangi sundmála
pgl eflingu suhdsambandsins.
Kómu fram, ýmspr tyjpgur varð-
andi þau málefni.
Fróðlegf var að kynnasf
skófamálum í Bandaríkjunum
Samtal við ftak Jónsson skólastjóra.
FYRIR skömmu er ísak Jónssonj
skólastjóri kominn heim úr kynn- J
isför um Bandaríkin, og lætur
hann vel yfir fÖrinni og þeim
árangri er hún hafði í för með
sér fyrir hann. — Ég hefi tekið
með mér hingað heim mjög mikil
verkefni til að vinna úr í sam-
bandi _við skóla- og uppeldismál,
sagði Isak, er hann ásamt Nils W.
Olss.on fulltrúa í sendiráði Banda
rikjanna, ræddi við blaðamenn í
gærdag um vesturförina.
Isak Jónsson, sem hefur verið
skólastjóri æfingaskólans í
Grænuborg um 20 ára skeið, er
nú í ársfríi en vestur til Banda-
ríkjanna fór hann í nóvembci;-
mánuði síðastl. og kom úr þeirri
för 1. mai síðastliðinn. Vestra
hefur hann heimsótt mikinn
fjölda af skólum og rætt við ýmsa
sérfræðinga þar um skóla- og
uppeldismál. — I þessum efnum
er mjög erfitt að gera nokkurn
samanburð við fræðslukei fi okk-
ar, því bæði eru þau mjög ólík og
hvort um sig hafa síná góðu kosti
og líka ókosti, sem ég get ekki
gert tæmandi skil í stuttu máli.
MARGT MERKILEGT
AÐ GERAST
í skólamálum Bandaríkia-
manna er margt mjög merkilegt
að gorast. — Það, sem mér þótti
einna athyglisverðast var, hve
mikla rækt skólarnir leggja við
að skapa nemendunum skilyrði
til að leggja stund á sérnám. Eins
þótti mér mjög athyglisverð
ýmiss konar próf, svo sem stöðu-
valspróf meðal unglinga, afkasta-
getupróf. Hér fékk ég ýmsar góð-
ar hugmyndir, sem ég síðar mun
vinna úr og reyna að laga eftir
íslenzkum staðháttum. Meðal
þess, sem ég kynntist og varð
mjög hrifinn af, er nokkurskonar
skuggamyndavél, sem nota má
við lestur, reikning og átthaga-
fræði. — Slíka vél keypti ég
vestra með það fyrir augum að
nota hana bæði við kennslu kenn-
araefna og eins barna.
BARNADEII.DIR VIÐ
KENNARASKÓLA
Vestur í Bandarikjunum er
mjög stefnt að því nú, að í sam-
bandi við kennaraskólana starfi
barnadeildir og eru þess dæmi,
að allt niður í tveggja ára börn
séu í þeim deildum. fsak taldi
það mjög æskilegt fyrirkomulag
við kennaraskólanám, að kenn-
arar geta stundað þar sérnám
eftir eigin ósk.
ísak kvaðst undra það mjög
hve kennslan í hinum stóru og
fjölmennu skólum væri persónu-
leg gagnvart hverjum einstökum
nemanda. Þetta er gert með góð-
um árangri í skólum, þar sem
fleiri þúsund nemendur stunda
nám, enda kappkosta Bandaríkja-
menn að haga kennslunni þannig,
að hún sé sem persónulegust.
VINNA IVIEÐ NÁMI
Vestur í Bandaríkjum tíðkazt
það mjög, að menn stundi at-
vinnu meðfram námi, iafnvel
þeir, sem leggja stund á lögfræðí
eða einhver önnur fræði, vinna
á daginn í verksmiðjum en eru
í skóla á kvöldin. Þetta fyrirkomu
lag við nám, sagði ísak, að sér
virtist mjög athyglisvert og taldi
það hafa ýmsa góða kosti.
NÝ GERÐ BARNASKÓLA
ísak Jónsson sagði, að nú væru
einnar hæða barnaskólar að ryðja
sér til rúms í Bandaríkjunum.
Þeir eru mjög heppilegir og rúma
flestir milli 400 og 500 börn, en
í hverri skólastofu, sem eru miklu
stærri en skólastofur hér, eru
venjulega 25 nemendur.
ísak gerði sér mikið far um
að kynnast kennsluaðferðum við
nám yngri barna, en einkum
lestrarkennsluna, og einnig átt-
haga- og reikningskensluna.
Meðan ísak dvaldi vestra veitti
Bandaríkjastjórn honum fjögurra
mánaða styrk ásamt greiðslu
ferðakostnaðar í landinu og aðra
ferðina borgaði stjórnin. Á þess-
um styrki ferðaðist ísak til 10
fylkja Bandaríkjanna, til að
kynna sér skólamál, en þau eru
óiík í hverju hinna einstöku rikja
Ýmsir menn hér heima greiddu
götu hans í sambandi við förina
og eru meðal þeirra utanríkisráð-
herra, borgarstjóri, fræðslumála-
stjóri og skólastjóri Kennaraskól-
ans, auk sendiráðs Bandaríkj anna
hér. Kvaðst ísak vera þessura
aðilum öllum mjög þakklátur og
kvaðst vona að sér tækist að
vinna svo úr verkefnum þeim, er
hann tók með sér heim, að þau
mættu verða öðrum til einhvers
gagns.
Söngskemmlufl
Karlaskórsins Geysis
AKUREYRI 12. maí. — Karla-
kórinn Gevsir, söngstjóri Ingi-
mundur Árnason, hélt söng-
skemmtun í gær í Nýja bíói,
Þetta var eina söngskemmtunin,
sem kórinn heldiy opinberlega
áður en hann leggur af stað í
söngförina til útlanda 16. þ.m.
Kórinn söng mörg af þeim lög-
um, er hann hefir á söngskrá
sinni — þó aðallega íslenzk. —<
Húsið var fullsetið, og tóku til-
heyrendur söngnum ágætlega,
Einsöngvarar voru Hermann
Stefánsson og Kristinn Þorsteins-
son. Undirleik annaðist Árni
Ingimundarson. — Söngstjóran-
um bárust bljóm. — H. Vald.
Svar Vestnrveldanna
una Þýzknlnndsmálin
LUNDUNUM, 12. maí. —
Talið er, að svar Vestur-
veldanna við síðustu orðsend
ingu Rússa um Þýzkalands-
málin verði afhent Krelm-
mönnum á morgun, (þriðju-
dag). Sérfræðingar hafa nú
samið uppkast að svarinu og
má vænta,- að ríkisstjórnir
Vesturveldanna staðfesti það
innan 24 klukkustunda.
í orðsendingu Rússa frá
10. apríl, er vísað á bug
þeirri tillögu Vesturveld-
anna, að nefnd Sameinðu
þjóðanna kánní möguleika
til samþýzkra kosninga. I
svarinu nú cr talíð að Vcst-
urveldin haldi fast við þessa
tillögu og taki jafnframt
fram, að þau séu fús að fall-
ast á hverja þá tillögu Rússa
sem geri ráð fyrir skipun
hlutlausrar kosningancfndar.
Þá er talið að Vesturveldin
geti fallizt á fund stjónarfull-
trúa sinna og Rússlands um
Þýzkalandsmálið með því
skilyrði, að samkomulag ná-
ist um skipun í kosninga-
nefnd og valdssvið hennar.
Loks taka Vesturveldin fram
í’5 þau geti ckki fallizt á
Oder-Neisse línuna, sem
lanáamæralínu á ausíúr-'
fnörkun Þýzkkldrfdsí. * ‘.'i 1" *■}