Morgunblaðið - 13.05.1952, Side 6
6
MORGUISBLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. maí 1952 ^
?2 LAMDBUNAÐARJEPPI
i
j Góður Willys Jeppi smíðaár 1947 til sölu. ;
j Upplýsingar hjá TROLLE & ROTHE H. F.
z
: Klapparstíg 26. ;
Z '
• '
'■•■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■•■■■■■■■■•■■■■■■■■•■•■■■■■■■■■■•••■*■■■■■■•■■•
■ »
HLJÓIMLEIKAR
■ ■
■ ■
■ haldnir 2. páskadag, endurteknir í Aðventkirkjuríni í ■
■ ■
: kvöld kl. 8, vegna fjölmargra tilmæla. — Ungmennakór :
■ ■
■ Hlíðardalsskóla syngur, einsöngvar, tvísöngvar, píanó- j
■ leikur o. fl. — Aðgangur ókeypis. ■
: Aðventsöfnuðurinn. ;
■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■•
■■■■■■■■
3 herbergi ot$ eldhús
■ ■
■ ■
í í steinhúsi ásamt V\ hektara ræktað lands skammt utan :
• ■
■ við bæinn er til sölu og laus til íbúðar nú þegar. j
■ ■
: Semja ber við ;
! KONRÁÐ Ó. SÆVALDSSON *
■ ■
■ löggiltur fasteignasali, j
; Austurstræti 14 — Sími 3565 *
■ AMERÍSK j
sendif erðabif reið
■ B
% tonns, model 1941 TIL SÖLU. — Bifreiðin er vel :
■ ’ ■
; útlítandi og í góðu lagi. Mikið af varahlutum fylgir. — j
: Til sýnis á Holtsgötu 14 A, frá kl. 5—8 e. h. í dag. ;
Vz húseiyn við Miðbæiim |
TIL SÖLU. Nánari upplýsingar á skrifstofu j
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar ;
& Guðmundar Péturssonar, Austursræti 7,
símar 2002 o? 3202.
AÐVÖRUN
til kaupenda
Morganblaðsins
Athugið að hætt verður án frekari aðvörunar að senda
blaðið til þeirra, sem ekki greiða það skilvíslega. Kaup-
endur utan Reykjavíkur, sem fá blaðið sent frá afgreiðslu
þess hjer, verða að greiða það fyrirfram. — Reikninga
verður að greiða strax við framvísun og póstkröfur innan
14 daga frá komudegi.
Jakob Kristinsson fyrrverandi
fræðslumálasfjóri sjötugur
LANGLÍFI hefur orðið svo algent
síðari áratugi, að það þykir vart
merkilegt þótt menn verið sjötug-
ir. Sú mun og raun ó orðin vegna
betra viðurværis, hóflegs starfs-
tíma, góðrar heilsugæzlu o. fl.
o. f]„ að aldraðir menn bera sig
nú eins og miðaldra gerðu fyrir
hálfri öld eða svo.
Hann Jakob Kristinsson kemst
í dag í tölu þeirra manna, sem
lifað hafa sjö áratugi. Hann er
svo knálegur og léttur á velli, að
margur maður helmingi yngri
má gæta sín að hann sýnist ekki
mun eldri en Jakob Kristinsson.
Hér er ekki ástæða til þess að
rekja ætt og uppruna Takobs
Kristinssónar, því að um það er
flestum kunnugt.
„Djúp vötn hafa minnstan gný“
segir máltækið. Þetta má með
sanni heimfæra upp á .Takob
Kristinsson. Yfirlætislausari,
djúphyggnari og drenglundaðri
mann hef ég aldrei þekkt. En
kynni okkar og samskipti urðu
fyrst daglegt brauð þegar hann
varð fræðslumálastjóri. Þær
spurnir hafði ég af honum áður
sem skólamanni og spaklegum
ræðusnillingi, að ég hugði gott
til samveru og samstarfs við hann
í Arnarhvoli. Þau ár, sem Jakob
Kristinsson stjórnaði fræðslumál-
unum, verða mér ætjð minnis-
stæð og lærdómsrík. Ég fann og
skildi, hvernig leitandinn og
drengskaparmaðurinn fór að því
að finna það, sem gott var í
hverju máli og beina því á þær
brautir, sem til farsældar máttu
verða.
DRENE
SHAMPOO
DRENE er sennilega heims-
ins vinsælasta og mest not-
aða hárþvottaefni.
DRENE fæst í þrem stærð-
um. —
DRENE er einmitt það sem
hentar yðar hári bezt.
Umboðsmenn:
Sverrir Bernhöft h.f.
I Það vita þeir gerst, sem reynt
hafa, hversu notalegt það er að
sitja hjá Jakobi Kristinssyni og
, hlýða á íhuganir hans og skýr-
ingar á mannlífinu og þá miklu
’alúð, sem hann leggur i að vekja
samúð, skilning og sannleiksást
(á þvi, sem verða má til þess að
Ígöfga og þroska mannssálina.
Hvort sem Jakob Kristinsson
flytur ræðu eða ritar, þá er mál
hans meitlað o-; hugsunin hnit-
miðuð og ljós. Það er alltof sjald-
an, sem fólk fær að hlý§a á hann.
Gott er kunningjum og vinum
Jakobs að vita hann hressan i
anda og við góða heilsu hiá
ágætri og afburða umhyggjusamri
i konu sinni, Ingibjörgu Tryggva-
dóttur, ættaðri úr Bárðardal. —
Heimili þeiria hjóna í Nökkvavog
26, er íil fyrirmyndar.
Margir munu senda Jakobi
Kristinssyni hlýjar hugsanir og
kveðjur í dag og árna honum
alls hins bezta. Og ég seg'i að lok-
um við hann:
Lifðu hcill og sæll sem nllra
lengst.
Helgi Elíasson.
1 ST U LSC A
óskast i vist. 9 manns í
heimili. Frí annað hvort
kvöld og annað frí cftir
samkcmulagi. Öll nýtíuku
heimilistæíd. Hátt kaup. —
Tilboð merkt: „Húshjálp —
11“ leggist inn á afgreiðslu (
blaðsins fyrir fimmtudags- 1
kvöld. — 1
Tapað
ICvenarnihandsúr
(gullúr með svartri plastic-
ól) tapaðist 11. þ.m. á leið-
innj: Hólavalla-, Blómvalla-,
Brávallagata að viðkcmustað
SVR við Elliheimilið, hrað-
ferðarvagn kl. 23.30; við-
komustað Lönguhlíð að Ból-
siaðarhlíð 12. Vinsamlega
látið vita sima 7578,
ilvernig má fá betri rakstur
Notið blaðið með hinu haldgóða biti.
Ifvert blátt Gillette blað, er pakkað þannig í umbúð-
irnar, að hin bitmikla egg snertir hvcrgi pappírinn.
Þetta tryggir, að hvert blað er jafn hárbeitt og alltaf
tilbúi-3 að gefa þann bezta rakstur, sem völ er á.
/
a
Giliette
Dagurinn byrjar vel með Gillette
Aðalfundur Fríkirkju
safnaðarins í Rvk
AÐALFUNDUR Fríkirkjusafnað-
arins í Reykjavík var haldinn
laugardaginn 10. maí í Fríkirkj-
unni. Fundurinn var afar fjöl-
mennur og fór vel og virðulega’
fram. Fundarstjóri var kosinn
Jón Emils cand. jur., en fúrídar-
ritari Hannes Guðmundsson,
stud. theol.
Ur stjórn áttu að ganga J.
Bjárni Pétursson, formaður safn-
aðarstjórnar, frú Ingibjörg Stein-
grímsdóttir og frú Pálína Þor-
finrísdóttir. Voru þau öll érídur-
kosin með samhljóða atkvæðum.
Vara-saínaðarfulltrúi var kos-
inn Valdimar Þórðarson, kaup-
maður. — Hannes Guðmundsson
stud. théol. var endurkosinn safn
aðarráðsmaður og Óskar B. Er-
lendsson endurkosinn endurskoð-
andi.
Formaður safnaðarstjórnar
Bjarni Pétursson, framkvæmda-
stjóri, flutti ýtarlega greinar-
gerð um störf stjórnarinnar og
afkomu safnaðarins á umliðnu
ári. — Þrátt fyrir hin afar lágu
safnaðargjöld (voru árið 1939 kr.
15.00, en innheimt á árinu 1951
með kr. 20.00), þá höfðu eignir
safnaðarins aukizt á árinu, sem
bar mest að þakka rausnarlegum
framlögum frá Kvenfélagi Frí-
kirkjusafnaðarins og Fóstbræðra-
félagi safnaðarins.
Skýrt var frá því á fundinum,
að Kvenfélag safnaðarins hefði
samþykkt að greiða allan kostnað
við lagningu á hitaveitu í Frí-
kirkjuna og á þann hátt létta
undir hinum sívaxandi hitakostn-
aði. Verkið verður hafið seinni
hluta sumars þar sem teikningar
af hitalögninni eru nú tilbúnar.
Þá hefur Fóstbræðrafélag safn
aðarins tekið að sér að greiða
allan kostnað við gagngera við-
gerð og hreinsun á orgeli kirkj-
unnar, sem mun vera hið stærsta
og fullkomnasta kirkjuorgel hér
á landi. Pálmar ísólfsson sér um
verkið.
Formaður safnaðarstjórnar
þakkaði þessar rausnarlegu gjaf-
ir, fyrir hönd' safnaðarins, og
minntist sérstaklega kvenfélags-
ins, sem frá stofnun Fríkirkju-
safnaðarins hefur verið stoð og
styrkur kirkjunnar.
Einnig þakkaði hann hið ágæta
starf Kristilegs félags ungra
manna Fríkirkjusafnaðarins ug
drengjakórs safnaðarins, sem
starfað hefur við barnaguðsþjón-
ustur í allan vetur og komið víð-
ar fram við góðan orðstír.
Ytarlegar tillögur um breyting-
ar á lögum Fríkirkjusafnaðarins
lágu fyrir til umræðu og sam-
þykktar. Voru þær allar sam-
þykktar með samhljóða atkvæð-
um, eins og iaganefnd hafði geng-
ið frá þeim. Var þar með gengið
frá því ákvæði, að safnaðarmenn
geta ekki verið skráðir í fíeiri
söfnuði, ef þeir vilja njóta at-
kvæðisréttar síns á safnaðarfund-
um; Formanni og safnaðarstjórn
var þakkað ágætt starf.
Safnaðarstjórn skipa nú þessir
menn: J. Bjarni Pétursson, for-
maður, Kristján Siggeirsson,
vara-formaður, Magnús J. Br.ynj-
ólfsson, ritari, frú Ingibjörg
Steingrímsdóttir, frú Pálína Þor-
finnsdóttir, Kjartan Ólafsson og
Þorsteinn J. Sigurðsson.
Fundurinn allur bar með sér
þann blæ samhugs og einingar,
sem nú ríkir innan safnaðarins.
Að lokum var presti safnaðar-
ins, séra Þorsteini Björnssyni,
þakkað ágætt og óeigingjarnt
starf, sem orðið hefði söfnuðin-
um til heilla og blessunar.
Kennan ræðir við 1
Vishinskí
MOSKVU, 10. maí — Hinn ný-
skipaði sendiherra Bandaríkj-
anna í Moskvu, George F. Kenn-
an, gekk í dag á fund Vishinskís
utanríkisráðherra í fyrsta sinn og
ræddi við hann í stundarfjórðung.
Kennán er fyrsti bandaríski sendi-
herrann í Rússlandi sem kann
rússnesku. —Reuter.