Morgunblaðið - 05.07.1952, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.07.1952, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 5. júlí 1952 111« Flóttafólk kom til Liibeck Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavfk. Framkv.stj.: Sigfús Jónssoo. Ritstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgOarm.) Lesbók: Árni Óla, sími 304i. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiftola: Austurstrœti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 é mánuði, imianlanda. í Iausasölu 1 krónu eintaklð. í MARGA mánuði hafa Rússar og kommúnistar um allan heim hamrað á þeirri staðhaefingu að her Sameinuðu þjóðanna í Kóreu, og þá fyrst og fremst Banda- ríkjamanna, væri tekinn að beita sýklum í hernaði sínum. Þetta hefur bókstaflega verið uppistað- an í áróðri kommúnista um langt skeið. Herstjórn Sameinuðu þjóðanna hefur harðneitað þessum áburði og lýst hann alger ósannindi og uppspuna. Meðal frjálsia þjóða hefur sú yfirlýsing að sjálfsögðu verið tekin trúanleg, enda bein fjarstæða að Sameinuðu þjóðirn- ar teldu sér það sæmandi að láta heri sina í Kóreu hefja sýkla- hernað. En þrátt fyrir allar yfirlýsing- ar hafa Rússar haldið fast við staðhæfingu sína um sýklahern- að Bandaríkjamanna. Ekkert var því eðlilegra en að fram kæmu tillögur um hlut- lausa rannsókn á sannleiksgildi þessarar þungu ákæru. Fulltrúi Bandaríkjanna i öryggisráðinu lagði því fram tillögu um, að SÞ fælu alþjóða Rauða krossin- um að rannsaka, hvort ásakanir Rússa um sýklahernað hefðu við nokkur rök að styðjast. Æt!a mætti að fulltrúi Rússa hefði tekið þessari uppástungu fegins hendi. Nú var tækifæri komið til þess að fá sannleikann í þessu máli upplýstan. Nú gat allur heim- urinn séð það, hvað raunveru- Iega hefði gerst í þessum mál- um í Kóreu. Alþjóða Rauða krossinum hlaut að vera treystandi til að leiða sann- leikann í Ijós. Óhlutdrægni hans Iiiaut að mega treysta. En þeir, sem bjuggust við, að Rússar vildu fá sannleikann i ljós hafa misreiknað sig herfi- lega. Það kom greinilega í ljós þegar tillagan um óhlutdræga rannsókn þessa máls kom til um- ræðu í öryggisráðinu. Fulltrúi Rússa snérist þar öndverður gegn henni. Hann var algerlega mót- fallinn því að hafin yrði rann- sókn á sannleiksgildi þeirra stað- hæfinga hans eigin stjórnar, að Bandaríkin hefðu beitt sýkla- hernaði í Kóreu. Jakob Malik tók upp harða baráttu gegn því að hlutlaus aðili tæki að grafast fyrir um sannleikann í þessum efnum. Svo langt gekk óvild Rússa gagnvart slíkri rannsókn, að þeir létu fulltrúa sinn í örygg- isráðinu beita neitunarvaldi til þess að hindra samþykkt tillög- unnar um að rannsókn skyldi íram fara. Hafa nú önnur eins vinnubrögð í alþjóðamálum nokkurn tíma sést? Rússar dreifa þeim áróðri út um allan heim að Sameinuðu þjóðirnar séu teknar að nota sýkla í varnarstríði sínu í Kóreu. Þeir láta kommúnista allra landa eta þetta upp eftir sér. Þegar svo að borin er fram tillaga um rannsókn á sannleikgildi þessara sóðalegu ásakana snúast Rússar gegn henni af alefli! Hvaða áiykíun er nú bægt að draga af slíkum baráttu- aðferðum aðra en þá, að Rúss- ar hafi logiö sögunni um sýklahernaðinn upp frá rót- ] um? Þessvegna vilji þeir um- | fram allt koma í veg fyrir að stofnun eins og Rauða kross- inum sé falið að komast fyrir um sannleikann. Sú ráðaþr.eytni Rússa, að láta fulltrúa sinn í, öryggisráðinu beita þar 'neitunarvaldi sínu í þessu máli ber með sér svo augljósan ótta við, að hið sanna komi í ljós í þessu máli, að ekki verður um villst. Sektarsvipurinn skín út úr þessari afstöðu. Allur heimurinn, hver einasti skyni borinn maður, hlýtur að sjá hann. Það er að sjálfsögðu eðlileg afleiðing af þessari neitun Rússa á að rannsókn fari fram, að örygg isráðið lýsi þá opinbera ósann- indamenn að öllum áróðrinum um sýklahernað í Kóreu. Jakob Malik hefur því með beitingu neitunarvalds síns lýst því yfir sjálfur að stjórn hans hafi etið ofan í sig allan þennan áróður. Öll sýnir þessi framkoma Rússa alveg einstæða óráð- vendni og siðleysi í meðferð alþjóðamála. Heimurinn hefur fengið nýja spegilmynd af rússnesku stjórnmálasiðgæði. Það tekur Moskvustjórnina áreiðanlega langan tíma að þvo þann blett af skildi sín- um, sem áróður hennar um sýklahernaðinn hefur sett á hann. Heimurinn hefur feng- ið enn eina sönnun fyrir botn- leysi þeirrar spillingar, sem ej höfuð einkenni hins kommún- íska stjórnarfars. Tvö norræn mót UM ÞESSAR mundir standa yfir tvö norræn mót hér á landi. Er það í fyrsta lagi mót norrænna hjúkrunarkvenna og í öðru lagi mót kirkjutónlistarmanna, sem hófst s. 1. fimmtudag. Fyllsta ástæða er til þess að fagna hinum norrænu gestum, sem sækja þessar samkomur. Margir þeirra koma hingað í fyrsta skipti og fá þar með tæki- færi til þess að kynnast íslándi og íslenzkum málefnum betur en áður. Við þurfum ekki að fara í neinar grafgötur um, að það. er mikill ávinningur fyrir okk- ur. Sem mest og raunhæfust kynni milli hinna norrænu þjóða hafa áreiðanlega mikið gildi fyr- ir þær, og þá ekki hvað síst fyrir íslenzku þjóðina, sem er minnst þeirra og fjarlægust. En það er athyglisvert, að oft verður vart nudds og eftirtalna gagnvart ferðalögum Islendinga héðan að heiman til þátttöku í norrænum mótum í hinum Norð- urlöndunum. Er þá rætt um gjaldeyriseyðslu og allt haft á hornum sér. Hinsvegar fagna ís- lendingar því almennt, að fá heimsóknir Norðurlandabúa hing að heim til sín. En auðvitað kost- ar það þá ekki síður fé en okk- ur að heimsækja þá. Sannleikurinn er sá, að ekkert er eðlilegra og ánægjulegra. en að fulltrúar stétta og starfshópa norrænum mótum i hinum Norð- urlönd og tekið þar þátt í ýmis- konar menningarlegri samvinnu. Siíkar heimsóknir hafa líka sjaldnast í för með sér tilfinn- anlega eyðslu gjaldeyris. En við græðum hinsvegar mikið á þeim. Við treystum menningarleg tengsl okkar við þær þjóðir, sem okkur eru" skyldastar. Við víkk- um útsýni okkar og leggjum grundvöll að auknum skilningi á gildi samstarfs þjóða í miIIK Til þess er að lokum ástæða að þakka hinum norrænu hjújfefiBnarkonurn og kirkju- tónlistarmönrum fyrir koni- una hingað að þessu sinni. — íslendingar biðja þetta fólk að ílytja frændum sínum á Norourlöndum kveðjur og árnaðaróskir. Líjbeck í júnfe ■ MAGNLAUSAR, a S því komnar að gefast upp, komu til Lúbeck, tvær bændafjöl- skyldur, sem flúið höfðu 'rá rússneska hernámssvæðinu. Þær höfðu flúið :"rá heimilum sínum, því að fyrir dyrum stóðu nauðungarflutningar þeirra, samkvæmt "yrirskipun austur-býzliu stjórnarinnar. — Örfáa metra frá vestur-þýzkri grund, frá vestnrbakka Wak- enitz-ár, sem skilur á milli hernámssvæða, misstu bær það litla, sem þær höfðu getað tekið með sér af eignum sín- um og þar heltust tveir i'jöl- skyldumeðlimir úr lestinni. — Húsmóðirin í annarri fjöl- skvldunni féll í skothríð aust- ur-þýzku lögreglunnar á aust- urbakka árinnar og skömmu S'ðar dgukknaði J6 ára sonur hennar ,úti í ánni, þegar bát- ur valt um koll. MEÐ FÁRRA KLST. FYRIRYARA Bændaþorpið Losckwisch í ■ Mecklemburg liggur rétt austan ' við hið alræmda „fimm km. eyðusvæði", sem „alþýðulögregl- an“ hafði' fyrir ííu dögum hreinsað. Vestustu akrar þorps- ins ná þó- inn á „eyðusvæðið“ ■ og þvi komu einnig orð til bænd- anna þar um að þeir skyldu flutt- ir á brott. * Síðan kom lokafyrir- skipun frá stjórnarvöldunum um * „að sakir öryggis ríkisins yrði fólkið í þorpinu flutt burt og : skyldi það sótt eftir nokkrar 1 klukkustundir". YFIRGÁFU ALLT, SEM VAR ÞEIM KÆRAST Þá ákváðu tvær fjölskyldur að bíða ekki lengur boðanna. Nú var ekkert lengur sem batt þau við þennan stað.Frá því á dögum þrjátíu ára stríðsins höfðu ættir þeirra búið þarna, en nú var allt, sem þeim var kærast á þessari jörð þurrkað út. Þau tóku pjönk- | ur sínar saman með helztu minja gripum, sem sárast hefði verið að skilja við, og í kvölöhúminu lagði lítill hópur af stað frá þorp- I inu. Þau ætluðu að freista þess að komast í gegnum allar hindr- anir burt frá ógnunum. Það voru tvær fjölskyldur, hjón, sonur þeirra, 16 ára piltur, og dóttir , 12 ára og hinsvegar hjón, með smábarn mánaðargamallt. Þau ! stefndu fyrst í suðurátt, því að i þau vonuðu, að minna væri um j landamæraverði þar en -norðar ! og nær Lubeck. Þau yrðu að fara I yfir Wakenitz-á, þótt aðeins tvö rþeirra væru synd. I í NÆTURKYRRÐIN ROFIN Allt gekk vel, þar til kom að I „500 metra eyðusvæðinu“ og heldur nú frásögnin áfram, skv. skýrslu flóttafólksíns, er þau i komu til ’Lúbeck: — Það er ' skammt til miðnættis. Þau nema staðar um stund og leggja hlust- irnar við. Allt í einu er nætur- kyrðin rofin. Skothvellir og hvæs andi byssukúlur þjóta skammt frá þeim. Þetta eru engin aðvör- unarskot, heldur er þeim beint tafarlaust að ílóttafólkinu. ÓGNIR í MYRKRINU Nú er að duga eða drepast. Þau taka til að hlaupa eins og fa’tur íoga yfir „eyðusvæðið“, Önnur móðirin heldur á Iiíla barninu í faðmi sínum og þrýstir því að sér. — Skotin hvína í kringum þau og þyrla sandinum upp í andlit þeirra. Nú eru aðeins 400 metrar eftir fram að árbakkanum. Þá viíja konurnar gefast upp. Þær varpa sér til jarðar. Karl- mennirnir reisa þær upp með valdi. Áfram nú! Þarna — það eru hundar! Hvílík ógn, — eru blöðhundar á cftir þeim? Þau brjótast enn áfram, enn hvín í byssukúlum. — Nú fellur eldri konan, móðir 16 og 12 ára Þeffa eru dailegir viðbur^ir á „eyðusvæSinu" barnanna. Maður hennar snýr við , til hennar, en hún hrópar til ; hans. „Það þýðir ekki að bjarga mér, bjargaðu börnunum okkar“. Hann skilur hverskyns er og neidur áfram. i HAND.4N FL.TÓTSINS, SEM SKILUR ATILLI LÍFS OG DAUÐA l Hin komast fram á bakkann og feia sig í kjarri. — Þau hlusta, allt er aftur kyrrt. Vestur- þýzkur vélbátur siglir eftir ánni. ■ Þau gefa honum merki :neð vasa- ljósi, og bátsmenn taka ekki eftir því. Enn bíða þau í ofvæni. Að eins tvö þeirra eru synd. Þa6 eldar á ný. í morgunskímunm sjá þau mann ganga eítir vestur bakkanum. Þau gefa honutn merki, benda á litinn árabát, sem liggur bundinn við vesturbakk- ann, ef hann gæti leyst hann, róið yfir og bjargað þeim. En maðurinn hristir höfuðið og bendir norður fy-rir þau. ■— Þau skilja það, þar eru austur þýzk- ir lögreglumenn. SÍÐASTI SPÖLURINN Enn líður nokkur tími. Það birtir, svo nú er ekki hægt að bíða lengur. Annar maðurinn fer úr fötunum, syndir yfir að hin- um bakkanum til að sækja bát- inn. Iíann kemst klakklaust til baka. Þau fara öll í bátinn, þrjú fullorðin, systkinin tvö, litla barnið og farangurinn. Þau róa hljóðlega, en .á miðri ánni skeð- ur ógæfan. Þau vita ekki hvers vegna, en ofhlaðinni bátskæn- unni hvolfir undir þeim. I Hjónin með smábarnið geta, bæði synt og þau bjargast. Hin halda sér í bátinn. Göngumað- urinn á vesturbakkanum hefur haft gætur á þeim og nú kastar hann sér til sunds og með ein- hverju móti bjargast feðginin. Sextán ára pilturinn hefur hins vegar misst takið á bátnum. Þau sjá hann ekki framar. (Lauslega þýrtt eftir ,Die Welt‘). FjölbreyHasla SUMARLEYFIN eru byrjuð. — Fólk yeltir fyrir sér hvert halda skuli. Marga langar til að sjá sem mest af ættlandi síau og kostur er á. Hefur þú, lesari góður t. d. séð víðiendi Skagafjarðar af Vatnsskarði, yfir Eyjafjörð frá Vaðlaheiði, eða Fljótsdalshérað frá Norðurbrún? Hefur þú séð Ásbyrgi, er sennilega á sér engan sinn líka í öllum heimi? Hefur þú staðið við brún Dettifoss ög horft á eitt voldugasta fallvatn Evrópu? Hefur þú litið inn yfir auðnir íslands af Dimmafjall- garði, séð Vatnajökul og hin tröllslegu Kverkfjöll eða drottn- ingu r.orðuröræfanna, Herðu- breið í sindrandi heiði? Eða Snæ- fell og Austfjarðafjöllin gægjast upp í austri? Hefur þú hvílt augu við spegilflöt Lagarins á kyrru julíkveldi, sólsetur í Norður- Framh. á bis. a Velvákandi skrifar: ÚB DAGLEGJI LtFI Þá var öldin önnur ÞAÐ hefur heldur en ekki hlaupið á snærið hjá þeim, jsem dýrka sólgleraugun engu síður en sjálft sólskinið. Lengst j af hefur úrvalið verið harðla fábrotið, eiginlega hafa allar um- gerðirnar verið eins og glerin ijálf kringlótt og síður en svo skorin við nögl. Sannkölluð kýr- augu. Það var þá helzt liturinn, sem hægt var dálítið að breyta til með, ef nokkuð var. Nú eru uppgangstímar hjá þcim. Rctt gleraugu á réttu 'iefi i EN nú sem sagt er öldin önnur, enda notar hún sér það óspart unga kynslóðin. Augun eru nú , vfirleitt ekki kringlótt, því að það er gamaldags. Tíg!ótt eru þau og sporöskjulöguð, ílöng og íbogin með alla vega krókurn, kimum og öngum. Og spengurnar eru fjölskrúðugar eftir því. Ár- angurinn af allri þessari marg- breytni er svo sá, að menn geta rú valið sér sólgleraugu hver eftir sínum eiginn smekk. Þann- ig eru þau tekin í þjónustu skvevtingar og tilhalds, því að rétt gleraugu setja réttan svip á hverja ásjónu. Eru ekld einhlít OG það mætti bæta því við, að verðið er við allra hæff eins og þeir segja í auglýsingunum. Þetta frá 3—4 krónum, en önnur losa hundraðið. Sólgleraugu eru mestu þaría- þing, Það verður þó að teljast galli, að sum þeirra cru sjóninni til óþurftar. Þau sporna ekki við innrás hættulegra geisla, secn augað verður ekki vart við. Því geta menn horft sér til skcða i birtuna í fullu grandaleysi. í Brúnir menn og hvítir IREYKJAVÍK skiptast menn nú í hvíta menn og brúna, og- fer litai-aftið nokkuð eftir því, hvort viðkomandi . hef- ur fengið sumarleyfið sitt eða ekki. Þó er þessi greining ekki einhlít. Það er alkunna, að sumir setja allan metnað sinn í að verða brúnir á skrokk, svo að ekki sé nú talað um andlitið, því að brúnn maður slær tvær flugur í einu höggi. Það er sagt, að útlit hans sé bæði hraustlegt og gott, Einstaka mönnum tekst meira að segja að vera brúnir árið um kring, svo að aðrir verða grænir af öfund. Iívers vegna er haxm þarna? ER L E N D TJ ferðamennirnir staldra flestir við á Austur- velli. Þar er hjarta bæjarins, ef nokkurs staðar, Alþingishúsið, Dómkirkjan og sjálfur Jón for- seti stendur hátt á stalli og horf- j ir vítt yfir. En hvers vegna er verið að 'hrevkja þessum manni þarna? Það vita gestirnir ekki, ef þeir hpTy ekki leiðsögumann. Örstutt áletrun við líkneski Jóns Sigurðcsonar gæti gefið er- lendum ferðamönnum nokkra ! hugmynd um, hvers konar mann ,er ura að ræða, því að fleStar þjóðir eiga sínar þjóðhetjur. Kvernig væri að kynna hann örfáum orðum á svipaðan hátt og Leif Eiríksson á Skólavorðu- holti?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.